Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983 að fjölskyldu hans og hvernig hann leiðbeindi og starfaði með sonum sínum. Það kemur líka heim og saman við þann metnað, sem Jóhannes lagði í að búa vel að fjölskyldu sinni. Mun ekki ofmælL að hann hafi þar lagt nótt við dag en.da var starfsþrek hans með ein dæmum mikið. Hér var nefnt, að Jóhanneí Sæmundsson hefði fundið Menntaskólanum umhverfi sem honum líkaði. Sjálfur átti hann ríkan þátt í að móta þetta um- hverfi. Hann var hærri vexti en flestir samferðamenn hans, en einkum setti frjálslegt og hressi- legt viðmót svip á framkomu hans. Honum var líka létt um frásögn og brá oft upp skemmtilegum mynd- um af samferðamönnum sínum hérlendum sem erlendum. Oft er sagt, að maður komi í manns stað. Mér finnst þó á þessari stundu sem jafningi Jóhannesar Sæ- mundssonar verði torfundinn. Að lokum votta ég Margréti og sonunum þremur, foreldrum Jó- hannesar og öðrum aðstandendum innilega samúð. Heimir Þorleifsson hópi okkar kennaranna, afar áhugasamur og óþreytandi í að reyna að hrinda góðum hugmynd- um í framkvæmd. Skóli vor hefur misst einn traustasta starfsmann sinn á besta aldri, og við kennararnir höfum misst góðan og tryggan fé- laga og vin. Það verður nú dauf- legra á kennarastofunni en meðan Jóhannesar naut við. En minning- in um mikinn áhugamann og góð- an dreng mun ekki dofna. Erfitt er að skilja, hvers vegna glæsilegur maður á besta aldri er með næsta skyndilegum hætti kallaður frá konu, ungum sonum og foreldrum sínum. í slíkri raun verða víst flest orð harla fánýt. En nokkur huggun mun það þó vera harmi gegn, að öllum, sem þekktu Jóhannes Sæmundsson, kemur saman um, að hann hafi á stuttri ævi unniö heilladrjúg störf og komið mörgu góðu til leiðar. Hann á sér því söguna stutta, en góða. Við kennarar Menntaskólans í Reykjavík vottum aðstandendum Jóhannesar Sæmundssonar samúð okkar. Megi góður guð styrkja þau, nú og á ókomnum árum. Ólafur Oddsson handknattleik, körfpknattleik og frjálsum íþróttum, og þjálfaði m.a. landslið um tíma. Hann ritaði fjölmargar greinar og reyndar kennslubækur um íþróttamál, átti sæti í nefndum á vegum mennta- málaráðuneytisins og íþrótta- hreyfingarinnar sem fjölluðu um ýmsa þætti íþróttamála, vann að málefnum íþróttakennara og var nú nokkur síðustu árin fræðslu- fulltrúi íþróttasambands íslands. Margt fleira mætti hér upp telja af þeim verkefnum sem Jóhannes vann að, en mest er þó um vert með hvaöa hætti hann vann að þeim öllum. Hann var ekki aðeins áhuga- samur kunnáttumaður á sínu sviði, heldur einnig úrræðagóður skipuleggjandi og óþreytandi í því að hvetja þá, sem með honum unnu, til dáða. Auk þessara hæfi- leika, sem hann var í svo ríkum mæli gæddur, var hann einnig traustur félagi og drengur góður, sem ávallt mátti treysta. Það var við störf að fræðslumál- um íþrótta- og æskulýðshreyf- ingarinnar sem ég fyrst kynntist Jóhannesi og urðu þau kynni mér og mínu starfi ákaflega heilla- drjúg. Oft virtist okkur sem fræðslu- og þjálfunarmál væru kappsfullu íþróttafólki og forystumönnum fé- laga og samtaka ekkert sérstak- lega hugleikin, en ævinlega tókst Jóhannesi að stappa i okkur stál- inu og er nú svo komið, að flestir viðurkenna mikilvægi þessara mála. Ekki fór það fram hjá mér þegar ég vann með Jóhannesi, að hann átti stoð í sínu lífi sem aldrei brást. Eiginkona hans, Margrét G. Thorlacius, hafði mikinn áhuga á þeim viðfangsefnum sem hann vann að, og ánægjulegt var að koma á fallegt heimili þeirra og sjá og finna hve mikil hlýja og samheldni réðu