Morgunblaðið - 09.12.1982, Side 20
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
Akureyri, 29. nóvember.
Staðarvalsnefnd um iðnrekstur
efndi til blaðamannafundar á Ak-
ureyri í dag í tilefni þess, að Nátt-
úrugripasafnið á Akureyri hefur
nú lokið við og lagt fram skýrslu
sína um könnun á náttúrufari og
minjum á vesturströnd Eyjafjarð-
ar, þ.e. Glæsibæjarhreppi (að
hluta), Arnarneshreppi og Ar-
skógshreppi. Skýrslan er mikið
rit, 231 bls. í stóru broti (fjölrituð)
og fylgja henni margir uppdrætt-
ir, skýringarmyndir og ljósmynd-
ir.
Helgi Hallgrímsson, forstöðu-
maður NA, og Þóroddur F. Þór-
oddsson, jarðfræðingur, hafa unn-
ið að skýrslunni í heilt ár, en auk
þeirra hafa lagt til skýrslunnar
mikið starf þau Þórir Haraldsson,
líffræðingur, Kristín Aðalsteins-
dóttir, líffræðingur, og Hálfdan
Björnsson, fræðimaður á Kví-
skerjum. Þrír þeirra voru á fund-
inum, Helgi, sem var ritstjóri
skýrslunnar, Þórir og Þóroddur,
en af hálfu Staðarvalsnefndar
Þorsteinn Vilhjálmsson, formaður
hennar, Emil Bóasson, starfsmað-
ur, Pétur Stefánsson, verkefna-
stjóri, og Sigurður Guðmundsson,
áætlunarfræðingur.
Þorsteinn gat þess, að nefndin
væri afar ánægð með verk höf-
unda skýrslunnar, enda væri hér
um að ræða grundvallarfræðirit
um landshagi á fyrrgreindu svæði
um langa framtíð. Hann kvað
ýmsa staði hafa verið athugaða
með tilliti til stóriðjuvers, og væri
því ekki að leyna, að Vatnsleysu-
vík stæði best að vígi um litla
mengunarhættu og umhverfismál
en Vogastapi og Dysnes í Arnar-
neshreppi um hagkvæmni í rekstri
og vegna byggðasjónarmiða.
Annars lagði Staðarvalsnefnd
fram svohljóðandi greinargerð:
„Meginhíutverk Staðarvals-
nefndar um iðnrekstur er í því
Skýrsla þessi fjallaði einkum um
vinnumarkað og landfræðilegar
aðstæður ásamt áhrifum staðar-
vals á stofn- og rekstrarkostnað
áliðju. Niðurstaða áfangaskýrslu
þessarar var sú að nefndin mælti
með frekari rannsóknum á eftir-
töldum stöðum: Helguvík, Voga-
stapa, Vatnsleysuvík, Geldinganesi
og Dysnesi í Arnarneshreppi.
Staðarvalsnefnd vinnur nú að
framhaldsathugunum á ofan-
greindum fimm stöðum með
hliðsjón af hugsanlegri áliðju, og
beinast þær rannsóknir einkum að
umhverfismálum og félagslegum
þáttum.
Eftirtöldum rannsóknum er nú
lokið í Eyjafirði á vegum Staðarv-
alsnefndar og verkefnisstjórnar
um áliðjuver: Sjómælingar og
botnrannsóknir frá Hörgárósum
út fyrir Hjalteyri, kortagerð
1:5000 í Arnarneshreppi, könnun á
jarðvegsdýpi við Dysnes og Gils-
bakka í Arnarneshreppi, forkönn-
un á iðnaðarvatni við vestanverð-
an Eyjafjörð og náttúruverndar-
könnun sú, er hér liggur fyrir. Þá'
hefur Staðarvalsnefnd rekið sírit-
andi vindmæla í grennd við Hjalt-
eyri frá því í október 1981.
Skýrsla Náttúrugripasafnsins
er veigamikill þáttur í umhverf-
isrannsóknum Staðarvalsnefndar
í Eyjafirði. Aformað er að halda
vindmælingum áfram um eins árs
skeið og verið er að setja upp hita-
mæla á 3 stöðum í Vaðlaheiði til
að kanna svokölluð hitahvörf.
