Morgunblaðið - 29.12.1982, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.12.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982 23 Ólafsfirðingar binda mikl- Flugeldasala: Hjálparsveit skáta í Kópavogi verður með fjóra útsölustaði Morgunblaðiriu hefur borizt eftirfar- andi fréttatilkynning frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi vegna flugeldasölu sveitarinnar fyrir áraraótin: Eins og undanfarin ár, þá er Hjálparsveit skáta Kópavogi með sölu flugeida fyrir áramótin. Útsölu- staðir hennar eru á eftirtöldum stöð- um; Toyota-umboðinu Nýbýlaveg 8, húsnæði Búnaðarbankans Hamra- borg 9, húsnæði Sparisjóðs Kópa- vogs (Kaupgarði) Engihjalla 4 og Skátaheimilinu Borgarholtsbraut 7. Þar er að finna fjölbreytt úrval af rakettum, handblysum, standblys- um, tívolíbombum, innidóti o.fl. Ör- uggar og góðar vörur, af öllum stærðum og gerðum. Einnig höfum við á boðstólum hina sívinsælu fjöl- skyldupakka, sem eru með 10% af- slætti. Opið er frá kl. 10—22 alla daga nema á gamlársdag, en þá er opið frá kl. 10—16. Hjálparsveit skáta Kópavogi heit- ir á alla Kópavogsbúa að leyta ekki langt yfir skammt, og versla á ein- hverjum útsölustað hennar. Enn- fremur óskar hún öllum Kópavogs- búum og öðrum velunnurum gleði- legs nýs árs, með þökk fyrir veittan stuðning á liðnum árum. ÖKUMAÐUR jeppa, sem ók á mann í Skipholti og stakk af slysstað eins og skýrt var frá í Mbl. í gær, hefur ekki viðurkennt að hafa verið valdur að slysinu og ber við minnisleysi sakir áfengisneyslu. Eftir að hafa ekið mann niður í Skipholti, fór hann suður Nóatún en ók þar aftan á bifreið og skemmdi hana talsvert. Þau mistök urðu í gær í Mbl. er skýrt var frá atvikinu, að sagt var að maðurinn hefði ekið burt eftir áreksturinn. Það er ekki alls kostar rétt, maðurinn stökk út úr bifreiðinni og reyndi að forða sér. Eigandi bifreiðarinnar, sem ekið var á, elti manninn og náði honum í garði skammt frá og færði í hendur lögreglunni. „Opið hús“ í Tónabæ Þann 29. des nk. verður jóla- fagnaður Styrktarfélags vangef- inna haldinn í Tónabæ kl. 20-23.30. Góðir gestir koma í heimsókn og hljómsveitin Alfa Beta leikur fyrir dansi. Ber við minnisleysi sakir áfengisneyslu HAPPDRÆTTISÍBS — Happdrætti til góds. ar vonir við gerð jarðganga í gegnum Olafsfjarðarmúla Olafsfirði, 28. desember. ÞETTA ár sem nú er að líða, verður okkur Olafsfirðingum minnisstætt. Langþráðu takmarki i heilbrigðis- málum hefur verið náð, er elli- og hjúkrunarheirailið Hornbrekka tók til starfa á siðastliðnu vori. Þetta er glæsileg bygging sem er auk elli- heimilis sjúkradcild og læknamið- stöð. Þá hefur setzt hér að ungur læknir, Stefán Björnsson, sem kom hingað til okkar frá Sviþjóð, en þar stundaði hann framhaldsnám í heimilislækningum. Stefán er ættað- ur héðan úr Ólafsfirði og finnst okkur mikill fengur í að hafa fengið hann aftur hingað til okkar. Samgöngur við Ólafsfjörð eru aðallega á landi og eru þær fyrst og fremst um Ólafsfjarðarmúla, en sú leið er oft erfið sökum mik- illa snjóa á vetrum. Við bindum því miklar vonir við þá áætlun að gera jarðgöng í gegnum Ólafs- fjarðarmúla, en það myndi gjör- breyta samgöngum á landi við Ólafsfjörð. I sumar voru gerðar mælingar og unnið að undirbún- ingi að gerð jarðganga í gegnum fjallið. Þá hófust framkvæmdir við lengingu flugbrautarinnar, en Norðurflug heldur hér uppi áætl- unarflugi fimm daga vikunnar. Það urðu okkur hér í Ólafsfirði mikil vonbrigði er annað skip var keypt í stað gamla Drangs, sem haldið hefur uppi siglingum hingað fjórum sinnum í viku. Það er ljóst, að þetta skip hentar ekki til vetrarsiglinga hér fyrir Norð- urlandi og hefur viðkomum við Ólafsfjörð verið fækkað í eina ferð í viku. Drangur hefur verið örygg- istæki í samgöngum við Ólafsfjörð þegar samgöngur á landi og í lofti hafa brugðist, enda hefur skipinu ávallt verið stjórnað af afburða- traustum mönnum. Verður þessi skaði ekki bættur nema með stór- bættum samgöngum á landi við Ólafsfjörð og hljótum við því að gera kröfu til að snjómokstur verði stórbættur hér yfir veturinn. Atvinna hefur verið nokkuð góð á þessu ári, ef undan er skilinn tveggja mánaða tími fyrri part vetrar, en þá voru tveir af þremur togurum okkar frá vegna viðgerða, og þá hefur minnkandi afli gert strik í reikninginn, en afli minni báta hefur verið mjög lítill allt þetta ár. Á annan dag jóla hélt ungur ()k á mann og stakk af: Ólafsfirðingur, Örn Magnússon, píanótónleika í félagsheimilinu hér, Tjarnarborg. Á efnisskránni voru verk eftir Mozart, Chopin og Ravel. Var tónleikunum mjög vel tekið og félagsheimilið þétt setið. Hér hefur verið þokkalegasta veður um jólin og bærinn mikið skreyttur og jólastemmning góð. Sóknarpresturinn okkar, Hannes Örn Blandon, messaði hér bæði á aðfangadag og jóladag og var kirkjusókn mjög góð báða dagana. FrétUuitarí Vifltusta dmumarþínír. Björtustu vonír annarra. Miði í Happdrætti SIBS hefur tvær góðar hliðar: Þú gefur sjálfum þérvon um veglegan vinning. Hin hliðin, — og ekki síðri. Þú tekur þátt í víðtæku endurhæfingar-og þjálfunarstarfi á Múlalundi og Reykjalundi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.