Morgunblaðið - 15.04.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983
15
Flóð í Signu
Mikil flóð og vatnavextir hafa verið víða í Evrópu að undanfornu. Meðfylgjandi mynd er frá París og það er
Signa sem hefur flætt yfir bakka sfna svo um munar. Fremst á myndinni má grilla í bflþök sem standa upp úr
vatninu. Þessir bflar eru á bflastæði sem er nokkuð frá árbakkanum. Má af þessu glöggt sjá hversu mikil flóð
þetta eru. Símamynd AP.
Vinsældir Verkamanna-
flokksins hafa aukist
London, 14. apríl. AP.
Studdi Gaddafy
misheppnað
valdarán?
Lagos, Nígeríu, 14. apríl. AP.
STJÓRNVÖLD í Nígeríu tilkynntu
í gær, að þau hefðu upprætt átta
manna flokk Nígeríumanna sem
hugðist ræna völdum í landinu með
stuðningi Mommar Gaddafy, Líb-
ýuleiðtoga.
í tilkynningunni sagði, að
mennirnir átta hefðu hreppt að
launum 15 milljón dollara, til að
skipta á milli sín, og fóru þeir að
sögn margar leynilegar ferðir til
Líbýu til að taka við leiðbeining-
um um hvernig vinna skyldi
verkið. Á Gaddafy að hafa sagt
Nígeríumönnunum að stjórnin
yrði að fara frá vegna óvinsælda.
Þeir fengu væna fyrirfram-
greiðslu til að sækja æfingar hjá
hryðjuverkasamtökum í Evrópu,
en allt komst upp áður en átt-
menningarnir gátu látið til skar-
ar skríða.
Skoðanakönnun sem birtist i
breska blaðinu Daily Telegraph og
var unnin af Gallup-stofnuninni,
bendir til þess að Verkamannaflokk-
urinn sé óðum að ná íhaldsflokkn-
um að vinsældum. Þykir það forvitn-
ileg þróun þar sem vangaveltur eru
um hvort forsætisráðherrann, Mar-
garet Thatcher, ætli sér að boða til
kosninga í júní, ári fyrr en hefði ver-
ið.
Könnunin sýndi fram á að vin-
sældaforysta íhaldsflokksins er
| nú aðeins 5,5 stig miðað við þau 11
stig sem flokkurinn hafði fyrir
' mánuði síðan þegar önnur könnun
var birt. Enn myndi íhaldsflokk-
urinn fá meirihluta atkvæða, 40,5
prósent aðspurðra sögðust myndu
kjósa flokkinn, en 35 prósent sögð-
ust myndu kjósa Verkamanna-
flokkinn. Aðrir flokkar töpuðu
fylgi samkvæmt könnuninni,
fengu alls 22,5 prósent. Sókn
Verkamannaflokksins hefur verið
á kostnað litlu flokkanna, því
íhaldsflokkurinn hefur sam-
kvæmt þessum tölum haldið sínu.
Margaret Thatcher gat eftir at-
vikum verið ánægð með persónu-
lega útkomu sína, einkum miðað
við að liðið er á síðari hluta kjör-
tímabils hennar. 44 prósent að-
spurðra töldu hana góðan leiðtoga.
Michael Foot, formaður Verka-
„NÝJU tillögurnar sem tillögunefnd
Keagans skilaði af sér og mæltu með
100 nýjum MX-eldflaugum i Wyoming
og Nebraska er frekar hættulegt og
ótækt innlegg í hættulega vaxandi
vígbúnaðarkapphlaup," sagði Oleg
Bykov, einn af fremstu afvopnunarsér-
fræðingum Sovétmanna, í gær. Hann
bætti við: „Auðvitað þarf minnst tvo
aðila til að um kapphlaup sé að ræða,
en um leið og Bandaríkjamenn sýna í
verki að þeir hafi áhuga á afvopnun,
mun ekki standa á okkur. Þessar þreif-
ingar Bandaríkjamanna, nú þegar af-
vopnunarviðræðurnar virðast koðnaðar
niður eru ósmekklegar."
Bykov staðfesti á hinn bóginn að
Sovétmenn væru að hanna og koma
mannaflokksins, virðist ekki að
sama skapi vinsæll, einungis 22
prósent þeirra sem svöruðu töldu
hann standa sig vel í embætti
sínu.
fyrir sínum eigin flaugum sem
myndu jafna út viðbót Bandaríkja-
manna. Hann sagði jafnframt, að
viðræður yrðu að eflast á ný og þá
yrði fyrst að komast að samkomu-
lagi um að hætta framleiðslu slíkra
vopna. Síðan mætti semja um fækk-
un kjarnorkuvopnanna smám saman
uns engin væru eftir. Hann bætti við
að staðan væri erfið, því báðir aðilar
væru að þráskáka. Einkum þá
Bandaríkjamenn, en þeir yrðu að
gera sér grein fyrir því, að það væri
nokk sama hvaða vopn þeir kæmu
upp með til að raska vopnajafnvæg-
inu. Sovétmenn myndu svara í sömu
mynt.
„Nýju tillögurnar
eru hættulegaru
Moskva, 14. aprfl. AP.
Desmond Bagley látinn:
Bækur hans hafa verið seldar
í meira en 10 millj. eintaka
London, 14. aprfl. AP.
