Morgunblaðið - 11.03.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1983
31
að gera betur“
Ipswich vill kaupa Arnór
að hann fái atvinnuleyfi
— eina sem strandar á ei
BOBBY Ferguson framkvæmdastjóri Ipswich hefur aö
undanförnu unnið aö því hörðum höndum aö fá atvinnu-
leyfi í Englandi fyrir Arnór Guöjohnsen. Ipswich hefur
gert Arnóri tilboö og hefur samkomulag náðst á milli
Arnórs og Ipswich, varöandi söluna frá Lokeren og
kaupgreiöslur ef af henni verður. Þaö eina sem getur
komið í veg fyrir að Arnór fari til Ipswich er að hann fái
ekki atvinnuleyfi í Englandi.
ísland er ekki aðili að Efnahagsbandalagi Evrópu en
Efnahagsbandalagslöndin eru meó sameiginlegan
vinnumarkað. Ríkisborgarar frá öðrum löndum þurfa
sérstakt atvinnuleyfi í hverju landi fyrir sig innan banda-
lagsins. Þó svo að Arnór hafi atvinnuleyfi í Belgíu þarf
hann að fá nýtt leyfi í öðrum löndum bandalagsins.
Mbl. spjallaði í gaerdag við Arn-
ór og innti hann eftir þvi hvort
hann væri á leiðinni til Englands og
hvort samkomulag hefði náðst á
milli hans og Ipswich.
— Já, það er alveg rétt, sam-
komulag hefur náðst á milli mín og
Ipswich um söluna og greiösluna.
Bobby Fergusson hefur verið í
sambandi við mig nú nokkuð lengi
og það eina sem strandar á er að
hann fær ekki atvinnuleyfi fyrir mig
í Englandi. Fáist það ekki á næstu
vikum þá fellur þetta mál alveg um
sjálft sig. Þeir eru að reyna allt
hvað þeir geta en það eru mjög
strangar reglur í Englandi varöandi
atvinnuleyfi handa þeim sem eru
ekki frá löndum Efnahagsbanda-
lagsins.
Ólmur í að fara
— Ég vil ólmur fara til Englands
og leika með Ipswich, og er sár-
svekktur yfir því að fá ekki atvinnu-
leyfið strax. Þeir ætla aö selja Alan
Brazil og hugmyndin var að ég
kæmi í staðinn. „Ég var svo gott
sem búinn að skrifa undir samn-
inginn viö félagið þegar það varð
Ijóst að erfitt yrði að fá atvinnuleyf-
ið."
„Fergusson hefur sagt mér að
það þurfi jafnvel að fara einhverjar
krókaleiðir til að fá það,“ sagði
Arnór.
— Ég er búinn að ganga úr
skugga um það að Lokeren er ekki
mótfallið því að láta mig fara svo
að það er ekkert í veginum fyrir þvi
að úr sölu verði. Félögin virtust
geta gengið frá sínum samningum
án nokkurra vandræða.
— Verði ekkert af því að ég fari
til Englands þá leik ég mjög senni-
lega út keppnistímabilið með Lok-
eren. En þann 30. júní er samning-
ur minn runninn út og þá er ég
laus. Ég veit af því aö PSV Eind-
hoven hefur sýnt mér mikinn
áhuga og hefur félagið rætt við for-
ráöamenn Lokeren. Þá hef ég
heyrt á skotspónum um að fleiri lið
séu meö fyrirspurnir en það er of
snemmt að vera segja nokkuð um
slíkt þar sem það er langt í að úr
sölu verði fari ég ekki til Englands.
Arnór hefur leikið mjög vel í vet-
ur með Lokeren og í síðasta leik
sínum skoraði hann glæsilegt
mark og lagði upp önnur tvö. Hann
sagðist eiga við smávægileg
meiðsli að striða þessa stundina
og væri í meðferð alla þessa viku.
En það væri öruggt að hann léki
með á sunnudag í næsta leik.
— ÞR.
landsliösþjálfari:
• Hilmar Björnsson landsliös-
þjálfari hefur ekki tekið afstöðu
til þess hvort hann gefur kost á
sér áfram sem landsliðsþjálfari í
handknattleik.
Liósmynd Mbl. Klaut Weingartner.
mörkum hverjum leikmanni ef þeir
kæmust á Ólympíuleikana í Los
Angeles og aörir eru eftir því. En
við megum eyöa sumarfríum og
öðrum frítímum okkar í þaö að æfa
og leika fyrir íslensku þjóðina. Um-
fjöllun veröur að vera með tilliti til
ýmissa hluta. Við erum t.d. eins og
smáþorp í þessum löndum sem við
erum að sigra með miklum mun.“
Hilmar sagði að í næstu
B-keppni, sem fram fer í Noregi
1985, ætti auövitað að stefna að
því að ná sæti í A-keppni. „Þessi
kjarni verður að haldast til að svo
megi verða. Auðvitað munu ein-
hverjir hætta — en liðið sem heild
er það ungt að ekki er óeölilegt að
þeirra timi, með sömu ástundun,
verði i kringum keppnina í Noregi
og eftir hana. Það er fyrst og
fremst kosturinn við okkar lið hve
ungt það er og þaö er á uppleið.
