Morgunblaðið - 19.04.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
18 þúsund keppendur:
Waitz setur
heimsmet í
maraþon
Greta Waitz frá Noregi setti um
helgina nýtt heimsmet í mara-
þonhlaupi kvenna er hún hljóp á
2:25:29 klst. í London-maraþon-
hlaupinu. Alls tóku 18 þúsund
keppendur þátt í hlaupinu og er
það algjör metþátttaka. Sigur-
vegari í karlaflokki varö Mike
Gratton, Bretlandi, hljóp á 2:09:43
klst. Gerry Helme varð annar á
2:10:12.____________
Náöi 164 km
hraða á skíðum
UM SÍÐUSTU helgi fór fram
skíðamót í Salen í Svíþjóð. Ekki
var þó keppt í svigi eöa stórsvigi.
Keppnin var í því fólgin hver g»ti
náð sem mestum hraða á skíöun-
um. Sigurvegari varð Franz Web-
er frá Austurríki. Hann náöi
164,59 km hraða. Weber, sem er
26 ára gamall, á heimsmetið í
greininni, en þaö er 202 km.
í»i'“ w*
Greta Waitz, sem er 29 ára gömul,
setti nýtt heimsmet í maraþon-
hlaupi í London um helgina.
Öruggur enskur sigur
í fimleikakeppninni
ENSKA unglingalandsliöiö í fim-
leikum bar sigur úr býtum í
landskeppni viö ísland um helg-
ina. Ensku piltarnir voru í fjórum
efstu sætunum. Sigurvegari varö
James May, hlaut 49,60 stig sam-
anlagt út úr æfingum sínum. Neil
Thomas varð annar með 48,20.
Guðjón Gíslason náöi bestum ár-
angri af íslensku piltunum, hann
varö í fimmta sæti, hlaut 41,10
stig. Sex keppendur voru frá
hvoru landi í þessari fyrstu lands-
keppni unglinga í fimleikum.
Guðjón Guðmundsson varð í 7.
sæti, Erlendur Ólafsson í 8., Arn-
ór Diego í 9. og Jóhannes Sig-
urðsson í 10. sæti.
» W ''- %
I p I
Brugge vann Lokeren
CERCLE Brugge, lið Ragnars
Margeirssonar og Sævars Jóns-
sonar, sigraði Lokeren 3—0 í
Belgíu um helgina. Sævar lók all-
an leikinn en Ragnar kom inn á í
lokakaflanum.
Annars gekk illa hjá islendinga-
liöunum. Lárus og félagar í Wat-
erschei töpuðu 0—3 á heimavelli
fyrir Seraing. Liö Péturs Péturs-
sonar og Magnúsar Bergs léku
saman í Antwerpen og sigruöu
Pétur og hans menn 2—1. Magnús
Bergs skoraöi eina mark Tonger-
en. Antwerpen sótti og sótti en
náöi ekki aö skora nema tvö mörk.
Úrslit leikjanna uröu þessi:
Waterschei — Seraing 0—3
Beveren — FC Bruges 4—0
Antwerpen — Tongeren 2—1
FC Liege — Beerschot 3—1
Lierse — Waregem 1 — 1
Kortryk — Anderlecht 1—5
Ghent— Winterslag 2—1
SK Bruges — Lokeren 3—0
RWD Molenbek — Standard 0—2
Staöan i Belgiu er nu þannig:
Anderlecht
Standard
Antwerpen
Beveren
FC Bruges
Ghent
Waterschei
Lokeren
RWD Molenbeek
18 7 4 69 30 43
18 6 5 68 31 42
18 5 6 46 27 41
14 9 6 63 30 37
14 8 7 47 39 36
13 10 6 45 36 36
13 8 8 42 39 34
12 7 10 37 30 31
9 11 9 29 28 29
Alain Prost sigraði í franska Grand Prix:
Meðalhraðinn var
199 km á klst.
FRAKKINN Aiain Prost varð sig-
urvegari í franska „Grand Prix“
sem fram fór um síöustu helgi.
Prost, sem ekur Renault-turbo-bíl
hafði forystuna svo til allan tím-
ann í keppninni, en eknir voru 54
hringir, samtals 313,74 km. Tími
Prost var 1 klst. 34 mín. 13,913
sek. Meðalhraöi hans var 199,866
km á klst.
Nelson Piquet Brasilíu varö ann-
ar meö tímann 1 klst. 34 min.
43,633 sek. Bandaríkjamaðurinn
Eddie Cheevwer varö þriöji og
Patrick Tambay Frakklandi var í
fjóröa sæti. Heimsmeistarinn Keke
Rosberg varö í fimmta sæti.
Nelson Piquet Brasilíu er nú
stigahæstur meö 15 stig eftir þrjár
Grand Prix-keppnir. Niki Lauda er
annar með 10 stig og Alain Prost
og John Watson eru jafnir í þriöja
sæti meö 9 stig.
FC Ltog« 8 10 11 29 45 26
Kortryk 8 9 12 34 44 25
SK Bruges 7 10 12 35 46 24
Lierse 8 7 14 28 44 23
Beerschot 8 7 14 38 51 23
Seraing 5 11 13 33 58 21
Waregem 6 8 15 31 45 20
Winterslag 4 9 16 30 51 17
Tongeren 4 6 19 28 58 14
Knattspyrna)
• Alain Prost frá Frakklandi sigr-
aöi um helgina í formúlu 1-kapp-
akstrinum um helgina, en keppt
var í heimalandi hans.
