Morgunblaðið - 21.12.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
Árni Bergmann í spjalli um skáldsögu sína, Geirfuglarnir:
„Má kalla þetta daður
sannleikans við lygina“
„FYRIR um tíu árum skrifaði ég
„Tillögu að kafla i jólabók" í nýárs-
blað Þjóðviljans, sem var skopstæl-
ing á lýsingu úr þorpi á íslandi og
viðbrögðum fólks við óvæntum at-
burðum," sagði Árni Bergmann rit-
höfundur og ritstjóri Þjóðviljans í
spjalli við Mbl. Tilefni samtalsins
var nýútkomin skáldsaga Árna,
Geirfuglarnir, en Árni var spurður
um hvað orðið hafi til að hann réðst
í skáidsöguritun.
„Síðan skrifaði ég bók, endur-
minningabók í alvöru um dvöl
Arstíðarfund-
ir Samhygðar
Árstíðarfundir Samhygðar
verða haldnir í Reykjavík í kvöld.
Fundirnir eru öllum opnir, en þeir
verða að Fríkirkjuvegi 11 og Hótel
Esju og hefjast klukkan 21.
2. útgáfa af
Óskasteininum
Óskasteinninn, bók Ármanns
Kr. Einarssonar, hefur nú verið
endurprentuð, en hún var uppseld
hjá forlaginu, Vöku. Dreifing á
endurprentuninni í verzlanir er
hafin.
mína í Moskvu. Upp úr því datt
mér í hug að skrifa skáldsögu, al-
varlegri en Tillögu að kafla í jóla-
bók. Ég bjó því til samfélag og
setti það niður á Suðurnesjum.
Þar er lýst hvernig úngum dreng,
sem elst þar upp, kemur það fyrir
sjónir. Þetta er ekki beint saga
hans heldur saga plássins og hvað
gerist þar þegar óvæntir atburðir
verða, eins og til dæmis þegar ein-
hver verður frægur af einhverju
tilefni," sagði Árni.
Árni var spurður hvort hann
væri að setja niður á blað endur-
minningar sínar, en hann er upp-
alinn í Keflavík. „Ekki beinlínis,"
svaraði hann, „þó eru í bókinni
einn eða tveir þættir sem benda
má á að hafi gerst í Keflavik.
Menn sem skrifa skáldsögur verða
fyrir ýmiss konar áhrifum af því
sem þeir heyra og það er gaman að
því að blanda saman reynslu og
skáldskap í skáldsögu og það má
kalla þetta daður sannleikans við
lygina. Það var gaman að búa til
pláss sem ekki hefur verið til, það
heitir Seltangar í skáldsögunni.
Jafnhliða bjó ég til landslagið sem
plássið er í og gerði kort af því og
setti niður á það, hvar hver ætti
heima. Það má segja að ég hafi
verið í nokkurskonar samkeppni
við almættið í því efni. Plássið á
sér enga raunverulega fyrirmynd,
en á sér þó hliðstæðu í ýmsum
Árni Bergmann
plássum. Síðan gerast þar ákveðn-
ir hlutir og plássið ferst og verður
ekki til lengur. Það er ýmislegt í
sögunni sem tengist því að þessu
er lokið, sagan fjallar um horfið
mannlíf. Enginn veit með vissu af
hverju plássið fórst, og ekki er
sagt hvort eyðing þess var af
mannavöldum eða af náttúru-
legum orsökum. Af því ber skáld-
sagan nafn sitt, Geirfuglarnir,
horfin dýrategund," sagði Árni.
Árni var spurður hvort um
ádeiluverk væri að ræða. „Það má
segja að fjallað sé um skoplegu
hliðina á þessu mannlífi. Helsta
afbrot fólksins, ef það er nokkuð,
er að það er haldið andvaraleysi
og þeirri íslensku tilhneigingu að
gera smámál að stórmáli og stór-
mál að smámáli. Möguleikar les-
andans til túlkunar á sögunni og
eyðingu plássins eru nokkrir og
má þar nefna nálægð herstöðvar-
innar og einnig eldgosið í Vest-
mannaeyjum. Sögumaður gerir
grein fyrir atburðunum, en segja
má að það fari eftir innræti hvers
og eins hvernig hann skilur at-
burðina í plássinu," sagði Árni
Bergmann.
Þrjár
Sigurlaugur Brynleifsson
Brian Magee: Men of Ideas.
Some Creators of Con-
temporary Philosophy.
Oxford University Press 1982.
Höfundur segir í formála að
bókin sé unnin upp úr 15 sjón-
varpsþáttum, en þeir voru unnir á
árunum 1975—1977 og sýndir í
janúar til apríl 1978.
