Morgunblaðið - 13.03.1983, Page 48
Ruslastampar
fyrir bæjarfélög &
fyrirtæki.
afcta 85005
SfÐUMULA 27
jWgtlttlrlllfrífe
Demantur 4®
æðstnr eðaisteina -
(Pnitl & é>tlfur
Laugavegi 35
SUNNUDAGUR 13. MARZ 1983
Málþóf stjórnar-
liða á Alþingi
ALÞÝÐUBANDALAGS- og framsóknarmenn héldu uppi málþófi á Alþingi á
fóstudag og aðfaranótt laugardags þegar umræður fóru fram um tillögu um
álviðræðunefnd annarsvegar og hins vegar um samkomudag Alþingis. Eink-
um voru alþýðubandalagsmenn málglaðir um tillöguna um álviðræðunefnd,
en þegar forseti sameinaðs þings frestaði fundi í fyrrinótt, var klukkan langt
gengin í fimm og höfðu þeir talað í um átta og hálfan klukkutíma og enn
voru nokkrir á mælendaskrá.
Á föstudagskvöld var hlé gert á
umræðu um þingsályktunartillögu
um álviðræðunefnd í sameinuðu
þingi, en tekið til við að ræða til-
lögu um samkomudag Alþingis í
Landsliðsfyrir-
liðinn til Eyja
FYKIRLIÐI íslenzka landsliðsins í
handknattleik, Þorbergur Aðal-
steinsson, mun flytja búferlum til
Vestmannaeyja í vor og dvelja þar
a.m.k. eitt ár. Hann mun starfa þar
sem matreiðslumeistari.
Þorbergur hefur verið einn af
máttarstólpum landsliðsins og ís-
landsmeistaraliðs Víkings undan-
farin ár.
Hann hyggst leika áfram hand-
knattleik, en hefur ekki ennþá val-
ið milli íþróttafélaganna í Eyjum,
Týs og Þórs. Hins vegar er óvíst
hvort hann leikur með landsliðinu
á meðan hann verður í Eyjum.
deildum þingsins. Eftir umræður
sem stóðu í eina og hálfa klukku-
stund og þar sem framsóknar-
menn lýstu hver af öðrum and-
stöðu sinni við tillöguna, var hún
samþykkt í efri deild með 12 at-
kvæðum sjálfstæðis-, alþýðu-
flokks- og alþýöubandalagsmanna
gegn 6 atkvæðum framsóknar-
manna. Einn greiddi ekki atkvæði,
Gunnar Thoroddsen, og einn var
fjarstaddur. Var síðan málinu vís-
að til neðri deildar.
Að afgreiðslu þessari lokinni
tóku menn aftur til við umræður
um tillöguna um álviðræðunefnd.
Ef svo fer fram sem horfir um
umræður um þá tillögu, er líklegt
að málþófið tefji þinglok, sem
stefnt hefur verið að á mánu-
dagskvöld. Er þá allt eins búist við
því að þinglausnir gætu tafist
fram á miðvikudag.
Þingfundir verða á mánudags-
morgun, en þá verður fundað í
báðum deildum þingsins.
Átta á slysa-
deild eftir
árekstur í
Svínahrauni
HAKÐUR árekstur tveggja fólks-
bifreiöa varö í Svínahrauni um miö-
nætti aðfaranótt laugardags. Viö
framúrakstur lenti bifreið framan á
bíl, sem kom úr gagnstæöri átt. Átta
manns voru fluttir á slysadeild, en
meiösli á fólkinu voru mismikil og
fékk hluti fólksins aö fara heim
fljótlega. Bifreiðirnar eru mikið
skemmdar ef ekki ónýtar.
Um svipað leyti var ekið á gang-
andi mann í Nóatúni og var hann
fluttur á slysadeild Borgarspítal-
ans.
Forsetinn í
jr
Arnessýslu
FORSETI íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, hóf í gær heimsókn í Árnes-
sýslu. Lýkur heimsókninni í dag.
Tekið var á móti forsetanum við
Þrengslaveg í Svínahrauni og það-
an haldið til Þorlákshafnar. Frá
Þorlákshöfn var haldið til Hvera-
gerðis, Selfoss, Stokkseyrar og
Eyrarbakka. Síðdegis í gær og í
dag hugðist forsetinn heimsækja
uppsveitir Árnessýslu.
ÁI, sem bíöur útskipunar í Hafnarfjarðarhöfn.
Morgunbladid/ ÓLK.Mag.
Akranesið í iyrsta
sinn til íslands
Álverið í Straumsvík:
Mikil og góð sala á
áli um þessar mundir
— ÞAÐ hefur verið rífandi sala á áli aó undanförnu og er þegar tekió aó
ganga á birgðirnar, sem höfðu safnast upp hjá okkur þegar sölutregóan
var, sagói Ragnar S. Halldórsson forstjóri ÍSAL, í samtali við Mbl.
