Morgunblaðið - 08.05.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.05.1983, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983 Get ckki íinyndað mér lífíð án bóka — segir Jón Sigfússon, bóksali og bókbindari á Akureyri „I>IÐ sækið nú heldur illa að mér, ég er með víruslungnabólgu og orðinn heldur slappur. Hef alltaf þurft að vinna fyrir brauði mínu hörðum höndum og það er orðinn langur tími. Ég fæddist 1901 og því á níræðis aldri og vona bara að þetta fari að styttast. Eg er orðinn ónýtur í fótunum, en er þó ekki svo aumur, að ég druslist ekki á fætur til að lofa ykkur að kíkja á bækumar. Ég veit þið hafið gaman af því,“ sagði bókbindarinn og bókamaðurinn Jón Sigfússon á Akureyri er við Morgunblaðsmenn litum til hans fyrir skömmu. „Ég get ekki ímyndað mér lífið án bóka, sérstaklega ljóða. Mér hefur alltaf reynzt erfitt að stand- ast bókakaupin. Það má líkja þeim við áfengissýki, áráttan er álíka óviðráðanleg en þó talsvert skárra böl. Ég eignaðist fyrstu bækurnar 15 ára, fyrstu 3 bindin af Andvök- um og Þyrna Þorsteins Erlings- sonar. Þá var ég í vist og árslaun- in, 50 krónur, fóru að mestu til kaupanna. Síðan hef ég keypt bækur á hverju ári utan tvö er ég keypti jörðina og húsið. Nú á ég um 3.000 bækur, nær allt frumútg- áfur og mest hef ég bundið inn sjálfur. Mæli maður þetta á ver- aldlegri mælikvarða á ég víst um 160 „hillumetra". Er hálfgerður útburður og góla á undan illviðrum „Ég fæddist árið 1901 á Víði- mýri í mikilli óþökk flestra nema foreldra minna. Þeir voru Sigfús Bjarnason og Valgerður Jóelsdótt- ir og giftu þau sig í mikilli óþökk ættingja sinna. Þegar ég fæddist voru þau í vist á Víðimýri og heimtaði þá húsmóðirin að farið yrði burt með þennan óþverra og 5 nátta gamall var ég borinn í 16 stiga gaddi upp í Valagerði á Vatnsskarði, þar sem mér var komið í vist þar til ég var á fjór- tánda ári. Ég er því hálfgerður út- burður og góla á undan illviðrum því þá hleypur gigtin í mig. Föður minn sá ég aðeins einu sinni og móður þrisvar og var þá orðinn fullorðinn. Systkini mín sá ég ekki fyrr en þau áttu uppkomin börn. Alls var ég fjóra mánuði í skóla og fékk fullnaðarpróf 13 ára og var fermdur á fimmtánda ári. sonur hans að vera um veturinn og var þá ekki lengur rúm fyrir mig. Þá var hvergi vist að fá og fór ég því til Sigfúsar Jónassonar í For- sæludal til að læra að binda bæk- ur. Sigfús var mér góður, þó níðzt væri á mér og ég fengi lítið að binda. Síðan lá leið mín til Péturs Guðmundssonar í Vatnshlíð á Vatnsskarði, þar sem ég var í tvö sumur og síðan til Sauðárkróks og fylgdi fóstra mín mér þá. Á Sauð- árkróki hitti ég fyrri konu mína, Þrúði Gísladóttur. Hún lifði að- eins í tvö ár eftir að við kynnt- umst og áttum við eitt barn. Seinni kona mín er Lilja Valde- marsdóttir og eigum við eina dótt- ur, sem er nú hjá okkur með tvö börn. Þá tókum við barn í fóstur er við bjuggum á Halllandsnesi. Ég ætlaði alltaf í búskap en gekk illa að fá kot og var því við brú- arsmíð með Karli Friðrikssyni um tíma. Hann vildi að ég ílentist hjá sér, en þegar ég sá Halllandsnes við Eyjafjörð auglýst til sölu héldu mér engin bönd og ég keypti kotið. Það árið keypti ég engar bækur. Á Halllandsnesi bjó ég í 22 ár, en flutti til Akureyrar 1968 og var þá orðinn heilsulaus. Báðir mjaðmarliðirnir voru orðnir stífir og annar fóturinn fimm senti- metrum styttri hinum. Mér þótti alltaf vænt um skepnur en gat ekkert orðið annað en að dunda við bókbandið. Konan mín sá um hirðinguna siðasta veturinn. Ég seldi því kotið og keypti hús hér á Akureyri. Það árið keypti ég held- ur ekki bækur. Nánast allt farið í bækur Já, ég byrjaði að safna og binda þegar ég var 15 ára og síðan hefur nánast ekkert lát orðið á fyrr en nú, að ég er orðinn alveg heilsu- laus. Ég reyni þó að dunda eitt- hvað við þetta. Hvað bókbandið varðar bind ég allt inn sjálfur, sem ég fæ óbundið eða í örkum. Það er annars að verða ómögulegt að fá arkir eða óbundnar, bita- stæðar bækur. Þeir hleypa þessu ekki út af suðvesturhorninu nema bundnu og það í handónýtu bandi. Auk þess eru þeir farnir að vinna skemmdarverk á tímaritum með því að breyta brotinu á þeim. Haf- steinn Guðmundsson, vinur minn í Þjóðsögu, hefur þó verið mér inn- an handar og útvegað mér talsvert af örkum. Eins og ég sagði bind ég allt, sem ég fæ óbundið, fyrir sjálfan mig, en einnig hef ég fram- fleytt mér með því að binda fyrir aðra. Ég bind allt í geitaskinn og gylli sjálfur og ekkert ár hefur fallið úr bókbandinu enn frá því 1921. Því er ekki að neita, að þetta hefur verið óttalegt basl, nánast allt fé hefur farið í bækur og þeg- ar ég keypti húsið hérna 1968 var ég upp í 16 tíma á sólarhring við bandið. Það hvíldu 100.000 krónur á húsinu og það tók mig þrjú ár að borga það. Þetta var fremur erfitt meðan ég hafði bara handverk- færi, en 1967 fékk ég mér tvo hnífa og árið eftir gyllingarvél hjá gömlum bókbindara og á henni hef ég þénað mest, þó taxtinn sé Það árið keypti ég engar bækur Fósturforeldrar mínir flosnuðu upp frá Valagerði er ég var á fjór- tánda ári og fór ég þá að Bolla- stöðum í Blöndudal. Það var gott heimili, en auðvitað mikil vinna. Eftir það fór ég í lausamennsku til Jósafats á Brandsstöðum og um haustið bað hann mig að vera vet- urinn og játti ég því. En þá kom babb í bátinn, því allt í einu ákvað Á gyllingarvélinni hef ég þénað mest, segir Jón. Hér er sitthvað forvitnilegt. HJÁLPARTÆKI FYLGIHLUTIR: STÁLSKÁL HNOÐARI HRÆRARI ÞEYTARI- PYLSUSTÚTUR SMÁKÖKUMÖT RAFBÚÐ SAMBANDSINS Ármúla 3 Reykiavik Simi 38900 DOMUS Laugavegi Kaupfélögin um allt land CHIL TON — HA YNES — AUTOBOOKS fyrir flestar gerðir bfla fást hjá okkur. Bókabúð Steinars, Bergstaðastræti 7, simi 16070 - Opið 1-6 e.h.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.