Morgunblaðið - 09.12.1982, Qupperneq 18
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
— söguleg skáldsaga eftir Njörð P. Njarðvík
„10. apríl 1656 voru tveir feðgar
brenndir á báli í Skutulsfírði. Var
þeim gefíð að sök að hafa ofsótt
sóknarprest sinn með göldrum og
valdið honum sárum þjáningum,
andlegum og likamlegum. Að dóm-
inum og aftökunni stóðu tveir
sýslumenn, Magnús Magnússon á
Eyri í Seyðisfírði og Þorleifur
Kortsson, sem hvað mest hefur
komið við sögu íslenskra galdra-
ofsókna.
Um þessa atburði ritaði prest-
urinn séra Jón Magnússon Písl-
arsögu sína þa sem hann leitað-
ist við að réttlæta gerðir sínar.
Sú bók er varnarrit og birtir ein-
ungis sjónarmið prestsins. í
skáldsögunni Dauðamenn hefur
Njörður P. Njarðvík endurskap-
að sögu feðganna, sem brenndir
voru, í dramatískri og spennandi
frásögn."
Svo segir í kápukynningu
nýrrar bókar Njarðar P. Njarð-
vík sem er að koma út hjá Iðunni
um þessar mundir. Dauðamenn
er 150 bls. að stærð og skiptist í
26 kafla.
Hér er sem sagt um sögulega
skáldsögu að ræða, þar sem
heimildirnar eru fyrst og fremst
Píslarsaga Jóns Magnússonar og
dómurinn yfir feðgunum Jóni
Jónssyni yngra og eldra, auk
heimilda um daglegt líf og
atvinnuhætti þessa tíma.
Sagnfræði — skáldskapur
Blaðamaður Mbl. átti stutt
spjall við Njörð í tilefni þessarar
nýju skáldsögu, og spurði hann
fyrst að því hvar mörkin á milli
skáldsögu og sagnfræði lægju.
— Njörður, nú er Dauðamenn
söguleg skáldsaga, hvað gerir
þetta verk þitt að skáldsögu en
ekki sagnfræðiriti?
„Það er til gamall útúrsnún-
ingur við þessari spurningu
þinni um muninn á skáldskap og
sagnfræði. Hann er á þá leið, að
á meðan sagnfræðingurinn
gengur með þá grillu að hann sé
að segja satt, þá dettur skáld-
sagnahöfundinum það ekki í
hug. Annars er stundum sagt —
og þá er ekki verið að snúa út úr
— að sagnfræði segi frá og út-
skýri, en skáldsagan sýni.
Sagnfræðingur má ekki ganga
lengra í ályktunum sínum en
heimildir gefa tilefni til. Hann
getur ekki leyft sér að spinna
upp samtal sem á að hafa gerst
fyrir 300 árum, og hann hefur
enga heimild fyrir. En það getur
höfundur sögulegrar skáldsögu
hins vegar mæta vel gert. Og það
er einmitt það sem ég geri í þess-
ari sögu. Beinagrindina af at-
burðarásinni hef ég fyrst og
fremst úr Píslarsögu séra Jóns
Magnússonar. En ég kemst fram
hjá heimildunum með því að
segja sögu feðganna sem voru
brenndir. Þannig get ég betur
sýnt mína túlkun á þessum at-
burðum.
Eg gef mér líka vissar for-
sendur sem eiga sér litla eða
enga stoð í heimildum. Það kem-
ur hvergi fram í heimildunum
hvernig standi á fjandskap séra
Jóns og feðganna, eða hvers
vegna séra Jón grunar þessa
menn um galdra frekar en ein-
hverja aðra. Ég reyni í sögunni
að búa mér til forsendur fyrir
þessum fjandskap.
Á einum stað í sögunni geng
ég meira að segja gegn heimild-
unum. Ég læt atburð gerast sem
Jón Magnússon segir að hafi
ekki gerst. Ég læt pína Jón yngri
til sagna.
I Píslarsögunni segir séra Jón
að Þorleifur Kortsson hafi spurt
sig hvort ekki væri til töng á
bænum og kol til að hita hana.
„Og virtust mér þau upptök
skynsamleg," sagði Jón Magnús-
son, og harmar að pyntingar-
tólin hafi ekki verið notuð.
