Morgunblaðið - 15.04.1983, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1983
djúðviuinn
. jnarsTS^^
þriðjudagur
70. tölublað
48. árgangur
Sjé 13
Aherslan hefur verið á verkamann."^
Nú er koraið að
Séntakur bygging»r*j6öur. ný e,*n"Jorm _
oa lanfltlmalán, eru mál, *em ekkt þota — i«f V
ta^UrrSvavarGeU-on g
.tLih*—dtamf »»«*■. Ukfl
JiTr!5Ib*tatZ .8 W<)-« þetarh^d.
Geir H. Haarde
„Allar skynsamlegar
lausnir í þessu efni
hljóta að byggjast á
tvennu. Annars vegar á
því aö lækka kostnaö
viö húsbyggingar, en
hins vegar á aukinni
Iánsfjáröflun.“
ingu ölafslaga árið 1979, þar sem
verðtryggingin var í lög leidd. Þá
þegar var sýnt að hverju myndi
reka í lánamálum ungra hús-
byggjenda.
Sjálfstæðismenn hafa gert ítar-
legar tillögur um það með hvaða
hætti bregðast skuli við þvi
ástandi sem nú hefur skapast. Af
fundum þeim sem m.a. ungir
sjálfstæðismenn hafa haldið að
undanförnu um þessi mál, má
ráða að þær tillögur njóta veru-
legs stuðnings og skilnings meðal
unga fólksins. Þessar hugmyndir
voru m.a. kynntar í tillögu til
þingsályktunar sem nokkrir þing-
menn flokksins fluttu á siðasta
þingi, en var því miður ekki af-
greidd, og hún er ítrekuð í kosn-
ingayfirlýsingu flokksins nú.
Allar skynsamlegar lausnir í
þessu efni hljóta að byggjast á
tvennu. Annars vegar á því að
lækka kostnað við húsbyggingar,
en hins vegar á aukinni lánsfjár-
öflun.
Varðandi kostnaðarhliðina
kemur auðvitað til greina að létta
einhverju af álögum ríkisins af
byggingarkostnaðinum, auk þess
sem hlúa þarf að frjálsu samstarfi
— eftir Geir H. Haarde, formann Sambands ungra sjálfstæðismanna
Svavari Gestssyni, formanni Al-
þýðubandalagsins, rataðist óvænt
satt orð á munn í málgagni sínu
hinn 29. mars sl. Hann segir þar
að á þeim tíma sem hann hefur
verið félagsmálaráðherra hafi
unga fólkið, það fólk sem er að
reyna að tryggja sér húsnæði í
fyrsta sinn, „orðið útundan" í hús-
næðislánakerfinu.
Þetta er óvenjuleg hreinskilni af
hálfu félagsmálaráðherra, en
jafnframt ömurlegur vitnisburður
um þau þrjú ár sem hann hefur
setið í embætti.
Sannleikurinn er sá, að mjög
hefur hallað undan fæti undanfar-
in ár fyrir það unga fólk sem er að
koma sér upp þaki yfir höfuðuð í
fyrsta sinn. En í stað þess að taka
á því vandamáli meðan hann hafði
aðstöðu til, kemur formaður
Alþýðubandalagsins nú með
fagurgala fram fyrir kjósendur
nokkrum vikum fyrir kosningar.
Ungir sjálfstæðismenn hafa
bent á það um margra ára skeið,
að verðtryggingarstefnan hlyti að
gera þeim erfitt fyrir, sem væru
að koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Nú blasir við að áhrif verðtrygg-
ingarinnar eru komin fram með
fullum þunga. Hins vegar hefur
ekki af opinberri hálfu verið
brugðist við þessum breyttu að-
stæðum, sem verst koma niður á
þeim, sem eru að byggja eða kaupa
íbúð í fyrsta sinn, t.d. með leng-
ingu lána og hærra lánsfjárhlut-
falli.
Þetta er meginatriðið. Á þessu
ber Svavar Gestsson fulla ábyrgð,
en hann sem viðskiptaráðherra
átti með öðrum ráðherrum Al-
þýðubandalagsins aðild að setn-
Alþýðubandalagið
og húsnæðismálin
Sjötugur:
Lárus Kr. Jónsson
Stykkishólmi
Hann er sjötugur í dag. Fæddur
í Stykkishólmi 15. apríl 1913, son-
ur hjónanna Björninu Sigurðar-
dóttur og Jóns Kr. Lárussonar.
