Morgunblaðið - 19.05.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
Frétt frá skrifstofu forseta íslands:
„1. júní kann að
reynast fslending-
um örlagaríkur“
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
skrifstofu forseta fslands:
„Vegna fréttar í Dagblaðinu-
Vísi í morgun skal það tekið fram,
að forseti fslands hefur ekki sett
þeim stjórnmálaleiðtogum, sem
hingað til hafa fengið umboð til
stjórnarmyndunar ákveðinn frest.
Hins vegar hefur forseti lagt á það
áherslu að stjórnarmyndunarvið-
ræðum verði hraðað sem mest.
Þá hefur forseti frá upphafi lát-
ið í ljós við stjórnmálaleiðtoga
eindregna ósk um að mál verði
tekin að skýrast um hvítasunnu,
þegar hartnær mánuður er liðinn
frá kosingum til Alþingis. Sú ósk
hefur helgast af því að 1. júní nk.
kann að reynast íslendingum ör-
lagaríkur og þungur í skauti þegar
fram í sækir. Einatt er þðrf að
eiga svigrúm þegar vandi steðjar
að, svo að finna megi leiðir sem
reynast þjóðinni farsælar."
Viðrædur a mörg-
um vígstöðvum
VIÐRÆÐUR um stjórnarmyndun
héldu áfram í gær. Svavar Gestsson,
sem hefur hið formlega umboð til
stjórnarmyndunar enn með höndum,
ræddi í gær við fulltrúa Alþýðuflokks
og Bandalags jafnaðarmanna og mun
í dag ræða við fulltrúa Kvennalista.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sagði
í viðtali við Morgunblaðið í gær, að
hún mundi fjalla um efni spurninga
Alþýðubandalagsins í því samtali,
kynna afstöðu Kvennalistans og fá
fram afstöðu Alþýðubandalagsins.
Af hálfu sjálfstæðismanna var
haldið áfram óformlegum könnun-
arviðræðum við fulltrúa Alþýðu-
flokks og Bandalags jafnaðar-
manna. Var fundur haldinn með
þessum aðilum í gærmorgun. Þá
munu einhver samtöl hafa farið
fram eða vera í bígerð milli sjálf-
stæðismanna og framsóknarmanna.
Morgunblaðinu er kunnugt um,
að fulltrúar Alþýðuflokksins gáfu
þau svör við spurningalista Svavars
Gestssonar, að þeir mundu ekki
ganga til spurninga til hans, en
frestun á greiðslu verðbóta 1. júní
nk. væri innanhússmál milli hans
og Sjálfstæðisflokksins. Forsætis-
ráðherra væri tilbúinn með slíkt
frumvarp og hann væri reiðubúinn
til að flytja það, en stuðningur ráð-
herra Alþýðubandalags og sjálf-
stæðismanna lægi fyrir.
✓ Svavar Gestsson sagði í gær-
kvöldi að hann hefði ákveðnar
hugmyndir um stjórnarmynstur, en
hann vildi ekki upplýsa Morgun-
blaðið um hvert það væri.
Föst f flakinu í V2 klukkustund
ALVARLEGT umferðarslys varð á
Miklubraut, skammt vestan
Grensásvegar laust fyrir klukkan
níu í gærmorgun. Liðlega tvítug
kona var flutt alvarlega slösuð í
slysadeild, en hún festist í braki
bifreiðar sinnar, og tók um hálfa
klukkustund að ná henni þaðan.
Tildrög slyssins eru þau, að
konan var á leið austur Miklu-
braut og ók fram úr vélskóflu.
Ökumaður vélskóflunnar missti
stjórn á tæki sínu með þeim af-
leiðingum, að það sveigði til
vinstri og lenti á Volvo-bifreið
konunnar. Drepist mun hafa á
vél vélskólfunnar og fór vökvaafl
af stýri tækisins og fékk ök-
umaður ekki við neitt ráðið.
Vélskóflan ruddi bifreiðinni upp
á umferðareyju með þeim afleið-
ingum að bifreiðin valt og endaði
vélskóflan ofan á Volvoinum.
Lögregla og læknar í neyðar-
bifreið komu fljótlega á vett-
vang. Koma varð bifreið kon-
unnar á réttan kjöl og síðan
skera þakið af til þess að losa
konuna úr brakinu. Það tók um
hálfa klukkustund. Konan er al-
varlega slösuð en ekki talin í
lífshættu.
Geimskutlan yfir Reykjavík
Tilraunageimskutlan Enterprise,
sem er á baki Boeing-747-burðar-
þotu, mun fljúga hring yfir Reykja-
vík þegar hún kemur hingað til
lands í dag á leið sinni til flugsýn-
ingarinnar í París. Aætlað er að Ent-
erprise verði yfir Reykjavík klukkan
20 í kvöld, en veður og vindar geta
haft áhrif á komutímann, ýmist flýtt
honum eða seinkað.
