Morgunblaðið - 27.02.1983, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR
48. tbl. 70. árg.
SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
Prentsmiöja Morgunblaðsins
Habib
vongóður
um brott-
flutning
Beirúl, 26. fobrúar. Al*.
PHILIP Habib, sendimaöur Banda-
ríkjaforseta, átti í dag að ræða við
ráðherra Líbanonstjórnar til þess að
revna að flýta fyrir samkomulagi um
brottflutning 60.000 ísraelskra, sýr-
lenzkra og palcstínskra hermanna
frá Líbanon og er vongóður um
árangur.
Viðræðurnar miða að því að
tryggja samstöðu Bandaríkja-
stjórnar og Líbanonstjórnar um
brottflutning. Síðan er ætlunin að
Habib fari til Israel innan tveggja
sólarhringa til að tryggja sam-
þykki ísraelstjórnar.
Það er samdóma álit blaða og.
útvarpsstöðva að viðræður um
fyrstu drög að samningi um
brottflutning erlendra herja frá
Líbanon séu á úrslitastigi. Habib
hefir gert tillögur um valkosti og
málamiðlanir í öllum málum sem
valda ágreiningi að sögn óháða
blaðsins An-Nahar.
Habib fer væntanlega til Jerús-
alem eftir viðræðurnar við Líbani
til að hefja nýjar viðræður við
ísraelstjórn um samkomu-
lagsleiðir. Alls þarf að athuga 60
samningssmáatriði.
Áfram snjóar níunda daginn í
röð í fjöllunum í mið- og norður-
hlutum Líbanon. 66 hafa farizt og
lögreglustjóri Líbanon, tveir fylk-
isstjórar og yfirmaður umferðar-
mála hafa verið reknir sökum
slælegrar frammistöðu.
Veiddi
furðuveru í
dýragildru
l'eking, 26. febrúar. AP.
KÍNVEKSKUR veiðimaður seg-
ir, að hann hafi veitt skepnu,
sem var að hálfu maður og hálfu
dýr, í veiðiferð árið 1980. Hann
sagðist hins vegar hafa sleppt
fyrirbærinu af miskunnsemi er
hann sá tárin í augum þess. Seg-
ir frá þessu í Dagblaði alþýð-
unnar í dag.
Þetta eru nýjustu fregnir af
því, sem menn hafa viljað
nefna villta menn. Fregnir af
verum á borð við þessa hafa
borist með nokkuð reglulegu
millibili og kínverskir visinda-
menn hafa í nokkur ár reynt
að rekja slóð þessara leyndar-
dómsfullu fyrirbæra, „snjó-
mannsins hræðilega".
Samkvæmt lýsingu veiði-
mannsins, sem náði skepnunni
í gildru sem hann lagði, var
hún rúmur metri á hæð, með
kringlótt höfuð, munn eins og
á apa, hundstrýni, en augu,
eyru, fingur og tær eins og á
manni. Allur skrokkurinn var
þakinn hárum líkt og á vísundi.
„Ég gat ekki annað en sleppt
skepnunni. Hún horfði á mig
með tárin í augunum og auk
þess var ég óttasleginn," sagði
veiðimaðurinn.
Mexíkó
fær metlán
Mexíkóborj;, 26. fcbrúar. Al\
TILKYNNT var í Mexíkó í gær, að
samningar hefðu tekist á milli þar-
lendra yfirvalda og 530 banka á Vest-
urlöndum um mesta viðskiptalán
sem um getur í sögunni. Lán þetta er
að upphæð 5 milljarðar dollara. Gert
er ráð fyrir að skrifaö verði formlega
undir samkomulagið í næstu viku.
Lán þetta er liður í aðgerðum til
björgunar efnahagnum í Mexíkó,
sem beðið hefur skipbrot vegna
verðlækkunar á olíuafurðum. Er
efnahagsástandið í landinu ekki
talið hafa verið jafn bágborið í 40
ár.
Mexíkóstjórn bíður nú í ofvæni
eftir hverju skrefi olíuframleiðslu-
ríkja heimsins. Gert hafði verið ráð
fyrir 16 milljarða dollara tekjum
landsins af olíuafurðasölu í ár, en
fyrir hvern dollar sem olíuverð
lækkar dragast árstekjurnar saman
um 550 milljónir dollara. Mexíkóbú-
ar framleiða 1,5 milljón tunnur olíu
dag hvern.
