Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
Ég nota
aldur minn
og ár
— franska leikkonan Simone Signoret segir frá
PARÍS. Frúin opnar sjálf fyrir mér og virðir
mig fyrir sér með augnaráði sem óskhyggja mín
leyfir sér að leggja þannig út að ég sé velkomin.
íbúðin, sem er rétt fyrir ofan Justitstorgið, gæti
næstum talist kjallaraíbúð. Fólk sem gengur
framhjá getur horft inn um gluggana alveg inn
í stofu — og fólk gerir það óspart. Það horfir inn
til átrúnaðargos síns um áratugi — Simone
Signoret, „Fallegu Maríu“, sem á þessu augna-
bliki líkist helzt gildvöxnum starfsmanni á
mjólkurbúi: hnjásíð hvít skyrtulöf hanga niður
yfir síðar buxur úr sama þykka, skemmtilega
efninu. Grásprengt ljóst hárið myndar umgjörð
um hið tígurlega og sterka andlit — andlit sem
ber dálítið merki þeirra löðrunga sem örlögin
hafa veitt. Fegurð, ástríður og greind er ábúðar-
mest í svip hennar.
1S;»
Kvikmyndir hennar hafa öðlast
sess meðal sígildra mynda fyrri
áratuga: „Nornaveiðar", „Svika-
skipið", „Framadraumar" og
„Kötturinn". Sjónvarpsmyndin
„Kvenndómarinn" er ennþá sýnd
víða um heim við miklar vinsæld-
ir. Hin bitra ádeilda „Þú hefur jú
lífið fyrir þér“, er aðeins brot af
þeim hlutverkum sem Signoret
hefur skapað. Og á síðustu árum
hefur hún skapað sér nýtt hlut-
verk sem endurminningahöfundur
— sem hefur fært henni álíka
mikinn heiður og hinar mörgu
kvikmyndir hennar.
Eldurinn lifir í arninum. Það
gera líka hinar fjölmörgu ljós-
myndir, stórar og smáar, af fjöl-
skyldu og vinum, sem hanga
hvarvetna um veggina. Flestar
þeirra eru af eiginmanninum Yves
Montand — stundum ungur,
stundum aldraður (hann og kona
hans eru jafnaldrar, 61 árs),
stundum brosandi og stundum
alvarlegur, yfirvegar hann samtal
okkar frá sínum margvíslegu sjón-
arhornum. Rótsterkt kaffi og
kannski dálítið of margar síga-
rettur örva Signoret á meðan á
viðtalinu stendur.
„Ég get víst alveg viðurkennt
það strax: Ég er rómantísk, ég er
tilfinningasöm & ég er endur-
minningadýrkari, ég elska fortíð-
ina, hið liðna, söguna. Við erum
allt það sem við höfum gengið í
gegnum, sem persónur, sem fólk,
sem þjóð. Ég hef skrifað um barn-
æsku mína, ítarlega en við skulum
láta það æviskeið eiga sig núna
fyrir utan eitt atriði; að það var þá
sem ég komst í kynni við hugtakið
list. Það hefur kannski verið ein-
hver saga sem mamma sagði mér,
það hefur kannski verið þegar ég
kynntist ævintýrum H.C. Ander-
sens, hinum mikla, ógnarmikla,
skáldskap, en ég var bara sjö ára
telpa og varð óttaslegin. „Prins-
essan á bauninni", það var fagurt
ævintýr. En nornin og hermaður-
inn í „Eldfærunum", „Snjódrottn-
ingin" — það er upplifun sem ég
losna aldrei að fullu við. Hið deyj-
andi barn með eldspýturnar er
grimdarleg saga, einnig „Litla
hafmeyjan", það er list — en svo-
leiðis skildi ég það ekki þá, ég dró
bara að mér af allri minni athygli
það sem yfir mér var lesið.
