Morgunblaðið - 27.02.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
29
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Borgarspítalinn
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðinga,
aðstoðardeildarstjóra
á A-5 skurðlækningadeild og á E-6 hjarta-
sjúkdómadeild. Lausar stöður hjúkrunar-
fræðinga við ýmsar deildir spítalans. Vinnu-
tími eftir samkomulagi.
Hjúkrunarfræðinga vantar til sumarafleys-
inga.
Sjúkraliða vantar til sumarafleysinga.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
störf, sendist til hjúkrunarforstjóra. Nánari
upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrun-
arforstjóra, sími 81200.
Sjúkraþjálfarar.
Sjúkraþjálfarar óskast til afleysinga á borg-
arspítalann nk. sumar. 50% staöa sjúkra-
þjálfara á hjúkrunardeildinni á Hvítabandi er
einnig laus til umsóknar nú þegar. Upplýs-
ingar um ofangreindar stööur veitir
yfirsjúkraþjálfi í síma 81200.
Forstöðumaður tölvudeildar.
Borgarspítalinn óskar að ráöa verkfræðing
eöa tölvunarfræðing í stöðu forstöðumanns
tölvudeildar. Hér er um að ræða mjög fjöl-
breytt en krefjandi starf við stjórnun og
skipulagningu tölvuþjónustu í spítalanum.
Starfiö krefst þess að viðkomandi sýni frum-
kvæði og búi yfir góðum samstarfs- og sam-
skiptahæfileikum. Reynsla í FORTRAN-forrit-
un er nauðsynleg. Æskilegt að viðkomandi
hafi reynslu í hönnun og/eða forritun sí-
vinnslukerfa.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og starfsreynslu skulu sendar fram-
kvæmdastjóra Borgarspítalans fyrir 20. mars
nk. Upplýsingar um starfið veita fram-
kvæmdastjóri og forstöðumaður tölvudeild-
ar.
Reykjavík, 25. febrúar 1983.
Borgarspítalinn.
Málari
Málari eða maður vanur málningasprautun
óskast.
Uppl. hjá tæknideild, í síma 50022.
Rafha Hafnarfirði.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Landspítalinn
Sérfræðingar óskast viö lyflækningadeild í
eftirtaldar stööur:
Sérfræðingur í hjartasjúkdómum óskast í
50% starf til afleysinga.
Sérfræðingur í innkirtlasjúkdómum óskast í
75% starf til afleysinga.
Sérfræðingur í meltingasjúdkómum óskast
í 75% starf.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna fyrir 11.
apríl nk. á þar til gerðum eyðublöðum fyrir
lækna.
Upplýsingar veitir forstööumaður deildarinn-
ar í síma 29000.
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á Lyf-
lækningadeildum og taugadeild. Hlutavinna
og vinna á næturvöktum eingöngu, kemur til
greina.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, sími
29000.
Hjúkrunar-
fræðingar
Sjúkrahús Akraness óskar að ráöa hjúkrun-
arfræðing á handlækninga- og kvensjúk-
dómadeild sem allra fyrst. Húsnæði fyrir
hendi.
Allar nánari uppl. gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 93-2311.
Hálfsdagsstarf
— vélritun
Fyrirtæki í Hafnarfirði óskar aö ráða starfs-
mann í vélritun og tölvuskráningu. Góörar
vélritunarkunnáttu krafist. Þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Umsóknum sé skilað í pósthólf 98 í Hafnar-
firði fyrir 1. mars nk.
Vöruafgreiðslu-
stjóri
Eimskip vill ráða vöruafgreiðslustjóra til að
stjórna rekstri vöruafgreiðslu félagsins í
Reykjavík.
Rekstur vöruafgreiðslunnar felst í
m.a.:
• lestun og losun allra skipa félagsins sem
koma til Reykjavíkur,
• vörslu vörunnar þar til hún er afhent,
• ýmis konar fyrirgreiðslu og þjónustu við.
viðskiptamenn félagsins,
• stjórnun á um 200 starfsmönnum vöru-
afgreiðslunnar,
• rekstur vörugeymsluhúsa, sem eru sam-
tals 29.000 m2, innan og utan Sundahafnar,
• rekstur um 130 tækja af ýmsu tagi.
