Morgunblaðið - 19.04.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
Vestmannaeyjar:
Steftiir í
meðalvertíð
Yestmannaeyjum 18. apríl 1983.
Nú um miðjan mánuðinn var vertíðaraflinn hér kominn í 23.505 tonn.
Bátaflotinn hafði skilað á land 19.255 tonnum, meðalafli í löndun 9,2 tonn.
Togarar hafa landað 4.250 tonnum, og hjá þeim er meðalafli í löndun 2,8
tonn. Er heildaraflinn nú um 2.900 tonnum lakari en á sama tíma og í fyrra.
Þegar aflatölur nú eru bornar
saman við næstu ár á undan, kem-
ur í ljós að það stefnir í meðalgóða
vertíð í ár, verði gæftir og afla-
brögð sæmileg til vertíðarloka 15.
maí. Netaafli er nú minni en und-
anfarnar þrjár vertíðir, en afli í
botnvörpu er mun meiri, raunar er
meiri afli kominn á land úr troll-
inu en alla vertíðina síðustu tvö
árin.
Ef skoðaður er nánar vertíðar-
afli bátanna nú í ár og síðustu
fimm vertíðir þar á undan, miðað
við afla á land kominn 15. apríl ár
hvert, er niðurstaðan þessi: 1983:
19.255 tonn, meðalafli í löndun 9,2
tonn. 1982: 21.580, meðalafli 10,6
tonn. 1981: 19.062, meðalafli 12,4
tonn. 1980: 17.602 meðalafli 10,8
tonn. 1979: 14.261, meðalafli 7,9
tonn. 1978: 11.222 tonn, meðalafli
6.8 tonn.
Hörður Jónsson skipstjóri á
Heimaey er aflahæstur með 871
tonn. Suðurey er með 800 tonn,
Valdimar Sveinsson með 724 tonn
og Sighvatur Bjarnason er með
714 tonn. Af trollbátum er Huginn
aflahæstur með 653 tonn, Frár
með 555 tonn og Helga Jóh. er með
490 tonn.
Breki er með mestan afla tog-
ara, 12.078 tonn.
Þess má geta að í fyrra varð
vertíðaraflinn fram til 15. maí
33.804 tonn.
— hkj.
Fáskrúðsfirðingar taka upp olíukyndingu á ný:
30—40% ódýrara
að kynda sundlaug-
ina með hráolíu
Upphitunarkostnaður á Austur-
landi er orðinn gífurlegur og að
sögn Sigurðar Gunnarsson, sveit-
arstjóra á Fáskrúðsfírði, er áætl-
aður kostnaður við upphitun
íþróttahúss og sundlaugar staðar-
ins, sem hituð eru með rafmagni,
300 þúsund krónur í ár. Með því
að skipta yfír í olíuupphitun sund-
laugarinnar á ný verður reikning-
urinn 30—40% íægri og sagði Sig-
urður að þar sem allur búnaður
væri enn fyrir hendi til olíukynd-
ingar væri ákveðið að skipta yfir í
hráolíu.
um byggingum er greitt sam-
kvæmt iðnaðartöxtum. Hann
sagði að þessi niðurstaða með
upphitun sundlaugarinnar væri
líklega talandi dæmi um hvern-
ig komið væri í upphitunarmál-
unum. Fáskrúðsfirðingar hafa
lagt um 120 þúsund krónur í
búnað við sundlaugina til að
geta notað raforku sem verður
nú lagður til hliðar. Sigurður
sagðist þó vonast til að einhver
lagfæring fengist á þessum
málum.
Einar Jónsson, leiðangursstjóri á Hafþóri, með „vítisgadd“ úr tundur-
duflinu, sem skipið fékk í trollið í „Rósagarðinum“ fyrir nokkrum
dögum. Ijósm.: Kristján Einarsson.
Hafrannsóknarskipið Hafþór:
Þýskt tiindurdufl
dansaði um á
þilfari skipsins!
Skipverjum á hafrannsóknar-
skipinu Hafþóri varð ekki um sel
er stóreflis tundurdufl kom upp
með vörpunni þar sem þeir voru að
veiðum í svonefndum „Rósagarði"
á Færeyjahryggnum fyrir nokkrum
dögum. „Okkur fannst þetta ekki
síst óskemmtileg „veiði“ fyrir þá
sök að veðrið var slæmt og skipið
lét illa, og þetta rúllaði til og frá,“
sagði Einar Jónsson leiðangurs-
stjóri, er blaðamaður Morgun-
blaðsins ræddi við hann í gær.
„Þetta dansaði þarna allt til og
frá,“ sagði Einar, „í belgnum á
trollinu, en okkur virtist þó fljót-
lega, sem þetta myndi ekki mjög
hættulegt.