Burðarþotan mun fljúga einn
hring yfir Reykjavík áður en lent
verður í Keflavík, en þar verða
farkostirnir almenningi til sýnis,
þó aðeins úr fjarlægð því engum
verður hleypt um borð.
Vegna þessa verður hlið tvö
(Keflavíkurmegin) opið frá klukk-
an 19—24 í kvöld og frá klukkan
6—9 í fyrramálið. Enterprise
verður lagt á stæði við stóra
flugskýlið nálægt vatnsturninum.
Aætlað er að Enterprise verði í
600 metra eða 2.000 feta hæð í
hringfluginu yfir Reykjavík. Eftir
næturvist í Keflavík verður áfram
haldið til Parísar. Hugsanlegt er
að Enterprise hafi einnig viðkomu
á Keflavíkurflugvelli á leiðinni
vestur um haf viku af júní.
Deilt um samkomulag Reykjavíkur
og ríkisins um nýskipan fræðslumála
ÞANN 30. marz síðastliðinn var undirritað samkomulag milli borgaryfirvalda og menntamálaráðuneytisins um
nýskipan fræðslumála í Reykjavík. Þær breytingar eru helstar samkvæmt samkomulaginu, að staða fræðslu-
stjórans í Reykjavík verður hin sama og staða fræðslustjóra annars staðar á landinu, og fær borgin því forræði
sinna mála, eins og gert er ráð fyrir í lögum.
Fræðslusskrifstofan í Reykjavík skal lögð niður, en í hennar stað komi fræðsluskrifstofa Reykjavíkurum-
dæmis. Þá skal komið á fót skólaskrifstofu Reykjavíkur, sem fara á með rekstrarmálefni grunnskóla, sem ekki
falla undir menntamálaráðuneytið eða fræðslustjóra.
Nú hefur það gerst, að menntamálaráðherra, Ingvar Gíslason segir í bréfí til Davíðs Oddssonar, að hann geti
ekki viðurkennt hið nýja samkomulag, og gagnrýnir þá ríkisstarfsmenn sem stóðu að því. Orðsending Ingvars
fer hér á eftir í heild sinni, svo og svar Davíðs Oddssonar og yfírlýsing Ragnars Júlíussonar, Markúsar Arnar
Antonssonar og Braga Jósepssonar.
Ingvar Gíslason
menntamálaráðherra:
Efni samkomu-
lagsins verður
ekki samþykkt
Á SÍÐASTLIÐNUM vetri var
settur á fót sérstakur sam-
starfshópur til þess að fjalla um
ýmis samskiptamál mennta-
málaráðuneytisins og
Reykjavíkurborgar á sviði
fræðslu- og skólamála. Ég hef að
undanförnu haft til athugunar
framkomnar hugmyndir starfs-
hópsins um tiltekin atriði í þess-
um samskiptamálum.
Ég leyfi mér að tilkynna borg-
arstjóra, að af minni hálfu verða
samkomulagsdrög þessi ekki
samþykkt, hvorki að efni né
formi.
Ber þess fyrst að geta, að slík-
ar hugmyndir um „samkomu-
lag“, þótt undirritaðar yrðu,
hafa ekki raunhæft gildi án
breytinga á grunnskólalögum.
Af þeirri ástæðu einni ber því að
hafna þessum hugmyndum. Þær
stríða gegn lögum.
Þá hlýt ég að tilkynna borgar-
stjóra að tillögur þessar eru efn-
islega óaðgengilegar eins og þær
liggja fyrir. Er það síst veiga-
minni ástæða fyrir því að ég
hafna þessum hugmyndum.
Auk þess vil ég taka fram að
samstarfshópurinn hefur aðeins
fjallað um mjög afmörkuð svið
og fá atriði hinna víðtæku sam-
skipta borgarinnar og mennta-
málaráðuneytisins varðandi
skóla- og fræðslumál. Sakna ég
þess að starfshópurinn hefur
nánast ekkert leitt hugann að
ýmsum vandamálum og úrlausn-
arefnum, sem ég taldi miklu
skipta, þegar stofnað var til
þessarar nefndarskipunar. Nefni
ég m.a. nauðsyn þess að gerð
verði samræmd úttekt á skóla-
húsnæði í borginni, hvernig það
nýtist nú og hvort ekki sé unnt
að nýta það á hagkvæmari hátt
með heildarhagsmuni skólakerf-
isins í huga. Athuga ber hús-
næðisþörf ýmissa skóla sérstak-
lega og jafnvel hvort ekki þurfi
að breyta skipulagsgrundvelli
vissra skóla, og nefni ég þar
einkum Myndlista- og handíð-
askólann og Tónlistarskólann.