Jafnframt hefur verið pantaður
sérlega næmur hitamælir sem
áformað er að setja í eina af flug-
vélum Flugfélags Norðurlands í
sama skyni. í undirbúningi er að
fá hingað erlendan sérfræðing til
aðstoðar við að gera dreifingarspá
fyrir úrgangsefni frá hugsanlegri
verksmiðju þegar fullnægjandi
upplýsingar um veðurlag liggja
Náttúrufar á vestur-
strönd Eyjafjarðar
Náttúrugripasafnið á Akureyri
leggur fram skýrslu sína
fólgið að kanna almenn staðbund-
in skilyrði fyrir meiriháttar iðn-
rekstur á íslandi, óháð tilteknum
iðnaðarkostum. í tengslum við
þetta meginhlutverk er nefndin nú
að reka smiðshöggið á skýrslu um
svokallað forval þar sem fjallað er
um 34 staði eða svæði víðsvegar
um landið. í framhaldi af þessu
forvali verða nokkur svæði tekin
til nánari athugunar í svokölluð-
um staðháttarannsóknum. Eru
þær raunar þegar hafnar á nokkr-
um svæðum sem einsýnt hefur
þótt að forvalið mundi vísa á, auk
þess sem þau svæði hafa komið
sérstaklega til álita vegna tiltek-
inna iðnaðarkosta sem nefndin
hefur verið beðin að kanna jafn-
hliða almennum störfum sínum.
Hluti af þessum staðháttarann-
sóknum er fólginn í náttúrufars-
könnun á viðkomandi svæðum.
Stendur slík könnun yfir á Reyð-
arfirði, á höfuðborgarsvæðinu og
á Suðurnesjum.
í janúarmánuði 1982 samdi
Staðarvalsnefnd við Náttúru-
gripasafnið á Akureyri um að
framkvæma slíka könnun á nátt-
úrufari í Eyjafirði með sérstakri
áherslu á svæðið frá Krossanesi
að Hálshöfða. Náttúrugripasafnið
hefur unnið ósleitilega að þessu
verki og lokið því nú fyrir
skömmu. Eintak af skýrslu safns-
ins fylgir hér með til kynningar.
Af hálfu Náttúrugripasafnsins
hafa eftirtaldir aðilar einkum
unnið að rannsóknum þessum og
skýrslugerð: Helgi Hallgrímsson
forstöðumaður, Þóroddur F. Þór-
oddsson jarðfræðingur, Þórir
Haraldsson líffræðingur, Kristín
Aðalsteinsdóttir líffræðingur og
Hálfdán Björnsson bóndi, Kví-
skerjum.
í júlímánuði sl. gaf Staðarvals-
nefnd út áfangaskýrsiu um stað-
arval hugsanlegs álvers í tengsl-
um við hagkvæmniathuganir á
vegum iðnaðarráðuneytisins.
fyrir. Á grundvelli slíkrar dreif-
ingarspár er fyrirhugað að freista
þess að segja eins og frekast er
unnt fyrir um áhrif af hugsanlegu
iðjuveri við Eyjafjörð á náttúru-
far. Slíkar rannsóknir eru vel
þekktar erlendis og eru þær gjarn-
an nefndar afleiðingaspá eða af-
leiðingagreining (konsekvensana-
lyse).“
Sigurður Guðmundsson skýrði
svo frá, að Byggðadeild Fram-
kvæmdstofnunar hafi tekið að sér
að kanna eftirtalda þætti fyrir
Staðarvalsnefnd: 1) Vinnumark-
aður, mannafli, mannfjöldi. 2) Fé-
lagsleg þjónusta, skipulagsmál,
byggingalóðir. 3) Samgöngur,
skólar, heilsugæsla o.fl. 4) Ahrif
byggingaframkvæmda á byggðina,
vinnumarkað, samkeppni um
vinnuafl o.s.frv. 5) Langtímaáhrif
á mannfjölda og þjónustu. 6)
Margföldunaráhrif vörukaupa og
þjónustu og áhrif af tekjuflæði í
byggðinni.