• Guðjón Gfslason Ármanni náöi
bestum árangri af íslensku pilt-
unum í keppninni.
Einar hjó nærri
spjótkastsmetinu
Einar Vilhjálmsson frjáls-
íþróttamaður úr UM8B hjó nærri
íslandsmetinu í spjótkasti á
frjálsíþróttamóti í Baton Rouge í
Louisiana í Bandaríkjunum um
helgina. Einar kastaði lengst
84,14 metra og voru öll hin köstin
yfir 80 metra. Islandsmetið á Ein-
ar, 85,12 metra, sett í Los Angeles
19. marz sl. Sigraði Einar meö
yfirburðum, en á mótinu kepptu
íþróttamenn frá fimm háskólum.
A móti um fyrri helgi kastaöi Ein-
ar 83,02 metra og sýnir þessi
árangur styrk hans um þessar
mundir.
Oddur Sigurösson spretthlaup-
ari úr KR tók þátt í 200 metra
hlaupi í Baton Rouge og hlaut
21,57 sekúndur. Einnig keppti
Oddur í 4x400 metra hlaupi og
sigraöi sveit hans á 3:09 mín. Tími
hans í 200 er betri en hann náöi í
fyrra á þessari vegalengd.
„Mér finnst ég vera koma til, var
óvenju slappur á mótunum um
tíma og átti í basli meö aö hlaupa
400 á 48 sekúndum. Fór í rann-
sókn og í Ijós kom aö ég var blóö-
lítill, en nú er búiö aö kippa því í
lag, eins og boöhlaupiö um fyrri
helgi gaf til kynna," sagöi Oddur í
samtali viö Mbl. í gær. Oddur fékk
45,8 sekúndur í millitíma, en í fyrra
náöi hann bezt 45,5 sekúndum.
Hægt er viö eölilegar kringum-
stæöur aö bera saman árangurs-
getu í 400 metra hlaupi meö því aö
bæta sekúndu viö boöhlaupsmilli-
tíma, svo Oddur viröist í svipuöu
formi og í fyrra. — ágás.
Persónuleg met hjá Vésteini,
Pétri og Sigurði í Alabama
• Góð tilþrif sáust hjá erlendu keppendunum.
íslenzku frjálsíþróttamennirnir,
sem stunda nám viö Alabama-
háskólann í Tuscaloosa, stóöu
sig með miklum ágætum á frjáls-
•þróttamóti í skólabæ sínum á
laugardag og fóll þar hvert per-
sónulega metið af ööru.
I kringlukasti setti Vésteinn Haf-
steinsson HSK enn eitt persónu-
legt met meö því aö kasta 60,70
metra og sigra. Þaö er í þriöja
skiptiö sem Vésteinn kastar yfir 60
metra á árinu.
I spjótkastinu kastaöi Siguröur
Einarsson Ármanni 75,38 metra,
sem er persónulegt met og hans
langbezti árangur frá því 1980, en
þá kastaöi Siguröur 74,76 metra.
Hefur hann átt viö þrálát meiðsl aö
stríöa meira og minna síðan.
I kúluvarpinu bætti Pétur Guð-
mundsson, einnig HSK, sig ennþá
einu sinni í vor og nálgast hann
óöfluga 17 metra múrinn, sem
Vésteinn rauf fyrir skömmu. Pétur
varpaöi 16,88 metra aö þessu
sinni og sagöi Þráinn Hafsteinson í
samtali viö Mbl. í gær aö Pétur
ætti mikið inni í kúiunni.
Þráinn, sem setti glæsilegt tug-
þrautarmet á dögunum, tók þátt í
kringlukastskeppninni og kastaði
52,92 metra. Er þaö ekki fjarri
hans bezta og engu aö síður góöur
árangur hjá tugþrautarmanni.
íris Grönfeldt spjótkastari úr
UMSB náöi sínum bezta árangri i
ár um helgina er hún kastaöi 48,56
metra. íris bætir viö sig á hverju
móti, og því spurning hvort Is-
landsmetið, sem er rétt rúmir 50
metrar, veröi ekki í hættu bráöum.
Loks sigraöi Þórdís Gísladóttir
IR í hástökki, stökk 1,78 metra og
hljóp 100 metra grindahlaup á
14,66 sekúndum. Þórdís ætlar aö
taka sér frí frá keppni fram í miðj-
an maí, þar sem hún hefur keppt
smávægilega meidd á tveimur síö-
ustu mótum.
Þess má aö lokum geta, aö fjórir
af íslenzku frjálsíþróttamönnunum
sex i Alabama-skólanum hafa náö
lágmarki til þátttöku í bandaríska
háskólameistaramótinu, sem fram
fer í Houston í júníbyrjun. Eru þaö
Þórdís, sem verja mun meistaratitil
frá i fyrra, Þráinn, Vésteinn og Sig-
uröur, en auk þess er íris skammt
frá lágmarkinu og til þess líkleg aö
ná því, aö sögn Þráins. — ágás.