þar ríkjum. Um leið og ég kveð góðan dreng, þá sendi ég Margréti, sonunum þremur og öllum ætttingjum inni- legar samúðarkveðjur. Reynir G. Karlsson, íþróttafulltrúi. Þær stundir koma í lífi flestra manna að þeir finna til smæðar sinnar gagnvart almættinu. Finna að hvorki þeir né aðrir dauðlegir menn eiga svar við þeim spurning- um sem áleitnar leita á hugann og veitist erfitt að sætta sig við það sem orðið er og skilja ekki tilgang þess. Á slíkum stundum verða jafnvel orðin sem þó eru fjársjóð- ur mannlegrar hugsunar og mannlegra tilfinninga afskaplega vanmáttug og lítils merkjandi. Aðeins það, að lúta höfði fyrir því sem kristin trú hefur innrætt og hugsa til þeirra orða sem meistar- inn sjálfur sagði fyrir löngu og lif- að hafa síðan á vörum kynslóð- anna og í hjörtum þeirra, virðist hafa einhverja merkingu. Hversu oft hefur mannlífinu ekki verið líkt við vegferð þar sem menn mætast og eiga samleið í lengri eða skemmri tíma. Allar vegferðir eiga sér leiðarlok og hliðið við leiðarlok allra liggur að þeim stað sem sá er æðri er öllum hefur búið okkur. Því hefur verið heitið að því hliði skuli upp lokið fyrir öll- um og að í eilífðinni sjálfri sé sérhverjum manni búinn staður við fótskör meistarans. Þegar maður kveður vini sina í síðasta sinn er komið að krossgöt- um á leiðinni miklu. Sá sem kvaddur er heldur inn fyrir hliðið, en þeir sem eftir standa halda áfram vegferð sinni, enn um stund, en fylgja í huganum þeim sem er kvaddur. Skilnaðurinn er oft sár fyrir þá sem eftir verða, en mitt í sársaukanum lifir þó tvennt. Annars vegar minningin, hins vegar vonin og raunar vissan um að vel hafi verið tekið á móti þeim sem heldur til þeirra landa sem öllum mannlegum augum eru hulin. Það er vissulega dýrmætt og huggun harmi gegn að eiga jafn inargar og góðar minningar um hinn ágæta dreng Jóhannes Sæm- undsson þegar hann er kvaddur. Það er þakkarvert að hafa fengið að eiga með honum samleið á veg- ferðinni, þótt maður hefði sjálfur kosið að hún hefði orðið miklu — miklu lengri. Til þess stóðu líka efni þar sem Jóhannes var á besta aldri þegar hann var kvaddur. En hér eins og alltaf áður eru það mennirnir sem þenkja en Guð sem ræður. Það eru nú tæpir tveir áratugi síðan leiðir okkar Jóhannesar lágu fyrst saman. Þegar við kynntumst skein sól í heiði í þeirra orða fyllstu merkingu. Hann var þá nýkominn heim til íslands frá dvöl við nám í háskóla í Banda- ríkjunum. Hann átti merkan áfanga að baki, hafði lagt grund- völl að ævistarfi sínu og var þess albúinn að takast á við þau fjöl- mörgu verkefni sem hann vonaði að hann fengi að fást við. Verkefn- in létu heldur ekki á sér standa. Af einlægni og trúmennsku gekk hann til allra þeirra starfa sem hann fékkst við og þótt hann sé nú brott kvaddur á miðjum starfs- degi tókst honum þó að marka sín spor og miðla þekkingu til fjöl- margra sem vafalaust eiga eftir að búa að henni um langa framtíð. Jóhannes Sæmundsson var fæddur 25. júlí 1940, sonur hjón- anna Sigurveigar Guðmundsdótt- ur og Sæmundar Jóhannessonar í Hafnarfirði. Ungur fékk Jóhannes mikinn áhuga á íþróttum og valdi hann sér lífsstarf í samræmi við það. Á unglingsárunum var hann i hópi efnilegustu frjálsíþrótta- manna landsins og hefði vafalaust náð langt sem frjálsíþróttamaður, ef meiðsli hefðu ekki bundið enda á íþróttaferil hans. Hugur hans stefndi til menntunar á sviði íþrótta og fór hann til Bandaríkj- anna þar sem hann stundaði nám við Háskólann í San José í Kali- forníu, en sá skóli er þekktur fyrir góða íþróttafræðslu og góða