Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRfL 1983 3 Ávextir efnahagsstjórnunar: Rúmlega 35%eftirafnýkrónunni NÝKRÓNAN, sem hóf feril sinn sem „jafningi Norðurlanda- mynta“ í ársbyrjun 1981, er nú komin vel á þriðja árið — og lætur heldur betur á sjá! Þrátt fyrir „aðhald í gengismálum“, sem tíundaö var í stjórnarsátt- mála 1980, hefur verðgildi ný- krónunnar rýrnaö um 64,3% frá 1. janúar 1981 til 18. mars 1983. Þá stóðu aðeins eftir 35,7% af upphaflegu verðgildi hennar, miðað við meðalgengi skráðrar erlendrar myntar. Dönsk króna, sem var svo gott sem jöfn nýkrónunni I upphafi vegferðar, kostaði 8. apríl sl. kr. 2,47 (kr. 2,72 i ferðamannagjaldeyri), norsk króna kr. 2,97 (kr. 3,28 í ferða- gjaldeyri) og sænsk króna kr. 2,84 (kr. 3,14 í ferðagjaldeyri). Ferill nýkrónunnar, sem á sinn hátt er góður mælikvarði á stjórnsýslu efnahagsmála, talar skýru máli til þjóðarinn- ar. Spurningin er, hvort nægi- lega margir hlusta og dragi af réttar ályktanir. Mikil ófærð víða um vestan- norðan- og austanvert landið ÁGÆT FÆRÐ er nú á Suðurlandi og allt austur á Fáskrúðsfjörð, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Vegaeftirlitinu í gær. Um helgina var snjókoma um vestan- norðan- og austanvert landið og mikil ófærð víða á svæðinu. FERILL NÝKRÓNUNNAR 1. janúar 1981 18. marz 1983 Rýrnun verðgildis nýkrónufrá 1.1.1981 til 18.3.1983 miðað við meðalgengi skráðar erlendrar myntar. Frá Fáskrúðsfirði er jeppum og stórum bílum fært til Reyð- arfjarðar, en þaðan er fært upp á Hérað og einnig er fært frá Reyðarfirði til Eskifjarðar, en ófært um Oddsskarð og Fjarð- arheiði. Þokkaleg færð er á veg- um í nágrenni Egilsstaða, en ófært fjær, eins og t.d. í Hjalta- staðaþinghá og yfir Vatnsskarð. Af Vesturlandi er það að segja að fært er um Borgar- fjarðarhérað, en verið er að moka á sunnanverðu Snæfells- nesi, en báðir fjallvegirnir þar, Kerlingarskarð og Fróðárheiði, eru ófærir. Jeppar og stórir bíl- ar komast um Heydal og í Búðardal og einnig er þeim fært um norðarvert Snæfellsnes til Hellissands. Þá var í gær mok- að frá Búðardal og vestur að Svínadal, en Svínadalurinn var ekki mokaður og hann því ófær og þar fyrir vestan, að öðru leyti en því að jeppum er fært innansveitar í Reykhólasveit. Frá Patreksfirði var í gær mokað norður til Bíldudals og einnig að flugvellinum, en Kleifaheiðin er ófær. í gær var og mokað á milli Flateyrar og Þingeyrar, en Breiðadalsheiði og Botnsheiði eru ófærar. Þá var mokað frá ísafirði til Bol- ungarvíkur og Súðavíkur, en innar í ísafjarðardjúpi er allt ófært. Ófært er um Holtavörðuheiði og norður Strandir til Hólma- víkur, en þar hófst mokstur í gær en varð ekki lokið. Þá var Vatnsskarð mokað í gær og því fært á milli Hvammstanga og Skagafjarðar, en það var gert vegna framboðsfunda. Þá var í gær í gangi mokstur til Siglu- fjarðar, en þar er mikill snjór og óvíst um hvenær opnast. Úr Skagafirði er fært um Öxna- dalsheiði til Akureyrar fyrir vel útbúna bíla. Þaðan var í gær mokað til Dalvíkur, en Ólafs- fjarðarmúli er ófær. Frá Ákur- eyri var mokað til Grenivíkur og einnig um Víkurskarð vestur til Húsavíkur. Frá