Morgunblaðið - 13.03.1983, Síða 1
80 SÍÐUR
60. tbl. 70. árg.
SUNNUDAGUR 13. MARZ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Erlent herlið frá Líbanon:
Shultz reynir að
höggva á hnútinn
YVashington, 12. mars AP.
GEORGE P. SHULTZ, utanríkisrádherra Bandaríkjanna, tekur nú í fyrsta
sinn beinan þátt í viðræðunum um brottflutning erlendra herja frá Líbanon í
von um meiri árangur af þeim en hingað til. Hann ætlaði að hitta að máli
utanríkisráðherra Líbana, Elie Salem, í dag og ísraelskan starfsbróður hans,
Yitzhak Shamir, á morgun, sunnudag.
Bandaríkjamenn hafa orðið
fyrir miklum vonbrigðum með
gang viðræðnanna en þær eru
komnar í sjálfheldu vegna þeirrar
kröfu ísraela, að þeir fái að koma
upp eftirlitsstöðvum í Suður-
Líbanon til að tryggja að ekki
verði aftur á þá ráðist úr þeirri
átt. Líbanir krefjast hins vegar
óskoraðra yfirráða yfir landi sínu
og taka ekki í mál neins konar
erlenda íhlutun.
Viðræður Shultz við utanríkis-
ráðherra fsraela og Líbana munu
fara fram í Washington og er haft
eftir bandarískum embættis-
mönnum, að miklar vonir séu við
þær bundnar. Brottflutningur er-
lends herliðs frá Líbanon verður
aðalumræðuefnið en einnig verður
rætt um SAM-5-eldflaugarnar,
sem Sovétmenn hafa að undan-
förnu verið að senda til Sýrlands.
Austursamningarn-
ir ekki endanlegir
Kulda, Y I’ýzkalandi, 12. marz AP.
EINN helzti leiðtogi kristilegu
flokkanna (CDU/CSU) í Vestur-
Heimsmethafi
í giftingum
Blythc, Kaliforníu, II. mars. AP.
SJÖTÍU og fjögurra ára gamall mað-
ur, sem hefur kvænst löglega oftar en
nokkur annar maður í heiminum, hef-
ur nú ákveðið að segja skilið við 25.
eiginkonu sína eftir aðeins þriggja
mánaða hjónaband vegna þess að hún
vill bara „drekka og skemmta sér
eins og unglingur".
„Ef allt fer að óskum getur skiln-
aðurinn gengið í garð fyrir 1. apríl
nk.,“ sagði Glynn H. Wolfe í dag og
bætti því við að það sé mun skárra
að vera álitinn gamall kjáni en gam-
all saurlífisseggur.
Þessa heimsmethafa í giftingum
er getið í heimsmetabók Guinness
árið 1983, en hann gekk að eiga síð-
ustu eiginkonu sína, Eileen Sheilu
Shelton, sem er 23 ára gömul, í des-
ember síðastliðnum.
Lengsta hjónaband Wolfe stóð í
fimm ár, en hið stysta í 38 daga. I
heimsmetabók Guinness kemur
fram að hann á ávallt til staðar tvo
brúðarkjóla fyrir verðandi eiginkon-
ur sínar, í tveimur stærðum.
Wolfe er ekki af baki dottinn og
segist þegar hafa fundið þá næstu
réttu, sem sé 26 ára gömul leikkona
er hann hefur þekkt í nokkur ár.
Þýzkalandi hefur borið fram tillögu
um, að ríki bandamanna úr síðari
heimsstyrjöldinni gangi frá friðar-
samningum við Þýzkaland, þar sem
endanleg landamæri þess yrðu
ákveðin. „Það á sér ekkert fordæmi
í sögunni og er skaðsamlegt fyrir
Evrópu, að 38 árum eftir að stríðinu
lauk, hefur enginn allsherjar friðar-
samningur verið gerður,“ sagði Al-
fred Dregger, leiðtogi þingflokks
kristilegu flokkanna á Sambands-
þinginu, í ræðu, sem hann flutti í
borginni Ulm á fóstudag.
Dregger er fyrrverandi borgar-
stjóri í Ulm. Hann viðhafði þessi
ummæli í ræðu, sem hann flutti á
ráðstefnu manna úr hópi kristi-
legra demókrata, sem eiga upp-
runa sinn að rekja til þeirra
landsvæða, sem tilheyrðu Þýzka-
landi fyrir stríð, en nú eru Aust-
ur-Þýzkaland eða hluti af öðrum
kommúnistalöndum Austur-
Evrópu.
Þá sagði Dregger enn-
fremur, að líta bæri á svonefnda
austursamninga á þann veg, að
þeir væru formlegs efnis um að
hafna allri valdbeitingu en væru
ekki samningar, „þar sem landa-
mærum væri breytt". Átti Dregg-
er þar við þá samninga, sem Willy
Brandt, þáverandi kanslari, gerði
við stjórnvöld í Moskvu og Varsjá
á árunum upp úr 1970.
