Morgunblaðið - 05.05.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1983
7
Þakka öllum er sendu mér skeyti, blóm og gjafir
og þann hlýhug sem fylgdi sjötugsafmæli mínu
þann 15. agríl síöastliðinn.
Guð blessi ykkur öll.
Lárus Kr. Jónsson, Stykkishólmi.
Hestamenn
Námskeiö í hestamennsku hefjast mánudaginn 9.
maí. Kennt veröur í eftirtöldum flokkum:
1. Byrjendur.
2. Almenn reiöhestaþjálfun fyrir vana.
3. Hlýðniæfingar.
Kennari veröur Eyjólfur ísólfsson.
Skráning á skrifstofu félagsins, sími 30178 kl.
13—18.
Hestamannafélagið Fákur.
Heba heldur
heilsunni
Nýtt námskeið að hefjast.
Dag- og kvöldtímar tvisvar eða
Ijórum sínnum í viku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leiklimi - Sauna - Ljós - Megrun
Sól-bekkir- Nudd - Hvíld - Kaííi -
Jane Fonda leikfimi
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Heba
Auðbrekku 53, Kópavogi
----------Z A
Tungijmálanámskeið
og íiæðsluþættir
á
myndböndum
It's Your Turn to Speak
Þættir fyrir þá sem þurfa á tal
æfingum að halda. Tveggja
klukkustunda æfingar fyrir þá
sem hafa byrjendakunnáttu í
ensku. Æfingunum fylgir
kennslubók og æfingabók.
Engineering
Fjölbreyttar æfingar og útskýr-
ingar á ensku iðnaðarmáli t.d.
málvenjum i framleiðsluiðn-
aði. Æfingabók, hljóðkassetta
og myndband sem er
ómetanleg æfing og hjálp
fyrir þá sem þurfa að hressa
upp á enskuna í sambandi við
atvinnugreinar í iðnaði og
framleiðslu.
Travel and Tourlsm
Óvenju skemmtilegar og fjöl-
breyttar æfingar fyrir þá sem
þurfa á ensku máli að halda í
sambandi við ferðir og ferða-
lög. Æfingarnar eru til þess
gerðar að liðka upp á talkunn-
áttuna og orðaforðann. Sér-
stök æfingabók, hljóðkass-
etta og myndband.
SnirbjörnlíóusionjlCb.h.f
Hafnarstræti 4 og 9 símar 11936 og 14281
Akureyrarumboð Bókval
Kafbátar á
þurru landi
Þjóðviljinn tekur sér þaö
nærri að athygli almenn-
ings á Norðurlöndum bein-
ist að frekju Sovétmanna
sem senda kafbáta í ögrun-
arferðir inn í lögsögu Sví-
þjóðar og að líkindum Nor-
egs. Finnst Þjóðviljanum
ástæðulaust að norrænir
menn séu að velta þessu of
mikið fyrir sér, það dreifi
aðeins athygli þeirra frá
óhæfuverkum Bandaríkja-
manna. Ólafur Gíslason,
blaðamaður á Þjóðviljan-
um, sem hefur það sér-
verkefni að dásaraa stjórn-
arfar kommúnista á Kúbu
og í Nicaragua, hefur þetta
að segja um sovésku kaf-
bátana við Norðurlönd í
Þjóðviljanum á þriðjudag:
„Það væri í rauninni
ekki óeðlilegt að granda-
lausum manni kæmi til
hugar, að kafbátaleikur
Sovétríkjanna við Noreg
og Svíþjóð væri einmitt til
þess fallinn að hylma yfir
þá glæpi sem bandaríska
leyniþjónustan er að
fremja þessa dagana í
Nicaragua."
Þessi nýjasta röksemda-
færsla í samanburðarfræð-
unum sem miða að því að
sanna að Bandaríkin séu
verra risaveldi en Sov-
étríkin er á þann veg, að
ógerlegt er að finna heila
brú í henni. Hún er þó
dæmigerð fyrir þá ruglandi
sem er helsta einkenni
lygafréttamiðlunar Sovét-
vina um víða veröld. Hvers
vegna i ósköpunum skyldu
Sovétmenn senda kafbáta
inn í lögsögu Norðurlanda
til að hylma yfir „glæpi
bandarísku leyniþjónust-
unnar" í Nicaragua?
Eini sovéski kalbáturinn
sem náðst hefur á Norður-
löndum var á þurru landi
við Karlskrona. En það eru
fleiri sovéskir kafbátar á
þurru landi á Norðurlönd-
um, þótt þeir séu ekki öll-
um sýnilegir eins og þessi
við Karlskrona. Einn af
þessum þurrlendis kafbát-
um rak upp meira en sjón-
pípuna á síðum Þjóöviljans
í grein Ólafs Gíslasonar á
þriðjudag.
