Morgunblaðið - 08.05.1983, Qupperneq 44
92
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ1983
o 1963 Unlverul Preu Syndlcile
3-iL
r, Xanntu ek.k.i oÁ iokcx gamni r5"
LÍo v>-1
... að firera það
besta úr því sem
þú fékkst í afmæl-
isgjöf frá honum.
TM Rao U.S Pit. Otl -*» rights rwervoö
•1082 Loa AngetM TlmM Syndtcata
Ég sé þig klæjar undan henni, en
er hún ekki annars í lagi?
Með
morgunkaffinu
Hvernig var hægt að láta sér detta
í hug að svona smurostur væri sem
kviksandur!
HÖGNI HREKKVÍSI
.983 -S-IH
McNauffht Synd . Inc
HEILLAÓSKA’
KOR.T
°°© o
„HER EK EITT FyRlFL plGheilir hilpar til.
tiElLlfZ HILPAR PR>V "
Húsavík
Áfram með heilsuvikurnar!
Sigurbergur Sveinsson og Ingi-
björg Gísladóttir skrifa:
„Kæri Velvakandi.
Alltof oft virðast blaðaskrif
spretta af óánægju með ýmsa
hluti. Megum við ekki snúa þessu
við? Svo er mál með vexti að við
hjónin komum fyrir nokkru frá
Húsavík þar sem við vorum á
Heilsuviku, sem þar er haldin á
veturna. Það sem við leituðum að
var ró og friður, slökun frá erli og
amstri hversdagsins. Á Húsavík
var öllum okkar óskum mætt.
Viljum við leyfa okkur að koma á
framfæri þakklæti okkar. Þetta
framtak Húsvíkinganna er þeim
til mikils hróss og hvetjum við þá
til að halda áfram á sömu braut og
landsmenn að notfæra sér þessa
góðu þjónustu næsta vetur.
Það sem okkur gestunum var
gert þessa vikur í Hótel Húsavík,
var bæði margt og gott. Hótelið er
einkar glæsileg bygging og þar var
hreinlega dekrað við okkur þessa
viku, ekki síst af hinum unga hót-
elstjóra, Auði Gunnarsdóttur.
Sóknarpresturinn, sr. Björn H.
Jónsson, gekk með okkur um bæ-
inn og sýndi okkur hann á sérdeil-
is skemmtilegan hátt. Gísli Auð-
unsson, héraðslæknir, var hópnum
innan handar og skoðaði hvern og
einn í öryggisskyni. Sundlaugin
var til reiðu fyrir hópinn með
heitum pottum og gufuböðum. Þá
nutum við þess að fara í nudd hjá
Pálma Pálmasyni, íþróttakennara.
Skil ekki þögn
kirkjunnar
Friðþjófur Þorgeirsson skrifar:
„Velvakandi.
Ég er dálítið ergilegur út af
sjónvarpsþætti, sem var í gær-
kvöldi (þriðjudagskvöld) og heitir
Konubrjóst. Mér finnst það óvið-
unandi, að verur, sem komnar eru
af öpum að langfeðratali, skuli fá
að vaða uppi í sjónvarpinu i hverj-
um þættinum af öðrurti. Ég skil
heldur ekki þessa þögn kirkjunn-
ar, sem hreyfir sig ekki til and-
mæla.
í von um að þetta trúarníð taki
enda þakka ég fyrir birtinguna."
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga
til föstudaga, ef þeir koma þvi ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvf til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér I
dálkunum.
Nú er þessi Heilsuvika ekki
fyrir sjúklinga. Hún er einmitt
fyrir heilbrigt fólk, sem vill nota
frístundirnar til að slaka á, fólk
sem vill kynnast hollustuháttum
og ætlar sér að læra að varðveita
heilsuna, sem er okkur öllum
dýrmætust alls. Og við vorum öll
sammála um að aldrei hefðum við
hvílst jafn vel og þessa daga fyrir
norðan. Ekki hefðum við viljað
skipta á þessari ferð og sólar-
landaferð. Húsavíkurdvölin veitti
okkur einfaldlega miklu meira en
sólarlöndin megna, og kostnaður-
inn lítill, ferðin með öllu kostaði
aðeins 5.900 krónur.
