Morgunblaðið - 11.03.1983, Side 1
56 SÍÐUR
58. tbl. 70. árg.
FOSTUDAGUR 11. MARZ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Walesa boðar
meiri hörku
Varsjá, 10. marz. AP.
LECH WALESA, leiðtogi Samstöðu, samtaka hinna frjálsu verkalýðsfélaga í
Póllandi, var í dag í annað sinn í þessari viku viðstaddur réttarhöld, sem
haldin eru yfir félögum í Samstöðu. Við það tækifæri lýsti hann því yfir að
framvegis yrði gripið til „harðari aðgerða" af hálfu Samstöðu en verið hefði.
„Ég mun halda fram ákveðnari
stefnu," sagði Walesa á miðviku-
dag við upphaf réttarhalda yfir
Önnu Walentynowicz, sem fram
fara í borginni Grudziadz, en
Anna var í hópi helztu stofnenda
Samstöðu og hefur verið mjög virk
í þessum samtökum síðan. „Við
verðum að skipuleggja mótmæla-
aðgerðir, hungurverkföll og venju-
leg verkföll," sagði Walesa enn-
fremur.
í dag var Walesa viðstaddur, er
haldið var áfram réttarhöldum yf-
ir sex mönnum, sem ákærðir hafa
verið fyrir að skipuleggja aðgerð-
ir, sem brutu í bága við herlög
þau, sem í gildi voru í landinu. A
eftir sagði hann, að gripið yrði til
„harðari aðgerða" af hálfu Sam-
stöðu, en verið hefði. „Annaðhvort
fara fleiri okkar í fangelsi eða við
munum ná þeim út úr fangelsi,
sem þar eru,“ sagði Walesa.
Sex skipum
írana sökkt
— segir fréttastofa íraks
Nicosia, 10. raarz. AP.
FLOTI íraks sökkti í dag 6 írönsk-
um skipum, er þau voru á siglingu
QPEC-fundurinn:
Samkomulag
í vændum
segir olíumálaráðherra
Venezúela
London, 10. marz. AP.
Olíumálaráðherrar OPEC-ríkjanna
13 hófu í dag samningaviðræður sín í
milli um framleiðslumagn innbyrðis,
en áður höfðu þau lýst því yfir, að
náðst hefði samkomulag um olíuverð.
Eftir fund þeirra í dag var sagt, að enn
hefði ekki náðst samkomulag um
framleiðsluskiptinguna.
„Við stigum samt stórt skref í
samkomulagsátt," sagði Humberto
Calderon Berti, olíumálaráðherra
Venezúela, eftir fundinn.
nyrzt í Persaflóa. Skýrði frétta-
stofa íraks frá þessu í dag. Skip
þessi voru í hópi fleiri skipa, sem
sigldu í skipalest áleiðis til hafnar-
borgarinnar Bandar Khomeini.
Var sagt, að mikill eldur hefði
komið upp í skipunum, áður en
þau sukku, en herskip íraka hefðu
öll snúið til baka eftir árásina heil
á húfi. Af hálfu írana var ekkert
sagt um þessa atburði.
Þetta var í þriðja sinni í þess-
um mánuði samkvæmt frásögn
fréttastofu íraks, sem herskip
þaðan gera árás á írana. Flug-
vélar og herskip frá írak hefðu
gert árás í sameiningu 1. marz
sl. á mikilvæg mannvirki og skip
írana og næsta dag þar á eftir
hefðu herskip frá frak ráðist á
og sökkt fimm írönskum skip-
um, þar á meðal olíuflutninga-
skipi. Samtímis hefði verið gerð
mikil loftárás á olíusvæði Irana
við Nomruz.
Páfinn á Haiti
Jóhannes Páll II. páfi sést hér ásamt Jean Claude Duvalier, forseta Haiti, og konu hans, er páfinn kora í
opinbera heimsókn til Haiti á miðvikudag. Páfi sneri í gær heim til Rómar eftir 8 daga ferðalag um lönd
Mið-Ameríku.
Verkföll dynja
yfír í Svíþjóð
15.000 í verkfall í
allsherjarverkfalli
dag — hætta á
í næstu viku
Stokkhólmi, 10. marz. Frá C>ud(1nnu Ragnarsdóttur, fréttaritara Morgunblaósins.
VERKFÖLL, yfirvinnubann og
verkfallshótanir dynja nú yfir
sænskan vinnumarkað. Kl. 6 f
fyrramálið, föstudag, leggja 15.000
manns niður vinnu. Verkfóllin
Bretland:
Kolanámumenn á
móti verkfalli
London, 10. marz. AP.
KOLANÁMUMENN í Bretlandi, sem eru yfir 200.000, hafa hafnað áskorun
frá Arthur Scargill, leiðtoga þeirra, um að fara í verkfall. Voru úrslit
atkvæðagreiðslu um málið kunngerð í dag og var þar sagt, að % af námu-
mönnum hefðu verið andvígir verkfalli.
