Morgunblaðið - 15.04.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL1983
19
Scarsdale-kúrinn
vekur mikla athygli
Yfir 2,000 eintök seldust á fyrstu tveimur dögunum
Viðbrögö manna við Scarsdale-megrunarkúrnum létu ekki á sér standa
eftir að grein um kúrinn birtist í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Bókin
kom út til dreifingar á mánudaginn og á tveimur fyrstu dögunum seldist
hún í yfir 2.000 eintökum á höfuðborgarsvæðinu einu. Að sögn Guðlaugs
Bergmann, sem hefur verið helsti hvatamaður þess að kynna kúrinn fyrir
landsmönnum, eru þetta betri viðbrögð en menn höfðu búist við svona í
upphafi, en jafnframt ánægjuleg tíðindi því kúrinn væri vissulega mann-
bætandi og stórt skref í átt til heilbrigðara mataræðis meðal íslendinga.
Guðlaugur kvaðst vilja koma á
framfæri ákveðnum ábendingum
til fólks, sem nú væri að taka til
við kúrinn eða ætluði að gera það,
því það væru nokkur atriði sem
betra væri að passa sig á, til að
tryggja góðan árangur.
„I fyrsta lagi þarf algjöra
breytingu á hugsunarhætti varð-
andi mataræði," sagði Guðlaugur.
„Kúrinn veldur því að menn fara
að hugsa öðruvísu um þessi mál
en áður og það er reyndar mjög
nauðsynlegt fyrir alla, hvort sem
þeir eru feitir eða grannir. Menn
sem lifa í nútímaþjóðfélagi lifa
við allt aðrar aðstæður en áður
var og þótt feitmeti og annað
þessháttar hafi þótt gott og gilt í
gamla daga, gildir það ekki nú í
dag. Nútímamaðurinn brennir
miklu minna en menn gerðu hér
áður fyrr og í dag er vitneskja um
hvað mataræðið skiptir miklu
máli fyrir heilsuna, miklu meiri
en áður var og eykst með hverju
ári. Kúrinn kennir okkur rétt
mataræði og á því ekkert síður
erindi til þeirra sem ekki eru
holdmiklir. Við íslendingar þurf-
um nauðsynlega að breyta matar-
æði okkar. Við erum að drepa
okkur á vitlausu mataræði.
í annan stað við ég benda fólki
á, þegar það fer í Scarsdale-kúr-
inn, að byrja á, að lesa fimmta
kaflann í bókinni á bls. 35 og einn-
ig grundvallarreglurnar á bls. 29.
Spekingurinn Konfúsíus sagði eitt
sinn: „Allir eta en fáir þekkja
bragð", en Scarsdale-kúrinn legg-
ur áherslu á þann skilning að
fólki þyki góður matur og höfund-
ur þessarar bókar finnst mjög
eðlilegt að fólk sleppi fram af sér
beislinu við ýmis sérstök tæki-
færi, svo sem hátíðir, afmæli, frí
og þess háttar, en fylgist með
kjörþyngd sinni og taki strax til
við kúrinn ef það fer tvö kíló yfir.
Flestir sem eru feitir, eiga það
sameiginlegt að háma í sig mat-
inn fljjott og borða mat á kvöldin.
Scarsdale-kúrinn leggur áherslu á
að tyggja matinn vel og njóta
hvers bita og yfirhlaða ekki mag-
ann. Einnig er lögð áhersla á að
sleppa ekki neinni máltíð sem upp
er gefin, miðað við að geta borðað
hana seinna. Þá er líka mjög áríð-
andi að breyta ekki máltíðum
milli daga eða borða eitthvað í
staðinn fyrir það sem upp er gef-
ið. Á þessu brenna sig flestir og
minni árangur verður þá.