Hver dagur nyrðra leið alltof
hratt að okkur fannst, vikan var
liðin áður en við vissum af. Góð
vinátta hafði skapast innan hóps-
ins og við marga heimamenn, og
fólk hélt heim hresst og kátt í
bragði.
Morgnarnir hófust með því að
mannskapurinn var vakinn með
léttri og ljúfri tónlist, sem hljóm-
aði í hátalarakerfi hússins, en inn
í tónlistina var fléttað leiðbeining-
um um „líkamsteygjur“. Nokkru
síðar var heitt sítrónuvatn borið á
herbergin og það drukkið meðan
farið var í íþróttagallann. í sam-
komusalnum stýrðu þær Védís
Bjarnadóttir og Björg Jónsdóttir
morgunleikfiminni af mikilli
röggsemi, en síðan var fólk mælt
og vegið. Þá kom morgunmaturinn
og þvínæst haldið til sundlaugar.
Sara Klara sknfar:
„Kæri Velvakandi.
Ég vil mótmæla málfari Þor-
geirs Ástvaldssonar, þegar hann
segir í þætti sínum, Þriðjudags-
syrpu: „Jæja, strákar minir, nú er
kominn tími til að kaupa sér
gúmmfskóna fyrir sumarið."
Og ég, hinn mikli gúmmískó-
unnandi og rauðsokkakvendi, vil
Frjáls tími var fram að hádegis-
verði.
Eftir hádegi var hvílst fram að
gönguferð kl. 14, en að henni lok-
inni var létt miðdegiskaffi og eftir
það nudd hjá Pálma Pálmasyni
íþróttakennara. KI. 17 daglega var
frjáls tími og kl. 19 kvöldverður.
Lögð var áhersla á heilsusamlegt
og fitusnautt fæði. Á kvöldin voru
haldnar kvöldvökur sem tókust
hið besta.
Eitt kvöldið áttum við því láni
að fagna að kommast í leikhús
þeirra Húsvíkinga. Og hér komu
heimamenn okkur heldur betur á
óvart. Sýningin var aldeilis frá-
bær og ekki síðri en það besta í
stóru leikhúsunum hér syðra. Karl
og kerling í túlkun þeirra Bjarna
Sigurjónssonar og Herdísar Birg-
isdóttur voru stórbrotnar persón-
ur sem líða okkur seint úr minni.
Að maður tali ekki um myrkra-
höfðingjann sjálfan, sem leik-
stjórinn, Einar Þorbergsson, lék.
Þetta var eftirminnileg kvöld-
stund.
Á Heilsuvikunum hefur verið
lögð áhersla á ýmsa þætti í hverri
viku, stundum á megrun, eða þá
snyrtingu, nú eða þá að hætta að
reykja. Sjálf lögðum við áherslu á
að slaka á og hvílast, láta okkur
líða vel og njóta þess að vera til.
Við munum alveg áreiðanlega
mæta aftur til Húsavfkur að vetri.
Kærar þakkir, Húsvíkingar,
áfram með Heilsuvikurnar.
minna á, að gúmmfskór eru ekkert
frekar fyrir stráka en stelpur.
Stelpur geta gert allt eins vel og
strákar, jafnvel betur, og því til
áréttingar vil ég minna á, að kon-
um á þingi hefur fjölgað um sex.
Og þær eru nú níu alls.
Æ‘li efnahagsvandi þjóðarinn-
ar megi ekki fara að vara sig?
Með kveðju."
Eitt kvöldið áttum við því láni að fagna að kommast í leikhús þeirra
Húsvíkinga. Og hér komu heimamenn okkur heldur betur á óvart. Sýningin
var aldeilis frábær og ekki síðri en það besta í stóru leikhúsunum hér syðra.
Karl og kerling í túlkun þeirra Bjarna Sigurjónssonar og Herdísar Birgisdótt-
ur voru stórbrotnar persónur sem líða okkur seint úr minni.
Stelpur geta gert allt