Þættirnir vöktu mjög mikla at-
hygli. Samræðuformið um heim-
spekileg efni virtist ná til leik-
manna og það virtist takast að
skýra jafnvel erfiðar hugmyndir
og hugtök á skýran og nákvæman
hátt fyrir áheyrendum.
í bókinni eru 15 samræðuþættir
Bryan Magees við ýmsa kunna
hugsuði nútímans um kenningar
þeirra og annarra heimspekinga.
Fyrsti þátturinn er viðtal Isaiah
Berlins við Magee um hvað heim-
speki sé? Síðan er fjallað um ýmsa
heimspekiskóla og skoðanir,
marxisma, existentialisma, kenn-
ingar Chomskys, Marcuse og fleiri
ræða um verk sín. Iris Murdock
ræðir heimspeki og bókmenntir.
Einnig er fjallað um siðfræði,
pólitískar kenningar og heim-
spekilegar forsendur þeirra, vís-
indaheimspeki o.fl. o.fl. Meðal
þeirra sem rætt er við eru: Charles
Taylor, William Barrett, Quinton,
A.J. Ayer, R.M. Hare, W.V. Quine,
Noam Chomsky o.fl.
Bryan Magee hefur kennt heim-
speki við Oxford-háskólann, sett
saman bækur og skrifað gagnrýni
og er auk þess vinsæll útvarpsfyr-
irlesari, hann er nú þingmaður
fyrir Leyton.
Þetta er mjög aðgengileg bók,
skýr og skilmerkileg og ætti að
bækur
vera öllum auðskilin, sem læsir
eru á ensku.
Jonathan Barnes: Aristotle.
Past Masters.
Oxford University Press 1982.
Aristoteles lést haustið 322 f.Kr.
Hann var þá rúmlega sextugur og
í fullu fjöri fram til þess. Enginn
maður hefur unnið jafn mikið að
rannsóknum og hugleitt af slíkri
djúphygli sem hann, þekking hans
var slík að enn þann dag í dag
leita menn svara við brýnustu
spurningum í ritum hans. Hann
lagði grundvöllinn að flestum
fræðigreinum, kerfaði og flokkaði
og kom reglu á hugarheim manns-
ins.
Enginn maður hefur haft slík
áhrif á hugarheim manna á Vest-
urlöndum og hann. Höfundurinn
starfar við Oxford-háskólann og
hefur ritað margt um heimspeki
og þá einkum gríska heimspeki.
Hann leitast við að kynna aðal-
kenningar og hugmyndir Aristo-
telesar og lýsa þeim heimi sem
hann lifði í. Þetta er góður inn-
gangur að Aristotelesi. Bókin er
gefin út í Past-Masters series.
Deutsche Geschichte in Daten.
Band 2: 1770—1918.
Von Jochen Schmidt-Liebich.
Deutscher Taschenbuch Verlag
1981.
Þetta annað bindi þýska annáls-
ins nær til 1918 og aftur til daga
hins menntaða einveldis um 1770.
Bókin er ætluð nemendum, áhuga-
fólki um sagnfræði, kennurum og
sagnfræðingum. Bibliografía fylg-
ir í bókarlok svo og registur. Þess-
ir annálar ná nú frá upphafi og
fram að lokum fyrri heimsstyrj-
aldar og þriðja bindið mun spanna
tímabilið 1918 til nútímans.
Metsölubku) á hverjum degi!
□ Áskell Másson — Klarinettkonsert, Bláa
Ijósið, Sýn. Áskell Másson er í fremstu röð ís-
lenskra tónskálda og hafa verk hans vakiö
veröskuldaöa athygli hór heima og erlendis.
Um flutning sáu Sinfóníuhljómsveit Islands
undir stjórn Páls P. Pálssonar, Einar Jóhann-
esson, Manuela Wiesler, Jósef Magnússon,
Roger Carisson, Reynir Sigurðsson, ásamt
Kór Tónlistarskólans í Reykjavík, einsöngvari
Ágústa Ágústsdóttir og stjórnandi Marteinn H.
Friöriksson. Guömundur Emilsson kynnir höf-
und á bakhliö plötuumslagsins, en í meðfylgj-
andi bæklingi fjallar Hjálmar H. Ragnarsson
ítarlega um hvert verk fyrir sig. Tilvalin gjöf
fyrir tónlistaráhugafólk.
ðHÁJIJllP sími 12040
HVERFISGÖTU 5
mmfa* wHnwm
mm.
□ Sveinbjörn Beinteinsson kveöur Eddu-
kvæöi. Allsherjargoöi ásatrúarmanna á is-
landi, meö sína fyrstu LP-plötu, er hefur aö
geyma sýnishorn úr þremur Eddukvæöum viö
rímnalög Sveinbjarnar. Veglegur bækíingur
fylgir piötunni á fjórum tungumálum, þar sem
alla kvæöatextana er aö finna. Siguröur A.
