Morgunblaðið - 21.12.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
21
Bretland:
Fjórði njósnarinn
dreginn fyrir rétt
Aldershot, Knglandi, 20. degember. AF.
UNDIRLIÐÞJÁLFI í lovniþjónustu breska hersins, Philip Aldridge að nafni,
var í dag ákærður fyrir njósnir en ekki hefur verið ákveðið hvenær réttarhöld
í tnáli hans fara fram. Er hér um að ræða fjórða njósnamálið í Bretlandi frá
því í nóvember.
Aldridge, sem er tvítugur að
aldri, var ákærður fyrir að hafa í
ágúst og september sl. ætlað að af-
henda ónefndum manni skjöl, „mik-
ilvæg óvinaríki". Haft er eftir
óstaðfestum heimildum, að Ald-
ridge hafi verið handtekinn í kjöl-
far rannsóknar á tilraunum Sov-
étmanna til að komast að því
hvernig Bretar öfluðu sér upplýs-
inga í Falklandseyjastríðinu.
Tíunda nóvember sl. var Geoffrey
Prime, fyrrum rússneskuþýðandi
við Cheltenham-fjarskiptastöðina,
dæmdur í 35 ára fangelsi fyrir að
hafa njósnað fyrir Rússa, en að
sögn bandariskra embættismanna
var þar um að ræða eitt mesta
njósnamál frá lokum síðara stríðs.
Sjöunda desember var Hugh
Hambleton, kanadískur prófessor,
dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir
njósnir fyrir Sovétmenn á árunum
1956—61 og að síðustu var svo
sendiráðsstarfsmaðurinn Rhona
Ritchie dæmd í níu mánaða fang-
elsi, skilorðsbundið, fyrir að hafa
látið egypskan ástmann sinn fá í
hendur skeyti breska utanríkis-
ráðuneytisins til sendiráðsins í Tel
Aviv.
Hindraði Indira
árás á Pakistan?
W a.shinmon, 20. deHember. AF.
HAIT er eftir heimildum innan
bandarísku leyniþjónustunnar, að
Indverjar hafi lengi verið við því búnir
að ráðast á mannvirki i Pakistan, sem
hugsanlega kynnu að verða notuð við
smíði kjarnorkuvopna. The Washing-
ton Post greindi frá þessu í dag og
sagði, að indverskir herforingjar hefðu
viljað gera árásina fyrir niu mánuðum
en þá hefði Indira Gandhi hafnað
henni.
Samkvæmt leyniþjónustuheimild-
unum taldi Indira Gandhi ekki rétt
að láta til skarar skríða á þeim
tíma, sem herforingjarnir vildu, en
hefði hins vegar verið hugmyndinni
hlynnt ef þannig stæði á, að Pakist-
anir væru í þann veginn að koma sér
upp eigin kjarnorkuvopnum. Mani
S. Aiyer, talsmaður indversku
stjórnarinnar, sagði í Nýju-Delhi í
dag, að þessi frétt væri „uppspuni og
úr lausu lofti gripin“. Hann benti á,
að Indira og Zia Ul-Haq, Pakistan-
Veður
víða um heim
Akureyri -t-2 snjókoma
Amsterdam 5 skýjaó
Aþena 14 skýjaó
Barcelona 13 skýjaó
Berlín 8 rigning
BrUssel 8 skýjað
Caracas 27 skýjaó
Chicago 2 skýjað
Dyflinni 12 rigning
Frankfurt 5 þokumóóa
Færeyjar 2 alskýjað
Genf 4 heiðskírt
Helsinki 4 skýjaó
Hong Kong 18 heiðskírt
Jerúsalem 16 heiðskfrt
Jóhannesarborg 29 rigning
Kairó 20 heióskírt
Kaupmannahöfn 3 snjókoma
Las Palmas 18 skýjaó
Lissabon 13 rigning
London 8 heiðskírt
Los Angeles 22 skýjað
Madrid 10 skýjað
Malaga 14 lóttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Mexfkóborg 20 heiðskirt
Miami 24 heiðskfrt
Montreal +4 skýjað
Moskva 5 skýjað
Nýja Delhí 23 heiðskírt
New York 1 snjókoma
Ósló 3 snjókoma
París 11 skýjaö
Reykjavik -»4 snjókoma
Rio de Janeiro 35 skýjaö
Róm 11 heiöskfrt
San Francisco 14 skýjaö
Stokkhólmur +3 heiðskirt
Tókýó 11 heiðskírt
Vancouver 8 skýjað
Vín 4 skýjað
forseti, hefðu átt mjög vinsamlegar
viðræður fyrir skemmstu og væru
staðráðin í að bæta samskipti þjóð-
anna.
The Post segir, að áhyggjur Ind-
iru hafi vaxið mjög að undanförnu
eftir að Pakistanir luku við smíði
endurvinnslustöðvar fyrir úran, en
jafnt Indverjar sem Bandaríkja-
menn óttast, að þeir hafi í hyggju að
endurvinna notað eldsneyti og nýta
í kjarnorkusprengjur.
Aukið atvinnu-
leysi í Finnlandi
llelsinki, 20. desember. AF.
Atvinnuleysingjar í Finnlandi
voru 141.800 í nóvember síðast-
liðnum, segir í tilkynningu
atvinnumálaráðuneytisins í dag.
Þar kom einnig fram að atvinnu-
leysingjum hefur fjölgað um
15.700 frá því í sama mánuði á
síðastliðnu ári.
Einn þriðji hluti atvinnulausra
er fólk undir 25 ára aldri.
Aðkflga
Það er ekki sama glas og glas.
Smekkfólk gerir sér ljóst
að falleg glös eru hluti af ánægjulegum
málsverði og samverustund.
Sértu að leita að fallegum glösum þá
er Kosta Boda staðurinn.
Glös úr sænskum gæðakristal, formuð
af heimsfrægum hönnuðum.
Kosta Boda býður fyrsta flokks
skrautmuni úr kristal, postulíni,
steinleir, eldföstu gleri og stáli.
Kosta Boda, gjafaverslun vandlátra.
KOSTA BODA
Bankastræti 10. Sími 13122
80 ár
fyrir Hafnarfjörð
Sparisjóðurinn
á afmœli
á morgun
Af því tilefni bjóðum við öllum
viðskiptavinum okkar og vel-
unnurum í afmœlisveislu.
Á morgun
Kaffi og kökur fyrir fullorðna,
gosdrykkir og sœlgœti fyrir
börnin.
Verið velkomin
í Sparisjóðinn ykkar
5PARI5JÚÐUR
HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 8—10
REYKJAVÍKURVEGI 66