íþróttamenn. Vafalaust hefur það verið mikið átak fyrir ungan mann að taka sig upp og fara yfir hálfan hnöttinn til dvalar á fram- andi slóðum, en það segir sína sögu um kjark og ákveðni Jóhann- esar að hann setti það ekki fyrir sig. Hann hafði sett sér takmark og því skyldi hann ná. Námi sínu við San José-skólann lauk Jóhann- es árið 1965 og fluttist þá heim til íslands. Var það nokkrum dögum eftir heimkomuna að ég sem þess- ar línur rita kynntist honum fyrst og enn er í minni sá eldlegi áhugi sem i huga hans brann, vilji til þess að takast á við þau verkefni sem hann fann að biðu hans. Það var svo margt sem var ógert á íþróttasviðinu og hann fann að hann gat lagt hönd á plóg til framþróunar. Fyrstu tvö árin eftir að Jóhann- es lauk námi stundaði hann kennslu við Flensborgarskólann í Hafnarfirði, jafnframt því sem hann sá um þjálfun íþróttafólks. Árið 1968 var hann ráðinn íþrótta- kennari við Menntaskólann í Reykjavík og þar var aðalstarfs- vettvangur hans til æviloka. Jafn- framt íþróttakennarastarfinu tók Jóhannes virkan þátt í hinu al- menna íþróttastarfi, bæði sem leiðbeinandi og þjálfari. Hann var m.a. frjálsíþróttaþjálfari hjá KR og handknattleiksþjálfari hjá Haukum, FH og Armanni. Hin síðari ár veitti hann aðstoð við þjálfun bæði handknattleiks- landsliðsins og körfuknattleiks- landsliðsins. Auk þessa var Jó- hannes einnig fræðslufulltrúi Iþróttasambands íslands nokkur undanfarin ár og vann þar mikið starf sem í mörgu verður að telj- ast brautryðjendastarf. Eru þeir ótaldir sem nutu bæði kennslu hans og leiðbeininga, ekki aðeins hérlendis heldur einnig erlendis, þar sem hann var leiðbeinandi á námskeiðum. Að öllum störfum sínum gekk Jóhannes af einlægum áhuga. Hann hafði gífurlegan metnað ekki aðeins fyrir sína hönd, heldur ekki síður fyrir hönd þeirra sem hann þjálfaði eða kenndi. Fáa menn hef ég heyrt tala af jafn- mikilli hlýju og virðingu um vinnustað sinn og Jóhannes talaði um Menntaskólann í Reykjaví, bæði sem stofnun og um samkenn- ara sina þar og nemendur. Hann fylgdist með nemendum sínum löngu eftir að þeir yfirgáfu skól- ann og gleði hans yfir velgengni þeirra var sönn og einlæg. Hið sama gilti um íþróttamennina sem hann þjálfaði. Hann lagði sig all- an fram og sparaði hvorki tíma né fyrirhöfn til þess að besti mögu- legi árangur næðist. Oft er starf kennarans og þjálfarans van- þakklátt og ekki metið að verð- leikum en mikið má vera ef Jó- hannes hefur ekki notið virðingar og vináttu allra þeirra er iðkuðu íþróttir undir hans stórn og nutu leiðsagnar hans. Það er kunnara en frá þurfi að segja að á undanförnum tveimur áratugum hefur orðið gífurleg hugarfarsbreyting á fslandi í garð íþrótta. Á þessum tíma hafa íþróttir risið úr hálfgerðri öskustó og orðið almenningseign — skiln- ingur á gildi þeirra, ekki aðeins fyrir afreksíþróttamenn heldur einnig þá er vilja viðhalda hreysti sinni og heilbrigði hefur vaknað. Á því eru engin tvímæli að Jó- hannes átt sinn þátt í að skapa þessa hugarfarsbreytingu með óþreytandi starfi sínu. Hann barð- ist fyrir málstaðnum bæði í ræðu og riti. Skrifaði hann t.d. fjölda blaðagreina, þar sem hann vakti athygli á gildi íþrótta og hlutverki þeirra í menningarsamfélagi. Það sem hann skildi eftir sig á þeim vettvangi mun geymast og verða metið að verðleikum í framtíðinni. Það var vissulega gaman að ræða við Jóhannes bæði um íþróttir sem annað. Ekki var kom- ið að tómum kofum, enda lagði hann sig allan fram um að fylgj- ast vel með á sínu sviði og afla sér símenntunar. Hann hafði einarðar