Morgunblaðið - 27.02.1983, Síða 20
SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
Tosca
harmleikur
ástar og afbrýði
— Flutt af Sinfóníunni næstkomandi miðvikudag
ÓPERAN Tosca eftir Pucc-
ini verður flutt á næstu tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands miðvikudaginn 2.
marz klukkan 20.00. Þetta
er ein af þekktustu óperum
Puccinis og jafnframt tónlist-
arheimsins og gekk hún
meðal annars í samfleytt 31
ár í New York er hún var
frumsýnd þar skömmu eftir
aldamótin. Titilhlutverkið,
Toscu, syngur Sieglinde
Kahman en hin aðalhlut-
verkin, Cavaradossi og
Scarpia, syngja Kristján Jó-
hannsson og Robert W.
Becker.
Tosca er ópera í þremur þáttum
eftir Giacomo Puccini. Söguþráð-
urinn er gerður eftir leikriti eftir
Frakkann Sardous. Puccini mun
hafa séð þetta leikrit í Mílanó með
Söru Bernhardt í hlutverki Toscu
og hreifst hann svo mjög af því, að
hann ákvað að gera óperu eftir
því. Puccini var reyndar ekki einn
um að hafa áhuga á því. Verdi
hafði einnig áhuga, en Puccini
varð ofan á. Tosca var frumflutt í
Róm árið 1900 en óperan gerist
einnig þar um 1800. Strax þar á
eftir var hún frumflutt í London
og Buenos Aires við mikla hrifn-
ingu og árið 1901 á Metropolitan í
New York og þar gekk hún sam-
Stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, Jean-
Pierre Jacqiullat
Á æfingu: Kristinn Hallsson, Robert W. Becker, Gudmundur Jónsson, Kristján Jóhannsson og Sieglinde Kahman
fleytt í 31 ár, sem er met í óperu-
sögunni og meðal annars þurfti að
skipta 13 sinnum um Toscu.
Tosca gerist í Róm um 1800 er
Napoleon Bonaparte var að gera
innrás á Norður-Ítalíu. Þá var
róstusamt og hlaut byltingarher-
inn mikla samúð meðal almenn-
ings á Italíu en andúð stjórnvalda
að sama skapi. Fyrir bragðið var
mikið um fangelsanir og grimmd í
Róm. Tosca er fræg söngkona og
mjög skapmikil. Cavaradossi er
málari og Scarpia lögreglustjóri.
Tosca og Cavaradossi eru ástfang-
in hvort af öðru, en Scarpia reynir
að vinna hylli Toscu. óperan hefst
í kirkju með því að pólitískur
flóttamaður, Angelotti, flýr inn í
kirkjuna undan Scarpia og hans
mönnum. Cavaradossi er þar að
mála Magdalenumynd og er fyrir-
myndin systir Angelottis, sem er
vinur hans. Cavaradossi hjálpar
Fólk er þyrst
í óperur
og söng
— segir Siguróur Björnsson
„FÓLK er þyrst í óperur og söng.
Þær uppfærslur, sem við höfum ver-
ið með, hafa gengið sérstaklega vel
og það er stefnt að því að halda
áfram á þessari braut,“ sagði Sigurð-
ur Björnsson, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitar íslands, meðal
annars er Morgunblaðið innti hann
eftir því, hvers vegna ákveðið hefði
verið að flytja Toscu.
„Ef guð lofar verðum við með
óperu í marz á næsta ári og ef allt
gengur að óskum flytjum við
Hollendinginn fljúgandi haustið
Sigurdur tíjörnsson
1984. Það er einnig mjög hollt fyr-
ir Sinfóníuna að spreyta sig á
óperum, því söngvarar eru oft svo
duttlungafullir, að þeim hættir til
að dvelja um of á háu tónunum.
Þá þurfa hljómsveit og hljóm-
sveitarstjóri að vera vel á verði.
Þá er einnig mikið um hraðabreyt-
ingar í tónlistinni, einkum í
ítölsku óperunum," sagði Sigurð-
ur.
