Morgunblaðið - 15.04.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983
LjÓ8m.: Kristján Einarsson.
Frá hinum fjölmenna kappræðufundi ungra sjálfstæðismanna og ungra alþýðubandalagsmanna í gærkveldi.
Næsta holskefla
skellur yfir 1. júní
— sagði Gunnar Thoroddsen í gærkvöldi
„ÞAÐ, sem við blasir í verðbólgu-
og verðlagsmálum, er svo alvarlegt,
að ekki verður við unað,“ sagði
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
hcrra á fundi í Sjálfstæöisfélagi
Hóla- og Fellahverfis í gærkvöldi.
Ráðherrann sagði, að næsta hol-
skefla myndi skella yfir 1. júní nk.
og engin ríkisstjórn gæti látið hana
ganga yfir.
„Eg hef að undanförnu undir-
búið ráðstafanir til þess að koma í
veg fyrir þessa holskeflu," sagði
Gunnar Thoroddsen.
Þá sagði forsætisráðherra, að
formaður Sjálfstæðisflokksins
hefði viðhaft „ákaflega alvarleg
ummæli" á fundi á Isafirði um
lánstraust þjóðarinnar erlendis og
af þeim sökum hefði hann óskað
eftir skýrslu frá Seðlabankanum
um þau mál.
Stúdentaráð Háskólans:
Nýi meirihlutinn
hræðslubandalag
— segir fráfarandi formaður Stúdentaráðs
Stefna Alþýðubandalagsins:
Einkennin eru þjóð-
arremba og fordómar
— sagði Geir H. Haarde á fjölmennum kappræðufundi í Sigtúni
„Alþýðubandalagið er flokkur
pólitískra lýðskrumara og kamel-
Ijóna, sem skiptir um lit eftir því
hvort það er í stjórn eða stjórnar-
andstöðu," sagði Geir H. Haarde,
formaður SUS, meðal annars á fjöl-
mennum kappræöufundi sem Sam-
band ungra sjálfstæðismanna og
Æskulýðsfylking Alþýðubandalags-
ins efndu til í Sigtúni í gærkveldi.
Auk Geirs töluðu af hálfu SUS Bessí
Jóhannsdóttir og Inga Jóna Þórð-
ardóttir. Ræðumenn Æskulýðsfylk-
ingarinnar voru Margrét Björnsdótt-
STJÓRN Jarðborana ríkis og Reykja-
víkurborgar hefur tilkynnt eigendum
fyrirtækisins, að nú innan tíðar Ijúki
þeim verkefnum sem jarðborinn Dofri
hefur verið pantaður í á þessu ári. Útlit
sé því fyrir að borinn verði verkefna-
laus það sem eftir er ársins, en afborg-
anir og vextir af Dofra á árinu 1983
nema milli 6 og 7 milljónum króna, að
því er Jakob Gíslason, fyrrverandi
orkumálastjóri og formaður stjórnar
Jarðborana ríkis og Reykjavíkurborgar
sagði í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gærkveldi. Sagði Jakob
stjórn fyrirtækisins hafa tilkynnt eig-
endum þess þetta í bréfi fyrir skömmu,
eða fulltrúum þeirra öllu heldur, Hjör-
leifi Guttormssyni iðnaðarráðherra og
Davíð Oddssyni borgarstjóra.
Jakob Gíslason sagði vandamálið
vera það, að Hitaveita Reykjavíkur
hefði ekki fjárhagslegt bolmagn til
að leggja í frekari framkvæmdir á
árinu, vegna þess að ekki hafi fengist
nauðsynlegar hækkanir á gjaldskrá
fyrirtækisins. Væri þetta slæmt
ástand því næg og brýn verkefni
væru fyrir hendi hjá Hitaveitunni,
svo sem á Nesjavöllum í Grafningi.
Þar væru hitavatnssvæði sem ættu
að taka við af núverandi orkulindum
Hitaveitunnar, og brýnt að gera þar
frekari kannanir og boranir.
