Morgunblaðið - 08.05.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.05.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983 65 Milljónir Japana eiga ekki annarra kosta völ en að leita til okrara til þess að fá lánaða peninga ... Og þeim er heimilt að taka allt að 109% í vexti. — Sjá: SKULDADAGAR FASTEIGNIR KUNNINGI Kaupandinn má helst ekki vita aura sinna tal Ef einhvern langar til að eign- ast glæsilegt enskt óðalssetur með golf- og krikketvöllum, hestum og reiðhjólum, 4.700 ekrum lands, kapellu og gnótt listaverka, þá stendur það honum til boða, ef hann hefur handbærar 320 millj- ónir króna. Þetta er Belton House, 300 ára gamalt ættarsetur í Lincolnshire. Núverandi eigandi er Játvarður 7. barón Brownlow. Hann er guðson- ur hertogans heitins af Windsor, Játvarðs 8. Bretakonungs, er lét af embætti árið 1936 til að kvænast Wallis Simpson. Sama fjölskylda hefur búið í Belton House í þrjár aldir eða frá árinu 1685, en nú hef- ur setrið verið sett á söluskrá, því að eigandinn getur ekki greitt erfðaskatt af eignum föður síns heitins. Hann hefur raunar ekki búið þar sjálfur í tvö ár. Margir brezkir þjóðhöfðingar hafa gist Belton House. Árið 1695 innbyrti Vilhjálmur þriðji svo mikið af guðaveigum þar, að hann var naumast á eftir ferðafær að því er dagbókarritari hans skýrir frá. Faðir núverandi baróns var ná- inn vinur Játvarðs 8., en hann dvaldist oft að Belton. Skömmu áður en Játvarður 8. sagði af sér konungdómi fór Brownlow heitinn barón með frú Simpson til París- ar, þar sem þau biðu þess, að kon- ungur gengi frá málum sínum. Brúðkaup hertogahjónanna af Windsor fór síðan fram í París með leynd. Gamalt máltæki segir að fjórð- ungi bregði til nafns, og fyrir 20 árum olli Edward Brownlow Dauðadrukknir kóngar og ómetanleg listaverk. hneyksli eins og nafni hans og guðfaðir. Hann hafði fest ást á ungri bóndadóttur, Shirlie að nafni, og þau stungu af til Gíbralt- ar, þar sem þau létu gefa sig sam- an. Faðir brúðgumans var lítt hrifinn af þessum ráðahag og neitaði að eiga orðastað við son sinn og tengdadóttur í 10 ár. Hann lézt árið 1978 og arfleiddi sonar- son sinn af flestum eignum sínum, en verðmæti þeirra nam rúmlega 100 milljónum. Hann hirti ekki um að gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir erfðaskatt. Þetta kemur nú niður á núverandi baróni, því að ríkið hefur nú kraf- ið hann um tugi milljóna í skatta- greiðslur. Barón Brownlow vonast til að geta fundið kaupanda að landar- eigninni með öllum hennar gögn- um og gæðum, þannig að unnt verði að halda saman öllum helztu listaverkunum í Belton House. Þar eru mörg herbergi þakin listvefn- aði og myndskurði. Þeim sem kaupir setrið mun verða gefinn kostur á að kaupa söguleg málverk og húsgögn, sem þar eru. Þetta er eitt verðmætasta safn sinnar tegundar á Englandi, og því er mönnum mikið í mun að það fari ekki á víð og dreif. Því verður kaupandinn að fá annað hvort allt eða ekkert. En menn ef- ast um, að einn kaupandi finnist að öllu þessu góssi, og eru því ugg- andi um, að mikið af þessum ómetanlegu ættargripum verði selt úr landi. — PETER DEELEY iTANZANÍAi Þeir stela öllu steini léttara suður þar Þegar flóð gróf í sundur þennan veg { SuÓur-Kaliforníu f janúar síðast- liðnum, gleypti „holan“ meðal ann- ars þennan bfl sem var þarna á feró- inni. síðasta áratug lá við að allur fisk- iðnaður á vesturströnd Suður- Ameríku hryndi til grunna. Dr. Namias segir, að þessi mikli, heiti straumur mæti nú öðrum óvanalega köldum straumi fyrir norðan Hawaii. „Þessi hitamunur veldur stórviðrum og miklum stormum og þeim einstæða sjáv- argangi, sem verið hefur við Kalif- orníuströnd að undanförnu. Vindhraðinn er sá mesti, sem mælst hefur síðan 1947.“ „Barnið" er þó ekki eini söku- dólgurinn. Háloftastraumur, sem fer um alla jörð og oftast nær með um 110 km hraða yfir Kyrrahafi, æðir nú áfram með um 190 km hraða. Flugferðin frá Hawaii til meginlandsins er nú um einni klukkustund skemmri en venju- lega. Með vindunum hefur borist mikið af sjaldséðum fuglum til Kaliforníu. Talið er, að þeir séu frá fjarlægum kóralrifjum í Kyrrahafinu, en í fyrra yfirgáfu um 16 milljónir fugla af ýmsum tegundum hreiðurstaði sína á þessum eyjum og skildu ungana eftir ósjálfbjarga. Vísindamenn hallast að því, að „Barnið" hafi út- rýmt öllu æti fyrir fuglana og neytt þá til að leita á aðrar slóðir. — WILLIAM SCOBIE Fyrir nokkrum dögum heyrðum við taktföst högg úr næsta garði við okkur í Dar es Salaam í Tanz- aniu. Við eftirgrennslan kom í ljós, að þar voru næturverðir að berja roskinn mann, sem reynt hafði að stela sér nokkrum banön- um af tré framan við húsið. Loks komu lögreglumenn og fluttu