skoðanir á því sem gera þurfti og reyndi jafnan að fylgja þeim eftir. Með fræðslufulltrúastarfinu hjá ÍSÍ gafst honum gott tækifæri til þess að koma hugðarefni sínu um aukið fræðslustarf íþróttahreyf- ingarinnar sjálfarar á framfæri og sparaði hvorki tíma né fyrir- höfn til þess að ná til sem flestra og skila árangri. Var dagur oft að kveldi kominn þegar haldið var heim á leið frá starfinu. Einlægni Jóhannesar var hin sama í einkalífi hans og starfi. Hann hafði mikinn metnað fyrir hönd fjölskyldu sinnar og bar hag hennar mjög fyrir brjósti. Eigin- konu sinni, Margréti G. Thorlaci- us, kvæntist Jóhannes árið 1967 og eignuðust þau þrjá syni, Guðna, Sæmund Patrek og Jóhannes Ólaf. Heimilið var helgidómur í augum Jóhannesar og sonum sínum var hann ekki aðeins góður faðir sem vakti yfir velferð þeirra, heldur einnig félagi sem tók af miklum áhuga þátt í áhugamálum þeirra við nám og leik. Ást, umhyggja og virðing voru þeir þrír þættir sem hann hafði jafnan í fyrirrúmi í umgengni við sína nánustu. Við fráfall Jóhannesar er harm- ur kveðinn að mörgum. Vinir hans sjá á eftir góðum og tryggum manni og vinnustaðir hans eftir samviskusömum og einlægum starfsmanni sem jafnan vildi hag þeirra sem mestan. Sárastur harmur er þó kveðinn að fjöl- skyldu hans, Margréti og drengj- unum þremur í Blikanesi 8, að for- eldrum hans sem jafnan voru stolt af elsta syni sínum og glöddust yfir velgengni hans í starfi og einkalífi. í hugum þeirra og okkar allra sem kveðjum hann sem sannan vin, verður það þó vonandi léttir að eiga jafn fölskvalausa minningu um góðan dreng og við eigum. Sú minning mun lifa og fylgja okkur — verða ein af þeim perlum sem við viljum geyma og varðveita í hugum okkar allar stundir. Steinar J. Lúövíksson Eigi má sköpum renna. Þetta vita flestir og viðurkenna, en oft hefðum við þó óskað, að við réðum einhverju, fengjum að draga úr grimmd og óréttlæti heimsins. Hvaða réttlæti er fólgið í þvi, að maður, sem lifir jafn heilbrigðu lífi og Jóhannes Sæmundsson, skuli deyja í blóma lífsins? Sjálf- sagt verður flestum svarafátt, en í Það er ætlun mín að minnast hér fáeinum orðum Jóhannesar Sæmundssonar, íþróttakennara, og greina lítillega frá kynnum mínum af honum. Haustið 1970 hóf ég kennslu í Menntaskólanum í Reykjavík, og þá kynntist ég fljótlega Jóhannesi Sæmundssyni. Allir, sem unnu með Jóhannesi, hlutu að veita honum athygli. Hann var mikill maður vexti og sterklegur, ákveðinn í framkomu, en þó vingjarnlegur, glaðsinna og einkar viðfelldinn. Tvennt vakti þá þegar athygli mína í fari Jóhannesar. Hið fyrra var, að hann hafði jafnan brenn- andi áhuga á grein sinni. Las hann mikið um þau efni og fylgdist afar vel með öílum nýjungum á þessu sviði. Nemendur Jóhannesar hafa sagt mér, hve minnisstætt þeim hafi orðið, er hann byrjaði á ha- ustin með nýjar þjálfunaráætlan- ir. Jóhannes útlistaði rækilega fyrir þeim áhrif góðrar þjálfunar á líkamshreysti og heilsufar. Fór ekki á milli mála, að þar var mikill áhugamaður á ferð, sem um leið var afar fróður í sinni grein. Mér er um það kunnugt, að kennsla Jó- hannesar og hvatning í þessum efnum hafði mjög mikil áhrif til góðs á marga nemendur. Hið síðara, sem mér fannst þá einnig athyglisvert í fari Jóhann- esar, var, að hann lét sér mjög annt um nemendur, ekki einungis í kennslu, heldur einnig í félags- lífi. Hann tók á sig mikil störf á því sviði og hafði af þeim ástæðum nánari kynni af nemendum en flestir aðrir kennarar. Á þessum vettvangi kynntist ég brátt Jó- hannesi allvel, enda fórum við saman