Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
27
Kristján Möller, íþróttafulltriíi Siglufjaröar, í skaröinu. Eins og sjá má hrjáir
snjóleysi Siglfiröinga um þessar mundir.
löngum haft orð á sér fyrir að vera
hlynntari norrænum greinum en
þeim sem við alpa eru kenndar og
sagði Kristján til eldgamla skýr-
ingu á því hvers vegna svo væri.
„Siglfirðingar áttu toppmenn í
þessum greinum hér áður, og því
var meira um það hér. Þess má til
gamans geta að nú eru rétt 20 ár
síðan Siglfirðingar unnu alla
íslandsmeistaratitla á Landsmót-
inu. Nú þykjumst við aftur vera
orðnir góðir í göngunni og í alpa-
greinunum eigum við keppendur
sem láta æ meira að sér kveða."
Kristján sagði að nokkur lægð
hefði komið í skíðastarfið í kring-
um 1965—1970, en þá hefði það ver-
ið aðstaðan sem ekki var fyrir
hendi. „1968 fengum við varanlega
skíðalyftu — nokkuð seinna en
flestir aðrir — og eftir það lifnaði
starfið á ný. Aðstaðan verður að
vera góð — hún er ein af forsend-
um þess að árangur náist. Hér áður
fyrr þótti t.d. sjálfsagt að fólk
labbaði með skíðin sín upp brekk-
urnar og renndi sér svo niður aftur.
Það var allt í lagi þegar allir aðrir
gerðu það, en við verðum að fylgj-
ast með og byggja upp — annars
drögumst við aftur úr.“
Kristján sagði ennfremur að sú
aðstaða sem nú væri fyrir hendi
þjónaði ekki einungis Siglfirðing-
um heldur hópum sem sæktu í bæ-
inn. „Þegar búnings- og baðaðstað-
an verður tilbúin í íþróttamiðstöð-
inni teljum við okkur geta boðið
hverjum sem er upp á það sem við
höfum. Nokkuð mikið hefur verið
um það að skóla- og vinnuhópar
hafi sótt hingað — hópar frá
Reykjavík, Garðabæ og Laugar-
vatni svo eitthvað sé nefnt, og þeg-
ar aðstaðan í íþróttamiðstöðinni
verður fullkláruð getum við farið
að snúa okkur meira að almenningi
— bjóða upp á ferðir hingað. Eg
tala nú ekki um ef einhver aðstaða
yrði komin upp í Skarðinu. Ég vil
meina að það sé besta skíðasvæði
landsins," sagði Kristján.
— SH
EINKASAMKVÆMI
Stórar veislur jafnt sem smáar. Sama hvert tilefnið er, brúðkaup, afmæli,
fermingar, próflok, Amarhóll annar öllu._
ARNARHÓLL BÝÐUR ÁÐSTÖÐU FYRIR:
Stærri samkvæmi (allt að 100 manna matarveislur og 200 manna hanastél
til kl. 18.00) hádegi laugardaga og sunnudaga.
Gestír utan af landi - Ópera-Leikhús ___________________
Amarhóll tekur á móti hóppöntunum óperu- og Ieikhúsgesta utan af landi.
Auk hínnar margrómuðu þjónustu, sem ásamt hlýlegu umhverfi og
fjölbreyttum matseðli hafa aflað veitingahúsinu svo mikílla vinsælda, eykur
Arnarhóll enn við umsvif sín. Við hinn almenna veítingarekstur hefur
berlega komið í ljós að margir afviðskiptavínum Amarhóls hafa brýna þörf
fVrir aðstöðu til lokaðra funda og samkvæma. Til þess að koma til móts
við þessar þarfir gesta sinna hafa aðstandendur Amarhóls ákveðið að veita
þessa þjónustu og eins og alltaf þegar Arnarhóll er annars vegar situr
fjölbreytnin í fyrirrúmi. Að aflokinni hagræðingu á salarkynnum
veitingastaðarins getur AmarhóII nú boðið fjölbreyttum hópi viðskiptavina
sinna margvíslega þjónustu.
KLÚBBAR FÉLAGASAMTÖK FYRIRTÆKI
Amarhóll býður ykkur aðstöðu til fastra hádegisverðafunda jafnt sem
einstakra og einnig einkasamkvæma.
ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR-
Smærri hópa (frá 10 manns) hádegi og kvöld alla virka dagaíí konfakssal).
Aukín
og aðstoða heimamenn við stað-
setningu á framtíðarstökksvæði
bæjarbúa.
Besti staðurinn þótti í Skútudal,
nálægt þeim stað sem Skútufell
stóð á. Árið eftir voru hannaðar og
teiknaðar tvær stökkbrautir á
þessu svæði, önnur 40 metra og hin
55 metra.
Framkvæmdir hófust ekki fyrr
en í ágúst 1980 og var þá rutt fyrir
minni brautinni. Á Skíðamóti Is-
lands 1981 var brautin notuð í
fyrsta skipti og lengsta stökk í
henni til þessa á Valur Hilmarsson,
49 metra.
400 m skíðalyfta er sett við hlið-
ina á stökkbrautunum og eykur hún
notagildi brautarinnar geysimikið.
Dæmi eru um að stökkvarar hafi
komið eftir vinnu og stokkið tíu til
fimmtán stökk á einni til einni og
hálfri klukkustund.
Ymis svæði í firðinum eru góð frá
náttúrunnar hendi og eru þau alltaf
notuð annað slagið, t.d. í Hvanneyr-
arskála og á Steinaflötum.
Kristján Möller sagði i spjalli við
Mbl. að Siglfirðingar bindu miklar
vonir við brautina við Hól og það
yrði aðalbraut þeirra í næstu fram-
tíð. Sú sem keppt var í á Landsmót-
inu 1981 yrði þá ekki notuð fyrr en
seinna, enda enginn stökkvari hér á
landi sem þyrfti svo stóran pall nú,
en í framtíðinni yrði hann senni-
lega notaður. Það yrði væntanlega
hægt að stökkva allt að 80 metra.
Skíðalyftur
I Hólshyrnu vestanverðri, um 400
m frá íþróttamiðstöðinni, er „alpa-
skíðaland" Siglfirðinga. 1976 var
sett umm 550 metra togbraut af
Doppelmayer-gerð og flytur hún
415 manns á klst. Fyrir ofan er önn-
ur, um 300 m löng. Þá eru á svæðinu
færanlegar lyftur.
Við lyfturnar hefur verið byggður
80 m2 skáli á tveimur hæðum. Þar
er stjórnbúnaður fyrir lyftur og
ljós, svo og veitingar og „almenn-
ingur“. Einnig er þar aðstaða fyrir
stjórnendur skíðamóta, tímatöku
og þess háttar, svo og geymslur.
Á svæðinu er mjög góð lýsing —
sem nær yfir um 600 m svæði. Gjör-
breyttist aðstaða fólks við tilkomu
ljósanna 6, sem komu í fyrra — og
er nú opið til kl. tíu á kvöldin.
Prófkjör Sjálfstæöisflokksins í Reykjaneskjördæmi 26—27. febrúar
Rannveig Tryggvadóttir
• Kjósum þjóðinni frelsi og fjárhagslegt sjálfstæði.
• Kjölfestan er heimilin.
• Kjósum Rannveigu á alþingi.
Skrifstofa Rannveigar er í Aðalstræti 4, uppi. Símar 16396 og
17366.
Opið kl. 1—7 um helgina.
Stuðningsmenn.