Morgunblaðið - 21.12.1982, Side 38
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1982
Fyrsta flokks
Raftækjaúrval
NIG&BÍIASTÆDl
/FOnix
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Aðalfundur launamála-
ráðs ríkisstarfs-
manna innan BHM
hvatti til þess, að hlutdeild tekju-
skatts í tekjuöflunarkerfi ríkisins
yrði minnkuð. Mótmælt var síend-
urtekinni íhlutun stjórnvalda á
gerða kjarasamninga. Launþega-
samtök í landinu voru hvött til
samstarfs. í því sambandi var
einkum bent á áhrif tölvuvæð-
ingar, bætt vinnuumhverfi og
neytendamál. Vakin var athygli á
nauðsyn þess, að vinnumarkaður-
inn taki meira tillit til þarfa fjöl-
skyldunnar. Einnig var vakin at-
hygli á húsnæðismálum þeirra,
sem hefja störf eftir langt og
kostnaðarsamt nám.
í ályktun um kjaramál kom
fram, að meðallaun dagvinnu hjá
háskólamenntuðum ríkisstarfs-
mönnum eru verulega lægri en hjá
sambærilegum hópum á almenn-
um vinnumarkaði, þó ekki sé leng-
ur um að ræða nein umtalsverð
hlunnindi ríkisstarfsmanna um-
fram aðra launþega. Yfirvinna og
aðrar aukagreiðslur eru hjá há-
skólamenntuðum ríkisstarfs-
mönnum tæp 30%, en á almennum
vinnumarkaði virðist ekki óal-
gengt að fólk tvöfaldi taxtakaup
með slíkum greiðslum. Bent var á,
að starfsævi langskólagengins
fólks er verulega styttri en ann-
arra.
Samþykktar voru nýjar sam-
þykktir fyrir ráðið í samræmi við
ný lög Bandalags háskólamanna.
Ásthildur Erlingsdóttir lektor
var endurkjörinn formaður.
Armenn 10 ára
— félagar 253 talsins
í desembermánuði árið 1972 birt-
ist i dagblöðunum auglýsing þar sem
skorað var á áhugamenn um stang-
veiði með flugu að stofna með sér
félagsskap og mæta á undirbúnings-
fund. Það var Jón Hjartarson, kaup-
sýslumaður, sem átti þessa hugmynd
og var stangaveiðifélagið Ármenn
stofnað 28. febrúar 1973 eða fyrir
tæpum 10 árum.
Ármenn eru landsfélag um þjóð-
lega náttúruvernd og stangveiði
með flugu. Tilgangur félagsins er
þríþættur; að sameina sem flesta
fluguveiðimenn í eitt félag, að
stuðla að því að íslenzkri náttúru
verði ekki spillt með illri umgengni
og rányrkju, og að íslendingum
verði jafnan í reynd tryggður
forgangsréttur til íslenzkra land-
gæða.
Tíundi aðalfundur félagsins var
nýtega haldinn. í ræðu formanns,
Gylfa Pálssonar, kom m.a. fram,
að Ármenn er nú 253 talsins og
bættust 27 nýir félagar við á síð-
asta starfsári. Mikið hefur verið
unnið að fræðsiumálum, flugu-
hnýting kennd og kastkennsla hef-
ur farið fram víða um land á veg-
um Ármanna. Aðsetur Ármanna,
Veiðisel, er að Skemmuvegi 14 í
Kópavogi. Þar er opið á hverjum
miðvikudegi frá klukkan 20—22.
Formaður Ármanna er Gylfi
Pálsson.
Nýkjörin stjórn Launamálaráðs bandalags háskólamanna á fyrsta fundi
sínum, talið frá vinstri: Hreinn Hjartarson veðurfræðingur, meðstjórnandi,
Páll Jónsson tæknifræðingur, ritari, Rúnar Hauksson arkitekt, í varastjóm,
Guðriður Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri BHM, Ásthildur Erlingsdóttir
lektor, formaður launamálaráðs, Sigmundur Stefánsson skrifstofustjóri
BHM, Ásgeir Sigurgestsson sálfræðingur, varaformaður launamálaráðs,
Ólafur Karlsson viðskiptafræðingur, gjaldkeri.
AÐALFUNDUR launamálaráðs
ríkisstarfsmanna innan BHM var
haldinn 10. desember sl. Aðal-
fundir ráðsins hafa fram að þessu
verið haldnir á vorin þannig að
síðasta staristímabil var u.þ.b.
hálft ár. I skýrslu stjórnar var
einkum greint frá endurskoðun á
kjarasamningum í haust í fram-
haldi af kjarasamningum ASÍ og
BSRB.
Á fundinum voru samþykktar
allmargar ályktanir: Fundurinn
Hljómplata sem gleður
Jólasálmarnir, sem ALLIR kunna á einni hljómplötu, — í frábærum
flutningi 3ja kóra og ellefu hljóöfæraleikara.
r
Platan sem kemur öllum í hátíðarskap.
Fæst á útsölustöðum um land allt.
Dreífíng: Steinar hf.
Otgáfan
SKÁLHOU S,,í927
[ Opid í kroM til M. 22)
HAGKAUP
• Skeifunni15