Morgunblaðið - 19.04.1983, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
KR-ingar léku
sér að FH
- höfnuðu því í ödru sæti
KR-ingar burstuðu FH í síöasta
leik úrslitakeppninnar í hand-
bolta er fram fór á sunnudags-
kvöldið. Lokatölurnar urðu
26—19 og var sigurinn aldrei í
hættu. KR hafði oftast nær helm-
ings forystu, t.d. 4—2, 10—5,
20—10 og gefa þessar tölur það
glöggt til kynna að leikurinn var
langt frá því að vera spennandi
eöa vel leikinn, — spurningin aö-
eins hversu stór sigurinn yrði.
Þrátt fyrir stórkostlega mark-
vörslu Haralds Ragnarssonar í
marki FH, en hann varði alls 15
skot í fyrri hálfleik, náöu KR-ingar
góðri forystu og um miðjan hálf-
leikinn var staöan 6—2. Haraldur
hafði þá varið 3 vítaköst með
stuttu millibili, en það virtist ekkert
stappa stálinu í FH-liöiö sem var
algerlega broddlaust í sókninni, og
ef leikmennirnir misstu ekki bolt-
ann þá var þaö Jens Einarsson
sem varöi skot þeirra, en hann átti
einnig mjög góöan leik í marki KR.
Varði alls 20 skot. FH skoraöi aö-
eins 5 mörk í fyrri hálfleik en á móti
skoruöu KR-ingar 10 og staðan í
hálfleik því 10—5.
Þaö bar helst til tíöinda í seinni
hálfleiknum aö Haraldur varöi ekki
eitt einasta skot og um miöjan
hálfleikinn var honum skipt útaf í
staö Sverris, en staöan var þá
20—10. KR-ingar héldu áfram aö
hranna upp mörkunum, en iönast-
ur viö þaö var Stefán Halldórsson
sem skoraði alls 7 mörk, öll í seinni
hálfleik. Þegar um sjö mínútur voru
til leiksloka var enn 10 marka
munur, 25—15. Guömundur
Magnússon skoraöi þá 3 mörk í
röð fyrir FH og breytti stööunni í
25—18. Hvort liö skoraöi síðan
eitt mark fyrir lokin og úrslitin því
öruggur KR-sigur, 26—19.
KR-liöiö var reglulega jafnt í
þessum leik, breiddin í sþilinu
ágæt og markvarsla Jens stórgóö.
Fyrirstaðan var hins vegar ekki
mikil og því kannski ekki rétt aö
dæma þá eftir þessum leik.
FH-ingarnir voru ekki svipur hjá
sjón, og ef tína á einhvern úr slöku
liði er þaö helst Haraldur en mark-
varsla hans datt aftur á móti alveg
niöur í seinni hálfleik.
Mörk KR: Stefán 7 (2 v), Gunnar
6, Alfreö 5, Guömundur 4, Anders
og Jóhannes 2 hvor.
Mörk FH: Hans 5, Guðmundur
4, Kristján 3 (2v), Pálmi og Theo-
dór 2, Sveinn, Finnur og Guöjón
eitt mark hver.
Varin víti: Haraldur varöi frá
Anders, Alfreö og Gunnari.
Brottvísanir af leikvelli: Þremur
úr liöi FH var vikiö af leikvelli. Þeim
Pálma, Theodóri og Guömundi.
— BJ
Handknattlelkur ]
L J I
• Bogdan Kowalzcyk. Hann hef-
ur náð frábærum árangri meö
Víkingsliðið. Mynd. KEE_
Friðrik Þorbjörnsson:
„Finnst leikið
of þétt“
FRIÐRIK Þorbjörnsson, fyrirlMM
KR, sagöi að þetta nýja fyrir-
komulag hefði komið sór illa fyrir
lið hans. „í annarri umferöinni
voru t.d. tveir leikmenn veikir og
hefur það sitt aö segja þegar leik-
ið er þrjá daga í röö.
Ég er því hálfvegis á móti þessu,
einkum þó hversu þétt er leikiö.“
Hvaö sigur Víkings í mótinu varöar
sagöi Friðrik aö liöiö heföi komið
vel út á lokasprettinum, en ekki
sýnt neina yfirburöi í vetur.
— BJ.
Stigið náðist ekki
- FH-ingar sigruóu Víking
örugglega á laugardag
VÍKINGUM nægöi eitt stig úr við-
ureign sinni viö FH á laugar-
daginn en ekki tókst þeim að ná í
stig. Eftir leik Víkings viö KR á
föstudaginn sagði ág aö eitthvaö
mikið mætti koma fyrir ef Víking-
ur ætti ekki aö vinna meistaratit-
ilinn eins vel og liöiö léki um
þessar mundir. Ekki þurfti iengi
að bíöa, eftir því „að eitthvað
mikið kæmi fyrir“. Strax daginn
eftir léku Víkingar hroðalega illa
á köflum og FH-ingar unnu mjög
öruggan sigur á þeim — 24:21. FH
haföi 12:8 yfir í hálfleik.
Víkingar byrjuöu vel og komust í
5:2 eftir nokkrar mínútur, en síöan
fóru FH-ingar í gang. Þeir jöfnuðu
5:5 og síöan var jafnt upp í 8:8, FH
skoraði svo fjögur síöustu mörk
hálfleiksins.
