Morgunblaðið - 27.05.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1983
23
Gerpla með
sumarskóla
SUMARSKÓLI íþróttafélagsins Gerplu verður starfræktur fyrsta sinn nú í
sumar. í íþróttahúsi félagsins að Skemmuvegi 6 er aðstaða fyrir margskonar
íþróttir, ásamt gufubaði og ljósum. Skólinn verður starfræktur í námskeiðs-
formi og er hann opinn öllum alls staðar af landinu. Hópar sem koma til með
að sækja námskeið utan af landi munu fá gistingu í skólahúsnæði.
Námskeiðin hefjast 30. maí nk.
og má þar fyrst telja 5 daga nám-
skeið fyrir börn á aldrinum 8—12
ára. Þessi barnanámskeið standa
yfir frá mánudegi til föstudags frá
kl. 10—15. Aðaláhersla verður
lögð á grunnþjálfun í fimleikum,
sem að sjálfsögðu er góður grunn-
ur fyrir allar aðrar íþróttir. Æft
verður í fimleikasalnum alla dag-
ana en þar fyrir utan verður farið
í gönguferðir, siglingar, trimmað
úti og síðasta daginn farið í
Þrastaskóg. Þá mun þjálfari
kanna líkamsbyggingu þátttak-
enda, mæla styrk og liðleika,
leiðbeina um mataræði og gefa
foreldrum umsögn að námskeiði
loknu, s.s. um val á íþróttagrein
við hæfi. í hádeginu fá börnin
hressingu. Markmið námskeið-
anna er að börnin kynnist íþrótta-
að af landinu. Það fer fram í
Gerpluhúsi og er innritun hafin.
Að loknu þjálfaranámskeiðinu eða
þann 6.6.—10.6. verður haldið
dómaranámskeið í fimleikum.
Kennslan fer fram á kvöldin frá
kl. 19—22 alla dagana. í júlímán-
uði verður kvennaleikfimi á
dagskrá fyrir allar hressar konur
þriðjudags- og fimmtudagskvöld
kl. 20. Þetta verður fjölbreytt
námskeið m.a. trimmað úti og
hoppað á trampólíni. Á eftir er
hægt að skella sér í gufu eða ljós.
Dagana 15.—19. ágúst verður
haldið framhaldsnámskeið fyrir
þjálfara, svokallað B-námskeið.
Það verður sérhæft fyrir fimleika
og verður á kvöldin, kl. 18—21 alla
dagana. Skráning á öll þessi nám-
skeið er hafin i Gerpluhúsi.
(Fréttatilkynning)
Fri lokahófinu í íþróttahúsinu. Mor(iiBbto«i»/Steiaar
22. lands-
þing JC á
Hornafirði
Höfn, 21. maí.
UM HVÍTASUNNUNA var haldið 22. landsþing JC og
að þessu sinni á Hornafirði. Er þetta fjölmennasta þing
sem hefur verið haldið hér i Höfn. Þitttakendur voru
rúmlega 300 talsins, víðsvegar að af landinu og erlendis
frá. Hingað komu allir landsforsetar Norðurlandanna,
alþjóðlegur varaheimsforseti fri Ástralíu o.fl.
Fimmtudaginn 19. maí var þingið sett. Á dagskrá
þingsins voru námskeið, rökræðueinvígi o.fl. Á kvöld-
in var slegið á léttari strengi. Hótelið var fullsetið og
var því einnig gist í Nesjaskóla, Ásgarði og í heima-
húsum. Lokahóf var á sunnudagskvöld í íþrótta-
húsinu. Forseti JC Hornafjarðar er Þrúðmar S.
Þrúðmarsson.
Steinar
greininni „fimleikar" og eflist fé-
lagslega sem líkamlega. Aðal-
atriðið er þó inægjan.
Stjornandi námskeiðanna verð-
ur yfirþjálfari fimleikadeildar
Waldemar Czizmovsky og með
honum starfar Kristín Gísladóttir
íslandsmeistari í fimleikum.
Takmarkaður fjöldi barna verður
á hverju námskeiði og er innritun
þegar hafin í Gerpluhúsi. Dagana
1.6,—5.6. verður haldið A-nám-
skeið fyrir þjálfara. Námskeiðið er
ætlað öllum þjálfurum alls staðar
Hádegisverð-
arfundur Kven-
stúdentafélags-
ins á laugardag
Kvenstúdentafélag íslands heldur
síðasta hádegisverðarfund vetrarins
í Arnarhóli i morgun, laugardag, 28.
maí, kl. 12.15.
Sigurður Þorvaldsson læknir
flytur þar erindi um lýtalækn-
ingar, en „plastik“-aðgerðir hafa
færzt mjög í vöxt hér sem erlend-
is.
Þá mun Arndís Björnsdóttir
formaður félagsins skýra frá
styrkjum og boðum, sem Kven-
stúdentafélaginu er gefinn kostur
á.
Nýjir félagar eru velkomnir á
þennan fund.
' ■ft- i —■
^/\skriftar-
síminn er 830 33
Sjúkrastöð SÁÁ
OPtÐHÚS
Laugardaginn 28. maí kl. tvö til sex eh. verður sjúkrastöð SÁÁ til sýnis.
SÁÁ býður öllum landsmönnum að koma í heimsókn og skoða hina nýju
sjúkrastöð sem nú er komin undir þak.
Öllum gestum verður boðið upp á kökur og kaffi eða gosdrykk.
Skemmtiatriði hefjast kl. 3. Þá mætirTóti trúður og Dixielandhljómsveit leikur.
Fjölmennið og njótið dagsins með SÁÁ.