manninn á brott. Hann gat gengið þrátt fyrir barsmíðarnar, og þar var hann heppinn. Stundum kem- ur fyrir að þjófar eru barðir til ólífis eða skotnir með bogum og örvum, sem næturverðirnir bera á sér. Markmiðið með slíkum grimmd- arverkum er að refsa eða drepa fólk, sem hefur litlu sem engu að tapa — allar þær þúsundir sem hafa ekki ráð á að greiða fyrir brýnustu nauðþurftir sínar. Marg- ir hafa ekki efni á að inna af hendi hið opinbera verð fyrir ýmsar daglegar nauðsynjar, hvað þá svartamarkaðsverð, sem þarf að greiða fyrir margar vörutegundir, svo sem hrísgrjón, hveiti, matar- olíu og sápu. Ofbeldi er svarað með ofbeldi, því að þjófarnir berja fólk og ógna því með hnífum, sveðjum og byss- um. Ógnir New York-borgar eru barnaleikur miðað við ástandið í Dar es Salaam, þar sem þjófnaður og ofveldisverk eru hvarvetna á næsta leiti. Menn eru rændir ýms- um ómerkilegum hlutum eða nældir niður í jörðina með hníf í gegnum hálsinn, en slík urðu örlög eins vinar mins. Nýlega var mér ógnað með byssu, er ég reyndi að handsama þjóf. Til allrar hamingju var hann nýbúinn áð stela henni og vissi greinilega ekki, hvernig átti að nota hana. Ýmsum hlutum hefur líka verið stolið úr mótorhjólinu mínu, en slíkt eru smámunir einir hér á landi, þar sem varahlutir í ökutæki eru á stöðugri hringrás. Hér aka margir um á Peugeot, og alltaf er verið að stela úr þeim. Framrúður og hjólbarðar hverfa, ef ökutæki er skilið eftir aðgæzlu- laust. Einn dag, þegar maður ætl- aði að setja bílinn sinn í gang, heyrði hann hvorki stunu né hósta. Þegar hann opnaði vélar- húsið komst hann að raun um, að vélin var öll á bak og burt. Mjög erfitt er að fá varahluti í bíla, því að erlendur gjaldeyrir er af skornum skammti. Þegar ein- hver kroppar eitthvað út úr bíln- um hjá manni, svo að hann þarf að kaupa rándýran varahlut á verk- stæði, er bezt að reyna að gleyma því, að hann hafi ef til vill verið ginntur í gildru. Gamli brandar- inn um menn, sem kaupa aftur hluti, sem stolið hefur verið úr bíl- unum þeirra, gæti hæglega verið sannur hér um slóðir. Oft verða efnaðir kaupsýslumenn og spilltir stjórnmála- og embættismenn fyrir barðinu á þjófum. Þrátt fyrir sósíalíska stefnu Nyereres forseta, er kemur fram í lágum launum opinberra starfsmanna, hefur bil- ið stöðugt breikkað milli þeirra og allrar alþýðu manna. Þetta ástand er mörgum Tans- aníumönnum þyrnir í augum, og þeir vitna gjarnan til þess að fyrir fimm árum hafi glæpir og spilling vart þekkzt í landinu. Landsmenn voru stoltir af heiðvirðum emb- ættismönnum sínum og fólk full- yrðir, að þá hafi verið unnt að sofa úti undir berum himni við Ostruflóa, en það er helzta bað- ströndin við Dar es Salaam. Ef einhver reyndi að sofa þar, eins og ástandið er núna, má gera ráð fyrir því að hann yrði rúinn inn að skinni og ef til vill lengra. - ANDREW BUCKOKE Allt í blóma hjá Jessicu KATHERINE: Lítið um „Siðprúða meirihlutann" gefið. Kannski var það öllum fyrir bestu, að bandarísku siðvæð- ingarpostulunum tókst að þagga niður í gamanmyndaflokknum Löðri. Þegar frá líður vill fara að slá nokkuð í skemmtilegheitin í farsa af þessu tagi og fjögur ár með Tate- og Campbell-fjölskyld- unni voru líklega meira en nóg. Jessica eða leikkonan Katherine Helmond er ánægð með að hætt skuli hafa verið við Löður þótt hún hafi verið tilbúin til að koma fram í því fimmta árið í röð. Kath- erine var raunar æf yfir því hvernig þættirnir voru eyðilagðir en nú er hún farin að leika í öðrum myndum og nýtur þess um leið að sjá að stuðningurinn við „Sið- prúða meirihlutann" fer óðum þverrandi. „Þeir tóku það upp hjá sjálfum sér að útrýma allri ósiðsemi í Bandaríkjunum og byrjuðu á sjón- varpinu, sem þeir sögðu, að væri að fara með okkur beina leið til helvítis," sagði Katherine nýlega í blaðaviðtali. „Þeir sendu inn áskoranir, voru með kröfuspjöld og aðrar aðgerðir og réðu loks til sín markaðsráðgjafa sem ráðlagði þeim að setja auglýsendur í þátt- unum á svartan lista. Það er erfitt að berjast gegn kirkjunum í Bandaríkjunum. Auglýsendur drógu sig í hlé og þótt ABC reyndi að finna aðra þá gekk það ekki. McCarthyisminn er greinilega sprelllifandi enn.“ Kathernine Helmond, sem virð- ist veikbyggðari en hún er í raun og veru, er samt mikill aðdáandi bandarískra lifnaðarhátta og lífsspeki og trúir því að þeir muni sigra heiminn. Nú á næstu dögum mun hún hefja leikstjórn á nýrri kvikmynd, og það er maðurinn hennar, sem hefur skrifað hand- ritið. Myndin heitir „The Bank- rupt“ og fjallar um eina hlið á am- eríska draumnum — löngunina til að komast yfir sem mest af gæð- um þessa heims. — DEREK BROWN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.