Morgunblaðið - 15.04.1983, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavfk.
Haraldur Sveinssqn.
Matthías Johannessen,
Styrmir Caunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýslngar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 180 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 15 kr. eintakiö.
Atvinnuleysisvofan
komin á kreik
Framsóknarflokkurinn og
Alþýðubandalagið hafa
vakið upp atvinnuleysisvofuna
og hún æðir nú um landið allt.
Eins og málum er komið í
100% verðbólguvitleysu er
þess ekki að vænta að auðvelt
verði að kveða þennan draug
niður og áður en á honum
verður sigrast að þessu sinni
eiga margir eftir að verða illi-
lega fyrir barðinu á honum.
Tölur frá ráðuneyti Svavars
Gestssonar, formanns Alþýðu-
bandalagsins, félagsmálaráðu-
neytinu, sýna, að í mars voru
1400 manns á atvinnuleys-
isskrá dag hvern, hefur at-
vinnuleysingjum þar með
fjölgað um 130% miðað við
mars 1982. Fjöldi atvinnu-
lausra var mestur á höfuð-
borgarsvæðinu.
Ásóknin í bætur frá At-
vinnuleysistryggi ngasj óði
staðfestir þessa fjölgun at-
vinnulausra. Fram hefur kom-
ið að á fyrstu þremur mánuð-
um þessa árs hefur sjóðurinn
varið jafnhárri upphæð til at-
vinnuleysisbóta og allt árið í
fyrra. Þetta er alvarleg stað-
reynd en hitt er þó enn alvar-
legra að núverandi ríkisstjórn
skilur þannig við, að ekki er
fyrirsjáanlegur neinn bati sem
treysti undirstöður atvinnu-
lífsins. Þvert á móti hafa þeir
ráðið mestu um „atvinnumál"
í þessari ríkisstjórn sem vilja
leggja stein í götu skynsam-
legra aðgerða. Stefna Álþýðu-
bandalgsins í orku- og stór-
iðjumálum undir forystu
Hjörleifs Guttormssonar er
hrein atvinnuleysisstefna.
Fum og fát Steingríms Her-
mannssonar í málefnum sjáv-
arútvegsins hefur leitt til þess
að ráðherrann sá sér þann
kost vænstan að stofna með
lántöku í útlöndum opinberan
kosningasjóð til að fleyta
nokkrum fyrirtækjum í sjáv-
arútvegi fram yfir kjördag. En
ráðherrarnir í ríkisstjórninni
hugsa ekki lengra en til 23.
apríl að þessu sinni eins og öll-
um er ljóst.
Svavar Gestsson, félags-
málaráðherra, hefur axlað þá
pólitísku ábyrgð að fylgjast
með atvinnustiginu og gera
ríkisstjórninni aðvart ef
„hætta sé á atvinnuleysi", eins
og hlutverk félagsmálaráð-
herra er skilgreint í stjórnar-
sáttmálanum, „til þess að unnt
væri í tæka tíð að gera nauð-
synlegar ráðstafanir með
ákvörðunum ríkisstjórnarinn-
ar og samkomulagi við aðra
aðila" eins og einnig segir í
stjórnarsáttmálanum. Hvað
hefur Svavar Gestsson aðhafst
í þessu efni? Svar: ekkert.
Hann þorir það ekki af því að
hann vill ekki hrófla við
atvinnuleysisvofunni fyrir
kosningar.
Kjósendur verða að gera sér
grein fyrir því hvert stefnir í
atvinnumálum fyrir tilstilli
þessarar ríkisstjórnar, þar
sem formaður Alþýðubanda-
lagsins ber á því sérstaka
ábyrgð að hringja neyðarbjöll-
unum ef í óefni horfir. Þessum
bjöllum hefur Svavar Gests-
son þó ekki látið hringja því að
hann er hræddur um að vakna
sjálfur af værum ráðherra-
blundi. Atvinnuleysisvofan fer
sínu fram þótt Svavar sofi.
