Morgunblaðið - 15.04.1983, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983
Vilhjálmur Bergsson með eitt verkanna á sýningunni.
Vilhjálmur Bergsson opnar
sýningu á Kjarvalsstöðum
List í þágu ljóðs og
persónusköpunar
VILHJÁLMUR Bergsson opnar
sýningu á verkum sínum að Kjar-
valsstöðum á morgun, laugardag.
Sýningin ber yfirskriftina „Lífrsn-
ar víddir“, en þar verða sýndar 65
myndir.
Vilhjálmur Bergsson er fædd-
ur í Grindavík fyrir 35 árum
rúmum. Hann nam myndlist m.a.
í Kaupmannahöfn og Frakklandi
á árunum 1958 til 1962.
Sýning Vilhjálms að Kjar-
valsstöðum er tíunda einkasýn-
ingin hans, þar af hefur hann
haldið þrjár einkasýningar á
verkum sýnum í útlöndum. Að
auki hefur hann tekið þátt i hátt
í 20 samsýningum. Vilhjálmur á
verk í mörgum söfnum hér heima
og erlendis.
Sýningin að Kjarvalsstöðum
stendur yfir til 1. maí næstkom-
andi.
— eftir Þorvarð
Helgason
í LESBÓK Morgunblaðsins frá
26. mars 1983 birtist grein eftir
Jón Óskar sem nefnist „Hvaðan
fær draugurinn kraft sinn?"
Ágæt grein, prýðis innlegg í
umræðu sem daufheyrst er við
á hinum æðri stöðum.
Samt er í grein þessari ein
fullyrðing sem mér og fleirum
þykir ekki standast. Undir lok
greinarinnar minnist Jón
Öskar á leikara og annarlegan
hreim í röddum þeirra og nefn-
ir þar Lárus heitinn Pálsson
sem dæmi og nokkrum línum
ofar Óskar Halldórsson sem
dæmi um hið gagnstæða.
Um smekk er þarflaust að
deila — en hér kemur meira til,
Jón óskar heyrir annarlegan
hreim, útlendan — sem í við-
komandi tilfelli hlýtur að vera
danskur því Lárus Pálsson
lærði í Danmörku — í flutningi
Lárusar Pálssonar.
Ég sem þetta bréf skrifa og
fjöldinn allur af öðru fólki sem
nýtur góðs flutnings á góðum
texta hefur aldrei heyrt dansk-
an eða annan óíslenskan hreim
í lestri eða leik Lárusar Páls-
sonar. Hins ber að gæta að lík-
legt er að meðferð hans hafi
stundum hljómað ókunnuglega
í eyrum — en ekki af því hún
væri óíslensk heldur af því
flutningurinn var af svo mikl-
um gæðum.
Lárus Pálsson var vel mennt-
aður leikari, að vísu í öðru landi
þar sem tal og beiting raddar
eru önnur en hér, hann hefur
því þurft að læra margt sem
honum nýttist ekki hér heima
— nema sem afstaða til við-
fangsefnisins, þ.e. að fullnægja
kröfunni um skýrt, hljómandi
fallegt tal. En auðvitað lærði
hann margt sem honum nýttist:
að sveigja tjáningartæki sín,
þar á meðal röddina og talið
undir hlutverkið, láta blæ ljóðs,
texta, persónu hljóma skýrlega
í flutningi sínum. í listrænum
flutningi minnist ég þess ekki
að hann segði nokkurn tíma orð
hljómsins vegna, nei, líkaminn,
röddin, sálarkrafturinn voru
virkjuð í þágu persónusköpun-
arinnar eða ljóðsins sem hann
fór með og úr varð fögur heild
— hafi einhverjum fundist það
annarlegt þá þeir um það.
Lánis Pálsson
Það er rétt sem Jón óskar
segir að flutningur málsins í
fjölmiðlum er oft illþolanlegur
— en hann verður ekki bættur
með því að reyna að sverta
liðna meistara í flutningi tung-
unnar. Ég veit dæmi þess að
ungt leiklistarfólk situr frá sér
numið við viðtækin þegar flutt
er útvarpsleikrit sem Lárus
Pálsson leikur í.
Óskar Halldórsson sem Jón
Óskar hælir var nemandi Lár-
usar Pálssonar og honum
fannst allt hrós sem hann hlaut
í raun bera meistara sínum.
Með þökk fyrir birtinguna.
Fokker-flugvél í vandræðum:
Aurbleyta gerði öryggisrofa óvirka
„ÞAÐ sem þarna hefur að öllum Ifk-
indum gerst er að bleyta og óhrein-
indi hafa komist í míkrórofa í hjóla-
stellinu, sennilega í lendingu og
flugtaki á Egilsstöðum,“ sagði Skúli
Jón Sigurðarson hjá loftferðaeftirlit-
inu er hann var spurður hvað valdið
hefði því að snúa varð Fokker-
flugvél Flugleiða til Keflavíkur fyrir
hugsanlega nauðlendingu, þar sem
Ijósmerki í flugstjórnarklefanum
gáfu til kynna að neflijól vélarinnar
hefði ekki komið niður til fulls og
læstst.
