Morgunblaðið - 19.04.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
29
Horfir þunglega með
kosningaveður á Norð-
ur- og Austurlandi
HELDUR horfir þunglega með kosningaveður, en samkvæmt breskum tölvu-
spám sem Veðurstolan hefur aðgang að, benda líkur til þess að norðaustan-
átt og snjókoma verði í lok vikunnar, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk
hjá Hafliða Jónssyni veðurfræðingi í gær.
Ná spár þessar til föstudags og
samkvæmt þeim verður norðaust-
anátt ríkjandi á landinu frá mið-
vikudegi til föstudags með élja-
gangi og snjókomu um norðan- og
austanvert landið -en bjartviðri
sunnan- og vestanlands. Miðað við
að spár þessar gangi eftir, sagði
Hafliði, að þá yrði ekki hægt að
sjá fyrir neina verulega breytingu
á veðri fram til laugardags. Því
væri útlit fyrir gott kosningaveður
fremur svart.
Hafliði sagði hugsanlegt að
fram á miðvikudag yrði snjókoma
sunnanlands og vestan, því reikn-
að væri með að lægð myndaðist á
Grænlandshafi og hún ylli snjó-
komu. Á meðan myndi draga úr
norðanátt, en hún yrði síðan yfir-
gnæfandi á ný og ekki væri séð
fyrir endann á henni. Hafliði benti
ennfremur á að í spám til þetta
langs tíma væru margir óvissu-
þættir og lítið á þeim byggjandi.
Utankjörstaðakosningin:
Mikil örtröð í gær
Mikil örtröð var við ut-
ankjörstaðakosningu í Mið-
bæjarskólanum í Reykjavík,
og í gærkveldi fékk Morgun-
Þrettán
sóttu um
ÞRETTÁN umsóknir bárust um
starf forstöóumanns rásar tvö hjá
hljóðvarpsdeild Ríkisútvarpsins,
sem taka á til starfa í haust.
Hjá starfsmannastjóra Ríkisút-
varpsins fengust þær upplýsingar
í gær, að nöfnin yrðu kynnt á
fundi útvarpsráðs í dag, þriðju-
dag, og ekki birt opinberlega fyrr
en að þeim fundi loknum.
blaöið þær upplýsingar þar,
að á fímmta hundrað manns
hefðu kosið í gær. Heildar-
tala þeirra sem þá höfðu kos-
ið var þá komin yfir 2.300
manns.
U tankj örstaðakosning
hafði verið mjög lítil fram
til dagsins í gær, en þá var
hins vegar mikil örtröð og
langar biðraðir. Töldu
starfsmenn utankjörstaða-
skrifstofunnar í gærkveldi
að sennilega yrði fjöldi
þeirra sem nú kysi utan
kjörstaða síst minni en áð-
ur, þótt kosningar beri nú
upp á tíma utan venjulegra
sumarleyfistíma.
Laxaslátrun í Kelduhverfi
Nú er verið að slátra um 30 tonnum af eldislaxi hjá ISNO hf. í Lónum í
Kelduhverfi. Eru laxarnir hinir fegurstu, frá 2 til 15 kfió að þyngd eða
4—30 pund. Á næsta ári er gert ráð fyrir að um 150 tonnum af laxi verði
slátrað, en andvirði þess er áætlað um 20 milljónir króna. Á meðfylgj-
andi mynd er búið að króa af marga fiska og verið að hirða þá úr
sjónum.
Stjórn Borgarbókasafns Reykjavfkur. Lengst til vinstri er formaðurinn, Elín Pálmadóttir, þá borgarbókavörður
Elfa Björk Gunnarsdóttir, Bessí Jóhannsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Anna Arnbjarn-
ardóttir.
Borgarbókasafn Reykjavíkur 60 ára í dag
Borgarbókasafnið í Reykjavík er 60 ára í dag, en það var stofnað hinn 19. aprfl 1923 og nefndist þá
Alþýðubókasafn Reykjavfkur. Það hét Bæjarbókasafn Reykjavíkur frá 1936 og síðan Borgarbókasafn frá árinu
1962.
í safninu vinna nú um 60 manns í aðalsafni, þremur útibúum og tveimur bókabflum, og við heimsendingar-
þjónustu. Fyrsta árið voru til í safninu um 1000 bindi bóka, en það telur nú 323 þúsund bindi. Fjöldi útlána á ári
er um 900 þúsund bækur. Borgarbókavörður er Elfa Björk Gunnarsdóttir.
Nánar verður sagt frá afmæli Borgarbókasafnsins í Morgunblaðinu síðar.
Slitlag á rúma
100 km í sumar
SLITLAG VERÐUR lagt á 100 til 110 kflómetra af vegum landsins í sumar,
samkvæmt upplýsingum Helga Hallgrímssonar forstjóra tæknideildar Vega-
gerðar ríkisins.
Enn liggur ekki fyrir hversu mikið slitlag verður lagt á hverjum staö, en
lagt verður á vegarspotta í hverju kjördæmi landsins, að sögn Helga.
Þó sagði Helgi að lagt yrði mik-
ið undir Eyjafjöllum og í Landeyj-
um. Einnig yrði bætt töluvert við
slitlag á Skeiðavegi og um Laugar-
ás. Þá yrði byrjað að leggja bundið
slitlag á veginn heim að Stykkis-
hólmi.
Jafnframt yrði lagt slitlag á
Bíldudalsvegi, milli Patreksfjarð-
ar og Tálknafjarðar, og eins í
Skutulsfirði, frá flugvellinum
áleiðis til Súðavíkur, og lítilshátt-
ar í Dýrafirði einnig.