DESMOND Bagley, einn víökunnasti reyfarahöfundur heims, lézt í
Southampton sl. mánudag 59 ára að aldri. Skýrðu brezku blöðin frá þessu
í dag. í frásögn Times í London var þess getið, að yflr 10 millj. eintaka af
bókum hans hafl verið seld í heiminum. Sögur Bagleys voru gæddar
miklum hraða og spennu og gerðust gjarnan í framandi umhverfl. Alls
skrifaði Bagley 15 skáldsögur og hann varð einn fyrsti skáldsagnahöf-
undur heims til þess að hagnýta sér tölvur við samningu á söguþræði f
bækur sínar. Hann var orðinn fertugur, er fyrsU skáldsaga hans kom út.
Það var „The Golden Keel“, sem kom út 1963 í Suður-Afríku, en þá var
hann búsettur þar. „High Citadel“ kom út 1965 og síðan komu út „The
Tightrope Men“ og „The Snow Tiger“. Það varð þó með „Running
Blind“ (Ut í óvissuna), sem út kom 1970, að Bagley komst í röð mest
seldu rithöfunda í heimi, en eftir þeirri sögu voru síðan gerðir sjónvarps-
þættir á íslandi.
Síðustu árin hafa allar nýjar
bækur eftir Bagley selzt í yfir
100.000 eintökum innbundnar en
óinnbundnar milljónum saman
og kvikmyndir hafa verið gerðar
eftir mörgum þeirra. Þannig var
skáldsagan „The Freedom Trap“,
sem kom út 1971, kvikmynduð
undir heitinu „The Macintosh
Man“ með Paul Newman i aðal-
hlutverki.
Desmond Bagley fæddist 29.
október 1923 í Kendal í Norð-
vestur-Englandi. Hann var son-
ur kolanámumanns og skóla-
göngu hans lauk, þegar hann var
aðeins 14 ára gamall. Hann vann
síðan sem prentari um skeið, en í
heimsstyrjöldinni síðari vann
hann við flugvélasmíði, meðal
annars við smíði á hinum frægu
„Spitfire“-orrustuflugvélum
Breta. Þegar heimsstyrjöldinni
var lokið, tók hann þá ákvörðun
að fara til útlanda og á þeim
ferðum sínum kannaði hann
flest þau baksvið, sem síðan urðu
vettvangur skáldsagna hans.
Bagley hélt til Suður-Afríku
1947. Þar vann hann fyrst fyrir
sér sem kolanámumaður en síð-
an sem ljósmyndari á næt-
urklúbb og loks sem blaðamaður.
í Suður-Afríku kynntist hann
eftirlifandi konu sinni, Joan,
sem var framkvæmdastjóri fyrir
bókaverzlun. Þau gengu í hjóna-
band 1960. Bagley sneri aftur
heim til Englands eftir útkomu
„High Citadel" og settist þá
fyrst að í Devonshire en síðan á
Guernsey á Ermarsundi.
Bagley sagði einu sinni í við-
tali við brezka blaðið Guardian:
„Ég ætla mér ekki að verða sams
konar rithöfundur og Virginia
Woolf. Hverjir lesa bækur henn-
ar aðrir en skólanemendur, sem
eru þvingaðir til þess af ensku-
kennurum sínum?“
AMERIKA
PORTSMOUTH/
NORFOLK
City of Hartlepool 18. apríl
Bakkafoss 29. apríl
City of Hartlepool 10. maí
Ðakkafoss 20. mai
NEWYORK
City of Hartlepool 19. apríl
Bakkafoss 28. april
City of Hartlepool 9. maí
Bakkafoss 19. maí
HALIFAX
City of Hartlepool 21. apríl
City of Hartlepool 12. mai
BRETLAND/
MEGINLAND
FELIXSTOWE
Alafoss 18. apríl
Eyrarfoss 25. april
Alafoss 2. maí
Eyrarfoss 9. maí
ANTWERPEN
Álafoss 19. apríl
Eyrarfoss 26. april
Alafoss 3. mai
Eyrarfoss 10. maí
ROTTERDAM
Alafoss 20. apríl
Eyrarfoss 27. april
Alafoss 4. maí
Eyrarfoss 11. maí
HAMBORG
Álafoss 21. april
Eyrarfoss 28. april
Alafoss 5. mai
Eyrarfoss 12. mai
WESTON POINT
Helgey 13. april
Helgey 26. apríl
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 22. apríl
Dettifoss 29. april
Mánafoss 6. maí
Dettifoss 13. maí
KRISTIANSAND
Dettifoss 18. april
Mánafoss 25. april
Dettifoss 2. maí
Mánafoss 9. maí
MOSS
Mánafoss 22. april
Dettifoss 29. april
Mánafoss 6. maí
Dettifoss 13. maí
HORSENS
Dettifoss 20. april
Dettifoss 4. maí
Dettifoss 18. maí
Dettifoss 1. júní
GAUTABORG
Dettifoss 20. april
Mánafoss 27. apríl
Dettifoss 4. maí
Mánafoss 11. mai
KAUPMANNAHÖFN
Dettifoss 21. april
Mánafoss 28. apríl
Dettifoss 5. maí
Mánafoss 12. maí
HELSINGBORG
Dettifoss 22. apríl
Mánafoss 29. april
Dettifoss 6. maí
Mánafoss 13. maí
HELSINKI
Skeiösfoss 26. apríl
GDYNIA
Skeiösfoss 28. apríl
TORSHAVN
Mánafoss 23. april
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
o -framogtilbaka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
allafimmtudaga
EIMSKIP
*