Magnússon hefur ritaö kynningarpistil fyrir
þessa útgáfu. Þetta er tilvalin gjöf til vina og
viöskiptamanna erlendis og auövitaö nauösyn
á hvert íslenskt menningarheimili.
□ Þorstetnn Magnús-
son — Líf 12“45rpm.
Þorsteinn Þeysari hefur
sent frá sér sína fyrstu
sólóplötu, plata, sem
opinberar hugvit og
margbrotin hljóöfæra-
leik. Einhver sagöi:
„Ofurmannlegt snilldar-
verk“ — alla vega er
þetta í senn óvenjuleg
og frumleg plata frá fjöl-
hæfum tónlistarmanni.
Einstæð útgáfa hvaö
varöar íslenska rokk-
tónlist.
□ Þeyr — The Fourth
Reich 12“45rpm. Fjóröa
ríkiö rís úr rústum hins
þriöja. Hin nýja 4-laga
plata Þeysara, The
Fourth Reich, er sann-
kölluö guös/jóla-gjöf. Er
því ekki eölilegt aö fá sér
eintak og stíga þar með
stóra skrefiö inn í þitt
eigiö sæluríki ... Eign-
ist nýaldartónlist Þeys-
ara, The Fourth Reich.
er ein fremsta rokkhljóm-
sveit landsins. Þetta er
hljómsveitin, sem færöi
okkur „Ó Reykjavík" og
„Guöfræöi" og gefur
okkur nú fjögur ný lög á
fyrstu smáskífu sinni.
Vonbrigöi veldur ekki
vonbrigöum, plata, sem
bregst ekki vonum okkar
á neinn hátt.
Utgáfa/dreifing
gramm
Hverfisgata 50, sími 12040
n?)
Jazz:
□ Art Ebsenble Of Chicago — Urban Bushmen
Tvöfalt hljómleikaalbúm með grúppu áratugarins
aö mati gagnrýnenda. Mest selda jazzplata ársins
á fslandi. 2 plötur á veröi einnar.
□ Old And New Dreams — Playing. Plata ársins
i alþjóölegum gagnrýnendakosningum tímaritsins
Down Beat.
O Lester Bowíe — The Great Pretender. Plata
ársins í Þýzkalandi. Lester Bowie, trompetleikari
ársins i gagnrýnendakosningum Down Beat. Hér
haldast í hendur framúrskarandi jazz og kimni.
O Pat Metheny Group — Offramp. Lang mest
selda jazzplata í U.S.A. á þessu ári. Enda engin
furöa þetta er fusionplata i sér flokki.
Aörar vinsælar jazzplötur meö meisturum eins
og: Miles Davis, Charlie Parker, Fats Waller,
Duke Ellington, Niels Henning, Don Pullen, Billy
Holliday, Chick Corea, Keith Jarrett, Air o.fl.
Blús:
Mississippi Delta Blues Band — Chromatic
Style. Nýjasta plata þessa góökunna bands er
loks fáanleg á fslandi. Einnig eru fáanlegar marg-
ar af eldri plötum (slandsvinanna. Ekta rafmagns-
blús.
Meirí blús: B.B. King, Leadbelly og Big Bill Broonzy
Þjóöleg tónlist frá Suður-Ameríku, Kína, Ung-
verjalandi, ftalíu og Indíána tónlist frá Ameríku.
Reggae tónlist meö m.a. Bob Marley, Mikey
Dread, Scientists og fjölbreytilegar „dub" plötur.
Nýjar plötur:
O Grace Jones — Living My Life
O George Harrison — Gone Troppo
O John Lennon — Collection
O The Stranglers — The Collection 1977—1982
O Siouxsie and the Banshees — Kiss In The
Dreamhouse
D XTC — Singles 1977—1982
Þungarokk:
O Kiss — Creatures of the Night
O Led Zeppelin — Coda
O Saga — In The Transit
D Suzy Quatro — Main Attraction
O Whitesnake — Saints & Sinners
O Crass — Christ The Album/Stations Of The
c./Feeding Of The 5000
O Dead Kennedys — In God We Trust/Bleed For
Me
O Discharge — Hear Nothing/Why
O GBH — City Baby Attacked By Rats
O Anti Pasti — Caution In The Wind
Sendum í póstkröfu hvert á land aem er.
Danstónliet:
O A Certain Ratio — Knife Slits Water (12")
O Defunkt — Razor's Edge (12“)
O Pig Bag — Getting Up
O Pig Bag — Big Bean
O Anti-Nowhere
League — We Are
The League.
Rokkplata ársins?
Alla vega sögöu (s-
lenskir gagnrýn-
endur að þetta
væri frábær rokk-
þlata. Loksins fá-
anleg aftur eftlr aö
hafa veriö uppseld
í nokkurn tíma.