Ég hlakka
til að syngja
Toscu
— segir Sieglinde Kahman
„ÞETTA er í fyrsta skipti, sem ég
syng hlutverk Toscu, en ég kann vel
við það. Þetta er fallegt hlutverk,
persónan er skemmtileg og skap-
mikil og breytir stöðugt um skap-
gerð. Þetta er erfitt en skemmtilegt
enda er mest gaman að fást við erflð
hlutverk. Það er erfíðara að syngja
þetta í konsertformi en sviðssetn-
ingu,“ sagði Sieglinde Kahman, sem
syngur tiltilhlutverkið, Toscu.
„Tosca er söngkona í óperunni
og er alltaf að leika svolítið. Hún
er tilfinninganæm og í henni
skiptast á ást og afbrýði. Hún
elskar Cavaradossi svo mikið, að
hún er reiðubúin til að deyja fyrir
hann og hún drepur Scarpia til að
eignast Cavaradossi. Tosca er
stórkostleg persóna.
Mér finnst einnig stórkostlegt
Sieglinde hahmann
að Sinfónían skuli gera þetta og ég
vona að áheyrendur verði ánægðir
með uppfærsluna. Við flytjendur
munum reyna að skapa þá
stemmningu, sem verður þegar
verkið er flutt á sviði og vonumst
til þess að vel takist til. Ég hlakka
til að syngja Toscu," sagði Sieg-
linde.
Anægjulegt
að fást við
þetta verk
segir Robert W. Becker
„ÞirTTA er í fyrsta skipti, sem ég
syng hér á landi. Mér finnst Sin-
fóníuhljómsveitin góð. Kristján Jó-
hannsson og Sieglinde Kahman eru
mjög góðir söngvarar og það er mjög
ánægjulegt að vinna með þeim,“
sagði Kohert W. Becker, ameríski
baritónsöngvarinn, sem syngur hlut-
verk Scarpia, en hann syngur nú í
fyrsta sinn hér á landi.
Robert W. Becker sagði enn-
fremur að óperan Tosca væri
einna mest krefjandi og erfiðust
ítölsku óperanna. Það væri mjög
gott að fá að syngja í Tosca og
hlutverk Scarpia væri eitt af
uppáhaldshlutverkunum. Hann
hefði sungið það þrívegis áður, en
þá alltaf á sviði. Sér líkaði kons-
ertflutningur Sinfóníunnar vel og
gæfi hann meiri tíma en sviðsetn-
ingin til að fást við smáatriði tón-
listarinnar.
Kobert W. tíeeker
Hvers vegna kemur þú hingað?
„Það er auðvitað vegna íslenzkr-
ar konu. Ég kom hingað fyrir fjór-
um mánuðum og langar til að setj-
ast hér að. Mér líkar vel hér, það
er alls ekki svo kalt, en kannski
heldur hvasst fyrir minn smekk.
Það er helzt að verðbólgan valdi
dálítilli streitu. Ég mun syngja í
útvarpinu í marz, en hvað þá tekur
við veit ég ekki, en ég vona að ég
fái nóg að gera hér,“ sagði Robert
Becker.
Geri ég þetta
ekki vel, geri
ég ekkert vel
— segir Kristján Jóhannsson
„ÉG hef tvívegis sungið í Tosca áð-
ur. Það var í tónleikauppfærslu í San
Gallen í Sviss, en þá var ég enginn
Cavaradossi. Ég er það hins vegar
nú og er ánægður yfir því að þetta
skuli allt ganga upp á við,“ sagði
Kristján Jóhannsson, tenór, sem
syngur annað aðalhlutverkið,
Cavaradossi.
„Það er alltaf gaman að því að
koma heim. Ég er lausráðinn alls
staðar, þar sem ég er að syngja, og
þegar talað var við mig fyrir um
ári að koma heim og syngja þetta
hlutverk, reyndi ég að haga söngn-
um erlendis eftir því. Það gekk,
enda eru þetta aðeins 12 dagar.
Þetta hlutverk er eins og skrifað