Ég get ekki sagt, að ég hafi allt-
af óskað mér að verða leikari, þó
að mér finnist svo þegar ég lít yfir
liðna æfi. En ég gat í öllu falli
aldrei skilið þær vinkonur sem
sögðu að þær vildu ekki verða
leikkonur — ég trúði þeim ein-
faldlega ekki. Mér fannst alltaf að
það væri hinn eini draumur er
maður gæti alið með sér; að verða
fræg, að drukkna í ást og auðæv-
um. Þessi draumur varð hluti af
mér, en ég viðurkenndi hann ein-
ungis fyrir sjálfri mér allt þar til
ég stóð næstum mitt í sjálfum
draumnum — þá fyrst þorði ég að
láta hann í ljós og segja: Já, þetta
er einmitt það sem mig hefur allt-
af dreymt um.
Hin myrka nótt
Maður var svo ótrúlega óþrosk-
aður. Ég gekk upp í því að eiga full
herbergi af fallegum skóm og
tízkuklæðnaði — töskum sem
pössuðu við kjólana, kjóla sem
pössuðu við kápurnar, hatta sem
pössuðu við þetta allt. En allt
þetta fatadekur fór af eftir nokk-
urt tímabil, það hvarf hreinlega
þegar maður hafði nóga peninga
til að kaupa þetta alltsaman — og
uppgötvaði að það hafði ekki
nokkurt gildi. Það er mikil lúxus
að hafa efni á að láta það eiga sig
að verzla.
Því það sem raunverulega ein-
hverja þýðingu hafði var að vera
komin út úr hinni myrku nótt —
að vera komin i gegnum þessi
dauðagöng sem hétu stríð, og vera
þar að auki heil og ósködduð. Og
eitt hafði maður lært: að það eina
sem raunverulegt gildi hefur er
ást og vinátta — ást gagnvart allri
veröldinni. Því maður getur ekki
lifað eiginlegu lífi án þess að vita
hvað er að gerast, og það er ekki
hægt að lifa án þess að vera annað
hvort með því eða á móti.
I striðinu voru hlutirnir einfald-
ir — það var svart og hvítt, ekkert
grátt eða óljóst, það var allt mjög,
mjög skýrt. Allir sem komust í
gegn um þetta stríð hafa lifað af
— og það er alltaf kraftaverk að
lifa af, það er gjöf. Ég mun aldrei
gleyma þeim viðhorfum sem við
mættum þegar ég hóf störf i
Hollywood fyrir 22 árum síðan.
Við komumst þá að raun um að
allt sem líf okkar hafði snúist um
í stríðinu, allt sem vinir okkar
höfðu verið uppteknir af, fólk eins
og Simone De Beauvoir, Sartre —
að árin ’43, ’44, ’45 höfðu enga sér-
staka þýðingu fyrir þá. Eða í öllu
falli þau þýddu ekki það sama.
Hvað við höfðum lesið, hvað okkur
hafði verið sagt, hvað málverk
þýddi í huga manns; maður gat
ekki tjáð það fyrir þeim.
Við sem höfðum lifað af — frá
Frakklandi, frá Leningrad, frá
Danmörku, frá Noregi — við vor-
um öll hluti af sömu heild sem
risið hafði upp í kringum söngv-
ana sem við sungum, skáldskapinn
sem við lásum og þær frásagnir
Artisaanit
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Sýningarsali Norræna húss-
ins gistir nú og fram að fyrsta
marz finnsk handíðasýning
samtakanna Artisaanit í Hels-
ingfors. Þetta er auðsjáanlega
sérstakur hópur finnskra
handiðnaðarmanna á breiðu
sviði, því að á sýningunni eru
hlutir, sem teljast hreinn
heimilisiðnaður, og svo aðrir,
er líta verður á sem nýskúlpt-
úra og svo mjög margt þar á
milli.
