Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983 Knattspyrnufélaqið Víkingur 75 ára: Síðustu ár mestu uppgangs- tímar í sögu félagsins KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Víkingur veröur 75 ára 21. apríl nk„ sumar- daginn fyrsta. Margt hefur drifið á daga félagsins síðan það var stofn- aö í geymsiuplássi í kjallara viö Túngögu þennan dag árið 1908. Skipst hafa á skin og skúrir og oft var það aöeins eldmóður fárra manna, sem hélt lífi í félaginu. Síöustu árin hafa verið mestu uppgangstímar í sögu félagsins og nú heldur Víkingur í fyrsta skipti upp á stórafmæli, sem íþróttafélag í fremstu röð hér á landi. Um 2.000 manns iðka íþróttir innan vóbanda Víkings en Víkingar eru aö sjálfsögðu mun fleiri. Gífurleg vinna liggur aö baki því æskulýðs- og íþróttastarfi, sem unnið er innan Víkings og má nefna sem dæmi að kostnaður við rekstur félagsins og deilda þess í fyrra var um 6 mílljónir króna. Afmælisins veröur minnst á margvíslegan hátt en hæst ber eflaust að um þessar mundir kemur út saga félagsins, sem ber heitiö Áfram Víkingur og er skráð af Ágústi Inga Jónssyni blaöamanni. Sérstök athygli skal vakin á því að afmæliskaffi verður í Tónabæ á afmælisdag- inn kl. 15—18 og eru allir Víkingar og velunnarar félagsins hjartanlega velkomnir. Dagskrá á afmælisdaginn Dagskrá afmælisdagsins 21. apríl veröur sem hér segir: Kl. 10. Guösþjónusta í Bústaöa- kirkju, prestur sr. Ólafur Skúlason, organisti Guöni Guömundsson. Kl. 10.45. Skrúöganga frá Bú- staöakirkju aö nýju félagssvæöi Víkings í Fossvogi. Þar veröa fyrir- hugaöar framkvæmdir kynntar. Kl. 15. Afmælishátíð í Tónabæ. Kaffiveitingar, ræöur, heiöurs- merkjaveitingar og önnur dag- skráratriöi. Kl. 15. Skemmtun fyrir yngstu Víkingana í Bústööum. Ungir Vík- ingar og vinir þeirra velkomnir. Kl. 21. Víkingsdansleikur íTóna- bæ fyrir unglinga í félaginu og gesti þeirra. Laugardaginn 30. apríl veröur afmælisárshátíö í Lækjarhvammi, Hótel Sögu. Miöar eru seldir í Sportval, Hlemmi og Austurborg viö Stórholt. Einstakar deildir í félaginu munu standa fyrir afmælismótum og leikjum síöar á árinu, t.d. fær knattspyrnudeildin Stuttgart í heimsókn í júní. Til stóö að starfrækja „Útvarp Víkingur“ á afmælisdaginn en yfir- völd synjuðu um leyfi til þess. Stofnun Víkings Knattspyrnufélagiö Víkingur var stofnaö 21. apríl 1908 af þeim Axel Andréssyni, Emil Thoroddsen, Davíö Jóhannessyni, Páli Andrés- syni og Þóröi Albertssyni. Stofn- fundurinn var haldinn í geymslu- plássi í kjallaranum á Túngötu 12 og mættu alls 32 drengir á fund- inn, flestir á aldrinum 8—12 ára. Axel Andrésson var aðal hvata- maöurinn aö stofnun félagsins og fyrsti formaöur þess. Eins og nafniö bendir til, var knattspyrnan sú íþróttagrein, sem Víkingar iðkuöu og var svo fyrstu áratugina eöa fram undir 1940, en þá var fariö aö stunda handknatt- leik og skíöaíþróttina innan félags- ins. Fyrstu 10 árin tók Víkingur ekki þátt í islandsmótinu í knatt- spyrnu en lék ýmsa vináttuleiki og leiki í opinberum mótum. Fyrsti leikurinn í opinberu móti var gegn KR í júní 1914 og vann Víkingur 2:1. Þetta var í móti Ungmennafé- lags islands. Áriö 1918 tók Víking- ur í fyrsta skipti þátt í islandsmóti og þurfti að fá undanþágu fyrir 5 leikmenn, sem ekki höföu náö til- skildum aldri. Uröu Víkingar í 2. sæti af 4 félögum. Liðið vann Val og KR en tapaöi fyrir Fram og var þaö fyrsti tapleikur félagsins. Áriö 1920 varö Víkingur ís- landsmeistari í fyrsta skipti. Félag- iö hlaut 4 stig, KR 2 stig og Fram ekkert. Víkingur vann KR 5:2 og Fram 4:3 svo þetta hafa verið líf- legir markaleikir. Aftur varö Vík- ingur íslandsmeistari 1924 en þá kepptu fjögur lið um titilinn, Vík- ingur