Morgunblaðið - 19.04.1983, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
35
maður sér fjallið best af slétt-
unni
(Kahlil Gibran)
Við systurnar höfum víst allar
upplifað í æsku, að hlaupa á eftir
mömmu á götum úti, hrópa á eftir
henni, en þegar hún loks sneri sér
við, var það ekki mamma, heldur
Anna, systir hennar.
En æska okkar og fortíð fór
annars ekki í eilíf hlaup á eftir
Önnu/mömmu um götur Vestur-
bæjarins. Anna var farin að tala
við okkur sem viti bornar mann-
eskjur, löngu áður en við náðum
lögaldri. Anna var róleg, umburð-
arlynd og geðgóð. Eiginleikar sem
voru eins og vin í eyðimörk fyrir
unglinga, sem töldu sig hafa
margt merkilegt að segja, en nutu
takmarkaðs álits og virðingar
þorra fólks með kosningarétt.
Anna frænka var vinkona okkar
allra, í stað þess að láta sorgina ná
yfirtökum, vil ég frekar þakka
fyrir að hafa fengið að þekkja
Önnu í heilan aldarfjórðung.
Frændur mínir áttu góða móð-
ur, mamma átti góða systur. Hjá
mér skilur Anna eftir aðeins góð-
ar og verðmætar minningar.
Erla Sigurðardóttir
„|)ýpsta sa*la og sorgin þunga
svífa hljódlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga
tárin eru beggja orð.“
(Ó.A.)
Hjördís Einarsdóttir
Skín, guðdóms sól, á hugarhimni mínum,
sem hjúpar allt í kærleiksgeislum þínum.
Þú, Drottinn Jesú, lífsins Ijósið bjarta,
ó, lýs nú mínu trúarveika hjarta.
(Ó.A.)
Fyrir þrettán árum hófust
kynni okkar Önnu og hafa allt tíð
síðan verið mér og börnum mínum
sem glaður geisli.
Anna tengdamóðir mín var í
raun og sannleika hin trausta og
góða amma, sem strax vann ást og
trúnað barna minna frá fyrra
hjónabandi og gætti hún þess vel
að mismuna ekki kærleika sínum
við hin sér nátengdari.
Mér var hún móðir og vinur alla
tíð, og studdi mig og hvatti, hún
var sérstaklega jákvæð og æðrað-
ist ekki.
Hún hafði áhuga á öllu sem
börnin voru að gera, alltaf vissi
amma ef þau höfðu verið í prófum
og hringdi og spurði hvernig hefði
gengið. Ef þau svöruðu því til að
ekki hefði nú gengið nógu vel, þá
átti amma uppörvunarorðin, sem
þurfti til þess að gengi betur næst.
Ég lærði það af henni, hvers
virði þetta var börnunum, þessi
vakandi áhugi hjá henni á öllu.
Þær eru líka fallegar peysurnar
sem hún prjónaði á barnabörnin
sín og ekki máttu dúkkurnar eða
bangsinn verða útundan, svona
var hún ómissandi vinur barn-
anna í gleði og sorg.
Það var ýmislegt rabbað við
ömmu, sem ekki var sagt við
pabba og mömmu. Sérstaklega vil
ég minnast þess hve fjölskyldan
naut þess að amma var þátttak-
andi í öllu hátíðahaldi, jólum, af-
mælum o.s.frv. sem dæmi, fyrir
tveimur árum vorum við á ferða-
lagi fyrir norðan, þá stóð hún
niður á bryggju og veiddi fiska
með sonarsyni sínum, svona var
Anna, hún gaf sér tíma.
Hina erfiðu sjúkdómsraun bar
tengdamóðir mín af slíkum dugn-
aði og hörku að við hin gerðum
okkur ekki alltaf ljóst hve veik
hún var, en svo er það með okkur
öll, að þó langvarandi sjúkdómur
bendi raunar á hvert stefnir, og
við sjáum breytingu dag frá degi,
erum við ekki viðbúin.
En stundin kemur, og elsku
Anna er horfin yfir móðuna
miklu. Hugurinn fyllist söknuði,
en jafnframt þakklæti, og trú á
heimkomu hennar.
