Morgunblaðið - 19.05.1983, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 17
Heiti Tegund Umboðsaðili
Conservado 70 Silan J. Þorláksson og Norðmann
Conservado 30 Siloxan J. Þorláksson og Norðmann
Conservado 5 Silikon J. Þorláksson og Norðmann
Drisil 78 Silikon Kísill h/f
Hempel-beton silikone Silikon Slippfélagið h/f
Dynasilan Silan
Aquaseal 66 Silikon 01 ís
Solignum Silikon Kristján ó. Skagfjörð
Wacker 290 L Silikon Ólafur Kr. Sigurðsson
Everdry A Silikon Efnaverksmiðjan Atlas h/f
Everdry standard Efnaverksmiðjan Atlas h/f
Everdry hydrox Silikon Efnaverksmiðjan Atlas h/f
Ráðgjöf í dag
Rannsóknir á þessu sviði eru
hvergi nærri tæmandi og aðgerðir,
sem ekki hefur verið lýst hér, geta
komið til greina. Miðað við fyrir-
liggjandi þekkingu má þó gefa eft-
irfarandi ráð:
1. Loka láréttum flötum veggja.
Unnt er að nota t.d. hatta, as-
faltborna þéttidúka eða þéttar
teygjanlegar málningar.
2. Ómálaðir lítt skemmdir veggir.
Silikon eða silanbera (gæta að
hvaða tegundir henta best).
3. Litlar skemmdir á máluðum
veggjum.
a) Silikon/silan úða.
b) Mála með opnum málning-
um (venjulegar plast).
c) Aðgerð a)+b) Gæta að teg-
undum varðandi viðloðun
málningar.
4. Talsverðar skemmdir á veggj-
um.
a) Loka víðum sprungum (ýms-
ar aðferðir), síðan sama og í 3.
b) Loftræst klæðning (athuga
þéttleika málningar).
c) Trefjaglersbent múr-ein-
angrunarkerfi. Slík kerfi má
einnig útfæra með loftræstingu
og er þá sama og valkostur b).
5. Miklar skemmdir á veggjum.
‘iama og valkostir b) og c) í 4.
Lokaorð
Alkalískemmdir eiga ekki að
geta komið fram í steypu sem nú
er framleidd, ef salt er skolað úr
virkum sjávarefnum eins og krafa
er um í byggingarreglugerð frá
1979. Einnig er frostþol steypu í
Reykjavík betra nú en fyrir 1979
þar eð steypuframleiðendur gæta
betur að því að hafa steypuna vel
loftblendna, en loftblendi var oft í
lágmarki fram til þess tíma.
Aftur á móti ber nú í vaxandi
mæli á ryðskemmdum, eftir að
múrhúðun húsa að utan er minna
notuð, þar sem bendijárn eru sett
of nálægt yfirborði steypu. Er
ástæða til að hvetja menn sérstak-
lega til að vanda járnalögn og
halda kröfur um lágmarks fjar-
lægð járna frá yfirborði steypu.
f grein sem þessari er aðeins
stiklað á stóru, en þeim sem vilja
afla sér frekari upplýsinga skal
bent á rit og tækniblöð Rann-
sóknastofnunar byggingariðnað-
arins.
Ilöfundur greinarinnar, Hákon
Ólafsson, er yfirrerkfræðingur hjá
Rannsóknasíofnun byggingariðn-
aðarins.
Mynd 1 - áhrif raka og hitastigs á þenslur
múrstrendinga
Þegar allt þetta magn er haft í
huga, er ekki að undra, þótt af og
til geti eitthvað farið úrskeiðis.
Þannig hafa fundist ýmsir að-
skotahlutir i blokkunum, og bar
meira á því fyrr á árum. Flökun-
arhnífar voru ekki óalgengir og
einnig kringlótt ál-númer, sem
notuð voru á fyrstu árum akk-
orðsins. Bréf og orðsendingar frá
einmana frystihúsameyjum
fundust stundum, þegar lok voru
tekin af íslenzkum blokkaröskj-
um. Bein og ormar hafa samt
verið versti óvinur blokkarinnar
frá upphafi. Islendingum hefir
tekizt betur en nokkrum öðrum
að halda þeim ófögnuði frá því
að lenda í sínum blokkum.
Þótt blokkin sé fyrir löngu
orðin mikilvægasta útflutn-
ingsvara þjóðarinnar, hefir hún
verið að mestu leyti hundsuð af
landsmönnum. Fyrirrennurum
hennar, saltfiskinum og síldinni,
var sýnd ýmis virðing. Flattur
þorskur var eitt sinn í fána
landsins. Um síldina hefir verið
ort og sungið, og málverk máluð
af söltun hennar. Viðurkennt
skal það, að fiskblokkin myndi
ekki fara vel í fána þjóðarinnar
og hún yrði ekki gott verkefni
fyrir listmálara. En ef höfð eru í
huga ýmis opinber höggmynda-
verk á almannafæri, held ég, að
fiskblokkin myndi sóma sér vel
sem höggmynd á einhverju torg-
inu.
fslenzk orðabók Menningar-
sjóðs skilgreinir orðið blokk á
eftirfarandi hátt: „E-ð samfast,
samhangandi: (skrif)pappírs-
blokk, húsablokk; samsteypa,
samtök: hernaðarblokk, ríkja-
blokk.“ Ekki eitt einasta orð um
fiskblokk.
Eflaust myndu hernaðar-
blokkir og ríkjablokkir komast
af án fiskblokkanna. En ég er
hræddur um, að erfitt yrði að
kaupa skrifblokkir og byggja
húsablokkir á íslandi, ef fisk-
blokkin væri ekki til.
Til leigu er í húsinu viö Hverfisgötu 105 u.þ.b. 350 fm verslunar-
húsnæöi á götuhæö meöfram Hverfisgötu og jafnstórt rými á
jaröhæö, er nýtist sem verslunar- eöa geymsluhúsnæöi. Leigist í
einu lagi eöa mörgum hlutum eftir samkomulagi. Tilbúiö til afhend-
ingar strax. Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofunni.
6dm
ryövar
óbyrg
Peugeot bjóða nú fyrstir allra á íslandi 6 ára ryðvarnar-
ábyrgð á allar gerðir bíla sem þeir framleiða. Til að hindra
ryðmyndun þá fara bílarnir í gegnum 10 þrepa meðferð á
mismunandi framleiðslustigum
Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum, sem gerir bílana ákjósan-
lega í akstri á vondum vegum.
Bílarnir eru bæði framhjóla- og afturhjóladrifnir.
Frönsk smekkvísi hvar sem litið er á bílana.
HAFRAFELL
VAGNHÖFÐA7o 85-2-11