Morgunblaðið - 13.03.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.03.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MARZ 1983 29 Hegel: andi hans sveif yfir votnunum. Jenny, kona Marx: „fegursta stúlkan í Trier“. Marx handtekinn í Bríissel 1848. fyrst og fremst beinzt gegn „borg- aralegum kapítalisma". Aðrir segja að árásirnar virðist hafa átt rætur að rekja til taugaveiklunar. Þar sem hann lagði kapítalista og Gyðinga að jöfnu gæti virzt að andúð marxista á kapítalistum sé sprottin upp úr Gyðingahatri. Marx var kominn af Gyðinga- prestum í marga ættliði, en Heinrich, faðir hans, var lögfræð- ingur í Treves (Trier) í Rínarhér- uðunum, þar sem meiri franskra áhrifa gætti en annars staðar í Þýzkalandi. Marx fæddist í Trier 1818 og erfði frá forfeðrum sínum sérstæðan myndugleik og sann- færingarkraft, sem hefur verið einkenni andlegra leiðtoga Gyð- inga og gegnt mikilvægu hlutverki í andlegu lífi þeirra. Fjölmargir leiðtogar kommúnista hafa verið Gyðingar allt frá dögum Marx og það er engin tilviljun. Skýringin er kannski sá jarðvegur, sem and- legir leiðtogar Gyðinga hafa sprottið úr, og hinn andlegi arfur Gyðinga, m.a. draumurinn um fyrirheitna landið. Fögur eiginkona Þótt vanmetakennd og tauga- veiklun þættu setja mark sitt á hann urðu þau einkenni ekki greinileg fyrr en líða tók á ævi hans. Þegar hann biðlaði til Jenny von Westphalen, sem var af háum stigum, dóttir valdamikils emb- ættismanns og fegursta stúlkan í Treves, vissi hann að hann varð að keppa við marga, sem voru fram- bærilegri en hann. En hann sigr- aðist á uppburðarleysi sínu og sigraði keppinauta sína. Marx lét mótbárur foreldra Mynd af Marx yfir skrifborði Stalíns. Engels Haustið 1843 fór hann til París- ar að leggja stund á „fræði" sósíal- ista. Undarlegt samsafn manna af þýzkum uppruna hafði um þessar mundir gengið í hópa öfgasinn- aðra sósíalista og kommúnista, út- laga sem störfuðu aðallega í París, Brússel, Lundúnum og Sviss. Eftir júníbyltinguna 1830 höfðu þýzkir flóttamenn í París stofnað félag í tengslum við verkamannahreyf- ingu Philippe M. Buonarroti, sem hafði tekið þátt í samsæri Gracch- us Babeuf 1796, og annarra læri- sveina Babeufs. Þeir kölluðu það „Félag hinna réttlátu" og í það gekk klæðskerinn Wilhelm Weitl- ing, sem ferðaðist um og kallaði verklýðsstéttina „tæki frelsunar mannkynsins" og kommúnisma „fyrirmyndar þjóðfélagið". I París kynntist Marx Engels, samstarfsmanni sínum, sósíalista- leiðtoganum P.J. Proudhon, sem Grafsteinn Marx, Kosygin annar frá hægri. þeirra ekki á sig fá. Hann og Jenny trúlofuðust og foreldrar þeirra lögðu að lokum blessun sína yfir ráðahaginn. Marx fylltist sjálfstrausti og ákvað að skara fram úr í háskólanámi sínu. Jenny var beinn afkomandi jarlsins af Argyll, sem var hálshöggvinn á stjórnarárum Jakobs II í Bret- landi (1685-88). Marx var alltaf stoltur af konu sinni og skrifaði henni eitt sinn þegar hann hafði skoðað fæð- ingarstað hennar: „Nær allir sem ég hitti spyrja mig frétta af „fal- legustu stúlkunni í Treves" og „drottningu danssalanna“. Það hefur óneitanlega kitlandi áhrif að komast að því að í augum alls bæjarins er konan mín „ævintýra- prinsessan“.“ Marx innritaðist í Berlínar- háskóla 1835 og tók lögfræði sem aðalgrein að ósk föður síns, en stundaði einnig nám í sögu og heimspeki, sem hann hafði jafn- mikinn áhuga á. Andi heimspek- ingsins G.W.F. Hegels sveif yfir vötnunum. Hegel olli byltingu í andlegu lífi Þjóðverja og sem aðr- ir stúdentar mótaðist Marx af skoðunum hans. Hann varð vinstrisinnaður Hegel-isti og frægasti lærisveinn Hegels. Honum var meinað að kenna við prússneskan háskóla og hann gerðist þá blaðamaður 1842 við „Neue Rheinische Zeitung", rót- tækt blað í Köln. Gagnrýni hans á prússnesku stjórnina varð til þess að útgáfa blaðsins var stöðvuð. hafði mikil áhrif á hann, og öðrum helztu sósíalistum Frakklands. Hann reifst við þá alla og kunn- ingi hans skrifaði: „Málrómur hans var óþægilega óþýður og tónninn