Fokker-flugvélin var i lækkun
til Akureyrar frá Reykjavík þegar
ljósmerki gáfu til kynna að ekki
væri allt með felldu í nefhjóla-
stellinu. Var flugvélinni snúið við
til Keflavikur fyrir hugsanlega
nauðlendingu þar og almanna-
varnakerfi Keflavikurflugvallar
sett í gang, eins og venja er þegar
atvik af þessu tagi verða.
Flugvélin hringsólaði yfir
Keflavíkurflugvelli meðan reynt
var að koma lagi á hlutina, en þeg-
ar hún var síðan um það bil að
lenda sýndu aðvörunarljós að
nefhjólið væri læst, og var þá hætt
við lendingu og haldið til Reykja-
víkur, en þá voru bremsuskilyrði á
flugbrautunum þar orðin 'of léleg
vegna snjókomu, og var þvi snúið
til Keflavíkur á ný og lent þar.
Flugstjóri var Sverrir Þórólfsson
f
og flugmaður Ólafur Frostason.
„Flugvöllurinn á Egilsstöðum
var eitt drullusvað, aðstæður buðu
þessari hættu heim. Því miður
hefur það oft gerst áður að óhrein-
indi og bleyta komast í öryggisrof-
ana og valda þessari röskun. Ot-
búnaðurinn i nefhjólinu er svolítið
viðkvæmur fyrir þessu. En sem
betur fer var aldrei nein hætta á
ferðum," sagði Skúli Jón.
Skúli Jón sagði að flugvélinni
hefði verið flogið til Reykjavíkur i
gærmorgun með hjólin niðri og
ekkert hefði komið fram við skoð-
un er benti til annars en að bleyta
og óhreinindi hefðu komist í rof-
ana.
Skíðagöngudagur á Skagaströnd
SkAgaströnd, 3. aprfl.
FÖSTUDAGINN langa gekkst
umf. Fram á Skagaströnd fyrir
skíðagöngudegi. Um tvær
gönguleiðir var að velja. Sú
lengri var um 8 km löng en sú
styttri var um 3 km löng.
Þátttaka i göngunni var allgóð
þrátt fyrir óhagstætt veður. Á
miðri gönguleiðinni hafði verið
komið upp bækistöð og þar
fengu allir þátttakendur heitt
kakó og meðlæti. Áhugi á
skíðagöngu sem fjölskyldu-
trimmi hefur aukist mjög á
síðustu tveim árum hér á
Skagaströnd og ekki dregur
lofsvert framtak umf. Fram úr
áhuganum. Að göngunni lok-
inni minnti formaður Fram,
Lárus Ægir Guðmundsson,
göngumenn á að skrá sig sem
þátttakendur í skíðalands-
keppni Norðurlandanna sem
nú stendur yfir.
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
LOGM JOH ÞOROARSON HDL
Til sölu og sýnis auk annarra eigna:
Steinhús í Vesturborginni
á ræktaöri lóð í Skjólunum. Grunnfl. um 100 fm meö 4ra herb. ibúö á
aöalhaeö, hæöinnl fylglr ris meö þremur herb. ásamt snyrtlngu og
geymslu. í kjallara er 2ja herb. séríbúö m.m. Bilskúr fylgir. Teikningar á
akrifstofunni. Nánari uppi. aöeins þar.
Þurfum aö útvega m.a.
Einbýlishúa í borginni á einni hæö.
Raöhús eöa einbýlishús í borginni.
Sérhæö í Hlíöum, Heimum eöa Vesturbæ.
2ja—3ja, 4ra og 5 herb. íbúö ( borginni og nágr.
Miklar útborganir, margir fjársterkir kaupendur.
Ný söluskrá heimsend
Ný söluskrá alla daga.
ALMENNA
FflSTE IGHASAl AW
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Hraunbær
3ja herb. 90 fm fb. á 1. hæö. Bein sala. Verö 1100 þús.
Spóahólar
3ja herb. 90 fm íb. á 3ju hæö. Stórar suöur svalir. Laus 1. okt. Akv.
sala.
Bergstaöastræti
4ra herb. 90 fm íb. í sérlega vel tilhöföu húsl. Sér inng. Ákv. sala.
Laus. ca. 15. júlí. Verö 1,2 millj.
Seljabraut
4ra—5 herb. 117 fm íb. á 1. hæð. Þvottaherb. í íb. Eignln fæst
eingöngu í skiptum f. 2ja herb. íb. Verö 1300—1350 þús.
Skipasund
115 fm hæö í þríbýlishúsi. Stór bílskúr. Nýtt litaö gler í gluggum.
Góö eign. Verö 1750—1800 þús.
Hulduland
135 fm íb. á 2. hæö í enda. 4 góð svefnherb., þvottur inn af eldhúsi.
Bílskúr. Verö 2,2 millj. Einkasala.
Álfhólsvegur
160 fm parhús ásamt innb. bílskúr. Skilast tilb. aö utan en fokhelt
ástand að innan. Útihurö og gler komlö. Stál á þak. Verö 1600 þús.
Höfum kaupendur aö öllum geröum og stæröum
fasteigna.
Johann Daviösson. simi 34619. Agúst Guðmundsson, sími 41102
Helgi H Jonsson. viöskiptafræöingur