Morgunblaðið - 09.12.1982, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
53
könnunarsvæðinu. Merkastar eru
minjar hins forna kaupstaðar að
Gásum, en þær eiga vart sinn líka
hér á landi. Þá er vitað um rústir
nokkurra fornbýla á svæðinu, sem
gætu verið frá fyrstu tímum
byggðarinnar, og á nokkrum stöð-
um eru eldfornir vörslugarðar. Á
nokkrum bæjum standa enn leifar
af gömlum torfbæjum og gömul
timburhús, en alls voru skráðar
um 90 gamlar byggingaminjar á
könnunarsvæðinu. Forn kuml og
dysjar voru skráðar á 13 stöðum
og um 50 þjóðtrúarstaðir, þ.e. bú-
staðir álfa, „fornir haugar", o.fl.,
en af þeim er margt í Eyjafirði.
7) Könnunarsvæðið nýtur
þeirrar sérstöðu að vera hefð-
bundið rannsókna- og söfnunar-
svæði og á það einkum við ná-
grenni Möðruvalla, þar sem segja
má að vagga íslenskra náttúru-
rannsókna hafi staðið i lok síðustu
aldar, sérstaklega á grasafræði-
sviðinu, þegar þeir Stefán Stef-
ánsson og Olafur Davíðsson störf-
uðu þar, en Ólafur var mikilvirkur
jurtasafnari, og eru söfn frá hon-
um í Kaupmannahöfn, Reykjavík
og víðar. Á Víkurbakka á Ár-
skógsströnd hefur starfað nátt-
úrurannsóknastöð síðasta áratug-
inn, þar sem margháttaðar rann-
sóknir og söfnun hefur farið fram,
bæði á landi og sjó. Gildi þessara
svæða til rannsókna og fræðslu er
nánast ómetanlegt.
8) Vegna fjölbreytni sinnar í
landslagi og lífríki og legu sinnar
milli tveggja fjölmennustu stað-
anna í Eyjafirði, hefur könnun-
arsvæðið mikið útivistargildi.
9) Það, sem upp var talið í
1.—8. grein hér að framan, á
meira eða minna við um allt könn-
unarsvæðið, en auk þess hafa 10
minni svæði verið útvalin til sér-
stakrar verndunar, á grundvelli
þeirra upplýsinga sem aflað var í
könnuninni. Taka þau yfir flestar
verðmætustu náttúru- og sögu-
minjarnar og eru í 1.—2. verndar-
flokki samkvæmt þeirri skiptingu
sem notuð er á verndarkortinu,
mynd 118 (í kápuvasa). Þessi
svæði eru: 1) Hámundarstaðaháls,
2) Helluhöfði, 3) Þorvaldsáreyrar
o.fl., 4) Þorvaldsdalsmynni, 5)
Víkurbakka/Götusvæðið, 6) Arn-
arnes, 7) Bakkaásar sunnantil, 8)
Reiðholt/Selás o.fl. 9) Hörgárdal-
ur neðanverður, 10) Glæsibæjar-
svæðið. Þessi svæði ber sérstak-
lega að vernda fyrir hvers konar
raski, einkum þá hluta þeirra sem
taldir eru í hæsta verndarflokkn-
um, og sum þeirra ætti að friðlýsa
a.m.k. að hluta, t.d. Hörgársvæðið
(myndir 114—118).
10) Lokaniðurstaða þessarar
könnunar verður því óhjákvæmi-
lega sú, að Eyjafjörður og könnun-
arsvæðið sérstaklega, hafi svo
auðugt og fjölbreytt náttúrufar,
að tæplega verði jafnað við önnur
héruð af samsvarandi stærð hér-
lendis. Hvað lífríkið snertir á
þetta ekki síður við um sjóinn
(Eyjafjörð). Hinir hefðbundnu at-
vinnuvegir, sem byggjast á auð-
lindum náttúrunnar, standa með
miklum blóma í Eyjafirði og
leggja til drjúgan hlut af mat-
vælaöflun þjóðarinnar. Náttúru-
fræðilegt gildi könnunarsvæðisins
er ómetanlegt, og þar er margt af
verðmætum söguminjum (þjóð-
minjum).
