Morgunblaðið - 15.04.1983, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983
„Viö gáfum bátnum stöövun-
armerki, en hann hlýddi þvi ekki
strax og spurði um heimild okkar til
aö stöðva ferð sína,“ sagði Þor-
valdur Axelsson, sem var skip-
herra á Ægi við tökuna á Einari
Benediktssyni BA 377 í samtali við
Morgunblaðið, skömmu eftir að
varðskipið hafði fært Einar
Benediktsson til hafnar í Hafnar-
firði í gær.
Bjargaði honum af
sökkvandi trillu.
„Við skýrðum það út fyrir honum
og sögðumst ætla að koma um borð
til eftirlits. Hann stöðvaði skipið og
fimm menn frá okkur fóru um
borð. Skipstjórinn var fenginn
hingað um borð í varðskipið með
skjöl skipsins og það kom í ljós að
haffærnisskírteini var útrunnið.
Varðskipsmenn ganga frá borði.
jfl
| .
Einar Benediktsson kemur til hafnar í Hafnarfirði.
Ægir færði Einar Benediktsson til hafnar:
1. stýrimaður Ægis
leysti skipstjórann af
Ég leysti hann þá formlega frá
störfum sem skipstjóra og lét yfir-
stýrimann Ægis, Halldór Gunn-
laugsson, taka við hans störfum og
ferðin hingað til Hafnarfjarðar
gekk í alla staði vel. Skipstjórinn
óskaði að fá að vera um borð í Ein-
ari og það var leyft," sagði Þorvald-
ur.
„Ég var þarna bara að fram-
kvæma emþættisskyldu mína og
skipstjórinn hegðaði sér í hvívetna
óaðfinnanlega. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem við hittumst, þvf
fyrir nokkrum árum átti ég því láni
að fagna að bjarga honum af
sökkvandi trillu út af Vestfjörðum,
þannig að ég vona að okkur sé ekki
illa hvorum við annan," sagði Þor-
valdur ennfremur. Hluti skipshafnar Einars Benediktssonar BA377 í brúnni. Taldir frá vinstri:
. . , , Guðmundur Guðmundsson, háseti, Skúli Sævarsson, háseti, Árni Sigurösson
Kostar okkur tekjutap. j stýrimaður, Þorvaldur Guðmundsson, háseti, Níels Hansen, kokkur og
„Það er furðulega að þessu stað- Óskar Aðalsteinsson, 1. vélstjóri. MorfcunblaAíð/RAX.
ið. Við áttum pantaða löndun hér í
Hafnarfirði á mánudaginn og þá
hefðum við komið inn, svo að það
var óþarfi að færa skipið til hafn-
ar,“ sögðu skipverjar á Einari
Benediktssyni, þegar Morgunblaðið
ræddi við þá i gær, eftir að lagst
hafði verið að bryggju í Hafnar-
firði.
Þá kom einnig fram hjá skipverj-
unum að það kostaði þá tekjutap að
skipið væri kyrrsett. Þeir sögðu að
varðskipsmenn hefðu 1 alla staði
komið mjög vel fram og ferðin til
Hafnarfjarðar gengið mjög vel.
Meiri linkind ef eitthvað er.
„Ég á að gefa út það haffærni-
skírteini sem þarf og ég kannast
ekki við að hann hafi fengið undan-
þágu. Að vísu tel ég að hann hafi
farið fram á það, hann hringdi ein-
hvern tíma frá Vestmannaeyjum
varðandi það, en fékk ekki undan-
þágu,“ sagði Páll Guðmundsson hjá
Siglingamálstofnun um þá stað-
hæfingu Níelsar Ársælssonar, skip-
stjóra á Einari Benediktssyni, (sem
kemur fram í Morgunblaðinu I
gær) að hann hafi verið með und-
anþágu vegna haffærniskírteinis
til 15. apríl. Hjálmar R. Bárðarson,
siglingamálastjóri er í fríi eins og
er.