Veðrið var það sem gerði
okkur einna hræddasta, því ein-
mitt um líkt leyti og duflið kom
inn fyrir reið brotsjór yfir, og
einn skipverjanna fékk höfuð-
högg. Tundurduflið var stórt,
ekki aiveg hnattlaga, en um 1,5
metri í þvermál. Okkur tókst að
koma því útbyrðis á ný, en sam-
kvæmt upplýsingum er við höf-
um fengið hjá sprengjusérfræð-
ingum Landhelgisgæslunnar,
mun hér sennilega hafa verið
þýskt dufl á ferð frá því í seinni
heimsstyrjöldinni. Þeir sögðu
rétt hjá okkur að losa það á ný í
hafið, þar yrði það ekki hættu-
legt, eina hættan væri sú, að
púðrið gæti sprungið, en það ger-
ist aðeins ef það nær að þorna.
En leiðslur virtust vera heilar,
og „vítisgaddarnir" stóðu út úr
duflinu, þeir sem eiga að orsaka
sprengingu við snertingu. Það
varð þó ekki, en til minja tókst
mér að ná einum gaddinum áður
en við hentum duflinu fyrir
borð,“ sagði Einar að lokum.
Skákþing íslands:
Úrslitakeppni
þriggja
manna hafin
Ágúst Karlsson og Hilmar Karls-
son tefldu í gærkveldi fyrstu úrslita-
skákina í úrslitakeppni þriggja
manna um íslandsmeistaratitilinn
1983, en þeir hlutu ásamt Elvari
Guðmundssyni 7,5 vinninga á ný-
afstöðnu Skákþingi íslands. Dan
Hansson, er varð efstur með 9 vinn-
inga, varð ekki íslandsmeistari þar
eð hann er sænskur ríkisborgari.
Önnur umferð úrslitakeppninnar
verður tefld í kvöld, og tefla þá Elv-
ar og Ágúst. Tefld verður tvöföld
umferð, og er teflt í húsakynnum
Skáksambandsins við Laugaveg.
Dan Hansson hlaut Seikoúr frá
Þýskíslenska í verðlaun fyrir sigur
sinn á mótinu. íslandsmeistarinn
mun síðan fá 3ja vikna sólar-
landaferð frá Útsýn, og Dan og
íslandsmeistaranum verður boðið
að tefla á Norðurlandamótinu,
sem fram fer í Esbjerg í Dan-
mörku í júlí. Einmitt á
Norðurlandamótinu sigraði Frið-
rik Ólafsson fyrir 30 árum, 1953,
að því er Gunnar Gunnarsson for-
seti Skáksambandsins sagði í
samtali við Mbl. í gær.
Höfuðborgarsvæðið:
Mikiðum
sinuelda
MIKLIR sinueldar loguðu víða á
höfuðborgarsvæðinu í gær, og í flest-
um eða öllum tilvikum voru elds-
upptök þau að börn og unglingar
voru að fíkta með eld.
Ekki var í gær vitað um mikið
tjón af völdum sinueldanna, en
lögreglan í Kópavogi bað Morgun-
blaðið að koma þeim tilmælum á
framfæri við forráðamenn barna
og unglinga, að þeir brýni fyrir
þeim að verða ekki völd að sinu-
eldum.
Eldarnir geta náð mikilli út-
breiðslu á ótrúlega skömmum
tíma í þurru veðri eins og nú er á
S'uðurlandi og mikið tjón getur
skapast af því sem í upphafi var
aðeins saklaus leikur.
Kostnaður sveitarfélaga af
upphitunarkostnaði er gífurleg-
ur að sögn Sigurðar, en raf-
magn til húshitunar í opinber-
Á sunnudag:
Varað við snjó-
flóðahættu í
Siglufirði
— hættan nú liðin hjá
SNJÓFLÓÐAHÆTTA var yfir-
vofandi í Siglufírði á sunnudag
og var fólk á hættusvæöunum í
bænum varað við og birtust við-
varanir þessar í fjölmiðium á
sunnudag.
í samtali við Mbl. sagði
Óttar Proppé, bæjarstjóri í
Siglufirði, að óvanalega mikil
snjókoma hefði verið um helg-
ina og hefðu kannanir manns á
vegum Veðurstofunnar bent til
snjóflóðahættu á staðnum.
Jafnframt var það mat Veð-
urstofunnar að snjóflóðahætta
væri yfirvofandi.
Sagði óttar að þrjú snjó-
flóðasvæði væru þekkt við bæ-
inn og þó einkum eitt, í
Strengsgili syðst í bænum.
Ekki hefði sést til fjalls fyrr en
í gær, mánudag, og þá hefði
komið í ljós töluverðar hengju-
myndanir í giljum, en hins veg-
ar væri nú talið að snjó-
flóðahættan væri liðin hjá.
Guðlaugur Bergmann tekur
einn við rekstri Karnabæjar
GUÐLAUGUR Bergmann, annar
framkvæmdastjóra og annar aðaleig-
andi Karnabæjar, hefur að fullu tekið
við rekstri fyrirtækisins. Haukur
Björnsson, sem hefur verið fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins með Guð-
laugi hefur hins vegar hætt störfum.
„Fyrirtækið er stofnað af okkur
Birni heitnum Péturssyni og ég hef
því átt gott samstarf við fjölskyldu
Björns í tæplega 17 ár. Þegar Björn
lézt fyrir nokkrum árum tók Pétur
sonur hans fyrst við starfi hans.