Borinn Dofri, sem getur borað
niður á 2.000 metra dýpi, er f eigu
Jarðborana ríkis og Reykjavíkur-
borgar, sem fyrr segir. Fyrirtækið
eiga þessir aðilar til helminga. Ekki
er enn búið að greiða kaupverð bors-
ins, og koma milli 6 og 7 milljónir
króna til greiðslu á þessu ári, þar
ir, Álfheiður Ingadóttir og Stein-
grímur J. Sigfússon.
Fundurinn var hinn fjörugasti
og mjög fjölmennur, og tóku fund-
argestir virkan þátt í fundinum
með frammíköllum og stuðningi
við „sína menn“, en almennar um-
ræður voru ekki leyfðar. Hver
frambjóðandi flutti þrjár ræður,
og var ræðutími hvers 7 mínútur í
fyrstu umferð og síðan tvisvar
sinnum fimm mínútur. Komu
ræðumenn víða við í ræðum sín-
um, rætt var um álmálið, verð-
sem skammur greiðslutími var á
tækinu. Hefði borinn getað haldið
áfram verkefnum í ár hefðu komið
inn tekjur til að greiða þetta. Nú
væri ekki annað fyrirsjáanlegt, sagði
Jakob Gíslason, en að útvega lánsfé,
væntanlega erlendis, nema eigend-
urnir vildu sjálfir leggja fram fé, til
dæmis með því að auka á þann hátt
eigið fé sitt í Dofra. „Best væri á
hinn bóginn að borinn fengi þau
verkefni sem nú er orðið aðkallandi
að inna af hendi,“ sagði Jakob að lok-
um.
bólguna, þátttöku Alþýðubanda-
lagsins í ríkisstjórnum á síðasta
áratug, „leiftursóknina" og margt
fleira en fundarefnið var: „And-
stæðar leiðir í íslenskum stjórn-
málum." Fundarstjórar voru Árni
Sigfússon frá SUS og ólafur
ólafsson frá Æskulýðsfylking-
unni.
Smáskjálfti
við Kröflu
JARÐSKJÁLFTA varð vart við
Kröflu í fyrrinótt, aðfaranótt
fimmtudags, að því er Ármann
Pétursson á skjálftavaktinni í
Mývatnssveit tjáði blaðamanni
Morgunblaðsins í gærkveldi.
Ármann sagði starfsmenn
við Kröflu hafa orðið skjálft-
ans vara síðari hluta nætur,
hann hefði verið vægur, um
tvö stig á Richter, og teldist
varla til tíðinda. Skjálftar
væru ekki alveg óþekktir á
þessum slóðum, þó þeir væru
sjaldgæfari en var um hríð.
Ármann kvað vísindamenn
þó ekki vilja lýsa því yfir að
Kröflueldum væri lokið, eng-
inn virtist þora að kveða upp-
úr með það.
„ÞETTA er nokkurs konar hræðslu-
bandalag," sagði Gunnar Jóhann Birg-
isson fráfarandi formaður Stúdenta-
ráðs lláskóla íslands í samtali við
Mbl. er hann var spurður álits á nýjum
meirihluta { Stúdentaráði sem sam-
þykktur hefur verið. Þar hafa „um-
bótasinnar“ og „vinstrimenn" myndað
meirihluta, en Vaka — félag lýðræðis-
sinna er í andstöðu.
Gunnar Jóhann kvað „umbóta-
sinna“ ætla að reyna að auka fylgi
Guömundur Einarsson
UNGMENNIN er létust í bflslysinu
í Ölfusi í fyrradag hétu Sigríður
Steinunn Ingimundardóttir og Guð-
mundur Einarsson. Sigríður Stein-
unn var til heimilis á Syðra-Hóli í
Vestur-Eyjafjallahreppi í Rangár-
vallasýslu, en þangað var hún nýfiutt
frá Selfossi. Hún var tvítug að aldri,
og lætur eftir sig unnusta. Guð-
mundur var 18 ára, til heimilis á
Skálholtsbraut 5, Þorlákshöfn. Þá
var í fólksbifreiðinni 15 ára stúlka,
sitt með þessu móti, fylgi sem þeir
hafi stöðugt verið að tapa, og vilji
þeir fórna hagsmunum stúdenta
fyrir ímyndaða hagsmuni félags
sins.