Það kom fram hjá Páli að frest-
urinn til að lagfæra það sem Sigl-
ingamálastofnun hefur fundið að-
finnsluvert við búnað Einars Bene-
diktssonar, hefur oft verið fram-
lengdur, svo að ásökun um hefndar-
aðgerðir væri algerlega úr lausu
lofti gripinn, ef eitthvað væri þá
hefði verið sýnd meiri linkind en
almennt væri með skip, sem væru
keypt gömul til landsins.
„Hann lætur úr höfn hér í Hafn-
arfirði eftir að pappírar eru út-
runnir og það er þess vegna sem við
látum stöðva hann á Tálknafirði og
förum fram á að rannsókn fári
fram á ferðum hans. Forsagan er
raunar miklu lengri. Skipið var bil-
að frá því í nóvember fram í febrú-
arlok og lá á Tálknafirði. Þá var
haffærniskírteini útrunnið, en hon-
um er gefin mánaðarundanþága til
að koma málum sínum í lag og það
var ekki gert,“ sagði Páll.
Aðspurður um hvort einhver við-
urlög væru við því að leggja úr höfn
án haffærniskírteinis sagði Páll, að
eftir að sjópróf hefði farið fram,
sem ekki væri annað en rannsókn,
væri það saksóknara að taka af-
stöðu til þess, hvað gert yrði.
„Það eru þó nokkuð mörg atriði
sem er eftir að lagfæra, og nú er
einnig komið að hinni hefðbundnu
árlegu skoðun á skipinu," sagði Páll
aðspurður um það sem þyrfti að
lagfæra um borð í Einari.
Hljómsyeitin Mezzoforte:
Mjög góðar undir-
tektir í Hollandi
Kópavogur:
Selja heimilispoka
„PLATAN gengur mjög velí Hol-
landi núna,“ sagði Steinar Berg ís-
leifsson, framkvæmdastjóri Steina
hf. og Mezzoforte, í samtali við
blaðamann Mbl., er hann var inntur
eftir gengi hljómsveitarinnar erlend-
is síðustu daga. „Litla platan var í
74. sæti vinsældalistans í Hollandi f
síðustu viku, en stökk nú upp f 32.
sæti, sem telst afar gott. Stóra plat-
an hefur einnig tekið mjög vel við
sér,“ sagði Steinar, „fór úr 42. sæti í
síðustu viku í 21. sæti nú, svo það
gefur tilefni til bjartsýni.“
f Englandi kvað Steinar litlu og
stóru plöturnar vera í 30. sæti. I
gær kom plata Mezzoforte út á
Spáni, hún er komin út í Portúgal
og á Ítalíu og j Frakklandi. Platan
er væntanleg í Japan, Vestur-
Þýskalandi, Austurríki og Sviss,
og samningar eru á byrjunarstigi
Myndbands-
tæki stolið
MYNDBANDOTÆKI var stolið úr
bfl þar sem hann stóð við Laufásveg,
norðan Skothússvegar, mánudaginn
11. aprfl síðastliðinn.
Atburður þessi átti sér stað á
milli klukkan 12.00 og 18.30.
Myndbandstækið er af gerðinni
JVC-7650 og er talið að tækið sé
tuga þúsunda virði, samkvæmt
upplýsingum rannsóknarlögregl-
unnar.
Biður lögreglan þá, sem kunna
að hafa orðið varir við þjófnaðinn,
að gera Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins viðvart.
milli Steina hf. og CBS-samsteyp-
unnar í Bandaríkjunum um mark-
aðssetningu í Kanada, Bandarfkj-
unum og Suður-Ameríku.
í maí er síðan væntanleg ný, lft-
il plata frá Mezzoforte í Englandi,
og mun titillagið að öllum lfkind-
um heita „Rockall", en trúlega
verður eldra lag á B-sfðu, hugsan-
lega lagið „Stjörnuhrap" sem að-
dáendur Mezzoforte munu kann-
ast við frá fyrri tíð, að sögn Stein-
ars Berg ísleifssonar.
