Morgunblaðið - 19.05.1983, Page 21

Morgunblaðið - 19.05.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983 21 Tvennir tónleikar í Nýlistasafninu Efnt verður til tónleika f Nýlista- safninu annað kvöld og fóstudags- kvöld. Á morgun verður boðið upp á 5 atriða dagskrá. Þar mun Þorvar Haf- steinsson (úr Jonee Jonee) m.a. koma fram í fyrsta sinn eftir langt hlé. Þorvar hefur í vetur dvalist í New York við listnám og ætlar að bjóða upp á myndbandsgerning. Þá kem- ur dúettinn Finnbogi og Kommi fram, auk hljómsveitanna OXZMá og Jóa á hakanum. Loks er að nefna Guðlaug Óttarsson úr Þey, en hann hefur fengið nokkra menn til liðs við sig af þessu sérstaka tilefni. Á föstudagskvöldið kemur fram flokkur, sem nefnir sig Sem inn- fæddir. Er hann undir stjórn Ein- ars Pálssonar, sem leikið hefur með hljómsveitinni Haugur. Þá kemur hljómsveitin Svarthvítur draumur fram. Loks er að nefna sólóatriði Sigtryggs Baldurssonar úr Þey, auk þess sem Didda flytur ljóð við tón- list þeirra bræðra Árna og Þórarins úr Vonbrigðum. f tengslum við þessar tónlistar- uppákomur verða síðan tónleikar David Thomas, söngvara Pere Ubu, í Stúdentaleikhúsinu (Tjarnarbíói) á þriðjudag. Við það tækifæri kem- ur Þorsteinn Magnússon, fyrrum meðlimur Þeys, einnig fram. Verð aðgöngumiða er kr. 70 á hvort kvöld í Nýlistasafninu, en kr. 150 á tónleika David Thomas. Þjóðhátíðardagur Norðmanna var á mánudaginn, 17. maí. f tilefni dagsins gekkst Normanslaget fyrir skrúðgöngu við Tjörnina. MorgnnbUAii/KÖE. ARKITEKTINN-UMHVERFn) DGKORRUGALAL Arkitektúr er starfsgrein sem gerðar eru miklar kröfur til. Af almenningi, umhverfinu og arkitektunum sjálfum. Enda skiptir miklu að þeir vinni störf sin af smekkvísi og vandvirkni. Hér segir frá einum slíkum. Hann hafði það verkefni að hanna nýtt hús i gömlu hverfi. Það getur verið erfitt svo vel fari. Að rata hinn gullna meðalveg milli gamla og nýja tímans. En það tókst. Fallega formað hús,— fallegt, traust þak og fallegar vegg- klæðningar. Allt í fallegu litasamræmi. Þakið var úr Korrugal áli og veggklæðningar líka. Hér náðist frábær árangur. Enda er Korrugal-ál frábært efni og varanleg lausn á þök sem veggi, jafnt við nýbyggingu sem við endurnýjun. Einföld uppsetning og fjölbreytt úrval aukahluta til nota við mismunandi aðstæður. Það er sama hvort þú hugsar um uppsetningu útlit eða endingu. Allt mælir með Korrugal álklæðningunni. TÖGGURHF. BYGGINGAVÖRUDEILD Bfldshöfða 16 Sími 81530

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.