Morgunblaðið - 19.05.1983, Page 48
Benð 1 BONDEX i;:!
á viðinn ; í«
mátnmgl, §§
jreigpiiitfritafrfó
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1983
^^^skriftar-
síminn er 830 33
16 ára ók á
5 bfla og
endaði á
húsvegg
SEXTÁN ára gamall piltur stal í
gærmorgun bflaleigubifreið og olli
stjórtjóni. Hann skildi eftir sig stór-
skemmdar bifreiðir og endaði öku-
för sína á húsvegg.
Pilturinn ók á tvær bifreiðir við
Vesturberg og stórskemmdi þær,
Peugot og Mitsubishi. Hann hélt
áfram för sinni og við Asparfell 6k
pilturinn á þrjár bifreiðar; Ford,
Chevrolet og Peugot og skemmdi
mikið. Ekki lét piltur það hindra
för sína. Dauðadrukkinn hélt
hann áfram för sinni og endaði á
húsvegg í Vesturbergi.
Pilturinn var handtekinn. Ljóst
þykir að tjónið sem hann olli nem-
ur jafnvel hundruðum þúsunda
króna. Pilturinn hefur áður gert
sig sekan um að stela bifreiðum,
þó hann hafi ekki ökuréttindi.
Slæm staða
fiskvinnslu
og útgerðar
MIKIÐ ber á milli Þjóðhagsstofnunar
annars vegar og fulltrúa fiskverkunar
og útgerðar hins vegar hvað varðar
afkomu flskverkunar og útgerðar.
Þjóðhagsstofnun telur útgerð nú
rekna með 8,5% meðaltals tapi, fryst-
ingu á núlli og saltflskverkun með
3,2% halla. Fulltrúar salflskverkunar-
innar telja greinina rekna með 18 til
20% tapi, fulltrúar frystingarinnar
telja hana rekna með l'/>% tapi og
fulltrúar útgerðarinnar telja hana
rekna með 15 til 20% tapi.
Það, sem helzt veldur þessum
ágreiningi er það, að útreikningar
Þjóðhagsstofnunar byggjast á afla-
brögðum síðasta árs og taka ekki til
nýjustu þátta I rekstri atvinnu-
greinanna. Nýleg verðlækkun á
karfaafurðum í Bandarikjunum
hefur ekki verið tekin inn f afícomu-
dæmi frystingarinnar. Hvað salt-
fiskverkun hefur ekki verið tekið
tillit veránandi aflasamsetningar
og kostnaðs við ormahreinsun. Þá
er í reikningum Þjóðhagsstofnunar
gert ráð fyrir 132 milljóna króna
greiðslu úr saltfiskdeild verðjöfn-
unarsjóðs, en í þeirri deild eru nú
aðeins um 70 milljónir króna. Hvað
varðar útgerðina hefur ekki verið
tekið tillit til aflarýrnunar á þessu
ári og afkoma loðnubáta er ekki
reiknuð inn í dæmið.
Sjá nánar á blaðsíðu 14.
/ '
Björn Stefánsson, starfsmaður kaupfélagsins á Reyðarfirði, á áburðarstæðunni.
MdtpibliM/ RAX.
Áburdur hledst upp á Reyðarfirði
VEGNA þungatakmarkana á vegum á Austfjörðum hefur mikið af áburði,
um 4.000 lestir, hlaðizt upp á plani Kaupfélagsins á Reyðarfirði, en
mestum hluta áburðar fyrir Austflrðinga er skipað upp á Reyðarfirði.
Víðast hvar á vegum á Austfjörðum eru þungatakmarkanir miðaðar við 5
lesta öxulþunga.
Vegna þessa eru nú um 20 tegundir af áburði í tveggja mannhæða
háum stæðum á plani kaupfélagsins. Að sögn Björns Stefánssonar,
starfsmanns kaupfélagsins, er þetta óheppilegt, þar sem planið er
mjög nálægt sjó. Því sækir sjófuglinn í pokana og á það til að gera
gat á þá. Komist svo bleyta í götótta pokana, er hætt við að áburður-
inn kekkist. Taldi Björn, að næstu tvær til þrjár vikurnar myndu
bændur sjálfir sækja áburðinn.
Spumingalistinn:
Bíðum enn eftir svörum
Alþýðubandalagsins
— sagði Geir Hallgrímsson í gærkvöldi
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ hefur enn
ekki afhent Sjálfstæðisflokknum
svör við spurningum, sem Svavar
Gestsson lagði fyrir forystumenn
annarra flokka í fyrradag, en þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins tók þá
afstöðu þegar á þriðjudag, að fyrst
yrði Aiþýðubandalagið að veita svör
við eigin spurningum áður en frekari
afstaða yrði tekin til viðræðna við
flokkinn.