Sakaðir um
lagstuld
('hicago, 26. febrúar. AI\
ALRÍKISDÓMSTÓLL kvað í gær upp
þann úrskurð að hljómsveitin Bee
Gees hefði gert sig seka um lagastuld
í lagi hljómsveitarinnar „How deep is
your love“, sem m.a. var eitt fjöl-
margra vinsælla laga á plötu með lög-
unum úr kvikmyndinni „Saturday
Night Fever“, sem sýnd var við geysi-
lega aðsókn, jafnt hérlendis sem er-
lendis.
Dómstóllinn komst að þeirri
niðurstöðu að hlutar lagsins hefðu
verið teknir ófrjálsri hendi úr lagi
Robert Selle, „Let it end“, sem kom
út árið 1975. Barry Gibb, aðalsöngv-
ari flokksins, brást hinn versti við
er hann heyrði úrskurðinn og sagði
hann haugalygi. Því var öðru vísi
farið með eiganda lagsins, Selle,
sem var hinn ánægðasti.
Skaðabótamál verður höfðað í
kjölfar þessa úrskurðar og Selle
þarf tæpast að hafa áhyggjur af
fjárhag sínum framvegis því „Sat-
urday Night Fever" er ein mest
selda plata allra tíma.
Ofbeldi og íkveikjur í
Assam en spennan rénar
Nýju Ik*lhí, 26. febrúar. Al\
ÓEIRÐIR og íkveikjur héldu
áfram á ýmsum stöðum í fylkinu
Assam á Indlandi í dag, en dregið
hefir úr spennunni eftir margra
vikna ókyrrð, sem hefir leitt til
þess að um 1300 manns hafa látið
lífið.
Ástandið hefir lagazt þar sem
öryggissveitir hafa dreift sér
um fylkið og útgöngubann hefir
verið fyrirskipað á æ fleiri stöð-
um. Þúsundir skelfdra flótta-
manna bíða enn eftir því við
eftirlitsstöðvar að fá að fara til
Vestur-Bengal og annarra ná-
grannafylkja.
Alríkisstjórnin í Nýju Delhí
hefir skipað stjórnum ná-
grannafylkja að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að
hjálpa flóttamönnum. Hún hef-
ir ráðstafað 250 milljónum
rúpía til aðstoðar flótta-
mönnum.
Hiteswar Saikai, sem leiddi
Kongressflokk frú Indiru
Gandhi forsætisráðherra til
sigurs í kosningunum í Assam,
átti að taka við störfum yfir-
ráðherra í fylkinu í dag, laug-
ardag, og sverja embættiseið í
höfuðstaðnum, Dispur.
Talningu er að mestu lokið og
Kongressflokkurinn hefir hlotið
90 af 126 sætum á fylkisþinginu.
Óeirðir komu í veg fyrir kosn-
ingu á 18 stöðum. Kjörsókn var
lítil.
Frú Gandhi lýsti því yfir á
föstudag að hún mundi ekki
lýsa yfir neyðarástandi í Ass-
am. Óttazt hefir verið að valda-
taka fylkisstjórnar Saikais leiði
til nýrra ofbeldisverka.
Áfengisneysla hvergi
minni en í Noregi
Osló, 26. febrúar. Krá Jan Krik l.auré,
fréllarilara Mbl.
Áfengisnotkun Norðmanna
dróst svo mikiö saman á síðasta
ári, að hún hefur ekki verið minni
síðan 1971. Samdráttur þessí gerir
það að verkum, að Norðmenn hafa
komist niður fyrir ísland á listan-
um yfir áfengisnotkun þjóða Evr-
ópu. ísland var í neðsta sæti á lista
þessum.
Alls létu Norðmenn 15,47
milljónir lítra af áfengi inn fyrir
sínar varir í fyrra, en neyslan
var 16,99 milljónir lítra árið áð-
ur. Áfengisvarnafulltrúum í
Noregi til óblandinnar ánægju
hefur sala brennivíns sérstak-
lega dregist saman. Þróunin þar
í landi virðist vera yfir í léttari
vín.