Aö undanförnu hafa oröið verulegar breyt-
ingar á iðstöðu vöruafgreiðslunnar og vinnu-
háttum. Verður áfram unnið að slíkum breyt-
ingum á næstum misserum og árum.
Verkefni vöruafgreiðslustjóra eru
m.a.:
• yfirstjórn reksturs vöruafgreiöslunnar,
• skipulag og samræmingu á einstökum
starfsþáttum,
• veruleg samskipti viö viðskiptamenn fé-
lagsins.
Þetta umfangsmikla starf krefst:
• manns með stjórnunarreynslu og góða
samskiptahæfileika. Menntun á tæknisviöi
gæti komið að góðu gagni, en umsækjandi
meö góða starfsreynslu á þessum eða svip-
uðum vettvangi kæmi einnig vel til greina.
Umsóknir, sem greini frá starfsferli og
menntun, sendist Þórði Magnússyni, fram-
kvæmdastjóra fjármálasviðs, og berist félag-
inu í síðasta lagi 4. mars 1983.
EIMSKIP
Útflutningsfyrirtæki
óskar eftir starfsmanni meö góöa vélritunar-
og enskukunnáttu. Verslunarskóla eða sam-
bærileg menntun æskileg. Góð laun fyrir
góðan starfsmann.
Eiginhandarumsóknir sendist Morgunblaðinu
fyrir 3. mars 1983, merkt: „G — 3702“.
Vélstjóri
með full réttindi óskar eftir vinnu. Margt
kemur til greina. Get byrjað strax.
Uppl. í símum 46191 og 66452.
Hárgreiðslusveinn
— hárgreiðslu-
meistari
Óska eftir meistara eða hárgreiöslusveini til
starfa.
Uppl. í síma 92-3990 og 3837.
Útflutnings-
fyrirtæki
í fataiðnaði óskar eftir að ráða fatahönnuð.
Hlutastarf kemur til greina. Öllum umsóknum
svarað.
Umsóknir óskast sendar auglýsingadeild
Morgunblaðsins merktar: „Fatahönnun —
3651“.
Verkstjóri
Útgáfufyrirtæki á Suðvesturlandi óskar að
ráða verkstjóra í saltfiskverkun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Mbl. fyrir 10. marz,
merkt: „Verkstjóri — 3652“.
Hjúkrunarfræðingar
Næturvakt óskast strax, 50% starf, í Sunnu-
hlíð, hjúkrunarheimili aldraðra, Kópavogi.
Uppl. í síma 45550.
Hjúkrunarforstjóri.
Röntgentæknar
Sjúkrahús Vestmannaeyja óskar eftir rönt-
gentækni til afleysinga í 6 vikur frá 28. mars
nk.
Nánari uppl. veitir framkvæmdastjóri, sími
98-1955.
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Starfskraftur
óskast til skrifstofustarfa hjá opinberri stofn-
un í Reykjavík.
Ráðning er til óákveðins tíma, en gæti líklega
orðiö um framtíðarstarf að ræða.
Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir 3. marz
merktar: „O — 3701“.
Laust embætti
er forseti íslands
veitir
Prófessorsembætti í líffræði við líffræðiskor
verkfræöi- og raunvísindadeildar Háskóla ls-
lands er laust til umsóknar. Prófessornum er
einkum ætlaö að annast kennslu og rann-
sóknir í frumulíffræði og skyldum greinum.
Umsóknarfrestur er til 25. mars nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir
hafa unniö, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
námsferil sinn og störf. Meö umsókninni
skulu send eintök af vísindalegum ritum og
ritgerðum umsækjanda, prentuöum og
óprentuðum. — Umsóknir skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið,
25. febrúar 1983.