Margir hræðast það að úrvalið
af matnum sé mjög lítið og fá-
brotið, sem má borða bæði í
Scarsdale-kúrnum og „Haltu þér
grönnum alla ævi“-kúrnum, en
það er óþarfi að óttast það. Þeim
sém eru búnir að klára 15 daga
Félagar á Gufubaðstofu Jónasar á Kvisthaganum. Nokkrir úr þessum hópi hafa tekið sig saman og faríð í
Scarsdale-kúrinn.
Scarsdale-kúrinn er bent á að lesa
kafla 6 á bls. 51—61, því þar fást
öll svör við hvað þú átt að gera
næst og þá sést einnig að það sem
má borða er geysilega fjölbreytt.
Meðan á 15 daga Scarsdale-
kúrnum stendur, má fólk skipta
yfir í hvaða annan kúr sem er í
bókinni, (sælkerakúrinn, græn-
metiskúrinn, sparnaðarkúrinn og
alþjóðlega kúrinn), en passa að
nota fæði sama dags í hvaða kúr
sem notaður er. Þó má geta þess,
að þetta ber ekki eins góðan ár-
angur eins og að halda sig við 15
daga kúrinn.
Islendingar eru mjög óvanir að
borða grænmeti, sem er geysilega
áríðandi í allri fæðu og Scarsdale
leggur mikla áherslu á það. Þar
sem ekki má nota ýmsar sósur út
á grænmetið vil ég benda fólki á
að það má nota vínedik út á græn-
metið sem til eru ýmsar bragðteg-
undir af í verslunum. Ef flett er
úþp á blaðsíðu 101—103 má finna
nokkrar uppskriftir af kryddlegi
sem kjöt er lagt í og bragðbætir
mikið.
Scarsdale-kúrinn er meðmælt-
ur alhliða hreyfingu og hvers kon-
ar sporti, en vill vara fólk við að
ailt of mikið er gert úr brennslu
hitaeininga við slíkar hreyfingar,
en það má sjá í lista á bls.
176—178. Einnig vil ég benda
fólki á að lesa vel kafla 12 og 13,
en þeir eru mjög veigamiklir til
alhliða skilnings á Scarsdale-
kúrnum. Margt fleira gagnlegt er
í bókinni og má þar m.a. nefna
læknisfræðilegan viðbæti um
hina ýmsu sjúkdóma. Það má
kannski bæta því við, að fjórir
veitingastaðir hér í Reykjavík
bjóða nú upp á fjölbreytt
Scarsdale-fæði, en það eru
Brauðbær, Naustið, Rán og Torf-
an.
Þess má geta til gamans að
nokkrir félagar, sem hittast oft í
elstu gufubaðstofu landsins, hjá
Jónasi Halldórssyni á Kvisthag-
anum, hafa ákveðið að taka sig
saman og fara í Scarsdale-kúrinn
í hálfan mánuð og byrjuðu þeir á
mánudaginn var. Sameiginleg
vigt þeirra var yfir eitt tonn og
verður nákvæmlega fylgst með
árangri þeirra og vigt þeirra
mæld nú um helgina. Þessi menn
eru auk mín, Henrik Thorarensen,
gjaldkeri, Kristján Stefánsson,
kjötiðnaðarmaður, Halldór Jóns-
son, verkfræðingur, Þóroddur
Stefánsson, verslunamaður, Ólaf-
ur B. Ólafsson, útgerðarmaður,
Árni Vilmundarson, deildarstjóri,
Sigurður Kr. Runólfsson, iðnaðar-
maður, Hinrik Thorarensen,
kaupmaður, Svanur Jóhannsson,
sjómaður, Yngvi Högnason, iðn-
aðarmaður, Jónas Halldórsson,
nuddari, Þorlákur Pétursson,
try'ggingasölumaður og svo
nokkrir enn sem ekki vilja láta
nafns síns getið,“ sagði Guðlaugur
að lokum.
sem allir hafa beðið eftir
byrjaði í morgun.
Úr og skartgripir
á frábæru verði.
VALDIMAR AUSTURSTRÆTI22
SIM117650