Baráttunni er lokið og við lausn-
arans hönd er gengið til birtu og
eilífðarnóns.
I»ó vió ^istum svartan sal
af sorgar þungum dómi,
stígur upp úr dimmum dal
Drottins sólarljómi.
(P.Þ.)
Ég kveð með trega ástkæra
tengdamóður, vin og ömmu og
þakka henni fyrir allt og allt.
Guð blessi hana.
I*órunn Jensen
Útför mannsins míns,
AOALSTEINS JÓHANNSSONAR,
Samtúni 16, Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 19. apríl nk. kl. 3 e.h.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag islands.
Guöný Helgadóttir.
Unnusti minn og sonur
BJÖRN FOSSDAL HAFSTEINSSON
veröur jarðsunginn frá Hólaneskirkju Skagaströnd, föstudaginn
29. apríl.
Kveðjuathöfn verður frá Fossvogskirkju í dag, þriöjudaginn 19.
apríl kl. 16.30.
Rósa Björg Högnadóttir,
Svanbjörg Jósefsson.
Faðir okkar,
GEIR BENEDIKT BENEDIKTSSON,
Hvammsgerði 6,
veröur jarösunginn frá nýju Fossvogskapellu miövikudaginn 20.
apríl kl. 16.30.
Fyrir hönd aöstandenda,
Oddur Geirsson,
Benedikt Geirsson,
Gunnar Geirsson.
Sonur okkar og bróöir
GUDMUNDUR EINARSSON,
Skálholtsbraut 5,
Þorlékshöfn,
veröur jarösunginn frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, fimmtudaginn
21. apríl kl. 2 e.h.
Einar Sigurösson, Helga Jónsdóttir,
og systkini.
t
Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir og afi
SIGURJÓN KJARTANSSON,
Háteigsvegi 4,
veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu, miövikudaginn 20. apríl kl.
10.30.
Gunnlaug Gísladóttir,
Stefán Sigurjónsson, Erna Smith,
Ingvi Jón Sigurjónsson, Hrafnhíldur Sigurjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar og sonur,
JÓHANNES SÆMUNDSSON,
íþróttakennari við Menntaskólann i Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Landakotskirkju í dag, þriöjudaginn 19. apríl
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minn-
ast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Margrét G. Thorlacius,
Guðni Thorlacius Jóhannesson, Sæmundur Patrekur Jóhannesson,
Jóhannes Ólafur Jóhannesson,
Sigurveig Guðmundsdóttir, Sæmundur Jóhannesson.
t
Kveöjuathöfn eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SVEINS ELLERTSSONAR,
fyrrv. mjólkurbústjóra,
Blönduósi, "
fer fram frá Blönduóskirkju, föstudaginn 22. apríl kl. 14.
Jarðsett verður í Reykjavík.
Alma Ellertsson,
Bragi Sveinsson, Brynhildur Sigmarsdóttir,
Eva Sveinsdóttir, Jóhann Aadnegard,
ida Sveinsdóttír, Ríkharöur Kristjánsson,
og barnabörn.
t
Þökkum kærlega auösýnda samúð og hlýhug viö andlát og jarð-
arför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu
SIGRÍDAR EINARSDÓTTUR,
fyrrum kaupkonu,
Akureyri.
Sérstaklega færum við starfsfólki Dvalarheimilisins Hlíö, Akureyri,
okkar innilegasta þakklæti fyrir þá miklu umhyggju er þaö auð-
sýndi henni.
Þóra Ottósdóttir,
Örn Hauksson,
Ottó Páll Arnarson.
NÖRSKU
RÚMIN frá bahus
eru úr massivum við-Furu Maghony og Brenni
ww t-»
ALFA
Kr. 18.927 stgrv. Kr. 17.981
IRENA
Kr. 17.869 — Kr. 16.975
KARI
Kr. 18.504 — Kr. 17.578
SILJA
Kr.21.483
Kr. 22.614
Rúm 150x200 m/dýnum
og 2 nattborðum.
Greiðsluskilmálar Va hluti útborgun.
Eftirstöðvar á 6 mánuðum.
Stærð 150X200 180X 200
Skenán.
Smiðjuvegi 6 - Simi 44544