í sól og snjó á ísafirði.
Ljósm. Haukur Snorrason.
Mikil spenna í kosn-
ingunum í Frakklandi
París. 12. marz AP.
GASTON Defferre, innanríkisráðherra Frakklands, hefur lýst því yfir, að
hann muni fara úr rikisstjórninni, ef hann bíður lægri hlut í borgarstjóra-
kosningunum í Marseille á morgun, sunnudag. Þá hafa miklar bollalegg-
ingar átt sér stað um það í frönskum blöðum — jafnt þeim, sem styðja
ríkisstjórnina og hinum, sem eru henni andvíg — að dagar Pierre Mauroy
forsætisráðherra í embætti séu taldir, jafnvel þó að vinstri flokkarnir verði
ekki fyrir verulegum skakkaföllum í síðari umferð frönsku bæja- og sveitar-
stjórnakosninganna á sunnudag. í fyrri umferð kosninganna á sunnudaginn
var töpuðu vinstri flokkarnir verulegu fylgi.
„Njósnarinn, sem dó í kuldanum“
Miklar vangaveltur í Frakklandi um dularfullan dauddaga háttsetts leyniþjónustumanns
París, 12. mars. AP.
DULARFULLT morð á frönskum
njósnara er nú mjög til umræðu í
frönsku blöðunum og ýmsar get-
gátur uppi um tildrögin. „Njósnar-
inn, sem dó úti í kuldanum" er
málið kallað í Frakklandi en
njósnarinn umræddi, Bernard Nut,
fannst skotinn í höfuðið fyrir utan
bíl sinn á afskekktum vegi í Suð-
ur-Frakklandi.
Sovésk-búlgarskur njósnahring-
ur, fölsk sjálfsmorðsskýrsla, njósn-
ari, sem lék tveim skjöldum, og
líbönsk ástkona Nuts koma öll við
sögu í vangaveltum frönsku dag-
blaðanna.
„Svo virðist sem Nut hafi að
undanförnu einbeitt sér að bar-
áttunni gegn njósnurum komm-
únistaríkjanna á Ítalíu," sagði í
því vinstrisinnaða dagblaði Le
Matin í gær og stórblaðið Le
Parisien sagði, að „sennilegasta
tilgátan er, að Nut hafi farið til
fundar við morðingja sinn —
njósnara, sem lék tveim skjöld-
um, og sem Nut hafi ætlað að
fletta ofan af“. Blaðið bætti því
vð, að Nut hafi líklega verið „sá,
sem ljóstraði upp um aðild Búlg-
ara að banatilræðinu við páfa í
maí 1981“.
Blöðin vitna í engar heimildir
en um nokkurt skeið hefur það
verið hljóðbært, að Nut átti ein-
hvern þátt í því, að starfsmaður
sovéska flugfélagsins Aeroflot í
Róm var fyrir skömmu handtek-
inn og sakaður um njósnir. „Eitt
er víst og það er, að Nut var að
störfum á Ítalíu," sagði Le Mat-
in.
Bernard Nut þótti um margt
mjög líkur George Smiley,
njósnaranum í sögu John Le
Carres. Hann lifði mjög hófsömu
lífi og barst svo lítið á, að ná-
grannar hans héldu, að hann
væri einhvers konar iðnaðar-
maður eða verkfræðingur. í raun
var hann yfirmaður frönsku
leyniþjónustunnar í Suðaustur-
Frakklandi.
Dagblöð hafa skýrt frá því, að
Nut hafi átt ástarfund með dótt-
ur líbansks milljónamærings,
sem á hótel á Rivierunni, og
telja sumir, að morðið kunni
e.t.v. að tengjast því.
Sjö ráðherrar úr ríkisstjórninni
biðu ósigur í fyrri umferð kosn-
inganna og tíu — þeirra á meðal
Mauroy — neyddust til þess að
taka þátt í síðari umferðinni.
Defferre, sem hefur stjórnað
Marseille — næststærstu borg
Frakklands — í 30 ár, má hafa sig
allí n við, ef hann á ekki að tapa í
síðari umferðinni.
Blaðið Le Monde, sem er óháð,
skýrði frá því í gær, að Mitterand
forseti væri þegar farinn að
h.vggja á breytingar á ríkisstjórn-
inni og stjórnarandstöðublaðið Le
Figaro sagði, að mannaskipti eða
breytingar á stjórnarstefnunni
væru óhjákvæmilegar, þar sem
síðustu hagtölur og efnahagsspár í
landinu væru svo neikvæðar.
Franski frankinn stendur nú mjög
höllum fæti, verðbólgan vex stöð-
ugt og viðskiptahalli Frakklands
við útlönd er mikill.
Þessar kosningar eru f.vrsti
prófsteinninn á fylgi frönsku
stjórnarinnar, frá þvi í kosningun-
um vorið 1981, þar sem jafnað-
armenn unnu sigur og bundu að
sinni enda á stjórn hægri manna í
landinu, en þeir höfðu verið við
stjórn í Frakklandi í 23 ár.