Húsavik var í gær mokað upp í Mývatnssveit og í Aðaldal, en frestað var mokstri í gær- morgun frá Húsavík til Þórs- hafnar vegna veðurs. Frá Þórs- höfn er síðan ófært til Vopna- fjarðar. Utanríkisþjónustan: Pétur Eggerz læt- ur af störfum — Hannes Jónsson til Bonn MORGUNBLAÐINU barst í gær svohljóðandi fréttatilkynning frá utanríkisráðuneytinu: „Pétur Eggertz, sendiherra ís- lands í Bonn, mun láta af störfum fyrir aldurs sakir 1. september næstkomandi. Hannes Jónsson, sendiherra í Genf, tekur við starfi sendiherra í Bonn frá sama tíma. Hannes Hafstein, skrifstofu- stjóri utanríkisráðuneytisins, tek- ur við starfi sendiherra í Genf frá 1. ágúst næstkomandi. Ólafur Egilsson, prótókollstjóri, verður skrifstofustjóri utanríkis- ráðuneytisins frá sama tíma.“ Mezzoforte í 16. sætið í Hollandi Þótt velgengni Mezzoforte hafi hægt mjög á sér í Bretlandi að undan- förnu eftir miklar vinsældir hefur fylgi hljómsveitarinnar vaxið mjög á meginlandinu. Morgunblaðinu bárust í gær fregnir af því að litla platan með hljómsveitinni hefði tekið undir sig stórt stökk á hollenska vinsælda- listanum og lyft sér upp um 24 sæti, úr 43. í 19. Nokkuð kemur á óvart, að stóra platan, „Surprise, Surprise", gerir það enn betra en sú litla og fór upp í 16. sætið í síðustu viku eftir að hafa gist 21. sætið vikuna þar á undan. Hollenski plötumarkaðurinn er mjög stór um sig og litlu minni en í Bretlandi. Er því ekki fjarri lagi að áætla plötusölu Mezzoforte svipaða í Hollandi og í Englandi þegar öll kurl verða komin til grafar. Plöturnar hefa verið mun skemur á markaði í Hollandi en Englandi og því ekki raunhæft að gera sam- anburð á vinsældum fyrr en að fáum vikum liðnum. Ekki er óraunhæft að ætla að svo komnu máli, að Mezzoforte komist enn hærra á hollensku listunum á næstu vikum. Matseðill Svínahamborgaralæri meö sykurbrúnuðum jarðeplum, belgbaunum, maís, hrásalati og sherryrjómalagaðri sveppasósu. Triffle. Verð aðeins kr. 300.- —i' . Um 2ja tíma stanslaust stuð með: Harald G. Haralds, Guðbergi Auðunssyni, Þorsteii Eggertssyni, Astrid Jenssen, Berta Möller, Önn Viihjálms, Mjöll Hólm, Sigurdór Sigurdórssyni, Garö ari Guðmundssyni, Stefáni Jónssyni. Einari Júliussyn Sigurði Johnny og Ómari Ragnarssyni. Hver ma ekki eftir þessum kempum? Stórhljómsveit Björgvins HaHdórssonar leiku rokktónlist. Hljómsveitina skipa: Björn Thoroddsen, Hjörtur Howser, Rafn Jónssor Pétur Hjaltested, Haraldur Þorsteinsson, Rúne Georgsson og Þorleifur Gislason. SÆMI OG DIDDA ROKKA. SYRPUSTJÓRARNIR ÞORGEIR ÁSTVALDSSOf OG PÁLL ÞORSTEINSSON KYNNA. GÍSLI SVEINN DUSTAR RYKIO AF GÖMH ROKKPLÖTUNUM. Allir koma í rokkstuði og djamma eins og gert var þá gömlu og góðu daga. Borðhald hefst kl. 20.00. Pantiö miða tímanlega. Aðgangseyrir kr. 150.- Miðasala er í Broadway daglega kl. 9—5. Nú kveðjum við erfiðan vetur og fögnum sumri á ROKKHÁTÍÐ # A ¥ A öilum rokkkvöldunum hefur verlö troöfullt hús og æöisgengin rokkstemmning meöal gesta sem eru á öllum aldri. Og enn einu sinni veröur rokkhátíöin haldin í Broadway og nu ________________________ SIÐASTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.