Vil ég nefna annars vegar
prjónles .Sirkku Könönen, sem
er af háum og fjölbreyttum
gæðaflokki og hins vegar leir-
listar-skúlptúra Önnu-Maríu
Osipow, sem eru með hug-
myndafræðilegu ívafi. Milli
þessara tveggja andstæðu póla
getur svo að líta breitt svið
margvíslegra handíðahönnuða.
Mjög mikið ber á vefjarlist
hvers konar, — vefnaði, tau-
þrykki, batík, textílum og
prjónlesi og í áberandi mis-
jöfnum gæðaflokki. Maður
staðnæmist með velþóknun
fyrir framan hinn stóra og ein-
falda vefnað Maisu Tikkanen
og hið formhreina og klára
veggteppi Normu Heimola.
Leirlistin gegnir viðamiklu
hlutverki á sýningunni og þar
vekur athygli hið ástþrungna
taflborð Chaterinu Kajander, —
skúlptúrar Ritvu Tuolen svo og
áðurnefndir hlutir Önnu-
Maríu Osipow, en hún virðist
gegna miklu hlutverki á sýn-
ingunni með mörgum stórum
leirskúlptúrum. Fyrir utan
þetta getur og að líta listsmíði-
hluti og glerlist. Svo sem ráða
má af ofanskráðu er þetta
marglitur hópur og um leið er
YfirliLsmynd frá sýningunni.
hann helst til ósamstæður í
fjölbreytni sinni. En hér skal
tekið tillit til þess, að um er að
ræða listhóp, aðallega sam-
settan af hinu fagra kyni, er
stofnaður var í þeim tilgangi
að koma á framfæri við al-
menning fjölþættum listíðum
atvinnumanna. Svipar honum
mjög til hópsins á bak við
Gallerí Langbrók hér í borg.
Listhópurinn sem var stofnað-
ur árið 1974 telur nú 85 með-
limi, hvaðanæva úr ríki þús-
und vatna landsins. Tæplega
helmingur eða 38 meðlimir
hópsins taka þátt í sýningunni
og fyrir ókunnugan er ekki
gott að dæma um hve vel valið
hefur tekist Eðlilega er nokk-
ur verslunarbragur yfir sýn-
ingunni og það finnst mér per-
sónulega vera helsti galli
hennar auk þess hve hlutirnir
eru ósamstæðir í uppsetningu.
En margt er um vandaða gripi
og er meira en óhætt að mæla
með innliti á þessa sýningu til
að kynnast finnsku handverki
frá nýrri hlið. Áður höfum við
aðallega getað dáðst að hinum
snjöllu glerlistarhönnuðum
þjóðarinnar, kjólum frá Mar-
imekko ásamt list Sama. Þetta
er ágæt viðbót.
Karpov
efstur í
Linares
Linart s, Spáni, 26. febrúar. AP.
ANATOLY Karpov, heimsmeistari í
skák, er enn í efsta sæti stór-
mcistaramótsins í Linares á Spáni
aó 10 umferrtum loknum með 5,5
vinninga eftir jafntefli við landa
sinn Boris Spassky, fyrrum heims-
meistara.
Önnur úrslit í tíundu umferðinni
urðu þau, að Arthur Yusupov vann
Jan Timman í 40 leikjum, Hort og
Andersson skildu jafnir í 26 leikjum,
Sax frá Ungverjalandi vann Larsen í
40 leikjum. Skák Seirawan og Geller
var frestað. Miles sat yfir.
Staðan er þá þannig, að Karpov er,
sem fyrr segir, efstur, með 5'/2 vinn-
ing en næstir honum koma Spassky
og Yusupov með 5 vinninga. Miles,
Timman, Andersson og Hort eru all-
ir með 4‘A vinning, Hort 4, Geller
3'A og þeir Larsen og Seirawan 2
vinninga hvor.
Tefla átti frestaðar skákir Miles
og Andersson, Larsen og Geller,
Spassky og Seirawan og Sax og Geil-
er í kvöld.