þannig, þegar hann talaði um menn og málefni, að hann virt- ist ekki þola nokkrar mótbárur og hafa bjargfasta trú á það hlutverk sitt að móta skoðanir manna og ákveða lögmál tilveru þeirra." Þýzkur stúdent skrifaði að Marx væri rökviss og skýr, en hann hefði aldrei kynnzt eins rudda- legum og hrokafullum manni. Hann sýndi öllum, sem væru ekki á sama máli, ólýsanlega fyrirlitn- ingu og félli honum ekki röksemd svaraði hann með háðsglósum um fáfræði þess sem talaði eða ill- kvittnislegum athugasemdum um hvatir hans. Þegar Marx hreytti út úr sér orðinu „borgari" lýsti það botnlausri fyrirlitningu. Hann kallaði alla, sem voru honum ósammála, „borgara", og á vörum hans hljómaði það eins og alger andleg og siðferðileg lágkúra. Engels var frá Rínarhéruðunum eins og Marx, sonur auðugs verk- smiðjueiganda í Wuppertal og for- stöðumaður fyrirtækis föður síns í Manchester á Englandi, með öðr- um orðum „kapítalisti". Hann var alger andstæða Marx og sérfræð- ingur í hermálum. Hann hafði kynnt sér hið nýja borgarþjóðfé- lag, sem var að myndast á Eng- landi og eymd verkamanna þar. Þau kynni gerðu hann að sósíal- ista og hann samdi bókina „Kjör verkalýðsstéttarinnar á Englandi" (1844) um athuganir sínar. Þar hélt Engels því fram, að þróun kapítalistaþjóðfélagsins mundi leiða til kommúnisma. Grunnurinn var lagður að mik- ilvægu samstarfi Marx og Engels og án Engels hefði Marx e.t.v. að- eins orðið akademískur hugsuður. „Herr Doktor" Marx hafði aldrei kynnzt verkamönnum og kjörum venjulegs fólks og upp frá þessu snerust heimspeki hans og pólitík fyrst og fremst um verkamenn. Orlögum iðnverkamanna lýsti hann með einu orði, „firringu", og a.m.k. það ástand þekkti hann af eigin raun: hann var Gyðingur, kristinn, prússneskur þegn og af- sprengi þýzkrar menningar og heimspeki, en allt þetta fyllti hann óbeit og hann braut allar brýr að baki sér. Hann skar upp herör gegn hörðum veruleika iðn- og tæknivæðingar Vesturlanda, benti á „efnahagslegar mótsetn- ingar“ og vildi gera stjórnmálin að raungrein á við náttúruvísindi. Hann skipti þeim niður í almenn hugtök eins og „borgara", „ör- eiga“, „byltingu" og „hugsjóna- fræði", á „díalektískan" hátt eins og Engels kenndi honum, þótt stjórnmál séu flóknari en svo að hægt sé að hólfa þau niður, og þróunin varð flóknari en hann óraði fyrir. Marx bjó í París 1843—1845, Brússel 1845—1848, Þýzkalandi 1848—1849 og Lundúnum frá 1849. Hann hafði þegar skipað sér í fremstu röð vinstri hugsuða áður en hann fór frá Þýzkalandi og í París og Brússel samdi hann fyrstu umdeildu verk sín. Þau voru uppgjör við heimspeki Hegels og þá sem aðhylltust kenningar hans og raunar alla andlega strauma samtímans. Engin hugmynd Marx var að öllu leyti frumleg, rit hans berg- mála skoðanir margra fyrirrenn- ara hans og samtímamanna. Trier hafði verið miðstöð kenninga franska greifans Saint-Simon í Þýzkalandi og faðir hans og pró- fessorar hans í Berlín höfðu orðið fyrir áhrifum frá honum. Sögu- skoðun hans var að miklu leyti sótt til Hegels. Breytingar hans á hugmyndum Hegels voru fengnar frá Ludwig Feuerbach og efna- hagslegar hugmyndir hans voru að verulegu leyti nánari útfærsla á hugmyndum hagfræðingsins David Ricardo. Hugmyndir hans um „umfram-gæði“, sem allir geta notið, voru runnar frá lítt þekkt- um, enskum sósíalistum. Hug- myndin um „stéttabaráttuna” var komin frá frönskum sósíalistum júlíbyltingarinnar. Það sem Marx gerði var að sam- ræma allar þessar hugmyndir, mynda úr þeim skipulega heild. Honum fannst engu máli skipta þótt margt væri líkt með skoðun- um hans og annarra. Það sem höf- uðmáli skipti væri að uppgötva lögmál sögulegra breytinga og beina byltingarhreyfingunni í far- veg, sem væri í samræmi við þessi lögmál svokallaðrar „díalektískrar efnishyggju“ og „vísindalegs sósí- alisma.“ Hann fór að telja sig gegna hlutverki manns, sem gæti mótað mannkynssöguna og breytt rás hennar á grundvelli þekkingar SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.