Morgunblaðið - 11.03.1983, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1983
Bikarmót SKÍ í Skálafelli
Akureyrarstúlkurnar
eru í sérflokki
UM síðustu helgi var haldið í Skálafelli bikarmót Skíðasambands
íslands. Keppt var í svigi og stórsvigi. Ágætt veður var báöa keppnis-
dagana, en brautir erfiðar og féllu nokkrir keppendur úr keppni af
þeim sökum.
Um einstaka árangur má segja aö sá hópur sem Skíöasamband
íslands hefur valiö sem landslið er aö skilja sig aö nokkru frá öðrum
keppendum meö undantekningum þó í karlaflokki þar sem er Kristinn
Sigurðsson, R., en hann varð þriðji í báöum greinum, einnig virðist
Erling Ingvason, A., vera að ná öryggi í sínar ferðir og hefur skilað sér
vel niður í vetur. í kvennaflokki eru Akureyrarstúlkurnar algerlega
einráðar, en berjast innbyröis um fyrstu sætin. Skiptust þar á fyrstu
sætum Tinna Traustadóttir og Nanna Leifsdóttir.
Helstu úrslit eru þessi:
STÓRSVIG:
Karlar:
1. ferð 2.ferö Samtals
1. Elías Bjarnason, A. 68.79 66.53 135.32
2. Árni Þ. Árnason, R. 68.46 69.03 137.49
3. Kristinn Sigurðss., R. 69.74 67.98 137.72
4. Björn Víkingsson A. 69.89 68.28 138.17
Konur:
1. Tinna Traustadóttir, A. 60.99 60.67 121.66
2. Nanna Leifsdóttir, A. 61.82 60.90 122.72
3. Ásta Ásmundsdóttir, A. 61.24 62.88 124.12
4. Hrefna Magnúsdóttir, A. 62.80 62.38 125.18
SVIG:
Karlar:
1. Björn Víkingsson, A. 60.42 49.79 110.21
2. Daníel Hilmarsson, D. 60.09 50.79 110.88
3. Kristinn Sigurösson, R. 60.88 50.69 111.57
4. Erling Ingvason, A. 61.58 50.86 112.44
SVIG:
Konur:
1. Nanna Leifsdóttir, A. 55.64 39.97 95.61
2. Tinna Traustadóttir, A. 56.60 40.88 97.48
3. Guðrún J. Magnúsdóttir, A. 57.12 40.90 98.02
4. Hrefna Magnúsdóttir, A. 56.71 41.60 98.31
• Hin snjalla skíðakona Nanna Leifsdóttir frá Akureyri sem hér sést á
fullri ferð í brautinni, er nú langefst að stigum í Bikarkeppni SKÍ, hefur
hlotið 140 stig. Nanna sigraði í svigkeppni kvenna í Skálafelli.
Staöan í
bikarkeppni
SKI
STAÐAN í bikarkeppni Skíða-
sambands íslands er nú
þessi:
KARLAR: stig
1. Elías Bjarnason A. 90
2. Björn Víkingsson A. 79
3. Guðmundur Jóhannss. í. 70
4. Daníel Hilmarsson D. 59
5. Erling Ingvason A. 57
KONUR:
1. Nanna Leifsdóttir A. 140
2. Guðrún H. Kristjáns. A. 103
3. —4. Hrefna Magnúsd. A. 67
3.-4. Guðrún J. Magnús. A.67
5. Tinna Traustadóttir A. 60
• Elías Bjarnason, ungur og
bráðefnilegur skíðamaöur frá Ak-
ureyri, hefur nú forystu í karla-
flokki í bikarkeppni SKÍ, hefur
hann hlotið 90 stig.
• Hið sigursæla lið Þróttar — sem tryggði sér íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð í fyrrakvöld með sigri
á ÍS. Liðið skipa, aftari röð frá vinstri: Leifur Harðarson, Lárentsínus H. Ágústsson, Böðvar H. Sigurðsson,
Gísli Jónsson, Guðmundur Kjærnested, Valdimar Jónasson þjálfari. Fremri röð: Jón Friðrik Jóhannsson,
Jón Árnason, Gunnar Árnason, Skúli U. Sveinsson og Sveinn Hreinsson.
Ljótmynd: Krwljin Einarsson
Þróttur íslandsmeistari í blaki
ÞRÓTTARAR tryggðu sér ís-
landsmeistaratitilinn í blaki
þriðja áriö í röð með því að sigra
IS á miðvikudagskvöldið. Eins og
venja er þegar þessi liö eigast við
var um langan og skemmtilegan
leik aö ræða. Alls þurfti fimm
hrinur og 109 mín. til aö gera út
um hann.
Stúdentar voru yfir alla fyrstu
hrinuna og unnu hana 16—14. í
þeirri næstu komust þeir í 9—6 en
Þrótti tókst aö jafna, 10—10, og
sigra 15—12. Þriöja hrinan sem
stóö í tæpar 30 mín. var æsispenn-
andi. ÍS komst yfir 8—2 en Þróttur
jafnar aftur í 10—10 og komust
yfir, 12—10. Síöan er jafnt
12—12, 13—13 og 14—14 en þá
tókst ÍS loks aö fá tvö stig og
vinna, 16—14. í næstu hrinu
komst Þróttur í 7—0 en stúdentar
voru grimmir, og ákveönir í að gefa
ekkert eftir. Tókst þeim aö jafna
7—7 og komast í 11—8. Þróttarar
fengu næstu fjögur stig, 12—11,
ÍS jafnar og komst yfir, 13—12, en
þá fannst Þrótti nóg komiö og tóku
þeir á öllu sem þeir áttu og sigruðu
16—14. í oddahrinunni gekk allt á
afturfótunum hjá ÍS á sama tíma
og Þróttarar léku mjög vel, og lauk
þeirri hrinu meö léttum sigri Þrótt-
ar, 15—3.