hlaut 6 stig, Fram 4 og KR og Valur eitt stig hvort félag. Gengi félagsins var allgott í is- landsmótinu fram til ársins 1928 en upp frá því fór aö halla undan fæti og má nefna sem dæmi, aö liðiö lék 5 íslandsmót í röö án þess aö fá stig. Áriö 1937 sendi Víking- ur ekki liö til keppni í islandsmót- inu en upp úr því rofaði til um tima, félagiö varö í 2. sæti á islandsmót- inu 1938 og varö Reykjavíkur- meistari 1940. Næstu þrjá áratugi gekk á ýmsu og segja má aö frá 1940 fram til 1970 hafi félagiö ekki unnið umtalsverða sigra á knatt- spyrnusviöinu. Þáttaskil er félagið flytur Þáttaskil veröa er félagiö flytur starfsemi sína í Bústöa- og Smá- íbúöahverfi áriö 1953. Árin á und- an var talsverð deyfð félags- og íþróttalega hjá Víkingi og menn sáu aö viö svo búið mátti ekki standa. Félagið haföi fram til þessa verið miðbæjarfélag, en flutti nú í barnflesta hverfi borgar- innar, sem var óöum aö byggjast. Sótt var um leyfi fyrir félagssvæöi 1952 og fékk Víkingur úthlutaö nú- verandi svæöi viö Hæöargarö í febrúar 1953. Axel Andrésson tók fyrstu skóflustunguna aö nýju fé- lagsheimili 3. september 1953. Meö tilkomu félagsheimilis og íþróttavalla í þessu barnmarga hverfi kom nýtt blóö í félagiö. Fljótlega eignaöist Víkingur sterka yngri flokka, sem unnu mörg Is- landsmót og smám saman styrkt- ist meistaraflokkur félagsins. Áriö 1969 vannst fyrsti bikarinn í háa herrans tíö í meistaraflokki, er Vík- ingur vann 2. deildina, og áriö 1971 vann félagiö Bikarkepþni KSÍ. Fast sæti í 1. deild náöist 1974 og Reykjavíkurmótiö vannst sama ár. Sumariö 1981 rættist hinn langþráöi draumur, Víkingur varö Islandsmeistari í knattspyrnu á ný, eftir 57 ára hlé. I fyrra varöi félagiö Islandsmeistaratitilinn. Handknattleikur Byrjaö var aö iöka handknatt- leik í Víkingi 1938 og var mikill kraftur í starfinu til aö byrja meö. Til dæmis sá Víkingur um fyrsta islandsmótiö 1939, í samvinnu viö Val. Áriö 1946 vannst fyrsti (s- landsmeistaratitillinn og var þaö í 2. flokki. Víkingur varö íslands- meistari í mfl. i fyrsta skipti 1975 og síðan hefur félagiö veriö í fremstu röö. Þaö hefur orðiö ís- landsmeistari fjögur ár í röö. Bik- armeistari varö Víkingur 1978 og Tatið frá vinstri Þórir Gunnarsson formaöur árshátíðarnefndar, Freyr Bjartmars á sæti í afmælisnefnd. Sveinn Grétar Jónsson formaður Víkings, Þorlákur Þórðarson fyrrum formaður Víkings á sæti í afmælis- nefnd, Anton Örn Kjærnested fyrrum formaður Víkings og á sæti í afmælisnefnd, Sigtryggur Sigtryggsson formaöur fulltrúaráðs Víkings og Ágúst Ingi Jónsson en hann hefur ritað sögu félagsins í tilefni afmælisins. Ljósm.: Kristján Einsrsson. 1979 og Reykjavíkurmeistari fjög- ur síöustu árin. Skíðaiökun Skíöaiökun hófst hjá félaginu um 1940. Skíöaskáli var reistur í Sleggjubeinsskaröi á tiltölulega stuttum tíma og var hann afhentur félaginu sem skuldlaus eign 1944. Skíöaskálinn var vinsæll af Víklng- um og mikið notaöur allt þar til hann brann til kaldra kola á pásk- um 1964. Um 50 manns voru í skálanum og var mesta mildi, aö ekki uröu slys á fóiki. Þegar í staö var hafist handa viö aö reisa nýjan skála og var hann tekinn í notkun áriö 1972. Nú er blómlegt starf hjá skíðadeildinni, skálinn mikiö notaöur og búiö er aö koma fyrir þremur skíöalyftum á svæöinu. Fjórar nýjar deildir stofnaðar Áriö 1973 voru fjórar nýjar deildir stofnaöar í félaginu, borö- tennis-, badminton-, blak- og kvennadeild og eiga þær 10 ára afmæli um þessar mundir. Mikill fjöldi hefur iökaö íþróttir í þremur fyrstnefndu deildunum og árangur veriö góöur. Meistara- flokkur karla í blaki varö sigurveg- ari í fyrsta Reykjavíkurmótinu 1973 og Víkingsstúlkurnar hafa oröið