Morgunblaðið - 21.12.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 7
ÖUum þeim sem sýndu mér vinsemd á 90 ára afmæli
mínu með st&rgjöfum og heillaskeytum óska ég gleði-
legrajóla ogfarsæls komandi árs.
Hannes Jónsson,
frá Austur-Meðalholtum
Deman tshringar
Draumaskart
Kjartan Ásmundsson,
ffullsmíðav.
\ A;i •■■rt i >
Cetec Benmar
skipa- og báta sjálfstýringar
Bjóöum þessar frábæru amerísku sjálfstýringar
fyrir allar stæröir skipa og fiskibáta á mjög hag-
stæöu verði, beint úr tollvörugeymslu. Sjálfstýr-
ingarnar eru bæði fyrir vökva- og barkastýri.
Mjög hagstætt verð.
BencOp
Bolholti 4, sími 91—21945
Yfirlýsing for-
sætisrádherra
Alþingi getur tekiö hlé
frá störfum um jól og ára-
mót með tvennum hætti.
Annarsvegar án sérstakrar
þingsályktunar, sem þýðir,
að þingið verður að koma
saman á ný innan hálfs
mánaðar og að ríkisstjórn-
in hefur ekki rétt til útgáfu
bráðabirgðalaga i þinghléi.
Hinsvegar með sérstakri
þingsályktun, sem felur í
sér ákveðna dagsetningu
um mörk þinghlés, og
bráðabirgðalagaréttur fylg-
ir. Rikisstjórnin knúði síð-
ari kostinn i gegn, eftir
harða mótspyrnu í eigin
þingliði, ekki sizt í þing-
flokki Alþýöubandalags.
Meðal þingmanna sem
orðaðir vóru við andófið
eru Ólafur Ragnar Grims-
son, Guörún Helgadóttir
og Garðar Sigurðsson.
Andófið var kæft, m.a.
með einhvers konar bak-
samningum um að hóflega
yrði haldið á heimild til út-
gáfu bráðabirgðalaganna.
Sjálfur forsætisráðherrann
sté í ræðustól þingsins, áð-
ur en þingsályktunin var
samþykkt, og hét því að
þessum rétti yrði aðeins
beitt í „samráði" við
stjórnarandstöðu, — og ef
til kæmi yrðu þau bráða-
birgðalög lögð fyrir þing
strax og saman kæmi eftir
áramótahlé.
Hugsanleg bráðabirgða-
lög tengjast í almennri um-
ræðu möguleika á gengis-
lækkun i janúarmánuði
nk., þ.e. ráðstnfun geng-
ismunar og öðrum aðgerð-
um til stuðnings sjávarút-
vegi, sem rekinn er með
bullandi tapi um þessar
mundir.
Þingrædið
vanvirt
Stjórnarandstæðingar
lögöu áherzlu á að þing
gæti komið saman til
starfa strax upp úr áramót-
um, þann veg, að heimild
til útgáfu bráðabirgðalaga
væri óþörf. Lárus Jónsson,
talsmaður Sjálfstæðis-
Treysta ekki eigin ríkisstjórn!
Mikill ágreiningur var í þingflokki Alþýöubandalagsins um
þaö, hvort veita ætti ríkisstjórninni heimild til þess að gefa
út bráðabirgðalög í þinghléi um jól og áramót. Ráðherrar
þurftu aö heita því aö beita ekki bráöabirgöalögum nema
í brýnni nauðsyn áður en mótspyrna var brotin á bak aftur
í stuöningsliði þeirra. Þessi átök í þingflokki Alþýöubanda-
lagsins, sem Olafur Ragnar Grímsson, þingflokksformaö-
ur, mun hafa verið potturinn og pannann í, sýna Ijóslega,
aö tortryggni í garö ríkisstjórnarinnar nær nú orðið langt
inn í þingflokka, sem aö nafninu til styöja hana.
flokksins við 3ju umræðu
fjárlaga, gagnrýndi harð-
lega, að þingræðið væri í
raun vanvirt af ríkisstjórn-
inni með þvi aö ganga
gróflega á tvo meginverk-
þætti þess: löggjafarréttinn
og fjárveitingavaldið.