Æskýlos á
enn erindi
IÞjóðleikhúsinu er verið að
sýna þríleikinn óresteiu
eftir Æskýlos í snilldarþýð-
ingu Helga Hálfdanarsonar og
undir metnaðarfullri leik-
stjórn Sveins Einarssonar.
Þetta leikrit um mannlega
grimmd og örlög á erindi til
okkar nútímamanna þótt það
hafi verið ritað fyrir um 2500
árum. Boðskapur þess um
stríð og frið er mun áhrifa-
meiri en allt tal friðarhreyf-
inganna. Verðbólgnum stjórn-
málamönnum í kosningaskapi
væri hollt að hafa hugfast að
hraklegt hrun er hegning þess
glæps að belgjast af hroka og
ágirnd alls umfram verðleik í
nægtabúri, svo að vitnað sé í
Óresteiu, en Almenna bókafé-
lagið gaf leikritið út í tilefni af
sýningu Þjóðleikhússins.
Æskýlos færir sögu sína og
boðskap í þann búning að leik-
ritið stenst kröfur nútímans á
öld hraða og spennu. Margir
okkar bestu leikara sýna af-
burða hæfni í þessu mikla
verki og er á engan hallað þó í
þeirri andrá sé Helga Bach-
mann í hlutverki Klítemn-
estru, drottningar, nefnd. Að
hlýða á hina snjöllu framsögn
leikaranna, hinna yngri ekki
síður en hinna eldri, á hljóm-
fögru máli Helga Hálfdanar-
sonar er reynsla sem hæfir
þessu aldagamla meistara-
verki.
Eins og líklega mátti vænta
þegar óviðjafnanlegur
skáldskapur er fluttur þjóð-
inni í fögrum búningi er að-
sókn að óresteiu í öfugu hlut-
falli við það hve verkið er
stórbrotið. Nú hefur leikritið
verið sýnt aðeins 9 sinnum og
næsta sýning á sunnudag ver-
ið auglýst sem hin síðasta.
Æskýlos á erindi til mun fleiri
íslendinga nú á tímum þegar
ljóðrænn skáldskapur á undir
högg að sækja vegna hrakandi
smekks.
Mynd: ólafur K. Magnússon.
Myndin er tekin á kórstjórnarnámskeidi Svisslendingsins Willi Gohl í húsakynnum Tónlistarskólans.
Tónleikar í Hamrahlíðarskóla í kvöld:
Flutt Sígaunaljód Brahms
undir stjórn Svisslendings
KÓR Hamrahlfðarskólans og þátt-
takendur á námskeiði í kórstjórn á
vegum Tónlistarskólans í Reykjavík
undir leiðsögn Svisslendingsins Willi
Cohl, munu koma fram á tónleikum f
Hamrahlíðarskólanum f kvöld kl.
20.30. Hamrahlíðarkórinn flytur Sf-
gaunaljóð Brahms undir stjórn Willi
Gohls, en kórinn hefur ásamt stjórn-
anda sínum, Þorgerði Ingólfsdóttur,
unnið að undirbúningi verksins síð-
ustu tvo mánuði. A tónleikunum
verða einnig flutt lög frá ýmsum tím-
um, sem þátttakendur f kórstjórnar-
namskeiðinu syngja og stjórna.
Willi Gohl, sem er talinn standa
mjög framarlega í kórstjórnar-
kennslu, kom hingað til lands í vik-
unni og ræddi blaðamaður Mbl. við
hann í gær. Gohl var fyrst spurður
um tilgang komu sinnar hingað.
„Segja má að ég hafi komið til ís-
lands vegna tveggja verkefna.
Annars vegar að æfa og stjórna
kór Hamrahlfðarskólans, en ég hef
áður unnið með kórnum erlendis,
og hins vegar að leiðbeina 35
manns á námskeiði um kórstjórn,
sem Tónlistarskóli Reykjavfkur
gengst fyrir.“
— Hvernig var tilhögun nám-
skeiðsins?
