Morgunblaðið - 13.03.1983, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MARZ 1983
Halldór Blöndal alþingismaðun
Mennirnir skipta máli og
stefhan sem þeir fylgja
Andrúmsloftið er lævi blandið í
stjórnarráðinu á þessum vetrar-
dögum. Steingrími Hermannssyni
Ieiðist óskaplega í ríkisstjórninni
og kveðst hafa viljað losna fyrir
löngu. Svavar Gestsson hefur
sungið á sömu nótum. f rauninni
þarf þetta ekki að koma neinum á
óvart. Ríkisstjórninni hefur mis-
tekist í öllum höfuðatriðum.
Ástandið er verra nú en þegar hún
settist að völdum. Það er kjarni
málsins.
Punktar úr
stjórnarsáttmála
Ég sé það næstum því á hverj-
um degi í Dagblaðinu, að stjórn-
málamenn séu vondur pappír. Það
er náttúrlega ekki notalegt að fá
slíkan sleggjudóm í því blaði, eins
og fréttaflutningur þess er. En
það bætir vonbrigðin upp, að á
fimmtudaginn skýrði það frá því,
að upp væri fundinn nýr Brama,
kvöldvorrósarolía, sem í fimm
dálka fyrirsögn var gefið í skyn að
væri „svarið við menningarsjúk-
dómum“ eins og þeir leggja sig og
sagt: „Fólk jafnvel læknast af
krabbameini með notkun olí-
unnar“. Ábyrgt blað eins og Dag-
blaðið tekur að sjálfsögðu ekki of
djúpt í árinni, — allra síst í fyrir-
sögnum — eða hvað.
Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar
Gunnars Thoroddsen var kallaður
kvöldvorrósarolía í Dagblaðinu á
sínum tíma. Við skulum rifja upp
nokkur fyrirheit, sem þar voru
gefin:
1. Meginverkefni ríkisstjornar-
innar er að treysta íslenskt
efnahags- og atvinnulíf, enda er
það ein helsta forsenda fyrir
sjálfstæði þjóðarinnar.
2. Ríkisstjórnin mun vinna að
hjöðnun verðbólgu, þannig að á
árinu 1982 verði verðbólgan
svipuð og í helstu viðskipta-
löndum íslendinga.
3. Komið verði á verðtryggðum
lífeyrissjóði fyrir alla lands-
menn.
4. Ríkisstjórnin mun beita sér
fyrir því, að hraðað verði
endurskoðun vísitölugrundvall-
arins.
5. Verðbótaþáttur vaxta hækki
ekki 1. mars og fari síðan lækk-
andi með hjöðnun verðbólgu.
6. Erlendar lántökur verði tak-
markaðar eins og kostur er og
að því stefnt, að greiðslubyrði
af erlendum skuldum fari ekki
fram úr u.þ.b. 15% af útflutn-
ingstekjum þjóðarinnar á
næstu árum.
7. Tekin verði upp staðgreiðsla
skatta innan tveggja ára.
8. Athugað verði að breyta sölu-
skatti í skatt með virðisauka-
sniði innan tveggja ára.
Ég læt þessa átta punkta duga.
Þeir skýra sig sjálfir og sýna
a.m.k., að ríkisstjórnin sagðist
vilja koma að gagni, þegar hún var
mynduð.
Ábyrgð eða ábyrgðarleysi
Magnús Bjarnfreðsson er mikill
framsóknarmaðurog fastur dálka-
höfundur í Dagblaðinu. Sl.
fimmtudg fórust honum svo orð:
„Ég er löngu kominn á þá skoðun,
að meginorsök þess vanda, sem við
erum stödd í, sé stjórnleysi.
í raun og veru hefur þessu landi
ekki verið stjórnað undanfarin ár.