Lokakafli fyrri hálfleiksins var
vart til annars en aö hlæja aö, og
þaö hátt. Rugliö og vitleysan á vell-
inum var slíkt aö meö endemum
var. Menn misstu boltann trekk í
trekk, á þaö viö um bæöi lið, og
geröu sig seka um alls kyns mis-
tök.
Um tíma voru FH-ingar þremur
leikmönnum færri en þrátt fyrir
þaö tókst Víkingum ekki að skora.
Er FH-ingar voru svo aftur orönir
tveimur færri skoruöu þeir mark!
Þegar slíkt hendir Víkinga hlýtur
eitthvaö mikið aö vera að hjá
þeim. Sennilegt veröur aö teljast
aö leikmenn liösins hafi verið held-
ur sigurvissir fyrir leikinn, enda
kannski ekki nema von. Þeir höföu
rúllaö KR-ingum uþþ kvöldiö áöur
en FH átti í basli meö Stjörnuna.
En eftir eins góöan leik og Vtkingur
Víkingur
FH
21:24
haföi átt kvöldið áöur er ætíö erfitt
aö ná öörum góöum leik strax á
eftir því mikiö púöur fer í fyrri leik-
inn.
í seinni hálfleiknum léku
FH-ingar mjög góöa vörn og sókn-
arleikur Víkinga var oft á tíöum
sem lamaður. FH-ingar tóku lang-
tímum saman tvo Víkinga úr um-
ferö — Þorberg og Viggó — og
eölilega haföi þaö tilskilin áhrif. Oft
voru þeir sem úr umferö voru tekn-
ir allt of nærri FH-vörninni og voru
þá fyrir félögum sínum, þannig að
sóknarleikurinn var enn slakari en
hann heföi þurft aö vera.
Víkingar reyndu einnig aö taka
tvo leikmenn úr umferð — fyrst
Kristján og Svein, síöan Kristján
og Hans. Þaö bar ekki árangur því
FH-ingar voru mun betri og greini-
lega ákveönir í aö berjast til síö-
ustu mínútu og halda sínum hlut.
Víkingar náöu aö minnka muninn
niöur í tvö mörk, 14:16, eftir aö FH
hafði haft fimm mörk yfir, en nær
komust þeir ekki. FH-ingar sigldu
aftur fram úr og náðú fjögurra
marka forystu, og stóöu í lokin
uppi sem öruggir sigurvegarar.
Kristján Arason var mjög góöur
í þessum leik, bæöi í sókn og vörn.
Einnig var Pálmi góöur, geysilega
ógnandi orðinn leik eftir leik (
horninu, og einnig fiskaöi hann
boltann hvaö eftir annaö af Víking-
um. Hans var ágætur í vörninni.
Annars lék FH-liöiö vel sem heild í
leiknum og vann leikinn á góöri
baráttu. Haraldur varöi mjög vel (
markinu, m.a. tvö víti, og Sverrir
varöi eitt.
Víkingar voru langt frá sínu
besta. Barátta var ekki fyrir hendi
og liöið óþekkjanlegt frá leiknum
viö KR kvöldiö áður. Guömundur
Guömundsson var einna bestur
þeirra, eldfljótur í hraöaupphlauþ-
um og skoraöi falleg mörk úr horn-
unum.
Mörkin skiptust þannig: Víking-
ur: Guðmundur Guömundsson 5,
Viggó Sigurösson 5 (5 víti), Sigurð-
ur Gunnarsson 4, Þorbergur Aöal-
steinsson 3 (1 víti), Steinar Birgiss-
on 2, Árni Indriöason 1, Ólafur
Jónsson 1.
FH: Pálmi Jónsson 6, Kristján
Arason 6 (1 víti), Hans Guö-
mundsson 5, Guömundur Magn-
ússon 3, Sveinn Bragason 2, Val-
garö Valgarösson 1 og Guöjón
Árnason 1.
Víkingar fengu níu víti, nýttu
sex. FH-ingar fengu eitt víti og úr
því skoraöi Kristján. Víkingar voru
reknir af velli í samtals tíu mín.,
FH-ingar í 12 min. Mjög góöir
dómarar voru Stefán Arnaldsson
og Rögnvaldur Erlingsson. Þeir
höföu góð tök á leiknum frá fyrstu
mín. til hinnar síðustu.
— SH.
„Kem aftur ef ég
hef einhver tök á‘
- segir Anders Dahl-Nielsen, þjálfari KR
„ÞESSI úrslitakeppni var mjög erf-
ið og hörð. Engu aö síður er ég
hlynntur svona keppni þar sem
fjögur efstu liðin berjast um úrslit-
in og hvað mig varöar var þetta
ekkert of strembiö. Víkingur náði
sér vel á strik í lok keppninnar og
liöið átti það reglulega vel skilið að
vinna titilinn."
Aöspuröur hvort hann myndi
sakna islands og KR-liösins er hann
færi aftur til Danmerkur eftir þetta
tímabil svaraði Anders því játandi.
„Vegna vinnu minnar verö ég aö fara
heim aftur, en ef ég á einhver tök á
því aö koma aftur mun ég hiklaust
gera þaö.“
— BJ.
• Pálmi Jónsson hefur hér snúið sig framhjá Hilmari Sigurgíslasyni og stuttu i
góðan leik gegn Víkingum.