Ég læt nota tólin, og það er
einkum af tveimur ástæðum: í
fyrsta lagi vegna þess að mér
finnst ekki alltaf hægt að trúa
orðum prestsins. Og í öðru lagi
af þeim sökum að menn sem
grunaðir voru um galdra voru
oft pyntaðir til sagna — og ég er
ekki aðeins að skrifa sögu þess-
ara manna sem þarna eiga í
hlut, heldur jafnframt að gefa
einhvers konar almenna lýsingu
á galdrafárinu hér á íslandi.“
— Nú er því stundum haldið
fram að séra Jón hafi verið geð-
veikur. Hvað heldur þú um það?
„Píslarsagan er einstök að því
leyti að þetta er í eina skiptið —
á Islandi a.m.k. — svo vitað sé að
maður lýsi því á prenti hvað ger-
ist í eigin sálarlífi við að upplifa
galdra. Það eru þessar lýsingar
séra Jóns sem hafa gert það að
verkum að menn hafa látið sér
detta í hug að hann hafi verið
geðveikur, sennilega haldinn
„schizophreníu".
Á þessum tíma vissu menn
auðvitað lítið sem ekkert um
skitsófreníu, eða þær ofskynjan-
ir sem henni fylgja gjarnan. Það
er því ósköp eðlilegt að séra Jón
hafi dregið þá ályktun að ástæð-
an fyrir vanlíðan sinni væri sú
að hann væri beittur göldrum."
— Heldur þú að séra Jón hafi
ekki gert sér grein fyrir því hví-
líkt níðingsverk hann var að
drýgja?
„Nei, alls ekki. Það kemur
skýrt fram í Píslarsögunni — og
ég held að það sé engin hræsni
— að Jón Magnússon telur sig
ekki aðeins vera að bjarga sjálf-
um sér, heldur einnig þessum
mönnum sem hann lætur
brenna. Hann lýsir þeim þannig
að þeir séu í sjálfu sér ekki vond-
ir menn, heldur ofurseldir hinu
illa valdi sem þeir ráði ekki við.
Og það er þetta illa vald sem Jón
•er að berjast við. Hann álítur sig
vera að gera góðverk, og það er
einmitt hið átakanlega við þessa
sögu.“
Til að gefa lesandanum kost á
því að bragða svolítið á stíl bók-
arinnar Dauðamenn birtum við
hér á eftir, með leyfi Njarðar,
stuttan kafla framarlega úr bók-
inni.
Myrkrið leggst yfir fjörðinn
Sólin er horfin. Sólin er horfin
og sést ekki á ný fyrr en í lok
janúar. Fjörðurinn liggur falinn
í skuggaþrengslum brattra
fjalla. Skammdegismyrkur fer í
hönd. Fyrir kemur að bjarmi
sést á himni ofar fjallsbrúnum.
Rétt eins og óljós minning um
bjarta veröld fulla af sólskini og
hlýju. En hún er fjarlæg í tíma
og rúmi. Bak við þúsund fjöll og
handan við óteljandi nætur. Hér
og nú er veröldin dimm. Hún
hvílir undir skugga hausts og
vetrar og myrkurs. Myrkrið
leggst yfir fjörðinn eins og lok.
Það byrgir alla sýn. Það sést
varla lengur til Guðs nema í
svipulli andrá. Þegar föl himin-
birtan nær að speglast í köldu
logni fjarðarins. En myrkrið er
ekki lengi að gleypa slíka mynd.
Það sígur æ þéttar niður í fjörð-
inn, niður í byggðina, niður í
huga manneskjunnar. Þeir sem
eru á ferli varpa ekki lengur
neinum skugga. Þeir eru sjálfir
orðnir að sínum eigin skugga.
Myrkrið spennir greipar utan
um þá og heldur þeim föstum.
Afl þess er óumflýjanlegt. Það
ríkir í veröldinni.
I þessari skuggaveröld er
skuggi á ferli. Hann líður hljóð-
laust eftir fjörunni, framhjá
bátum og upp Eyrina. Hann
smýgur framhjá kirkjugarði og
milli húsa. Hann leggst á skjái
og snuðrar við dyr. Fyrr en varir
er hann kominn upp á baðstofu-
þekju. Þar hniprar hann sig
saman og samlagast myrkrinu.
Allt verður kyrrt og hljótt.
Myrkrið heldur áfram að þétt-
ast.