Stjórnmálamenn hafa keppst við
að koma sér í mjúkinn hjá kjós-
endum sínum með alls kyns gylli-
boðum, og þótt þeir hafi í öðru
orðinu talað um að nú þurfi að
grípa til róttækra aðgerða þá hafa
þeir ekki þorað það því ávallt hafa
aðrir verið reiðubúnir til að ljúga
því að fólki að ekkert sé að, það
eina sem gera þurfi sé að skipta
um menn í fínum stólum þá falli
allt í ljúfa löð.“
Magnús Bjarnfreðsson trúr sín-
um flokki setur þessar hugleið-
ingar auðvitað fram til þess að
réttlæta ríkisstjórnina og gerðir
hennar. Aðferð hans er að segja,
að ríkisstjórnin sé að vísu vond, en
það stafi einfaldlega af því, að all-
ir stjórnmálamenn séu vondir.
Þess vegna hljóti stjórnarandstað-
an að vera það líka!
Það má auðvitað gera lítið úr
því í blaðagrein, hvaða þýðingu
það hefur „að skipta um menn í
fínum stólum". Samt vita allir, að
það skiptir máli, hverjir hafa
stjórn landsins með höndum og
hvaða sjónarmið og markmið þeir
hafa. Meira að segja meðal millj-
ónaþjóða er þetta talið skipta
sköpum. Eða skipti það ekki máli,
hver tók við af Breshnev í Sovét-
ríkjunum eða hvor sigraði í
Þýskalandi, Kohl eða Schmidt.
Vitaskuld skipti það máli og vita-
skuld skiptir það máli, hver verð-
ur næsti forsætisráðherra Islands
og hvernig ríkisstjórn hans verður
skipuð. Eg leyfi mér meira að
segja að taka svo djúpt í árinni að
fullyrða, að á því geti oltið hvort
við komumst með sæmilegum
hætti út úr efnahagskreppunni nú
eða ekki. Hún er í höfuðdráttum
sjálfskaparvíti. Til þess að rjúfa
vítahringinn er nauðsynlegt að
nýir menn taki við aðrir en þeir
sem villtust inn í hann. Það er
bjargföst skoðun mín.
Nú er að taka á
Sjálfstæðismenn hittast nú um
helgina og ganga þar frá kosn-
ingastefnuskrá sinni. Eftir því er
beðið, því að flestir gera sér grein
fyrir, að þjóðin hlýtur að íhuga
vel, hvert Sjálfstæðisflokkurinn
vill stefna og hvaða leiðir hann
vill fara úr kreppunni.
Áður í þessari grein hef ég drep-
ið á þá undarlegu röksemda-
færslu, að allir stjórnmálamenn
séu vondir af því að ríkisstjórnin
sé vond. Blaðaskrif af þessu tagi
eru auðvitað laus við allan móral.
Ef þau hafa einhver áhrif yfirleitt,
draga þau úr ábyrgðartilfinningu
og valda því, að menn setja sig
síður inn í málin en ella. Kannski
er það iíka tilgangurinn með skrif-
unum.
saman í gjöf sem slær í gegn!
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Tækið er með 2 fullkomnum kassettutækjum, en þú borgar bara fyrir annað.
1 1 04
2 fullkomin
tæki.
kassettu-
[DU gBS
Utvarpstæki meö FM,
langbylgju, miðbylgju,
stuttbylgju.
Verð með öllu kr. 8.410.
Útborgun kr. 2.500, eft-
irstöðvar á 3 mánuð-
um.
Fermingargjöfin
sem slær í gegn...
Stórkos*lö«* forAairaccpttuhiinmtaeki frá
SILVER
SHm-SHIRASUNA ELECTRIC CORP JAPAN
Rósa-
fundur
á Hótel Borg
sunnudaginn
13. mars 1983 kl. 3
Alþýöuflokkurinn í
Reykjavík kynnir fram-
bjóöendur í Alþingis-
kosningunum 1983.
Dagskrá:
Fundarstjóri: Bjarni Guöna-
son, prófessor.
Ávörp: Jóhanna Siguröar-
dóttir, alþingismaöur,
Maríanna Friöjónsdóttir,
Dagskrárgeröarmaöur,
Guöríöur Þorsteinsdóttir,
form. jafnréttisráös
Ragna Bergmann, form.
Verkakv.fél. Framsókn-
ar, Jón Baldvin Hannl-
balsson, alþingismaður.
Skemmtiatriöi: Graham
Smith, fiöluleikari og
Jónas Þórir, organleik-
ari.