Leik og starfsvettvangur hans
hefir því frá öndverðu verið í
Hólminum. Honum hefir hann
verið tryggur og fengist þar við
ýmisleg verkefni. í æsku átti hann
við veikindi að stríða, en komst
yfir þau með guðs hjálp. Byrjaði
ungur að vinna alls konar dagleg
störf sem til féllu. Um tíma var
hann í apótekinu hjá Hans Svane,
síðar lærði hann klæðskeraiðn,
sem hann stundaði hér í Hólmin-
um um 20 ára skeið, en frá árinu
1953 hefir hann verið umsjónar-
maður í barnaskólanum okkar.
Félagshyggjumaður er Lárus.
Hann hefir starfað í Reglunni um
langan tíma og þar höfum við
mæst. Hann var einn af stofnend-
um Rotaryklúbbs Stykkishólms og
starfar þar enn. Þeir eru nú aðeins
tveir stofnendur klúbbsins sem
þar eru í starfi í dag. SÍSB og ör-
yrkjabandalagið hafa átt hauk í
horni sem Lárus er og í Karla-
kórnum starfaði hann og söng um
skeið. Hringjari og safnaðarfull-
trúi í kirkjunni o.s.frv. Tóm-
stundir hans eru því félagsstörf.
Lárus er kvæntur Guðmundu
Jónasdóttur og eiga þau 4 börn, öll
gift og búin að stofna sín eigin
heimili.
Ég vil ekki láta hjá líða að
minnast þessa áfanga í lífi Lárus-
ar og þakka samstarf liðinna ára,
bæði súrt og sætt. Ýmsum sigrum
höfum við mætt. Erfiðleikar, mis-
skilningur og dómar hafa ekki
fram hjá okkur farið. Það höfum
við ekki látið trufla okkur í bar-
áttu góðra málefna. Við vitum það
að allt sem miðar til góðs á erfitt
uppdráttar og einnig það að sann-
leikur mikill felst í orðum Bólu-
Hjálmars „Hæg er leið til helv.
hallar undan fæti“. Því höldum
við áfram, sígum á brattann heil-
um huga og treystum á uppsker-
una. Og vissulega á hún eftir að
sína sig.
Ég og mínir óskum Lárusi til
hamingju. Biðjum honum blessun-
ar á komandi tímum og að enn
megum við eiga samleið um góð
málefni og fagna mörgum sigrum.
Árni Helgason
[ raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Andstæðar
leiöir í
íslenskum
stjórnmálum
Kappræöufundur veröur haldlnn f Hallar-
lundi í Vestmannaeyjum laugardaginn 16.
apríl kl. 16.30 mllli Sambands ungra sjélf-
stæoismanna og æskulýösfylklngar Al-
þýöubandalagsins. Ræöumenn fri SUS:
Georg Þör Krlstjánsson, Gústaf Nlelsson,
Þorsteinn Pálsson. Fundarstjörl. Magnús
Jönasson.
Eyverjar og SUS.
Hvöt
Trúnaöarráö Hvatar er boöaö til vlnnufundar laugardaglnn 16. 4. kl.
10.30 (Valhöll.
Mlnnum allar Hvatarkonur á hádeglsveröarfundlnn og fundlnn f
Gamlabfói laugardaginn 16.4.
St/órnln.
Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
á Akranesi
veröur opin sem hér seglr: Fré kl. 13 til 19 og 20 tll 22. Kaffl er á
boöstólum um mlöjan daginn og é kvöldin. Sjálfstæölsmenn hafl
samband viö skrlfstofuna vegna utankjörstaöakosnlnga.
Ragnhelóur Ólafsdóttlr, akrlfstofustjórl.
Hafnarfjörður
Kosnlngaskrlfstofa Siálfstæölsflokksins f Hafnarfiröi er f Sjálfstæöls-
húsinu, Strandgötu 29, og er opln vlrka daga kl. 14 tll 19, sfminn er
50228.
Stuöningsmenn gjöra svo vel aö Ifta vlö og þiggja kaffl.
SjálfstsBÖIsflokkurlnn i Hafnarflról.
Seltjarnarnes
Kosningaskrlfstofa Sjálfstæðlsflokksins á Seltjarnarnesl er aö Aust-
urströnd 1 (Húsi Nessklpa hf.). Sfmar 18644 og 19980. Oplö frá kl. 16
til kl. 21. Um helgar frá kl. 10 tll 18. Starfsmaöur Slgurvelg Lúövfks-
dóttir. Sjálfstæöismenn eru hvattlr tll aö Ifta vlö á skrlfstofunnl og
leggja liö f baréttunni.
Sjálfstæóisflokkurlnn á Seltjarnarnesl.