Skyndilega er þögnin rofin.
Þrjú hás krunk kveða við.
Ómennskur hljómur þeirra er
krefjandi og þó átakanlegur.
Líkt og örvæntingarkvein. Þau
hverfa inn í myrkrið eins og allt
annað. Hver ætti sosum að sinna
slíkum hljóðum? Koma þau ekki
úr barka þess sem er samlitur
nóttunni og kyrjar söng ömur-
leikans? Þau líða hjá eins og
annað. En nú kveða þau við öðru
sinni. Þrjú í röð. Hærri og
áleitnari en fyrr. Þögnin verður
ekki söm og áður.
Innan stundar er rjálað við
dyr. Skugginn á þekjunni færist
úr stað. Hann lætur sig síga
fram á brúnina og horfir niður.
Þegar gengið er út, hrökklast
hann til baka upp þekjuna. Svo
hverfur hann í myrkrið. Hefur
hann sig til flugs eða rennir
hann sér niður vegginn? Er
þetta hrafn eða maður? Eða ef
til vill mannhrafn?
Vinnumaðurinn er sleginn
óhug. Hann verður að beita sig
hörðu til að ganga kringum bæj-
arhúsið. Þar er ekkert að sjá.
Hvergi hreyfing. Ekkert
minnsta hljóð. Hafa hljóðin áð-
an máski komið úr myrkrinu
sjálfu? Hann hraðar sér inn og
gaddar bæinn með snöggu hand-
taki. En slagbrandurinn dugar
skammt á myrkrið. Það er einnig
hér inni. Það liggur á öllu eins og
mara, ósýnilegt og óáþreifanlegt.
Undan því brýst enginn.
Captain W. E. Johns
og stolnu
skartgripírnir
Ný Bennabók
KOMIN er út nú Bennabók, en hér
á árum áður áttu þeir Benni og fé-
lagar sér marga aðdáendur og eiga
vafalaust enn.
Benni starfar fyrir Scotland
Yard og lendir í margvíslegum
ævintýrum. Þessi nýja bók, „Benni
og . stolnu skartgripirnir", segja
frá því þegar þeir félagarnir eru
fengnir til að hafa uppi á dýrum
djásnum, sem horfið hafa á und-
arlegan hátt. Leitin berst til Afr-
íku, til þess hluta svörtu álfunnar
sem manninum er hvað fjandsam-
legastur, og þar rekast þeir á und-
arlegt virki í eyðimörkinni. Hætt-
ur leynast á hverju leiti og þá
reynir á styrk þeirra og hugprýði.
Bókhlaðan hf. gefur bókina út
en setningu og prentun annaðist
Hagprent.
Skálholt
gefur út plötu
með jólasálmum
HLJÓMPLATA með jólasálmum
er komin út hjá útgáfunni Skál-
holti.
Þrír kórar sjá um flutning
sálmanna, þ.e. Dómkórinn, und-
ir stjórn Marteins Hunger Frið-
rikssonar, Kór Bústaðakirkju,
undir stjórn Guðna Þ. Guð-
mundssona, og Kór Keflavík-
urkirkju, undir stjórn Siguróla
Geirssonar. Auk framan-
greindra aðstoða ellefu hljóð-
færaleikarar við flutninginn. Er
meðal annars leikið undir á gít-
ar, fiðlur, flautur og slagverk.
Ríkisútvarpið annaðist upp-
tökuna, sem fram fór í Foss-
vogskirkju, en Alfa hf. sá um
vinnsluna. Jólasálmarnir eru
einnig fáanlegir á kasettu.
Steinar hf. sér um dreifinguna.
®RAUM\
RAÐNiNGA
BÓKINÞÍN
+ ÞESSI BOK HEFUR EKKI FYRR KOMIO UT A ISLENSKU
Hvað dreymdi þig i nótt?
Svartan hest eða epli. Þá
þarftu aö vita hvað draum-
arnir merkja. Flettu upp í
DRAUMARAONINGABOKIN
ÞlN, um 3000 uppsláttarorð
og tilvisun til skildra oröa svo
ná megi meiri nákvæmni i
ráðningunni.
Haföu þessa bók á náttborð-
inu og lestu úr draumum þin-
um strax meðan þú sérö þá
fyrir þér Ijóslifandi.
Utgefandi: INGÖLFSPRENT
sími: 38780