í því sambandi er rétt að
minna á að heimild til út-
gáfu bráðabirgðalaga var
tekin inn í stjórnarskrá
fyrir heilli öld þegar þing
kom aðeins saman skamm-
an tíma annað hvert ár og
samgöngur í landinu vóru
nánast engar. Nú eru þing-
menn ársmenn í starfi og
hægt er að kveða þing sam-
an með svo að segja engum
fyrirvara. Þrátt fyrir gjör-
breyttar aðstæður hefur
bráðabirgðalögum verið
beitt, sumir segja misbeitt,
í mjög vaxandi mæli.
Þannig hefur fram-
kvæmdavaldið, riklsstjórn-
in, í raun gengið á löggjaf-
arrétt Alþingis.
Lárus Jónsson vakti og
athygli á því að frá ársbyrj-
un til októberloka 1982
hefðu ráðherrar jafnframt
staðið fýrír aukafjárveiting-
um, umfrara Qárlög og
framhji Alþingi og fjárveit
inganefnd þess, sem svar-
aði hvorki meira né minna
en rúmlega 540 m.kr.
Þannig væri ekki einvörð-
ungu gengið á löggjafarrétt
Alþingis heldur jafnframt
fjárveitingavald þess.
Meiriháttar
kaupskerðing
Kjartan Jóhannsson,
formaður Alþýðuflokksins,
sagði fjárlagafrumvarpið
fjarri raunveruleikanum.
Það fæli ekki í sér neina
stefnu í efnahags- né ríkis-
fjármálum. Útgjöld væru
stórlega vanáætluð og gert
ráð fyrir tekjupóstum er
hefðu ekki lagastoðir.
„Þannig eru útgjöld áætluð
svo lág,“ sagði Kjartan,
„að meiri háttar kaup-
skeröingu þarf til að þau
standist" „Opinskátt er
rætt um meiriháttar geng-
isfellingu, þótt kaupskerð-
ingarlög ríkisstjórnarinnar,
sem öllu áttu að bjarga,
séu enn í fullu gildi. Oll
undirstaða þessa fjárlaga-
frumvarps, bæði tekna og
gjaldamegin, er reist á
sandi blekkinga og
óraunsæis. Fjárlög byggð á
föLskum forsendum eru
haldlaus, og afgreiðsla
þessa frumvarps óraun-
hæf..
„Fá minnstar
bætur, jafnvel
engar“
Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, formaður Sóknar,
segir í blaðaviðtali um
„láglaunabætur" i kjölfar
verðbótaskerðingar á laun
í sjálfum jólamánuðinum:
„Að beita sömu aðferðum
við útreikning láglauna-
bóta (þ.e. og við vísutöluút-
reikning) finnst mér alveg
fráleitL Það er mín sann-
færing að þeir sem verst
fara út úr þessu séu þeir
sem sízt skyldi, þeir sam
hafa lélegust launin."
Bjarnfríður Leósdóttir,
miðstjórn ASÍ, segin „Mér
finnst það hreint siðleysi
að tala sífellt um að bæta
lægstu launín, en reikna
þetta síðan þannig að þeir
lægst launuðu fá minnstar
bætur og jafnvel engar...“
HOLTSGATA — HÖFDATÚN — HOLTSGATA — HOFDATÚN — HOLTSGATA
§ VÍDEÓSPOLAN Höföatúni 10 og Holtsgötu 1.
C0 Vorum að opna glæsilega videoleiqu að Höfðatuni 10 Næg bilastæðl.
_l LANDSINS MESTA URVAL AF VHS OG BETA A BAÐUM STOÐUM
o _________
Að sjálfsögöu
er líka opið á
Holtsgötu 1.
Opið:
Manudaga —
föstudaga
11—21.
Laugardaga
10—20.
Sunnudaga
14—20
HOLTSGATA —
Videóspólan, «,^^„„.„,0™,,.
Holtsgotu 1. Simi 16969 Hófðatúm 10, sími 21590.
HÖFÐATÚN — HOLTSGAT A — HÖFDATÚN — HOLTSGATA
HOLTSGATA — HÖFÐATÚN — HOLTSGATA — HÖFOATÚN — HOLTSGATA