MS. AKRANES, sem Nesskip hf.
keypti í maímánuði 1981, er vænt-
anlegt til íslands í vikunni í fyrsta
sinn. Skipið er meö farm fyrir ís-
lenzka járnblendifélagið, en það hef-
ur verið í leiguverkefnum víðs vegar
um heiminn undanfarin misseri.
Akranes hefur komið víða við á
ferðum sínum síðustu tvö árin.
Farið um Panamaskurðinn. til
Equador, Perú, auk þess að sigla
um Karabíska hafið.
Þá er Akranes sérstaklega búið
til að sigla á Vötnunum miklu
milli Kanada og Bandaríkjanna,
en miklar kröfur eru gerðar til
skipa, sem sigla þar, vegna meng-
unarhættu.
Skipstjóri á Akranesi er Gunn-
ar Magnússon og yfirvélstjóri er
Haraldur Sigfússon.
Að sögn Ragnars er nú betra
hljóð í álframleiðendum en verið
hefur um langan tíma. — Verðið
hefur farið hækkandi að undan-
förnu. Það er nú skráð 1.300 doll-
arar tonnið en fór niður fyrir
1.000 dollara þegar verst lét. Bú-
ist er við frekari hækkunum og
kaupendur vilja því tryggja sér
málm áður en meiri hækkanir
verða, sagði Ragnar.
Eins og fram kom í fréttum á
dögunum, varð að draga úr fram-
leiðslu í Straumsvík vegna
blautra forskauta. Þeir erfiðleik-
ar verða senn að baki og verður
framleiðslan aukin að nýju.
Þegar sölutregðan var mest
höfðu safnast fyrir 25.000 tonn af
áli við Álverið í Straumsvík.
Birgðirnar voru fjármagnaðar af
fjárfestingarfélagi álframleið-
enda, Alufinance. Ragnar sagði
að vonir stæðu til að þessar
birgðir yrðu komnar niður í
15.000 tonn í lok marz. Afskipanir
hafa verið tíðar og í næstu viku
kemur skip til Straumsvíkur, sem
lesta mun 3.600 tonn af áli.
Fá hrogn-
kelsi á laxa-
krókana
ÞAÐ ER ileira, sem gín við beitu
færeysku laxveiðimannanna á út-
hafinu, heldur en laxinn, sem þó er
verið að egna fyrir.
Gísli Ólafsson, sem fylgdist
með veiðum Færeyinga á dögun-
um, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að það hefði vakið mikla
athygli og margar spurningar er
hrognkelsi veiddust einnig á
þennan hátt. Gísli sagði, að í
fyrsta lagi hefðu menn haldið að
grásleppan og rauðmaginn héldu
sig vestur og norður af landinu
áður en haldið væri á hrygn-
ingarstöðvarnar. Einnig þætti
það forvitnilegt, að hrognkelsin
skyldu bíta á öngulinn, en Færey-
ingar nota brisling sem beitu við
laxveiðarnar, því hrognkelsi eru
veidd í net.
Sjá viðtal við Gísla á bls. 3:
„Færeyingar mest innan eigin
lögsögu."
Ærulaunapeningur
kemur í leitirnar
NÝLEGA fréttist af einum hinna
svonefndu Ærulaunapeninga.
Heiðurspeningar, sem á síðustu
öld voru gefnir af Danakonungi ör-
fáum íslendingum, er þóttu skara
fram úr, aöallega um bætta búnað-
arhætti. Til eru 5 mismunandi
gerðir af pcningunum, en eftir eru
í dag einungis 11. Þar af eru 7 í
eigu Þjóóminjasafnsins, 1 á Minja-
safninu á Akureyri, 2 í einkaeign
og einn í safni Dana í Friðriks-
borgarhöll.
í rönd peninganna var grafið
nafn eigandans. Á peninginn var
lóðuð lykkja, sem rauður borði
með hvítum krossi var festur í.
Ærulaunapeningar voru fyrst
veittir árið 1833 og þá 5 íslend-
ingum, en síðast líklega árið
1869, Magnúsi Jónssyni hrepp-
stjóra á Vilmundarstöðum.
60 Ærulaunapeningar voru
slegnir en margir hafa glatast
eða verið bræddir upp og smíðað
úr þeim, því silfrið var gott. Þeir
lesendur Morgunblaðsins, sem
vita um tilvist fleiri Ærulauna-
peninga eru beðnir að gjöra
Ragnari Borg, formanni Mynt-
safnarafélagsins aðvart, því nú
er verið að rita bók um útgáfu
þessara peninga.
Peningurinn, sem nýlega kom
í leitirnar, veittist Filippusi
Þorsteinssyni bónda á Bjólu árið
1859, af Friðriki 7. Danakonungi.
Ingólfur Jónsson á Hellu, fyrr-
um ráðherra, minnist þessa
langafa síns í nýútkominni ævi-
sögu sinni.
Ærulaunapeningur Filippusar
Þorsteinssonar á Bjólu, í útskorn-
um ramma úr Ijósu íslensku birki.