Helstu niðurstöður skýrslunnar
fara hér á eftir:
Ágrip af niðurstöðum
1. Eyjafjörður er sérstæður
meðal héraða landsins, hvað
snertir veðursæld og önnur nátt-
úruskilyrði sem eru hagstæð lífi,
enda benda allar rannsóknir til
þess að jurta- og dýralíf sé þar
auðugra og fjölskrúðugra en í öðr-
um héruðum af samsvarandi
stærð.
2. Könnunarsvæðið milli Akur-
eyrar og Dalvíkur er á flestan hátt
dæmigert fyrir náttúrufar Eyja-
fjarðar. Það er óvenju auðugt af
jarðfræðiminjum og fágætum
jurtategundum, og þar eru ýmsar
sérstæðar lífvistir, er viðhalda
fjölbreyttu jurta- og dýralífi.
Einnig er þar fjöldi merkra sögu-
legra minja (þjóðminja).
3. Þær athuganir, sem fram
hafa farið á sjólífi í Eyjafirði,
sýna að það er óvenju mikið og
fjölþætt, enda hefur fjörðurinn
jafnan verið einstaklega fiskisæll.
4. Könnunarsvæðið nýtur þeirr-
ar sérstöðu að vera betur rannsak-
að náttúrufræðilega en flest eða
öll svæði af samsvarandi stærð
hérlendis, og hefur því ómetanlegt
gildi fyrir rannsóknir og kennslu í
náttúrufræði.
5. í Eyjafirði stendur búskapur
yfirleitt með miklum blóma og á
það einnig við um könnunarsvæð-
ið. Þar eru miklir ræktunarmögu-
leikar sem enn hafa ekki verið
nýttir. Gildi svæðisins til skóg-
ræktar og útivistar er einnig veru-
lega mikið.
6. Af ofansögðu er ljóst, að
verndargildi lands og sjávar í
Eyjafirði er meira en almennt
gerist hér á landi og óvíða er
meira í húfi ef illa tekst til varð-
andi landnýtingu eða val nýrra at-
vinnugreina.
Helstu niðurstöður
Eins og getið er í innganginum
var markmið þessarar könnunar
að draga saman þær heimildir
sem handbærar eru um náttúru-
far Eyjafjarðar og könnunarsvæð-
ið sérstaklega, og framkvæma
nauðsynlegár vettvangsathuganir
til að fylla upp í þá heildarmynd
af náttúru svæðisins sem reynt er
að lýsa í skýrslunni í myndum og
máli. Hér verður þess freistað að
laða fram helstu drætti þeirrar
myndar, sem jafnframt má kalla
lokaniðurstöður könnunarinnar:
1) Landslag er viða fjölbreytt á
könnunarsvæðinu og náttúrufeg-
urð mikil, einkum við ströndina og
til fjalla. Þar er að finna fjölda af
jarðsögulegum minjum (um 50
skráðar minjar), sem margar eru
dæmigerðar fyrir rof og uppbygg-
ingu náttúruaflanna, þ.e. jökla,
vatns og sjávar. Einkum eru jök-
ulminjarnar fjölbreyttar, svo fá-
gætt mun vera að hafa jafn mikið
safn af þeim á svo litlu svæði.
Einnig eru þar framhlaup af ýmsu
tagi og ýmsar aðrar myndanir.
'l'veir af höl'undum skýrslunnar. Talið frá vinstri: l»órir Haraldsson, Helgi
llallgrimsson og Þóroddur F. Þóroddsson.
Jaröskjálftar koma af og til og
valda stundum skaða á mann-
virkjum utantil á svæðinu.
2) Veðurfar (í Eyjafirði) er hag-
stætt miðað við grannhéruðin og
landið í heild, sem rekja má til
legu fjarðarins í hinum mikla
fjallabálki Mið-Norðurlands. Er
loftslagið því meginlandskennd-
ara, þ.e. þurrara og staðviðrasam-
ara en jafnframt með meiri hit-
breytingum en víðast hvar á land-
inu. Vindáttir eru einhæfar, þ.e.
yfirgnæfandi suðlæg eða norðlæg
átt og ofviðri koma stundum og
valda skaða, einkum á Akureyri og
Árskógsströnd. Snjóþungt er yst á
svæðinu (Árskógsströnd), en snjó-
létt í Hörgárdal. Hafís kemur oft í
fjörðinn í hafísárum, og liggur þar
stundum langt fram á sumar.
