Morgunblaðið - 21.12.1982, Síða 34

Morgunblaðið - 21.12.1982, Síða 34
38 MORGUNBLAÐIÐrÍRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982 Óhóf í hrossaeign veldur vandamálum í nýtingu beitilands Hestar Valdimar Kristjánsson f A síðustu árum hafa beitarmál of landnýting verið ofarlega á baugi meðal þeirra er búfjárrækt stunda. Ekki hafa hestamenn og hrossa- ræktendur farið varhluta af þessum umræðum enda kreppir skórinn víða hvað varðar beitarmál hrossa. Víðast hvar hefur hrossum verið meinaður aðgangur að afréttum vegna of mik- ils beitarálags. Er nú svo komið að aðeins eru hross rekin á afrétt í Húnavatnssýslu og Skagafirði. En þar er þó beitt ítöiu. í þéttbýli hefur hrossum farið ört fjölgandi á siðustu árum og eru mikil þrengsli oft í hög- um og er ekki óalgengt að sjá hross i rótnöguðum litlum girðingum á sumrin i nágrenni þéttbýlis. Eru þessi sveltihólf notuð ár eftir ár án nokkurrar hvíldar þannig að gróður- inn nær aldrei að dafna á vorin og má heita að þessi hólf séu sviðin allt sumarið þar til hrossum er sleppt á haustbcit seinni part i ágúst eða byrjun september. Orsakar slík notkun á landi gróðureyðingu með tímanum. Án efa er þörf á víðtækri skipulagningu beitar í nágrenni Reykjavíkur og á öðrum þéttbýlis- stöðum jafnhliða þvi sem unnið verði að fækkun hrossa bæði í þétt- býli sem í dreifbýli. Sú staðreynd að hross eru of mörg er tvímælalaust aðalástæðan fyrir þeirri landníðslu sem viðgengst nokkuð viða. Síðastliðið sumar var haldið Landsmót í Skagafirði eins og mönnum er sjálfsagt í fersku minni. Á þetta mót fór fjöldi manns ríðandi og er talið að hrossafjöldi sá er fór yfir hálendið hafi skipt hundruðum. Telja fróðir menn að hér sé á ferðinni mikið vandamál þegar slíkur fjöldi fer um hálendið þar sem gróður er viðkvæmur. Á tveimur síðustu ársþingum Landssambands hesta- manna hafa bæði beitar- og ferða- mál fengið verulega umfjöllun og á síðasta þingi sem haldið var síð- ast í október flutti Sveinn Run- ólfsson landgræðslustjóri erindi um beitarmál og umgengni við landið. Umsjónarmaður Hesta fór þess á leit að fá að birta þetta erindi og varð Sveinn góðfúslega við þeirri beiðni og birtist það hér, að vísu örlítið stytt. Feröalög, beit og umgengni vid landið Með aukinni og almennari hestaeign hefur sumarferðalögum manna um landið á hestum fjölg- að jafnt og þétt. Það er ánægju- legt hve margir hafa getað veitt sér það að kynnast landinu á svo heilbrigðan hátt, varla gefst betra tækifæri til þess en einmitt með því að ferðast á góðum hestum um byggðir jafnt sem óbyggðir okkar fagra og tilkomumikla lands. Margir hestaeigendur líta á langferðir á hestum sem hápunkt hestamennsku sinnar og svo hefur vafalaust verið allt frá þeim tíma er land byggðist og menn riðu t.d. til Alþingis á Þingvöllum hvað- anæva af landinu. Þá eins og í göngum og ferðum alveg fram á okkar tíma hafa menn orðið að treysta á að hefta hestana í náttstað. Á sinn hátt hefur hefting hesta verið viðun- andi lausn í miklum vanda, hest- arnir voru vanir haftinu, en því er ekki til að dreifa nú um okkar hesta sem betur fer. Það að hefta hestana eða binda þá á streng í náttstað leysir ekki vandamálin við ofbeitta nátthaga nú á tímum, auk þess sem það er óframkvæm- anlegt. Kemur þar margt til, m.a. það að áður fyrr var meirihluti hestahópsins vinnuhestar sem voru í nær daglegri notkun mikinn hluta árs. Nú eru ferðalögin oft öðrum þræði tamningaferðir og kröfurnar um tryggt aðhald fyrir hesta næturlangt mjög knýjandi. Hópferðamenn á hestum hafa verið sakaðir um gróðurskemmd- ir, sérstaklega á viðkvæmum há- lendisgróðri. Ég er þess fullviss að ferðamenn reyna eftir því sem þeim er unnt að ganga vel um hvar sem þeir fara og því sjaldn- ast maklegt það ámæli sem þeir hafa hlotið. Einkum kveður að þessu umtali þegar saman fara landsmót hestamanna eða önnur stórmót og köld sumur. Reynslan af síðastliðnu sumri