Formaður „Félags umbótasinna“
sagði á hinn bóginn í samtali við
Morgunblaðið, að hann vonaðist til
að samstarfið yrði farsælt og stúd-
entum til góðs, en samstarfið við
Vökumenn hefði farið versnandi eft-
ir því sem á það leið.
Sigríður Steinunn Ingimundardóttir
sem liggur stórslösuð á sjúkrahúsi í
Reykjavík.
Unga fólkið var á leið til Þor-
lákshafnar er sjysið varð, hafði
ekið veginn út Ólfus frá Hvera-
gerði. Vöruflutningabifreiðin var
á hinn bóginn að koma frá Þor-
lákshöfn, og skullu bifreiðirnar
saman á gatnamótum Þorláks-
hafnarvegar og ölfusvegar. öku-
maður vörubifreiðarinnar slapp
ómeiddur.
Daufleg og þreytandi bið
— segir Halldór Almarsson skipstjóri á Suðurlandi
um margumtalaðan saltfisktúr til Portúgals
„ÞETTA var í sjálfu sér ósköp
venjuleg ferð, nema það að hún var
nokkuð löng og við erum heldur
ekki vanir að koma með sama
farminn heim og við fórum með út.
Þetta er í fyrsta sinn, sem við erum
sendir heim með fisk vegna orma.
Túrinn hófst á ströndinni 2.
eða 3. marz. Við vorum síðan
komnir til Bilbao á Spáni um 14.
og til Aveiro 18. Uppskipun hófst
svo 21. og var stöðvuð strax um
kvöldið. Síðan tók við biðin langa
þar til ákveðið var að taka fiskinn
aftur um borð. Það var ekki fyrr
en 5. apríl, sem ákveðið var að
lesta þetta aftur og heim komum
við þann 14. Það fór því rétt um
hálfur mánuður í túrinn,“ sagði
Halldór Almarsson, skipstjóri á
Suðurlandi, sem kom heim með
saltfiskfarminn frá Portúgal, í
samtali við Morgunblaðið.
„Við komum bara á þessa einu
höfn, Aveiro, í Portúgal og á
fyrsta degi var skipað upp rúm-
um 400 lestum. Þeir sögðu, að
ekkert yrði skipað upp daginn
eftir vegna galla í fiski og yrði að
bíða frekari fyrirmæla frá fs-
landi. Það vildi hins vegar svo vel
til að það voru tveir menn á leið-
inni frá SÍF og komu þeir daginn
eftir. Ákvörðun um hvað gera
skyldi var svo ekki tekin fyrr en
um hálfum mánuði seinna. Biðin
var heldur þreytandi en tíminn
nýttist þó vel í viðhald og ýmis-
legt þess háttar, en það má öllu
ofgera. Mannskapurinn var far-
inn að þreytast á þessu, það var
ekkert annað að sjá í portúgalska
sjónvarpinu en Dallas og menn
fara væntanlega að fá sig full-
sadda af því. Þetta er aðeins
17.000 manna bær og lítið við að
vera, en menn skruppu þó í bæ-
inn, fóru í bíó og þess háttar. Svo
komu páskarnir líka inn í þetta,
en þeir eru mikil hátíð þar í landi.
Sá tími var heldur dauflegur og
nánast ekkert aftnað að gera en
að skoða þá viðra dýrlingana
sína,“ sagði Halldór.
Gufubor Reykjavíkurborgar og ríkis:
Ekkert fé til í
afborganir lána
Bílslysið í Ölfusi:
Nöfn þeirra er létust