Snjóflóð eru fágæt á könnunar-
svæðinu.
3) Lífríki svæðisins er auðugt af
tegundum og magn þess allmikið á
köflum. Landið er að heita má allt
þakið jarðvegi og gróðri, sem nær
hér einnig hærra til fjalla en víð-
ast hvar á íslandi. Mólendi er al-
gengasta gróðurlendið og lyngmó-
ar ríkjandi utantil á svæðinu. Er
þar víða gott berjaland. Um þriðj-
ungur af láglendi könnunarsvæð-
isins er nú orðinn tún. Töluvert
votlendi er þó enn á svæðinu og af
ýmsum gerðum, s.s. flóar, flæði-
engjar, mýrar, fen og fitjar, enn-
fremur nokkrar tjarnir. Votlendið
er helsta undirstaða fuglalífsins,
sem telja má mjög fjölbreytt á
svæðinu, bæði að tegundum og
magni. Um 65 tegundir eru skráð-
ar á svæðinu, en þar af eru um 45
tegundir nokkuð öruggir varpfugl-
ar. Allþétt og fjölbyggð vörp eru á
nokkrum stöðum, einkum á ós-
hólmasvæðum og í nokkrum flóa-
mýrum. Smádýralíf er einnig fjöl-
breytt. Eru um 150 tegundir skor-
dýra þekktar á svæðinu, en um 360
í öllum Eyjafirði. Af háplöntum er
vitað um 286 tegundir á könnunar-
svæðinu en um 340 í Eyjafirði.
Nokkrar þeirra eru afar sjaldgæf-
ar, t.d. davíðslykillinn, sem ekki er
vitað til að vaxi annarsstaðar í
Evrópu. Af lágplöntum eru þekktar
um 500 tegundir á könnunarsvæð-
inu og hafa þær flestar fundist í
nágrenni við Möðruvelli og Hof, og
margar hvergi annarsstaðar á
landinu.
4) Sjólíf í Eyjafirði er með því
fjölskrúðugasta og auðugasta sem
þekkist í fjörðum á íslandi, og
Bjarni Sæmundsson taldi hann
„einna merkastan af öllum fjörð-
um landsins" hvað fiskveiðar
snertir, enda var hann lengst af
gullkista byggðanna umhverfis.
Árvissar síldargöngur voru í
fjörðinn fyrr á öldum og kringum
aldamótin síðustu var síldinni
ausið þar upp í ótrúlegu magni.
Þess munu fá dæmi að fiskur
brygðist í utanverðum firðinum
fyrr á tíð, og göngufiskur var
veiddur alveg inn í fjarðarbotn.
Enn er fjörðurinn fiskisæll þrátt
fyrir áratuga rányrkju, og veiðar
mikið stundaðar á litlum bátum.
Um 40 fiskategundir eru skráðar í
firðinum, og um 500 tegundir smá-
dýra. Botngróður er víða mikill á
föstum botni og grunnsævi í firð-
inum, eins konar skógar af stór-
vöxnum þarategundum, og fjörur
eru víðast vaxnar þangi og lífríkar
á köflum. Alls eru þekktar um 130
tegundir botn- og fjöruþörunga í
Eyjafirði, en smásæiiy þörungar
eru þó líklega margfalt fleiri.
5) Búskapur og önnur landnýt-
ing hefur jafnan staðið með mikl-
um blóma í Eyjafirði, og á það
eins við um könnunarsvæðið, bæði
á sviði jarðræktar og búfjárrækt-
ar, þótt kalskemmdir geri stund-
um vart við sig í túnum, einkum
utantil á svæðinu. talið er að
mestallt land neðan við 100 m
hæðarlínu sé ræktanlegt, og að
tvöfalda megi túnstærðina frá því
sem nú er. Kartöflurækt er nokk-
ur og heppnast vel, einkum inn-
antil á svæðinu. Mjólkurkýr hafa
verið um 900 á könnunarsvæðinu
undanfarinn áratug, um 600
geldneyti, 200 hestar og. um 8000
fjár. Svæðið leggur nú til um 3%
af allri mjólkurframleiðslu lands-
manna, en Eyjafjörður allur um
20%.
6) Sögulegar minjar (mannvist-
arminjar o.fl.) eru fjölmargar á