Morgunblaðið - 08.05.1983, Qupperneq 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983
andrúmsloft
í tímburhúsunum
frá Húseiningnm hf
Það kemur í ljós að gamla sögusögnin
um betra andrúmsloít í timburhúsum er
heilagur sannleikur eí marka má þá sem
hafa byggt sér Siglufjarðarhús frá
Húseiningum h.f.
Viðskiptavinir okkar hafa ekki einungis
hrósað okkur fyrir fallegar teikningar,
efnisgœði og vinnuvöndun, heldur hefur
þeim verið tíðrœtt um andrúmsloftið í
húsunum. Enda er það staðreynd aö
loftið í timburhúsum er töluvert frábrugðið
því sem fólk g að venjast í steinhúsum.
Húseiningar h.í. er tœknilega íullkomin
verksmiðja, sem framleiðir vönduð, hlý
og notaleg íjölskylduhús samkvœmt
óskum viðskiptavina sinna. Lögð er
áhersla á þœgindi og hagrœði
fyrir alla
fjölskyldumeðlimina, þá ekki síst heima-
vinnandi íólk. Húeiningar h.f. kappkosta
að mœta óskum hvers og eins, og verk-
frœðingar okkar og arkitektar eru tilbúnir
með góð ráð og útíœrslur á hugmyndum
þínum og heimaíólks þíns. Húsin frá
Siglufiröi eru miðuð við íslenskar aðstœð-
ur, - þau eru björt, hlý og vinaleg!
B
HUSEININGAR HF
SIGLUFIRÐI
Sendist til Söluskrifstofu Húseinmga hf., Laugavegi 8,
101 Reykjavík.
Vinsamlegast sendið mér stóru teikningabókina frá Siglufirði
mér að kostnaðarlausu. Ég vil gjarnan kynna mér hina
margvíslegu möguleika sem mér standa til boða frá Húseiningum h.f.
Nafn: Heimilisfang:
Póstnr.: Sími:
íslenzkar
smásögur,
3. bindi,
komið út
ÚT ER komid hjá Bókaklúbbi Al-
menna bókafélagsins III. bindi ís-
lenskra smásagna 1847—1974.
Kristján Karlsson er ritstjóri verks-
ins, en sögurnar í þetta bindi hefur
valið Porsteinn Gylfason.
í þessu bindi eru eingöngu sögur
úr samtímanum, þ.e. eftir höfunda
sem gáfu út fyrstu smásögur sínar
á tímabilinu 1940—1974. Formáli
er fyrir bindinu eftir Kristján
Karlsson og er hann niðurlag rit-
gerðar hans um íslenska smá-
sagnagerð, en tvo fyrri hluta rit-
gerðarinnar er að finna í I. og II.
bindi.
Með þessu bindi er lokið úrvali
BAB úr smásögum íslenskra höf-
unda, en von er á a.m.k. tveimur
bindum þýddra smásagna.
Mikil fjölbreytni er í efni þessa
bindis, „og sé það rétt að smá-
sagnaúrval sem þetta séu sagn-
bókmenntir viðkomandi tímabils í
hnotskurn, þá ber þetta þriðja
bindi samtímabókmenntum okkar
fagurt vitni," segir í kynningu á
bókinni í Fréttabréfi bókaklúbbs-
ins.
Þorsteinn Gylfason segir í eftir-
mála um val sitt „að tvö sjónarmið
hafi ráðið við val sagnanna, aðal-
sjónarmið og aukasjónarmið. Að-
alsjónarmiðið hafi verið að setja
saman sem besta og skemmtileg-
asta bók og aukasjónarmiðið að
bókin brygði upp myndum þeirra
tíma er sögurnar voru samdar."
Sögur í þessu III. bindi eru 34
talsins eftir jafnmarga höfunda,
en þeir eru:
Steinn Steinarr, Kristín Geirs-
dóttir, Hannes Sigfússon, Jón
Óskar, Elías Már, Geir Kristjáns-
son, Asta Sigurðardóttir, Stefán
Júlíusson, Einar Kristjánsson,
Líney Jóhannesdóttir, Þórleifur
Bjarnason, Oddný Guðmundsdótt-
ir, Agnar Þórðarson, Kristján
Karlsson, Jóhannes Helgi, Jón
Dan, Jónas Árnason, Björn
Bjarman, Steingrímur Sigurðsson,
Gísli J. Ástþórsson, Ingimar Erl.
Sigurðsson, Guðmundur Frímann,
Rósberg G. Snædal, Jakobína Sig-
urðardóttir, Jökull Jakobsson,
Hannes Pétursson, Indriði G. Þor-
steinsson, Svava Jakobsdóttir,
Matthías Johannessen, Jón frá
Pálmholti, Guðbergur Bergsson,
Vésteinn Lúðvíksson, Dagur Sig-
urðarson, Thor Vilhjálmsson.
íslenskar smásögur III. bindi
eru 466 bls. að stærð og unnar í
Prentsmiðjunni Odda.
(Frétutilkynning)
Konur á Alþingi
á hádegisfundi
Kvenréttindafélags
GESTIR Kvenréttindafélags íslands
i hádegisfundi miðvikudaginn 11.
maí verða hinar níu nýkjörnu konur
i Alþingi og munu þær leitast við að
svara spurningunni hvort þær telji
það breyta einhverju á Alþingi og í
þjóðfélaginu að fjöldi kvenna hefur
nú þrefaldast á löggjafarþinginu.
Fundurinn er opinn félagsmönnum
og öðrum áhugamönnum um jafn-
réttismál.
í fréttatilkynningu frá Kven-
réttindafélaginu er því fagnað að
fjöldi kvenna þrefaldaðist á Al-
þingi í nýafstöðnum Alþingiskosn-
ingum og telur það skref í þá átt
að konur komist til vaxandi áhrifa
í þjóðfélaginu. í tilkynningunni
segir, að það veki sérstaka athygli
að fimm þeirra niu kvenna sem nú
taka sæti á þingi, séu fulltrúar
nýju framboðanna. Eiga nú allir
stjórnmálaflokkar landsins, nema
einn, kvenfulltrúa á Alþingi. „Það
er von LRF að konur muni einnig
setje svip á þá ríkisstjórn er nú
verður mynduð," segir í lok frétta-
tilkynningarinnar.