Morgunblaðið - 29.12.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982
7
Þakka innilega hlýhug og kveðjur á 70 ára afmæli mínu
þann 5. desember síðastliöinn.
Bjarni Þorsteinsson,
Hurðarbaki, Reykholtsdal.
Hestamenn
Þeir, sem eiga hesta á Ragnheiðarstöðum og hafa
ekki gert ráðstafanir aö félagið láti gefa þeim dag-
lega, hafi samband við okkur nú þegar. Annars
verður hestunum ráðstafað sem óskilahrossum.
Kjalarnes
Nokkrir hestar ósóttir.
Tapast
hafa hestar frá Ragnheiöarstööum, 2 gráir, einn jarp-
ur og ein brún hryssa. Bændur á þessu svæði láti
okkur vita, ef þeir veröa þeirra varir.
Tamningastöð
tekur til starfa nú eftir áramótin, 3. janúar. Tamn-
ingamenn verða: Hafliöi Halldórsson og Hreinn Þor-
kelsson.
Skaflaskeifur
til sölu. Kr. 200 — gangurinn. Helluskeifur á 240 kr.
gangurinn.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins kl. 13—18
á mánudag—föstudags. Sími 30178 og 33679.
Hestamannafélagið Fákur.
erusðlu
staóir okkar
iReykjavik ...
sjs
Snorrabraut 60
Volvosalurinn, Suðurlandsbraut
Fordhúsið, Skeifunni
Alaska, Breiðholti
Seglagerðin Ægir, Grandagarði
Styójið okkur-stuðlió að eigin öryggi
Hjálparsveit skáta
ÁSJ Reykjavík
Ráöherrasósí-
alisminn fellir
vinstri fjaðrir
Alþýðubandalagið er að
trosna upp í vinstra kant-
inn, hvar fjölskrúðugir
sérvizkuhópar eru að
hleypa heimdraganum. Á
sama tíma er að verða til
valdahópur í flokknum
utan um nýja hugsjón sem
hlotið hefur nafnið „ráð-
herrasósíalismi" — og ein-
hverskonar „framsóknar-
deild" í þingflokknum.
Inirvaldur l>orvaldsson,
„félagi í baráttusamtökum
fyrir stofnun kommúnista-
flokks", ritar grein í Þjóð-
viljann í gær, þar sem m.a.
er vikið að þeim vinstri
fjöðrum, sem hann telur
Alþýðubandalagið vera að
fella. Upphaf greinarinnar
hljóðar svo:
„Lengi hafa átt sér stað
deilur milli Alþýðubanda-
lagsins og hinna ýmsu svo-
kölluðu „vinstri hópa".
Þær hafa gjarnan ein-
kennst af því að Alþýðu-
bandalagið hefur sakaö
hina síðarnefndu um sér-
visku, kreddufestu, útúr-
boruhátt o_s.frv., án þess
að gagnrýna stefnu þeirra
eða gera á þeim nokkurn
greinarmun.
Nú er svo komið að
maóLstahreyfingin er hrun-
in til grunna og leifar
hennar íhuga nú inngöngu
í Alþýöubandalagið eða
Vilmundarbandalagið!
Fylkingin, sem alla tíð hef-
ur hangið í pilsfaldi Al-
þýöuhandalagsins, er nú í
vaxandi kreppu, sem lík-
lega mun færa hana enn
nær AB. Á hinn bóginn á
Alþýðubandalagið í vax-
andi erfiðleikum með að
halda utan um sitt lið.
Bæði hefur eitthvað flísast
úr flokknum til kvenna-
framboðsins, og hitt, sem
þó er áhrifameira, að innan
Alþýðubandalagsins hefur
magnast mikil óánægja
með þátttöku þess í vax-
andi árásum á lífskjör
verkalýðsins, fyrst og
fremst eftir bráðabirgða-
lögin í ágúst."
Yfirklór ráö-
lausrar ríkis-
stjórnar
Pétur Sigurösson, for-
maður Alþýðusambands
Vestfjarða, segir í blaðavið-
lali um láglaunabætur:
„Fólk hér er þrumulost-
ið yfír því hvernig lág-
launabæturnar deilast út.
I>ess er dæmi, að forstjórar
fyrirtækis hér á ísafirði fær
láglaunabætur en starfs-
fólkið engar. Kaupmenn og
framkvæmdastjórar fyrir-
tækja fá bætur á meðan
þeir, sem mest þarfnast
uppbóta, sitja hjá. þetta er
fálm út i loftið. Menn
hefðu þess vegna getað
kastað þessu út um glugg-
ann — þar sem happ virð-
ist hafa ráðið hverjir fengu
láglaunabætur.
Óánægja er mikil — en
miklu frekar að menn séu
hissa á því hverjir fengu
tékkinn og hverjir ekki.
Kngin glóra virðist í því. Ég
veit dæmi um menn sem
unnið hafa hliö við hlið.