„Það hófst sl. mánudag og stóð
yfir frá kl. 10—17 daglega fram að
tónleikunum f kvöld. Ég hóf nám-
skeiðið á nokkurs konar leikfimi í
þeim tilgangi að þátttakendur
fengju tilfinningu fyrir æfingar-
aðstöðunni. Sfðan var tekið til við
raddþjálfun og æfingu á þeim
verkum sem flutt verða á tónleik-
unum. Hér er um að ræða stutt lög
frá ýmsum tímum, sem sungin eru
á fjölda tungumála, s.s. latfnu,
ungversku, hebresku og þýsku. En
þátttakendurnir á námskeiðinu
lögðu sig mjög fram og hér er
margt hæfileikafólk.
— Hvaða hæfileikum þarf kór-
stjóri að vera gæddur?
„Hann verður að hafa mikinn
persónuleika, enda er það ómiss-
andi hæfileiki f flestum listgrein-
um. Frá stjórnandanum verður að
koma frumkvæði og andleg upp-
ljómun sem smitar út frá sér.“
— Telurðu að íslendingar séu
söngelsk þjóð?
„Já, tvímælalaust. Hér er söng-
listin iðkuð með mjög alþýðlegum
hætti. íslendingar eru lausir við þá
algengu fordóma að aðeins þeir
sem skara framúr eigi að syngja.
Að mínum dómi er sönglistin
dæmi um ákveðin lffsþægindi; f
nútímaþjóðfélagi þar sem frftím-
inn vex sífellt getur fólk í æ ríkari
mæli stundað sönglistina; og má
segja að það sé nokkurs konar mót-
vægi gegn ofurvaldi sjónvarpsins.
Hér á landi tel ég að þetta sé ákaf-
lega jákvætt sökum þess að þjóðin
er svo einangruð. M.ö.o. greiðir
ástundun sönglistar fyrir eðli-
legum samskiptum fólks," sagði
Willi Gohl að lokum.
Franska forsetafrúin á
frumsýningu Útlagans
París, 14. aprfl. Frá Klínu Pálmadóttur
blaóamanni Morgunblaðsins.
OPINBER heimsókn forseta ísiands hélt
áfram í gær, en kvöldið áður hafði Dani-
elle Mitterrand forsetafrú óvænt heiðrað
íslenzku sýninguna á Útlaganum meö
nærveru sinni. Og hún var einnig í smá-
boði á eftir utan dagskrár með listafólki
heima hjá Frederick Mitterrand. Var for-
seta íslands þar meðal annars færð terta
í tilefni af 53 ára afmæli hennar, sem
byrjaði um miðnætti, en þetta var allt
utan dagskrárinnar.
Versalahöll
Glæsilegar hallir Versala og garðar-
nir miklu voru ramminn um forseta-
heimsóknina frá íslandi um morgunin.
Þar eru öll tré orðin fagurgræn á þess-
um árstíma. Forseti og fylgdarlið eyddu
þar morgninum. í fylgdarliðinu eru auk
forseta íslands ráðuneytisstjóri Ingvi
Ingvason og frú, Ólafur Egilsson sendi-
herra og frú, Halldór Reynisson forseta-
ritari og frú, en ólafur Jóhannesson
utanríkisráðherra er farinn heim. í
kvöld mun forseti sjá frumsýningu á
nýjum nýtísku ballett í óperunni í boði
Jack Langes menningarmálaráðherra
og heilsa upp á ballettfólkið í fyrra hléi
en þiggja veitingar í bókasafni óperunn-
ar í síðara hléi.
Á morgun er dagur Bretagne þar sem
á rætur sameiginleg saga Frakka og ís-
lendinga, og þar sem Islendingar í
Paimpol erum ekki við, heldur þeir, eins
og forseti íslands orðaði það í dag.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, kemur í óperuna í
gærkveldi. Slmamynd AP.