Morgunblaðið - 27.05.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983
Æskufólk
á Æsku-
skemmtun
ÆSKAN bauð áskrifendum
og velunnurum blaðsins ný-
lega á skemmtun í Templ-
arahöllinni í Reykjavík. Til-
efnið var útgáfa tveggja
fyrstu bókanna í bóka-
klúbbi fyrir áskrifendur,
Kára litla og Lappa eftir
Stefán Júlíusson, með
myndskreytingum eftir
Halldór Pétursson, og Söru
eftir sænska rithöfundinn
Kerstin Thorvall.
Stefán las kafla úr bók sinni.
Það leýndi sér ekki á athygli
barnanna að þessi sígilda saga
á ekki síður hljómgrunn meðal
þeirra nú en hjá þeim sem
kynntust henni fyrir 45 árum.
Það var árið 1938 sem Æskan
gaf bókina fyrst út en þetta er
7. útgáfa hennar. Sagt var frá
bókinni um telpuna Sðru sem
einnig hefur verið gefin út á
öðrum Norðurlöndum og notið
vinsælda. Hún höfðar einkum
til barna á aldrinum 3—9 ára
— og fullorðinna!
Hljómsveitin DRON
skemmti en hún er skipuð
unglingum á aldrinum 15 til 17
ára. DRON er skammstöfum á
Danshljómsveit Reykjavíkur
og nágrennis — eins og allir
mega skilja! Áheyrendur voru
greinilega vel með á nótunum.
Því er þó ekki að leyna að þeir
yngstu áttu til að grípa fyrir
eyrun.
Spennan var í algleymingi
þegar spilað var bingó — en
vinningar voru nýju bækurnar
og útgáfubækur Æskunnar á
síðasta ári.
Æskan hyggst efna til slíkra
skemmtana víða um landið í
haust.
Þess má geta að Æskan hef-
ur breytt nokkuð um svip í síð-
ustu blöðum. M.a. hefur litsíð-
um verið fjölgað úr fjórum í
tólf. Það eru því ekki aðeins
litmyndir í teiknimyndasögun-
um um Bjössa bollu heldur
birtast Lína langsokkur, Sara
Klara o.fl. o.fl. í litskrúði.
Sundlaugin á Stödvarfirði.
Ný sundlaug senn í
notkun á Stöðvarfiröi
Egilsstaðir:
Austurlands-
mót í bridge
Kgilsstoðum, 22. maí.
í KVÖLD lauk hér í Valaskjálf á
Egilsstöðum Austurlandsmóti í
bridge. Alls tóku 17 sveitir þátt í
mótinu víðs vegar af Austurlandi
eða allt frá Vopnafirði suður til
Hafnar í Hornafirði. Það var sveit
Þorbjörns Bergsveinssonar, Egils-
stöðum, sem bar sigur úr býtum með
44 stig í úrslitakeppninni, en sveit-
ina skipa auk Þorbjörns, Óli Metús-
alemsson, Þórarinn Hallgrímsson og
Steinþór Magnússon.
Annað sæti hreppti sveit Sigur-
þórs Sigurðssonar, Egilsstöðum,
og hið þriðja sveit Aðalsteins
Jónssonar, Eskifirði.
Á föstudag og í gær var keppt
til undanúrslita, en fyrrnefndar
sigursveitir kepptu til úrslita í
dag, auk sveitar Pálma Krist-
mannssonar, Egilsstöðum.
Verðlaun voru að vanda hin
veglegustu, farandbikar fyrir sig-
ur í einmenningskeppni og sveit-
akeppni, auk áletraðra skjalda úr
íslenskum steinum, er Álfasteinn
sf. á Borgarfirði eystri hefur unn-
ið.
Bridgeféiag Fljótdalshéraðs
annaðist mót þetta í samráði við
Bridgesamband Austurlands.
Keppnisstjóri var Björn Jónsson,
Reyðarfirði. Formaður Bridgefé-
lags Fljótdalshéraðs er Kolbeinn
Arason, en formaður Bridgesam-
bands Austurlands er Björn Páls-
son, Egilsstöðum.
— Ólafur
Tveir kunnir austfirzkir iðnaðarmenn, Bogi Ragnarsson, pfpulagningameist-
ari, og Ármann Jóhannsson, rafverktaki. Þeir eru að Ijúka vinnu sinni við
þetta mannvirki og gleraugun eru komin á kunnuglegan stað.
Morginiblaðió/Steinar.
Stöðvarfírói, 19. maí.
NÚ LÍÐUR óðum að því að
ný sundlaug verði tekin í
notkun á Stöðvarfirði, en
bygging hennar hófst fyrir
2'/2 ári.
Sundlaugin, sem er 8x16
metra útisundlaug, er hituð
upp með rafmagni, en sérstök
ábreiða verður notuð til að
breiða yfir hana þegar hún er
ekki í notkun til orkusparnað-
ar.
Vinna við bygginguna er
nánast öll unnin af heima-
mönnum. Arkitekt er Maggi
Jónsson, en verkfræðivinnu
annaðist verkfræðistofan
Hönnun hf.
— Steinar Frá bridge-móti Austurlands f Valaskjálf um hvftaaunnuhelgina.