Pétur gekk síðan út úr fyrirtækinu
og hóf rekstur fyrirtækisins
Hljómbæjar og þá tók Haukur
bróðir hans við starfinu, en hann
hafði verið framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenzkra iðnrekenda um ára-
bil. Báðir hafa þeir reynzt hinir
ágætustu samstarfsmenn. Það hafa
hins vegar verið uppi ólíkar skoðan-
ir um hvernig standa ætti að
rekstrinum, sem síðan leiddi til
þess, að aðilar voru sammála um að
eðlilegt væri að slíta samstarfinu,"
sagði Guðlaugur Bergmann í sam-
tali við Mbl.
„Þótt menn hafi ólíkar skoðanir á
málunum segir það ekkert til um
hæfileika manna í sjálfu sér. ís-
lenzk fyrirtæki hafa hins vegar átt
við ákveðna rekstrarerfiðleika að
stríða á undanförnum árum og höf-
um við í Karnabæ að sjálfsögðu
ekki farið varhluta af því. Við þær
aðstæður hefur svo komið í ljós, að
ég og samstarfsmenn mínir höfum
haft mismunandi skoðanir á því
hvernig standa bæri að málunum.
Auk þess er það mín skoðun, að
Karnabær hafi í raun ekki þörf
fyrir nema einn framkvæmda-
stjóra.
Endirinn varð því sá eins og áður
sagði, að menn urðu sammála um
að fara hvor sína leið. Ég og fjöl-
skylda mín tókum við öllum rekstri
fyrirtækisins, þ.e. saumastofu og
verzlunum, en Haukur og Pétur
Björnssynir og fjölskyldur þeirra
tóku hins vegar yfir húsnæði fyrir-
tækisins að Fosshálsi í Reykjavík.
Á þessari stundu get ég því ekki
annað en óskað fyrrverandi sam-
starfsfélögum mínum alls hins
bezta í framtíðinni," sagði Guðlaug-
ur.
Aðspurður sagði Guðlaugur
ennfremur, að hann ætlaði ekki að
gera neinar sérstakar breytingar á
rekstri fyrirtækisins. „Ég er t.d.
harðákveðinn í því að gefast ekki
upp við iðnaðinn, þótt hann sé og
hafi verið erfiðasti þáttur fyrirtæk-
isins í gegnum árin. Þar kreppir
skórinn reyndar sérstaklega að um
þessar mundir, eins og almennt í
iðngreininni á Islandi.
Ég stefni því að því að halda
áfram í framleiðslunni og stefni að
því að efla hana þótt hún sé
kannski ekki arðvænleg um þessar
mundir við þau starfsskilyrði, sem
iðnaðinum eru búin. Starfsskilyrðin
hafa verið mjög slök undanfarin ár
og hefur þar ekki skipt neinu hvaða
menn hafa verið við stjórnvölinn.
Ég trúi því hins vegar, að sú ríkis-
stjórn sem taka mun við að loknum
kosningum, muni og verði reyndar
að gera eitthvað í málefnum iðnað-
arins, ef á að vera búvænlegt í
þessu landi í framtíðinni. Ég mun
berjast fyrir lífi einkaframtaksins í
landi og mun því standa og falla
með hugmyndum mínum," sagði
Guðlaugur ennfremur.
Að sfðustu kom það fram í sam-
talinu við Guðlaug Bergmann, að
Karnabær rekur verzlanir á fimm
stöðum í Reykjavík, auk þess sem
25 verzlanir úti á landi verzla að-
eins með vörur frá fyrirtækinu. Þá
hefur Karnabær rekið innflutn-
ingsverzlun um árabil og eins og
áður sagði verið 1 framleiðslu á
fatnaði. Hjá fyrirtækinu hafa
starfað 130—140 starfsmenn að
undanförnu við þessa starfsemi.
Átök í Vestmannaeyjum:
Lögreglumaður slasast og
fjórir menn handteknir
Vestmannaeyjum 18. apríl 1983.
Lögreglumaður slasaðist á höfði í
átökum við hóp manna, sem aðfara-
nótt sl. laugardags reyndu að hindra
handtöku félaga síns. Tveir lögreglu-
menn, sem voru á eftirlitsferð um bæ-
inn, stöðvuðu bifreið, sem var of-
hlaðin fólki. Brást fólkið illa við þess-
ari afskiptasemi lögreglunnar, og
hafði einn farþeganna sig mest í
frammi.
Svo mjög lét hann til sín taka, að
vegna framkomu hans og ölvunar-
ástands ákváðu lögreglumennirnir
að færa hann á lögreglustöðina. Fé-
lagar mannsins brugðust hinir
verstu við, og kom til mikilla átaka.
Hlutu báðir lögreglumennirnir
högg og spörk, og annar þeirra
hlaut slæman skurð á höfuðið og
þungt högg aftan við eyra.
Lögreglumönnunum barst liðs-
auki, og lauk þessum átökum á
þann veg að fjórir menn voru fluttir
í fangageymslu lögreglunnar.
— hkj.