Hjá Þrótti var Sveinn Hreinsson
bestur, bæöi í sókn og vörn, auk
þess sem hann hvatti samherja
sína vel þegar á þurfti aö halda.
Lárentsínus Ágústsson var einnig
góöur og Leifur Haröarson átti
góöa kafla. Hjá ÍS voru þeir Sig-
uröur Þráinsson, Friöbert Trausta-
son og Friöjón Bjarnason bestir.
Dómarar voru Páll Ólafsson og
Skjöldur Vatnar', og dæmdu þeir
ágætlega nema hvaö þeir leyföu of
mikiö af óhreinum fingurslögum.
Kvennaliö Þróttar sigraöi stúd-
ínur 15—12, 6—15, 15—7 og
15—9 í frekar slökum leik.
Lokaspretturinn á islandsmót-
inu veröur,í Hagaskóla um helgina
og hefst í kvöld kl. 18.30 og leika
þá í 1. deild, Víkingur og UMSE, ÍS
og Bjarmi og loks ÍS og KA í
kvennaflokki. Á Selfossi leika kl.
20 í 2. deild Samhygð og Þróttur
Nes. Á morgun veröa síöan fimm
leikir í Hagaskólanum og hefst sá
fyrsti kl. 11 um morguninn meö
viðureign Fram og Þróttar Nes í 2.
deild. Síöan koma leikirnir hver af
öörum: Þróttur — UBK 1. d.kv.,
Víkingur — KA 1. d.kv., Vikingur
— Bjarmi 1. d. og loks Þróttur —
UMSE í 1. deild karla. SUS
HM lögreglumanna á skíðum
Einar Ólafsson
varð í öðru sæti
Skíðagöngugarpurinn kunni frá
ísafirði, Einar Ólafsson, náði
mjög góöum árangri í 15 km
göngu á heimsmeistaramóti lög-
reglumanna á skíðum sem fram
fór á Ítalíu fyrir skömmu.
Einar varö annar í 15 km göng-
unni af 35 keppendum sem tóku
þátt. Og það sem meira var, hann
var rétt sekúndu á eftir sigurveg-
aranum.
í 3x5 km boögöngu keppti sveit
frá íslandi og varö íslenska sveitin
VALSMENN unnu ótrúlega stóran
sigur á liði Þórs á Akureyri í
gærkvöldi er liöin léku í bikar-
keppni KKÍ. Valsmenn sigruðu
með 106 stigum gegn 54. Yfir-
í fimmta sæti. Einar náöi bestum
tíma allra keppenda í boögöng-
unni. 30 sveitir tóku þátt í boö-
göngunni, sem var mjög tvísýn og
spennandi.
Alls kepptu fjórir íslenskir lög-
reglumenn í mótinu. Auk Einars
kepptu þeir Valur Jónatansson,
Kristján Rafn Guðmundsson og
Einar Kristjánsson. Valur varö í 14.
sæti í svigi, en Einar Karl í 40. sæti.
í stórsviginu varð Valur í 16. sæti
en Einar Karl féll og var úr leik.
burðir Vals voru algerir í leiknum
eins og tölurnar bera með sér.
Spurning var bara hversu mikill
munurinn yröi á liðunum þegar
leikurinn væri flautaður af. — þr
• Einar Ólafsson stóö sig vel á
Ítalíu.
Golfhópur
til Spánar
ÍSLENSKI golfhópurinn sem setti
stefnuna á golfferð til Portúgal nú
um páskana eins og viö sögðum
frá, hefur nú tekiö miðið á golf-
ferð til Spánar í staðinn.
Veröur fariö á vegum Ferða-
skrifstofunnar Útsýn þann 30.
mars nk. og dvalið á Atalaya Park,
sem eru höfuöstöðvar EURO
GOLF á Marbella á Spáni. Veröur
dvalið þar í 12 daga og spilað á
flestum af bestu golfvöllum Spánar
á þeim tíma.
Góð þátttaka mun vera í ferö-
inni, enda veröiö hagstætt og ekki
tapast nema fimm vinnudagar á
þessum tíma.
Ásgeir skoraði tvö
mörk í vináttuleik
STUTTGART, lið Ásgeirs Sigurvinssonar, lék sögulegan vináttuleik
gegn austur-þýzka liðinu Dynamo Dresden í Stuttgart á þriöjudaginn.
Varamarkmaður Stuttgart fékk aö spreyta sig en var ekki í stuði,
enda var staöan orðin 0:3 Dresden í hag eftir 14 mínútur. En þetta átti
eftir að breytast, Stuttgart vann að lokum 4:3. Ásgeir (2), Olicher og
Reichart skoruðu mörkin. Annaö mark Ásgeirs var aukaspyrna af
löngu færi í bláhornið uppi, hitt var skoraö úr vítaspyrnu.
Bikarkeppni KKÍ:
Stórsigur Valsmanna