Margaret Thatcher íorsætis-
ráðherra lýsti yfir ánægju sinni
með niðurstöðum atkvæðagreiðsl-
unnar. „Ég tel þetta vera beztu úr-
slitin fyrir kolaiðnaðinn í landinu
með tilliti til framtíðar hans og
þeirra, sem í honum starfa," sagði
hún í brezka þinginu í dag. Scar-
gill aftur á móti sagði við frétta-
menn í dag, að úrslit atkvæða-
greiðslunnar væru „augsýnilega
mikill hnekkir fyrir samband
kolanámumanna“. Þá sagði Scarg-
ill ennfremur, að sambandið
myndi nú breyta stefnu sinni og
hefja viðræður við yfirvöld um,
hvaða námum skuli lokað, en það
vandamál var tilefni atkvæða-
greiðslu þeirrar, sem fram fór á
þriðjudag.
Scargill varaði hins vegar frú
Thatcher við því að líta á niður-
stöður atkvæðagreiðslunnar sem
heimild um að loka óhagkvæmum
kolanámum, en hann heldur því
fram, að brezka stjórnin hyggist
loka allt að 70 af 192 kolanámum,
sem í landinu eru. Þetta var í
þriðja sinn, sem brezkir kola-
námumenn snúast öndverðir við
tilraunum Scargilis til þess að
efna til verkfalls. Síðasta verkfall
brezkra kolanámumanna, sem
náði til alls landsins, átti sér stað
1974 og var því að nokkru leyti
kennt um fall ríkisstjórnar
Ihaldsflokksins þá, en í henni var
Edward Heath forsætisráðherra.
munu hafa alvarlegar afleiðingar í
lor með sér fyrir flutninga m.a. á
matvælum en einnig á hráefnum til
iðnaðarins og vörum til ýmissa
byggingaframkvæmda.
Yfirvinnubann gekk í gildi á
miðvikudag fyrir hjúkrunarkon-
ur, ljósmæður, fóstrur og fleiri
stéttir og afleiðingarnar af því
eru strax komnar í ljós. Deildir á
sjúkrahúsum hafa lokað og sjúkl-
ingarnir verið sendir heim.
Sömuleiðis hefur dagheimilum
verið lokað. Á föstudag í næstu
viku hafa opinberir starfsmenn
boðað til verkfalls og eru í þeirra
hópi allir brúarverðir í Stokk-
hólmi, miðasölufólk á járnbraut-
arstöðvum og þeir starfsmenn,
sem aðgreina póstinn. Ef samn-
ingar nást ekki á næstu dögum
milli verkalýðssambandsins og
vinnuveitendasambandsins og
sömuleiðis milli opinberra
starfsmanna og ríkis og bæja, er
hættan á allsherjarverkfalli mik-
il.
Aðfaranótt fimmtudagsins
benti allt til þess, að samningar
myndu takast milli verkalýðs-
sambandsins og vinnuveitenda.
Það fyrrnefnda hafði sagt já við
samningatillögum sáttasemjara
um 2% kauphækkun og launa-
uppbætur hjá þeim, sem ekki fá
þær sjálfkrafa hjá fyrirtækjun-
um. Vinnuveitendasambandið
hafði líka samþykkt allt nema
launauppbæturnar, en það er ein-
mitt um þær, sem styrinn stend-
ur. Verkalýðssamtökin segjast
aldrei munu falla frá kröfum sín-
um um launauppbætur fyrir lág-
launastéttirnar, en þessar upp-
bætur eru kauphækkanir, sem
launþegar fá utan samninganna,
ef fyrirtækin eru rekin með
gróða. Undanfarin ár hafa bæði
hjá einkaaðilum og hjá því opin-
bera verið ákvæði um að veita
slíkar launauppbætur á borð við
þær, sem greiddar eru í iðnaðin-
um. En nú vilja vinnuveitendur
losna við launauppbæturnar fyrir
fullt og allt.
Vinnuveitendasambandið sak-
ar nú verkalýðssambandið um
lagabrot, ef það skellur á verkfall
á morgun, föstudag, en verka-
lýðssambandið hafði lagt inn
verkfallsboðun í síðustu viku.
Hana neita vinnuveitendur að
taka gilda og var svonefndur at-
vinnudómstóll kallaður saman í
flýti í kvöld til þess að dæma um
það, hvort verkfallið sé löglegt
eða ekki. Vinnuveitendasam-
bandið hefur enn ekki gripið til
mótaðgerða, en búizt er við, að
það grípi til verkbanns í næstu
viku, ef samningar nást ekki.
Olof Palme forsætisráðherra
sagði í dag, að ríkisstjórnin hefði
að svo komnu ekki í hyggju að
blanda sér í deiluna. „Ábyrgðin
hvilir á samningsaðilum," sagði
hann.