Tónleikar á
vegum SATT
TÓNLEIKAR á vegum SATT verða
haldnir í Klúbbnum nk. fóstudags-
og laugardagskvöld 15. og 16. aprfl.
Föstudagskvöldið koma fram
hlómsveitirnar Kikk og Puppets,
og á laugardag leika Vaka og
Tappi tíkarrass.
Hljómleikarnir hefjast kl. 21.45.
Féll úr stiga
og slasaðist
VINNUSLYS varð í Sementsverk-
smiðju rfkisins á Akranesi í fyrradag
er maður um þrítugt féll úr stiga
niður á gólf.
Maðurinn slasaðist talsvert og
var fluttur í sjúkrahúsið á Akra-
nesi, en þaðan f Borgarspítalann f
Reykjavík.
Lionsklúbburinn Týr verður með
sölu á heimilispokum laugardaginn
16. aprfl. Pokinn inniheldur gólfklút,
borðklút, afþurrkunarklút og upp-
þvottabursta.
Þessa hluti keypti Lk. Týr á
vernduðum vinnustöðum og allur
ágóði rennur til góðgerðarstarf-
semi. Við biðjum borgarbúa að
taka vel á móti sölubörnum okkar
nk. laugardag 16. apríl. Pokaverð
er 100 kr. (Frétutilkynning.)
Merkjasala á
Suðurnesjum
STYRKTARFÉLAG aldraðra á Suður-
nesjum gengst fyrir merkjasölu dag-
ana 15.—16. apríl nk.
Merkin verða seld á kr. 20.00.
Stefnt er að því að selja merki fyrir
kr. 50.000.00, sem rennur til starf-
semi félagsins.
Suðurnesjabúar eru beðnir að
taka vel á móti merkjasölufólki.
Liðlega 1.000
kosið utan
kjörstaðar
LIÐLEGA 1000 kjósendur
höfðu neytt atkvæðisréttar síns
utan kjörstaðar í gær, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk hjá Friðjóni Skarphéðins-
syni, fulltrúa borgarfógeta, á
utankjörstaðaskrifstofunni í
Reykjavík.
Friðjón kvaðst ekki hafa
tölur til samanburðar frá síð-
ustu kosningum, í maí í fyrra,
en sagði að kjörsókn hefði far-
ið stigvaxandi undanfarna
daga og kvaðst hann búast við
að kjörsókn ykist allt fram að
kjördegi.
Utankjörstaðaskrifstofan
er í Miðbæjarskólanum og er
opin virka daga frá klukkan
10 til 12, frá 14 til 18 og frá 20
til 22 alla daga nema sunnu-
daga, en þá er skrifstofan opin
frá klukkan 14 til 18. Utan-
kjörstaðaskrifstofan verður
opin fram á kjördag.
Afmæli
50 ára er í dag 15. apríl Helga Stef-
ánsdóttir Drápuhllð 26. Eiginmað-
ur hennar er Friðgeir Gunnars-
son.
Málþing sálfræði-
nema um kynjamismun
LAUGARDAGINN 16. apríl næstkom-
andi kl. 14 gengst félag sálfræðinema
fyrir málþingi sálarfræðinnar í Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut.
Að þessu sinni verður fjallað um
þemað „kynjamismunur". Hug-
myndin er að taka efnið fyrir út frá
fimm mismunandi sjónarhornum.
Frummælendur verða: Fyrir hönd
mannfræðinnar Sigríður Dúna
Kristmundsd. stundak., fyrir hönd
bókmenntafr. Helga Kress lektor,
fyrir hönd lífeðlisfr. Guðlaug Torfa-
dóttir líffræðingur, fyrir hönd sál-
fræðinnar Lára Halldórsdóttir sál-
fræðingur og fyrir hönd uppeldisfr.
Guðný Guðbjörnsdóttir prófessor.
Flutt verða fimm 20, mínútna
framsöguerindi og að því loknu
verða almennar umræður.
Aðgangur ókeypis og allir vel-
komnir.