ls- landsmeistarar í blaki fjórum sinn- um, árin 1975, ’76, ’80 og ’81. I borðtennis eignaöist Víkingur Is- landsmeistara í einliöaleik og tví- liöaleik karla 1982 og yngri flokkar félagsins eru þeir sterkustu í íþróttinni um þessar mundir. Blómlegt starf hefur veriö í kvennadeildinni og hún hefur styrkt félagiö á margvíslegan hátt. Sömuleiöis hefur Fulltrúaráð Vík- ings stutt félagið á margvíslegan hátt í þau tæpu 30 ár, sem þaö hefur starfaö. I Fulltrúaráölnu eru fyrrverandi leikmenn, stjórnar- menn og aðrir Víkingar, sem vilja halda hópinn og styrkja félag sitt. Bridgestarf hefur veriö í félaginu um langa hríö og eru bridgekvöld- in vel sótt. Sömuleiðis hefur hópur Víkinga fariö í gönguferöir saman nú um nokkurra ára skeiö og hefur hópurinn nefnt sig Göngu-Víkinga. Framtíðarsvæði í Fossvogi Meö stórauknu starfi félagsins er oröiö þröngt á núverandi svæöi viö Hæöargarö. Því var athugað hjá Reykjavíkurborg, hvort fyrir lægi hentugt svæöi. Niöurstaöan varö sú, aö Víkingum var úthlutaö svæöi í Fossvogi áriö 1976, sem veröa á framtíöarsvæði þess. Búiö er aö ræsa þaö fram og í sumar er ætlunin aö giröa svæöiö og sá í þaö. Áformaö er aö byggja á svæöinu grasvöll meö áhorfenda- stæöum fyrir 3.000 manns, stóran æfingaflöt meö grasi, tennisvöll, handknattleiksvöll og síöast en ekki síst íþróttahús meö löglegum keppnisvöllum, áhorfendastæöum fyrir 1.000 manns og aöstööu fyrir félagsstarfsemi. Saga Víkings I tilefni 75 ára afmælisins var ráöist í þaö stórvirki aö gefa út sögu félagsins. Var Ágúst Ingi Jónsson blaðamaöur ráöinn til þess aö rita söguna en Anton Örn Kærnested sá um útgáfuna fyrir hönd félagsins. Þetta er mikil bók aö vöxtum, um 240 blaösíöur aö stærö og prýdd um 200 myndum. Þeir sem vilja eignast bókina geta fengiö hana keypta í afgreiöslu BAB, hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18. Stjórn félagsins Núverandi stjórn Víkings skipa: Sveinn Grétar Jónsson, formaöur, Siguröur Bjarnason, varaformaö- ur, Guðmundur Rúnar Óskarsson, gjaldkeri, Þórhildur Gunnarsdóttir, ritari, og meöstjórnendur eru Sig- fús Örn Sigurhjartarson, Guö- mundur Tómas Gíslason, Þórir Gunnarsson og Bjarni P. Magn- ússon. Formenn deilda eru þessir: Knattspyrnudeild: Eiríkur Þor- kelsson. Handknattleiksdeild: Þóröur Þórðarson. Skíöadeild: Kristbjörg Þóröardóttir. Borðtenn- isdeild: Gunnar Jónasson. Bad- mintondeild: Magnús Jónsson. Blakdeild: Sunneva Jónsdóttir. Kvennadeild: Halldóra Þ. Ólafs- dóttir. Fulltrúaráö: Sigtryggur Sig- tryggsson. Formenn Víkings hafa veriö þessir frá upphafi: Axel Andrés- son, Óskar Norömann, Helgi Eiríksson, Magnús Brynjólfsson, Halldór Sigurbjörnsson, Tómas Pétursson, Guöjón Einarsson, Gunnar Hannesson, Þorbjörn Þóröarson, Ólafur Jónsson (Flosa), Gísli Sigurbjörnsson, Brandur Brynjólfsson, Þorlákur Þóröarson, Ingvar N. Pálsson, Haukur Eyj- ólfsson, Gunnar Már Pétursson, Pétur Bjarnarson, Jón Aöalsteinn Jónasson, Anton Örn Kærnested og Sveinn G. Jónsson. Nulifandi heiöursfélagar eru tveir, Guöjón Einarsson og Ólafur Jónsson (Flosa). Torres þjálfar Flamengo CARLOS Alberto Torres, fyrrum fyrirliði brasilíska landsliðsins í knattspyrnu, hefur veriö ráðinn þjálfari Zico og félaga hjá Flam- engo. Forseti félagsins tilkynnti þetta í gær og sagði þá einnig aö liöiö myndi reyna aö fá Pele til starfa hjá félaginu — sem framkvæmda- stjóra varöandi feröalög liösins. Alberto kemur frá New York á laugardag og stjórnar liöinu í fyrsta sinn á sunnudag gegn Cor- inthians. Hann tekur viö af náunga aö nafni Carlinhos, sem var aöeins meö liöið í fimm leikjum. Einn sigur varö uppskeran úr þeim og því var hann látinn fara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.