Öðru máli gegnir með t.d. svissn-
eska liöið. Þaö er fallandi og í því
eru eldri leikmenn."
Hilmar var á þeirri skoðun, aö
frá ýmsum hliðum séð heföi verið
betra fyrir liðið að leika í neðri
riðlunum. „Eftir á aö sjá tel ég þaö
betra. Allir leikirnir voru sem
úrslitaleikir og því spilaðir undir
mikilli pressu. Ef við heföum kom-
ist í efri riðilinn veit enginn hvernig
við hefðum spilað, en þá hefðum
viö ekki spilaö undir eins mikilli
pressu. Sæti okkar hefði veriö ör-
uggt i keppninni, og ég held að
strákarnir hefðu ekki fengið eins
mikla reynslu."
Samningur Hilmars við HSi er
nú runninn út og sagöist hann ekki
hafa tekið afstööu til þess hvort
hann gæfi kost á sér áfram sem
landsliðsþjálfari. „Ég veit ekkert
um framhaldið," sagði hann.
— SH.
Úrslitakeppni
annarrar deildar
FYRSTA úrslitakeppni 2. deildar í
handknattleik hefst að Varmá í
Mosfellssveit í kvöld. KA og UBK
leika þá kl. 20.00 og Grótta og
Haukar kl. 21.15.
A morgun leika svo Grótta og
KA kl. 14.30 (klukkustund síðar en
vera átti) og Haukar og UBK kl.
15.45. Breiöablik og Grótta eigast
svo við kl. 13.30 á sunnudag og
KA og Haukar kl. 14.45.
Hilmar Björnsson,
• Það fer ekki framhjá neinum sem fylgist með knattspyrnunni í Evrópu aö í liði Lokeren er ungur
knattspyrnumaður sem á mikla framtíð fyrir sér. Arnór hefur leikið mjög vel í vetur og sýnt miklar framfarir.
Framkvæmdastjórar hinna ýmsu félaga hafa verið með fyrirspurnir og greinilegt er að þaö eru ýmsir sem
vilja kaupa Arnór þegar samningur hans er útrunninn í vor, verði hann þá ekki kominn til liðs við enska liðið
Ipswich sem hefur gert honum tilboð sem hann hefur ákveöið að taka fái hann atvinnuleyfi í Englandi.
„ÉG ER ánægður með árangurinn
í keppninni, og hann sýnir að
undirbúningurinn var réttur. Við
gerðum okkur grein fyrir því aö
líkamleg uppbygging yröi að vera
góö og það ánægjulegasta var aö
strákarnir skyldu halda fullkomn-
um krafti allt mótið,“ sagði Hilm-
ar Björnsson landsliðsþjálfari (
samtali við Mbl. um B-keppnina í
Hollandi.
í leikjum liðsins i Hollandi kom
mikill óstöðugleiki í Ijós. Það er
raunar engin ný bóla hjá íslensku
landsliði, og fyrr í vetur sagði
Julíus Hafstein formaöur HSI í
samtali við Mbl. eftir einn lands-
leikinn aö þetta væri agalausaata
landslið sem hann heföi séö.
Hilmar sagöist ekki sammála því
að liöið væri agalaust. „Menn
verða að athuga að þeir sem borið
hafa uppi sóknarleikinn eru ungir
strákar, og þeir þurfa rútínu og
reynslu til að standa sig. Þeir hafa
sýnt að þeir geta leikiö vel og leik-
urinn við Frakka var til dæmis
snilldarlega spilaður að minu mati.
Þá komu góöu hlutirnir hægt og
bítandi.
Ég tel aö þetta liö hafi staöið sig
vel — frá jólum höfum við leikiö
fimmtán leiki og unnið ellefu. Viö
höfum gert eitt jafntefli og tapaö
þremur leikjum. Ég veit ekki hvaða
kröfur viö getum gert til íslenska
liðsins ef þetta er ekki frábær ár-
angur,“ sagöi Hilmar.
islenska liöið hafnaöi í áttunda
sæti í B-keppninni í Frakklandi
fyrir tveimur árum en nú hafnaði
liðiö í sjöunda sæti. Þá tapaöi liðiö
með miklum mun fyrir Frökkum og
fsraelsmönnum og lék nú aftur viö
þessar þjóöir. Sigur vannst á
Frökkum en leikurinn við israel
endaði meö jafntefli. En þrátt fyrir
að liöið hafnaði aðeins einu sæti
ofar en í Frakklandi sagði Hilmar
ekki raunhæft að horfa einungis á
það. „Það verður að líta á úrslitin
— við töpum ekki nema einum leik
og mér finnst varla hægt að gera
betur. Jafnteflið við ísrael var að
vísu slæmt en annars náðum viö
því sem stefnt var að — að halda
okkar sæti í B-keppninni.
Menn verða að hafa í huga aö
við erum að eiga við menn eins og
Spánverja sem eru 53 daga aö
heiman áöur en þeir fóru til Hol-
lands í keppnina.
Þjóöverjum var heitið 16.000
MFinnst varla hægt