ífeMlHF
Gagnkafbátaaðgerðir
í Staksteinum í dag er rætt um sovéska
kafbáta á þurru landi og bent á að þeir
birtist stundum á síöum Þjóðviljans. Hljóö-
merki frá þeim heyrast einnig af og til í
Ríkisútvarpinu og oftar undanfariö en áö-
ur. Þeirri spurningu er varpað fram, hvers
vegna útvarpið hafi ekki beðiö Ólaf Þ.
Jónsson, skipasmið, að fjalla um sovéskar
kafbátasmíðar.
Útvarpid og
sagnfræðin
Eins og við var að búast
komst Þjóðviljinn í vörn
fyrir Ríkisútvarpsins hönd
vegna gagnrýni Morgun-
blaðsins á þá ráðstöfun að
láta Ólaf Þ. Jónsson, skipa-
smið, fiytja kommúnískt
erindi um sögulegt efni
hinn 1. maí á þeim dag-
skrártíma sem venjulega
er ætlaður undir efni sem
unnið er af virðingu fyrir
því sem sannara reynist. í
Þjóðviljanum í gær stendur
meðal annars:
„Út á hvað gengur lýð-
ræði annað en rétt fólks til
aö láta í Ijósi skoðanir sín-
ar? Á ekki Ólafur Þ. Jóns-
son fullan rétt á því að láta
skoöanir sínar í Ijós? Og
ber ekki rikisútvarpinu
skylda til að kynna hinar
ýmsu skoðanir manna til
dæmis á sagnfræðilegum
efnum?“
Auðvitað á Ólafur Þ.
Jónsson rétt á því að láta
skoðanir sínar í Ijós. Hitt
er annað mál hvort Ríkis-
útvarpið telur þær skoðanir
eiga heima í dagskrá sinni
og einnig er það matsatriði,
hvar efninu er valinn stað-
ur. Sérviska Ólafs Þ.
Jónssonar á ekkert skylt
við sagnfræði. Þaö er rangt
að kynna erindi hans undir
þeim hatti. heldur ber að
fiokka það með ofurtrú
Þorvalds Þonaldssonar á
Sovétríkin, en Þonaldur
flutti dýrðaróð um Stalín í
Ríkisútvarpið á dögunum.
Viðbrögd Þjóðviljans við
réttmætum aðfinnslum
vegna þessa furðulega efn-
isvals Ríkisútvarpsins eru
ekki annað en staðfesting
á því, að málstaður blaðs-
ins er enn hinn sami og á
tímum Kommúnistaflokks
íslands þegar blaða-
mönnum þess var kapps-
mál aö skrifa ekki stafkrók
I sem þeir töldu að gæti
styggt Stalín. Hins vegar er
nýlunda að þessi pest skuli
geisa á Ríkisútvarpinu
hálfri öld síðar.
Logið um
leiðara
Ákallið um skoðana-
frelsið og Ríkisútvarpið
sem auðvitað stangast
algjörlega á við stjórnmála-
skoðanir þeirra Ólafs Þ.
Jónssonar og Þorvalds
Þorvaldssonar, birtist í rit-
stjórnargrein Þjóðviljans.
Á fréttasíöu er hins vegar
gerð tilraun til að sanna þá
skoðun Þjóðviljans að í
raun beri að líta á Olaf Þ.
Jónsson sem sagnfræðing.
Þar er þessu meðal annars
logið: „Allur ber leiöarinn
(í Morgunblaðinu á þriðju-
dag, innsk. Staksteinar)
vitni um hroka skrifarans:
skipasmiðnum er bent á að
hafa sig hægan því hvorki
meira né minna en prófess-
or hafi skrifað um sama
efni — og auðvitað hafi al-
þýðumenn ekkert að gera í
slíka menn."
Lesendur Morgunblaðs-
ins geta kynnt sér um-
ræddan leiöara. En vegna
lyga Þjóðviljans skal enn
ítrekað, að Ólafur Þ.
Jónsson er ekki óhæfur til
að flytja útvarpserindi
vegna þess að hann er
skipasmiður. Hins vegar
eiga hhistendur Ríkisút-
varpsins rétt á að vita um
það þegar haldið er að
þeim kommúnískum áróðri
en ekki sagnfræði. Vilji
Ríkisútvarpið kynna
sagnfræðilega rannsókn á
því efni sem Ólafur Þ.
Jónsson lýsti skoðunum
sínum á getur það fengið
hana í ritgerð dr. Þórs
Whitehead.
En hvers vegna skyldi
Ríkisútvarpinu ekki hafa
dottið í hug að fá Ólaf Þ.
Jónsson, skipasmið, til aö
ræða um kafbátasmíði Sov-
étmanna? Þeir eru til
dæmis nýbúnir aö smíða
nýjan risakafbát með
ógrynni af kjarnorku-
sprengjum sem sveimar
um undirdjúpin fyrir norð-
I an fsland.
GEísiPf
Sportblússur
Aldrei glæsilegra úrval
af sportblússum,
buxum og skóm.
Drengja- og herrastæröir.