kennir okkur að um verulegt vandamál getur verið að ræða þegar mjög stórir hópar, sem telja hross í hundruð- um, fara á svipuðum tíma yfir há- lendið. Veðráttan í vor og sumar var afar köld, snjór í fjöllum, vötn ísi lögð langt fram í júní og enginn beitargróður fyrr en nokkuð var liðið á júlí. Það er sérstaklega ánægjulegt að ársþing LH 1981 samþykkti að Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri er sjálfur mikill áhugamaður um hestamennsku og hrossarækt og hefur sýnt málefnum hestamanna niikinn skilning. tjósm. vk. ' Langferðir á hestum um hálendið er vafalaust hápunktur hestamennskunnar hjá mörgum. UTSOLUSTAÐIR: , TORGIÐ HERRARIKI RAMMAGERÐIN VÖRUHÚS KEA AKUREYRI IDNADARDEILD SAMBANDSINS GLERÁRGOTU 28 P HÓLF 606 662 AKUREYRI SIMI (96)21900 Haminejusöm í hlýrri og mjúkri IAK~' næstu ár yrðu helguð því megin- verkefni að greiða fyrir ferðalög- um um landið á hestum. Vel var< við hæfi að LH tók þessi mál til umfjöllunar og meðferðar og hef- ur það reyndar verið gert fyrr á þessum vettvangi. Fyrir nokkrum árum setti LH nefnd á laggirnar til að vinna að málefnum varðandi áningarstaði. Nefndin ræddi við ýmsa aðila er þessi mál varða. Þá var efst á baugi hvort girða ætti lítil geymsluhólf fyrir hross, þar sem ekki væri um beit að ræða, eða allstór beitarhólf sem yrðu áborin gróðurlendi eða jafnvel grædd upp á örfoka landi. Þessar umræður urðu meðal annars til þess að sumarið 1980 var girt 8 ha. hólf inn við Hvítárnes á Biskups- tungnaafrétti. Landgræðslan girti þetta hólf en LH kostaði efnið. Heimamenn völdu svæðið og var þetta gert í fullu samráði við þá. Borið var á þetta hólf úr lofti sumrin 1980 og 1982, 4 tonn í hvort skipti og nálgast það að vera túnskammtur af áburði. Reynslan af þessari framkvæmd er sú að lítil sjáanleg merki eru um gróð- uraukningu eftir áburðinn, enda hefur veðráttan verið mjög köld og beitarálagið urið upp þann litla Reisa þarf lítil en örugg geymsluhólf á án- ingarstöðum. Þar þarf að vera skjól og helst vatnsból frá náttúrunn- ar hendi og þægilegt væri að setja upp stokka svo hægt væri að gefa ferðahestum, t.d. gras- köggla. gróður sem fyrir var. Það hefur líka víða komið í ljós að gróður- lendi, sem eru þannig þrautnöguð ár eftir ár, hætta fljótt að skila nokkurri uppskeru og á fokgjörn- um jarðvegi er mikil hætta á upp- blæstri. Þær raddir hafa heyrst að taka ætti þessa girðingu niður áður en þar yrðu frekari landspjöll. Allir hljóta þó að vera sammála um að girðingin hefur komið að ómetan- legum notum þau þrjú ár síðan hún var sett upp og þó einkum á síðastliðnu sumri, er ekki ljóst hvernig farið hefði ef hennar hefði ekki notið við. Ég tel því þörf á að Heimir — nýtt tímarit Sambands ísl. karlakóra Á SÍÐASTLIÐNU vori hóf göngu sína nýtt tímarit, Heimir, tímarit Sambands íslenskra karlakóra, en fyrirhugað er að það komi út tvisvar á ári. Með útgáfu ritsins er stefnt að því að efla kynni og sam- heldni karlakóra og karlakóra- manna landsins, auka skilning og þekkingu þjóðarinnar á starfsemi karlakóranna og að verða karla- kórssöng til eflingar og fram- þróunar. Tímaritið er arftaki Heimis, söngmálablaðs, sem Sam- band íslenskra karlakóra gaf út á árunum 1935—1939 undir rit- stjórn Páls ísólfssonar og Baldurs Andréssonar. Annað tölublað Heimis er ný- útkomið, 30 síður að stærð. Af efni blaðsins ber einkum að nefna grein Jóns Þórarinssonar, tón- skálds, um upphaf karlakórssöngs á íslandi og ýmsa þætti þeirrar starfsemi frá miðri 19. öld til þessa dags. Birt er lag Páls P. Pálssonar: Þjóðskáldið. Þá eru í ritinu birtar fréttir frá ýmsum af um 20 karlakórum landsins, þar sem greint er frá tónleikahaldi þeirra innanlands og utan, hljómplötuútgáfum og fjölþættri félagsstarfsemi. I ritstjórn Heimis eru Þorsteinn R. Helgason, Ragnar Ingólfsson, Hinrik Hinriksson og Ævar Hjartarson. (Frt-UatilkynninK)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.