margar hópferðir með nemendur, og margar næturnar gistum við í Seli Menntaskólans í Reykjavík. Við slíkar aðstæður kynnast menn vel. Eftir á að hyggja held ég, að Jóhannes Sæm- undsson hafi verið með heilsteypt- ustu, en um leið skemmtilegustu mönnum, sem ég hef kynnst. Hann var heldur eldri en ég og hafði þá mikla reynslu í því að umgangast hóp ungmenna. Kenndi hann mér þar margt nyt- samlegt, sem hefur oft komið að góðu gagni síðar. Margt skemmti- legt og harla spaugilegt gerðist reyndar í þessum ferðum. Rifjuð- um við það stundum upp síðar og höfðum ánægju af. Ekki fer á milli mála, að Jó- hannes Sæmundsson setti mikinn svip á kennarastofuna og skólalíf- ið í Menntaskólanum í Reykjavík. Á kennarastofunni var hann yfir- leitt hress í bragði, fyndinn og skemmtilegur, en gat einnig verið alvarlegur og einkar háttvís, ef það átti við. En áhugi Jóhannesar á margvíslegum framfaramálum var ódrepandi. Sl. haust, skömmu áður en hann varð skyndilega að hætta störfum vegna alvarlegra veikinda, ræddi hann ýtarlega við mig um hugmyndir sínar um teng- ingu greina og margvíslega sam- vinnu kennara, til að ná meiri árangri. Þannig var Jóhannes í í dag kveð ég góðan nágranna, vin og kennara með sárum sökn- uði. Allt frá því að ég fyrst man eftir mér, hefur Jói verið mér vinur og leiðbeinandi í senn. Þegar ég, sem smápolli, hafði gert eitthvert skammarstrik, tók hann öðruvísi á hlutunum en aðrir. Hann skamm- aði mig ekki eins og allir hinir, heldur talaði við mig og útskýrði fyrir mér hvers vegna það væri rangt að gera á hlut annarra. Slík þolinmæði var einkennandi fyrir Jóa, og nú þegar ég lít til baka, finn ég hve mikið ég á honum að þakka fyrir alla þá þolinmæði, sem hann sýndi mér. Seinna, þegar ég hóf nám í Menntaskólanum í Reykjavík, varð Jói leikfimikennari minn, en hann kenndi leikfimi við MR síð- ustu fimmtán ár ævi sinnar við erfiðar aðstæður. Aldrei kvartaði hann þó undan því hve aðstaða til kennslu væri léleg, heldur reyndi að gera það besta úr því sem fyrir hendi var. Jói var strangur kenn- ari, en hann var réttsýnn. Ef menn sýndu viðleitni kom hann ávallt til móts við þá. Ég kveð nú Jóa með söknuði, og þakka þær stundir sem ég fékk að njóta samvista við hann, en þær urðu því miður alltof fáar. Fjöl- skyldu hans votta ég mína innileg- ustu samúð á þessari þungbæru stundu. Óli f dag verður jarðsettur frá Landakotskirkju Jóhannes Sæ- mundsson, íþróttakennari við Menntaskólann í Reykjavík. Það var aðstandendum hans og öllum sem til hans þekktu mikil harmafregn þegar það kom í ljós sl. haust, að hann gekk ekki heill til skógar, og nú er hann horfinn á braut. Við lifðum lengi í þeirri von að þessi dugmikli og hugrakki vinur okkar myndi yfirvinna sjúkleika sinn, en nú er hann hrifinn frá okkur í blóma lífs, langt fyrir ald- ur fram. Jóhannes Sæmundsson fæddist 25. júlí 1940 og hefði því orðið 43ja ára á þessu ári. Hann lauk íþróttakennaraprófi frá íþrótta- háskóla í San Jose í Bandaríkjun- um 1965 og hóf kennsluferil sinn við Flensborgarskóla í Hafnar- firði. Árið 1968 tók hann við stöðu íþróttakennara við Menntaskól- ann í Reykjavík og starfaði við þann skóla þar til hann féll frá. Jóhannes var góður kennari, áhugasamur, dugmikill og fróður. Það voru ekki einungis nemend- ur hans í skólanum sem nutu kennslu hans og handleiðslu, því áhugi hans á íþróttamálum og hæfileikar til þess að koma þeim málum á framfæri hafa orðið íþróttum hér á landi mikill stuðn- ingur. Jóhannes var þjálfari í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.