Þá verður lagningu slitlags
haldið áfram í Húnavatnssýslu,
einkum og sér i lagi í vestursýsl-
unni. Lítilsháttar verður lagt á
Sauðárkróksbrautina, einnig í
Siglufirði, í Eyjafirði, og í
Þingeyjarsýslum.
Á Áusturlandi verður víða lagt
slitlag, einkum á Fagradal, þar
sem meiriháttar slitlagsfram-
kvæmdir munu eiga sér stað, og
kringum Egilsstaði og við Djúpa-
vog.
Af öðrum vegaframkvæmdum í
sumar, sagði Helgi gerð vegar
fyrir Ólafsvikurenni stærsta
Talið að öku-
maður hafi dottað
BÍLL af Lada-gerd fór út af Reykja-
nesbraut á móts við Hvammahverfið
í Hafnarfirði á sunnudagsmorgun-
inn og eyðilagðist, samkvæmt upp-
lýsingum rannsóknarlögreglunnar í
Hafnarfirði.
Slysið varð rétt fyrir klukkan
átta, en bíllinn var á norðurleið.
Ökumaðurinn, sem var stúlka, var
einn í bílnum og slasaðist ekki al-
varlega. Bíllinn fór út af veginum
Hafnarfjarðarmegin og niður 10-
15 metra og eyðilagðist, eins og
áður sagði. Talið er að ökumaður-
inn hafi dottað við stýrið.
verkið. Þá hefur verið veitt nokk-
uð stór fjárveiting í veginn yfir
Holtavörðuheiði, að hans sögn.
Á Vestfjörðum er tenging
Djúpvegar yfir Steingrímsfjarð-
arheiði einna stærst, að sögn
Helga, en því verki verður lokið í
sumar. Þar næst kæmi tenging
Víkurskarðsvegar, sem tengdur
Dagblaðið & Vísir birtir
skoðanakönnun sína í gærdag, en
hún er unnin um síðustu helgi.
Hlutfall þeirra sem svara ákveðið
er 53,4%. Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar fær Alþýðuflokk-
urinn 7,3% atkvæða og 4 menn
kjörna í stað 10 áður. Framsókn-
arflokkurinn fengi 17,9% atkvæða
og 12—13 menn kjörna í stað 17
áður. Bandalag jafnaðarmanna
fengi 10,9% atkvæða og 6 þing-
menn kjörna. Sjálfstæðisflokkur-
inn fengi 41% atkvæða og 24—25
þingmenn kjörna, en hafði 22 áð-
ur. Alþýðubandalagið fengi um
15% atkvæða og 9 menn kjörna,
en hafði 11 áður. Þá fengi kvenna-
framboðið 7,2% atkvæða og 4
menn kjörna.
Hlutfall þeirra sem svöruðu
ákveðið í skoðanakönnun Helgar-
póstsins var 39,7% í Reykjavík,
47,8% í Reykjaneskjördæmi og
44,9% á landsbyggðinni. Sam-
kvæmt niðurstöðum könnunarinn-
ar fengi Alþýðuflokkurinn 5 menn
kjörna, Framsóknarflokkurinn
fengi 8 menn kjörna, Bandalag
jafnaðarmanna fengi 7 menn
var til bráðabirgða í fvrra. Haldið
yrði áfram að bæta Öshlíðarveg-
inn með þvi að vinna hann fram
frá hlíðinni.
Á Suðurlandi verður gerð brúar
yfir Sog við Þrastarlund og vega-
gerð kringum hana ein stærsta
framkvæmdin. Einnig verður unn-
ið áfram við Reykjanesbrautina í
nágrenni Vífilsstaða, en sú fram-
kvæmd nýtist ekki á þessu ári, að
sögn Helga. Þá verða byggðar brýr
á Laxá og Leira í Leirársveit og
haldið áfram með slitlagslögn í
sveitinni.
kjörna, Sjálfstæðisflokkurinn
fengi 26 menn kjörna, Alþýðu-
bandalagið fengið 9 menn kjörna,
kvennaframboðið fengi 4 menn
kjörna og sérframboð sjálfstæð-
ismanna á Vestfjörðum fengi 1
mann kjörinn.
í niðurstöðum skoðanakönnun-
ar Hagvangs, sem birt var í Mbl.
sl. laugardag var hlutfall þeirra
sem gáfu ákveðið svar 80,3%, sem
er mun hærri svarprósenta en áð-
ur hefur fengizt í skoðanakönnun-
um á fylgi flokka hér á landi.
Samkvæmt niðurstöðum skoðan-
akönnunar Hagvangs fengi Al-
þýðuflokkurinn 7,3% atkvæða og 4
menn kjörna, Framsóknarflokkur-
inn fengi 16,8% atkvæða og 13
menn kjörna, Bandalag jafnað-
armanna fengi 9,9% atkvæða og 5
þingmenn, Sjálfstæðisflokkurinn
fengi 44,9% atkvæða og 26 þing-
menn, Alþýðubandalagið fengið
13,1% atkvæða og 7 menn kjörna,
kvennaframboðið fengi 7,2% at-
kvæða og 4 menn kjörna og loks
fengi sérframboð sjálfstæð-
ismanna á vestfjörðum 0,8% at-
kvæða og 1 mann kjörinn.
Mismunandi niðurstöð-
ur í skoðanakönnunum
DAGBLAÐIfí & Vísir og Helgarpósturinn hafa birt skoðanakannanir, sem
blöðin hafa gert vegna komandi alþingiskosninga nk. laugardag. Niðurstað-
an úr könnununum er nokkuð mismunandi.