„Við bíðum enn eftir svörum Al-
þýðubandalagsins við spurningum
þess,“ sagði Geir Hallgrímsson í
gærkvöldi. Svavar Gestsson sagði
í samtali við Morgunblaðið í
Framfærsluvísital-
an hækkar um 23%
FRAMFÆRSLUVÍSITALAN mun hækka um liðlega 23% 1. júní nk., eða
nokkru meira en sérfræðingar Þjóðhagsstofnunar hafa spáð, samkvæmt
þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér. Þeirra spá hefur gengið út
frá um 20% hækkun.
Hækkun verðbótavísitölunnar
verður væntanlega á bilinu
21—22%, komi ekki til neinna
efnahagsráðstafana af hálfu ríkis-
valdsins, sem hefði í för með sér
að almenn laun í landinu myndu
hækka um þá hundraðstölu.
Framfærsluvísitalan hefur á
síðustu tólf mánuðum hækkað um
liðlega 86%, en sé hækkun fram-
færsluvísitölunnar nú um 23%
framreiknuð næstu tólf mánuði og
verðbólguhraðinn mældur sam-
kvæmt því, kemur út um 129%
verðbólga, sem er sú mesta frá
upphafi.
Þess má geta, að hækkun láns-
kjaravísitölu sl. tólf mánuði er lið-
lega 75,6%, eða úr 345 stigum í 606
stig. Hækkun lánskjaravísitölu
milli mánaðanna apríl og maí var
6,5%. Ef sú hækkun er framreikn-
uð næstu tólf mánuði, kemur út
tæplega 113% hækkun.
Hækkun vísitölu byggingar-
kostnaðar tímabilið apríl 1982 til
apríl 1983 var um 74,8%, eða 1.015
stig í 1.774 stig. Hækkun vísitölu
byggingarkostnaðar á milli tíma-
bilanna janúar til apríl sl. var um
19,7% og sé sú hækkun framreikn-
uð næstu tólf mánuði, kemur út
liðlega 105,3% hækkun.
gærkvöldi, að hann hefði átt mjög
árangursríkar og ánægjulegar við-
ræður í gær og að hann væri bú-
inn að fá svör frá mörgum, ,A1-
þýðuflokki og Bandalagi jafnað-
armanna og Geir Hallgrímsson og
Steingrímur Hermannsson hefðu
svarað flestum spurningum strax.
Er Morgunblaðið bar þessa
staðhæfingu formanns Alþýðu-
bandalagsins undir Geir Hall-
grímsson, sagði hann: „í samtali
því, er við Svavar Gestsson áttum
í fyrradag, kynnti hann mér
spurningalista í 20 liðum með yf-
irskriftinni: Könnunarviðræður.
Við töluðum lauslega um þennan
spurningalista. Ég gat um það, að
hann ætti að vita hver afstaða
okkar væri í meginatriðum skv.
málflutningi okkar á þingi og I
kosningabaráttunni og nefndi
lauslega ýmis dæmi þar að lútandi
úr þessu fáheyrða krossaprófi al-
þýðubandalagsmanna, en tók svo
skýrt fram, að það væri hans og
Alþýðubandalagsins að svara eig-
in spurningum og gera grein fyrir
stefnu sinni og þeim málefna-
grundvelli, sem Alþýðubandalagið
vildi leggja fyrir í stjórnarmynd-
unarviðræðum.“
Svavar Gestsson sagði í gær-
kvöldi, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði ekki með formlegum hætti
óskað eftir svörum sínum við þess-
um spurningum. Um það sagði
Geir Hallgrímsson í gærkvöldi:
„Eftir þingflokksfund okkar
sjálfstæðismanna átti ég símtal
við Svavar Gestsson og tjáði hon-
um, að Sjálfstæðisflokkurinn ætl-
aðist til þess að hann í nafni Al-
þýðubandalagsins svaraði eigin
spurningum sundurliðað skv.
spurningalista og fyrr teldi þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins ekki
ástæðu til að svara honum frek-
Neyðarsendir
hóf sendingar
FLUGVÉL sem flaug yfir suður-
ströndina í gær heyrði I neyðar-
sendi. Það var upp úr klukkan 16
og var flugvél flugmálastjórnar
send til þess að mæla út staðsetn-
ingu sendisins. Virtist sem send-
ingarnar kæmu frá Grindavík og á
tíunda tímanum í gærkvöldi fóru
starfsmenn Landhelgisgæslunnar
til þess að mæla út hvaðan send-
ingarnar ættu uppruna sinn. í Ijós
kom, að neyðarsendir um borð í
björgunarbáti I Hrungni GK hafði
hafið neyðarsendingar af sjálfs-
dáðum.