Ég harma það hversu gagn-
rýnislaust virðist af sumra hálfu
þrýst á um breytingar á
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur
og án þess að leitað sé samráða
við þá, sem þetta mál varðar
með einum eða öðrum hætti, s.s.
samtök kennara og skólastjóra
og án þess að gengið hafi verið
frá samkomulagi milli aðila
málsins á viðhlítandi hátt.
Það er einlæg von mín að
borgarstjóri athugi nánar fyrir-
liggjandi tillögur áður en hann
leggur þær fyrir borgarstjórn til
lokameðferðar, enda augljóst að
einhliða samþykkt borgarstjórn-
ar breytir ekki skipulagsgrund-
velli fræðsluskrifstofunnar. Til
þess þarf fyrst og fremst laga-
breytingu, þ.e. meirihlutavilja
Alþingis.
Virðingarfyllst,
Ingvar Gíslason,
menntamálaráðherra.
Markús Örn Antons-
son, Ragnar Júlíusson
og Bragi Jósepsson
Ráðherra hleyp-
ur frá fyrri
afstöðu sinni
VIÐ fulltrúar Reykjavíkur-
borgar, er tókum þátt í viðræð-
um við fulltrúa menntamála-
ráðuneytisins um fræðslumál í
Reykjavík, og undirrituðum
ásamt þeim tillögu að samkomu-
lagi um yfirstjórn þeirra mála,
viljum taka eftirfarandi fram
vegna orðsendingar mennta-
málaráðherra til borgarstjóra og
fréttatilkynningar, er send var
út af hálfu ráðherra:
Drög að þessum tillögum voru
alllengi til umfjöllunar í
viðræðunefndinni, m.a. vegna
þess að fulltrúar ráðuneytisins
óskuðu þess að á áður ákveðnum
fundum til þess að bera efnisat-
riði tillagnanna undir ráðherra
yrði frestað. Þá fyrst, er álit
hans lá fyrir, töldu þeir sér fært
að halda viðræðunum áfram.
Verður ekki önnur ályktun af því
dregin, en að ráðherra hafi fall-
ist á þær hugmyndir er honum
voru kynntar. Þá liggur einnig
fyrir, að fræðslustjóra voru
kynntar umræddar tillögur
strax á frumstigi.
Meðferð menntamálaráðherra
á þessu máli er með þeim end-
emum, að hliðstæða mun vart
finnast enda hafa borgaryfirvöld
ekki átt öðru að venjast en að
starfsmenn ráðuneyta hafi
hingað til yfirleitt mátt treysta
því að ráðherrar stæðu við af-
stöðu sína en hlypu ekki frá
henni með þeim hætti sem
menntamálaráðherra hefur nú
gert.
Davíð Oddsson,
borgarstjóri:
Ráðherra var
kynnt efni sam-
komulagsins
„AFSTAÐA sú sem fram kemur
í bréfi menntamálaráðherra
hlýtur að sæta mikilli undrun.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar
annars vegar og fulltrúar
þriggja manna samninganefnd-
ar sem menntamálaráðherra
skipaði hins vegar, skrifuðu und-
ir samkomulag og mér er það
fullkunnugt, að samninganefnd-
in skrifaði ekki undir fyrr en
hún hafði kynnt sér viðhorf
ráðherrans," sagði Davíð
Oddsson, borgarstjóri, í samtali
við Mbl. vegna orðsendingar
Ingvars Gíslasonar, mennta-
málaráðherra.
„Það er ekki annað hægt en að
líta á þessa orðsendingu ráð-
herrans til mín sem strangan
áfellisdóm yfir þessum starfs-
mönnum ráðuneytisins. Hann
gerir þá með öllu ómerka og gef-
ur til kynna að þeir hafi ætlað að
hrinda lögleysu í framkvæmd,
sem auðvitað er fjarri lagi. Hér
er einvörðungu verið að koma
málum í það horf sem þau eru
annars staðar á landinu og lengi
hlýtur að hafa staðið til í raun.
Ríkisstarfsmaður í menntamála-
ráðuneytinu — deildarstjóri,—
hefur farið með stjórn mörg
hundruð borgarstarfsmanna.
Það segir sig sjálft að slfkt getur
ekki gengið.
Það er auðvitað ljóst að borgin
hefur forræði í þessu máli. Þó
töldum við eðlilegt, til þess að
halda uppi góðum samskiptum
við menntamálaráðuneytið, að
um þessa breytingu yrði samið
og höfðum í höndunum undirrit-
að samkomulag af hálfu ráðu-
neytisins, sem við vissum að
hafði verið kynnt ráðherra. Svo
skyndilega kemur ráðherrann
upp með eitthvert plagg sem
virkar sem pólitískt plagg úr
annarlegum herbúðum og í raun
er óskiljanlegt. Reykjavíkurborg
hlýtur eftir sem áður að halda
sínu striki," sagði Davíð
Oddsson.