Morgunblaðið - 08.05.1983, Síða 9

Morgunblaðið - 08.05.1983, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983 57 Newsweek SHCUIAL KEPURT HITLER’S É=. How Thay Could Rewrito History Hitler and tho Jews Are They Genuine? Forsíða Newsweek. DER BPIEGEL Forsíða Spiegel. ---------------------—------------" Koch ritstjórí og Heidemann. David Irving: hefur snuizt mörgum sinnum. ekki vitað um „hina endanlegu lausn“, er sú sama og „linir" naz- istar eins og Wolff vilja sjá á prenti til að fá málsbætur sjálfir að sögn Observer. Auk þess er stórfé í húfi. Einhverjir alls 10.000 útsendara austur-þýzku leyniþjónustunnar geti hafa komizt á snoðir um áformin um að selja dagbækurn- ar. A-Þjóðverjar hafi talið að birt- ing pólitískrar erfðaskrár For- ingjans mundi vekja uppnám á Vesturlöndum og staðfesta það sem austanmenn hafi sagt árum saman um stöðuga dýrkun á Hitl- er og nazistum. A sama tíma væru ungir Þjóðverjar að velta fyrir sér sannleiksgildi þess sem þeim væri kennt um Hitlerstímann í skólum. Wolf-Rúdiger, sonur Hess, sem telur dagbækurnar ófalsaðar, hef- ur verið beðinn að bera málið upp við föður sinn { Spandau-fangelsi, en Rússar koma í veg fyrir það. Honum var t.d. ekki leyft að ræða málið við föður sinn þegar hann heimsótti hann á afmælinu. Eini maðurinn sem gæti varpað ljósi á málið er Wolff hershöfðingi að sögn Observer. En hann hefur þagað og þeir mörgu sem hafa orðið fyrir álitshnekki vegna málsins vona líklega að hann þegi sem lengst. Pólitískt svindl? Bandarísk blöð hafa komið fram með tilgátur um hugsanlegar póli- tískar ástæður fyrir því að dag- bækurnar skutu upp kollinum. The New York Times segir í aðal- atriðum: Ef dagbækurnar reynast falsað- ar gera nokkrir sérfræðingar ráð fyrir að þær hafi verið soðnar saman í Austur-Evrópu til að reyna að grafa undan samskiptum Vestur-Þjóðverja og bandamanna þeirra. Þeir segja að megintil- gangur slíks svindls austur-þýzku og sovézku leyniþjónustunnar væri að sýna að Vesturveldin vís- uðu á bug tækifærum til að binda enda á síðari heimsstyrjöldina og beri hina sögulegu ábyrgð á end- anlegri skiptingu Þýzkalands. Fremur jákvæð ummæli um Chamberlain og Hess vekja eink- um furðu. Um Chamberlain á Hitler að hafa skrifað: „Hann lék næstum því á mig, þessi mjúkmáli Englendingur..." Stjórnarerind- reki sagði um þennan kafla að hann gæti verið tilraun til að sýna Chamberlain, postula friðkaupa- stefnunnar, í betra ljósi. Umfjöllunin um Hess-málið er dularfull, en getur átt að gefa til kynna að Bretar hafi ekki haft áhuga á nokkrum samningum um að binda enda á stríðið. Annað dæmi um tóninn í dag- bókunum sést á ummælunum um Stalín. „Hvernig i ósköpunum fer Stalín að þessu?“ á Hitler að hafa skrifað og átt við viðnám Rússa sjö mánuðum eftir að innrás Þjóð- verja hófst. Sérfræðingar, sem leita að póli- tískum boðskap, mundu ekki búast við að finna stöðuga aðdáun á Stalín orðaða í dagbókunum, held- ur öllu fremur undirtón mikillar virðingar fyrir Sovétríkjunum, hernaðarmætti þeirra og vaxandi meðvitund um að þau séu ósigr- andi. Áhrif dagbókanna á umræð- ur um þýzka sögu gætu orðið já- kvæðar Rússum, hvort sem þær eru falsaðar eða ekki. Nóg er að sýna að Þýzkaland hafi verið fórn- arlamb Breta og Bandaríkja- manna. N.Y. Times hefur eftir vestur- þýzkum embættismanni: „Ef ég væri að falsa slíka dagbók fyrir Austurveldin mundi ég gera Hitl- er að leiðindapúka, skepnu og heimskingja. En ég hefði viljað láta líta út fyrir að Englendingar og Bandaríkjamenn hefðu gert honum kleift að gera ástandið ennþá verra." Blaðið vitnar í tvo þýzka sagn- fræðinga, sem óttast að hinar meintu dagbækur „gætu haft sterk áhrif á unga Vestur-Þjóð- verja, sem nú eru að endurmeta samband sitt við fortíð landsins“. Eins og Lundúnablaðið The Times bendir á hafa Þjóðverjar aldrei áður skoðað eins rækilega hug sinn til fortíðar nazismans og í janúar, þegar 50 ára afmælis valdatöku Hitlers var minnzt. Ymsir v-þýzkir sagnfræðingar, bæði vinstri- og hægrisinnaðir, hafa veitzt æ harkalegar að Vesturveldunum fyrir aðgerðir þeirra í stríðinu og endalok stríðs- ins sem leiddu til skiptingar Þýzkalands. K.-D. Bracher telur að meðan fram fari umræður um staðsetningu bandarískra eld- flauga i Vestur-Þýzkalandi sé vax- andi markaður fyrir sagnfræðirit, þar sem Bandaríkjamönnum og Bretum sé hallmælt. Ýmsir and- stæðingar eldflauganna halda því fram að Vestur-Þýzkaland sé bandarískt leppríki. Þótt dagbókunum hafi verið tekið með efasemdum og vantrú munu margir Þjóðverjar spyrja hvort nauðsynlegt hafi verið að birta þær áður en nógu vel hafði verið kannað hvort þær væru fals- aðar. Þeir munu líka hafa af þvi nokkrar áhyggjur hvort birting þeirra í Stern kunni að ýta undir sjúklegan áhuga á Foringjanum, sem margir telja sig hafa orðið vara við eins og The Times bendir á. gh tók saman. BÍL AVERKST ÆÐIÐ AuÖbrekku 63, Kóp. Sími 46940 Sérhæfum okkur í viðgerðum á Fiat- og Lada-bifreiö- um. Einnig vatnskassa- og bensíntankaviögeröum. Höfum varahluti í Fíat Opiö milli kl. 8 og 19. Electron 1100 De luxe Sjálfvirk þvottavél í sérflokki 1100/800/500 sn./mín. þeyti- vinda Tekur 4,5 kg af þurrum þvotti Sparnaöarrofi I Tekur inn á sig bæöi heitt og kalt vatn Hitar 30°C, 40°C, 50°C, 95°C Þvottakerfi fyrir straufrí efni 3 hólfa sápuskúffa Þvottatromla úr ryöfríu stáli Topphlíf er nota má sem vinnuborð Er á hjólum og því auöhreyf- anleg Utanmál: hæð 85 cm, breidd 59 cm, dýpt 56 cm. Þyngd: 70 kg. HOOVER ER HEIMILISHJÁLP Verö kr. 15.667,00 Greiðsluskilmálar ÁRS ÁBYRGÐ fAlkinn Suöurlandsbraut 8, sími 84670.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.