íbúðareigandi, sá er mér
virðist betur staddur, fékk
láglaunabætur, en hinn
sem enga íbúð á fær engar
bætur. Það er kannski
vegna þess að íbúðareig-
andinn þarf að kynda upp
íbúð sína, ég veit þaö ekki.
IAglaunabæturnar eru
fyrst og fremst notaöar til
þess að reikna niður kjara-
skerðinguna — bæturnar
nema sem svarar 2'/2% af
skeröingunni. Og það eyk-
ur á svindlið að bæturnar
eru reiknaðar út á desem-
berverðlagi — en eru
greiddar út í þremur af-
borgunum, síðast í júni
næstkomandi og sá tékki
verður mun verðminni en
desembertékkinn. I>etta er
yTirkkir, sem kemur lág-
launafólki lítt til góða,"
sagði Pétur Sigurðsson."
Stétt með stétt
í nýlegri forystugrein
Seltirnings, málgagns
sjálfstæðisfólks á Seltjarn-
arnesi, segir m.a.:
„Kin er sú setning i
stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins, sem heyrist of
sjaldan haldið fram, og þá
helst við ræöuhöld á ráð-
stefnum og þingum eða í
skálaræðum í gylliboðum.
Kn það er setningin —
Stétt með stétt. — Áuðvit-
að þarf ekki að skýra efni
þessa slagorðs fyrir
mönnum; það skýrir sig
sjálft Vinstri menn hafa
löngum látiö þetta slagorð
fara ógurlega í taugarnar á
sér. Kins og allir vita, þá
byggist ein meginhugsjón
kommúnismans á því göf-
uga markmiði að etja fólki
saman hverju á móti öðru
og helst það rækilega, að
þegar yfir lýkur standi ekk-
ert eftir nema eymd og vol-
æði fátæklinganna, öreig-
anna, annars vegar, en
traust völd og allsnægtir
yfirstéttarinnar hins vegar.
Á þeirra máli kallast þetta
alræði öreiganna — og er
takmarkið. I»ví þarf það
engan að undra þótt ís-
lenskir kommúnistar tali
um hugtakió — Stétt með
stétt — af fullkominni
fyrirlitningu.
Kn þetta er gott slagorö.
f því felst falleg hugsun og
það höfðar til flestra vel
þenkjandi manna. Knda
hefur SjálfstæðLsflokknum
tekist að vera fiokkur
manna og kvenna úr öllum
starfsgreinum þjóðfélags-
ins. f Sjálfstæðisflokknum
hefur þetta fólk starfað
saman hlið við hlið, og þeg-
ar mikið ríður á fylkt sér
saman sem órofa heild og
þannig marseraö fram til
sigurs. Þess vegna er þetta
gott slagorð og þess vegna
óttast íslenskir kommún-
istar hugsunina og reyna
að varpa á hana rýrð með
háði og spotti."
Sex manns vegnir í mafíudeilum
Palermo, Ítalíu, 27. desember. Al>.
SEX manns voru skotnir til bana á
Sikiley á sunnudaginn í einhverjum
blóði drifnasta sólarhring sem um
getur á eynni. Moröin tengdust öll
mafiuátökum á eyjunni, en bófa-
flokkarnir berjast harðvítugri bar-
áttu um yfirráð á blómstrandi heró-
ín-markaðnum.
147 manns hafa verið vegnir í
mafíustríðinu í Palermo eða ná-
grenni það sem af er þessu ári.
Meðal hinna myrtu á sunnudaginn
var Giuseppe Genova, tengdason-
ur Tomasso Buscetta, mikils
mafíuleiðtoga sem talið er að sé
búsettur i Brasilíu af ótta við að
verða myrtur. Genova hefur lengi
varið hagsmuni tengdaföður síns á
Sikiley og hann var myrtur þar
sem hann var að störfum á mat-
sölustað sem gamli maðurinn á.
Viðskipta- og
hagfræðingatal
Vegna stéttartals viðskiptafræðinga og hagfræöinga, sem í undirbúningi
er, vilja aðstandendur útgáfunnar hvetja þá, sem eyðublöö hafa fengiö,
að hraða útfyllingu og innsendingu þeirra til Almenna bókafélagsins,
Austurstræti 18, Reykjavík, fyrir 6. janúar nk.
Þá er þeim viðskiptafræðingum og hagfræðingum, sem af einhverjum
ástæðum hafa ekki fengid eyðublöð send, bent á að hafa samband viö
Almenna bókafélagiö, Austurstræti 18, sími 25544, sem mun afhenda
eða senda þeim eyöublöö.
Aðstandendum fjarstaddra eða látinna viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga er sömuleiöis bent á aö hafa samband viö Almenna bókafé-
lagið, Austurstræti 18, sími 25544, vegna eyðublaða og veröa þau þá
send eins og um veröur beðið.
Almenna bókafélagið Félag viðskiptafræðinga
Austurstrætí 18, og hagfræðinga
Reykjavík.