Verndargildi vesturstrandar
Eyjafjarðar verður því að teljast
langt yfir því sem almennt gerist
á Íslandi og virðist það einnig eiga
við um Eyjafjörð sem heild, sam-
kvæmt þeim heimildum sem til-
tækar eru.
Hér er því mikið í húfi ef illa
tekst til um landnýtingu eða val
nýrra atvinnugreina. Hafa verður
í huga, að ýmis náttúruskilyrði,
sem mestu valda um auðgi og fjöl-
breytni lífríkisins í Eyjafirði (t.d.
innilukt lega og staðviðri), geta á
hinn bóginn stuðlað að aukinni
hættu á skaðlegri loftmengun. í
Eyjafirði er því nauðsyn að við-
hafa meiri gát í þessum efnum en
víðast hvar annarsstaðar á land-
inu.
Skýrslan verður til sölu hjá
Náttúrugripasafninu á Akureyri
og í Almennu verkfræðiskrifstof-
unni, Fellsmúla 26, Reykjavík, og
kostar 200 krónur.
<J
HEIMILISTOLVAN
FJÖLDI FYLGIHLUTA OG FORRITA:
Minnisaukar — Sebulbandstæki — Diskettustöð — Prent-
ari — Super Expander — Programmers Aid — Alien —
Mole Attack — Jelly Monster — Skák — Super Slot —
Road Race — Rat Race — Super Lander — Vic Graf — Vic
Stat — Vic Rel — Forth — Pirate Cover — Mission
Impossible — Raid on Fort Knox — Omega Race —
Woodoo Castle — The Count o.fl o.fl. Leiöbeiningabækur.
•^JÓLATILBOÐ
★ BASIC
★ 24 LITIR
★ RITVÉLALYKLABORÐ
★ MIKLIR STÆKKUNARMÖGULEIKAR
★ BYRJENDANÁMSKEIÐ
KENNETH ROYCE
MAKTllÖI)
MANNKYNS
DAGARNIR
Vitaö er, aö olíubirgöir heims-
ins muni endast í tuttugu og
sjö ár eöa í tíu þúsund daga
gróflega áætlað.
Ríkin í Mlö-Austurlöndum
hafa gert sér fulla grein fyrir
þessu og til aö verjast innrás
hafa þau lagt öll olíuvinnslu-
svæöi sín jarðsprengjum og
öðrum vítisvélum, svo Vestur-
veldin telja happadrýgst aö
fara aö öllu meö ýtrustu gát.
En hvernig á aö framkvæma
þetta? Tveir flugumenn eru
gerðir út af örkinni, annar viö-
felldinn Lundúnabúi, en hinn
harðskeyttur náungi ættaöur
frá New York. Þeim eru falin
verkefni, sem viröast nánast
óframkvæmanleg.
U ÆVILEIKKOYII
Ingrid Bergmann er ein mesta
leikkona okkar tíma. Hún hef-
ur þrívegis hlotiö Óskarsverð-
laun auk fjölmargra annarra
verölauna og viöurkenninga.
Þegar hún hefur leikiö á sviöi
hefur hún aö jafnaöi hlotið
einróma lof gagnrýnanda.
Ævi leikkonu segir sögu Ingrid
Bergmann hreinskilninslega
og undanbragöalaust. Les-
andinn fær aö skyggnast inn í
heim stjörnunnar og sjá kon-
una sem þar býr.
Mikilfengleg saga mikilhæfrar
konu.
LEIKUR
AÐ
OrÐuM
Árni Grétar Finnsson nefnir
þessa fyrstu Ijóðabók sína
„Leikur aö orðum“. Ef til vill
gefur hann meö því í skyn, aö
hann líti fyrst og fremst á Ijóö
sín sem tómstundagaman,
eins konar leik og athvarf í
dagsins önn.
Víöa leynist þó djúp alvara aö
baki og Ijóðin eru í senn fjöl-
breytt aö efni og gerö. Útkoma
þessarar bókar sýnir, aö þrátt
fyrir gjörbreytta þjóöfélags-
hætti og margvíslegt annríki
líöandi stundar, gefa menn
sér enn tíma til aö yrkja Ijóö
og kveöa vísur. Tjáningarform
Ijóðsins heldur velli
HAUDSKINNA
Sv.P.