Morgunblaðið - 29.05.1983, Síða 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1983
• Kerfossinn. Þessi foss var ólaxgengur, en laust eftir 1970 sprengdu landeigendur rás og nú • Veiðimaóur rennir i Lambafossi, einum besta veiðistaðnum í gegn um árin.
gengur mikið af fiski upp fyrir.
Ekki eintómar sorgarsögur
frá íslenskum laxveiðiám
— í Álftá á Mýrum hefur laxveiði aukist
Það þarf ekki að minna laxveiðimenn á þá staðreynd, að veiðin
hefur minnkað stórkostlega þrjú síðustu sumrin. Stigminnkandi afli
og síðasta sumar var það lakasta. Sjávarveiðar, vorkuldar og ef til
vill fleira spilar eflaust skuggalegt samspil í þessu máli. Nær allar ár
landsins hafa boðið upp á stórhrakandi veiði, rýrnunin hefur auðvit-
að verið mismikil, en þar sem mest er, í Þistilfirði og Vopnafirði er
orðið sem ber að nota ekkert annað en „ordeyða". Ein og ein á er
með 20—30 löxum meira eitt árið en annað og einstaka smærri á
heldur sig nokkurn veginn boðlegri þó jafnvel þær bjóði ekki upp á
þá miklu veiði sem var fyrir fáum árum. Þess vegna þykir mönnum
merkilegt þegar þeim verður starsýnt á Ijós í myrkrinu. A, sem ekki
aðeins heldur sínu í eyðingunni miklu, heldur á sem þvert gegn
straumnum bætir við sig. Þessi á heitir Alftá og er á Mýrum.
Eitt og annað um Álftá
Álftá er vatnslítil og á þurrka-
sumrum eru þeir margir sem líta
varla við henni þegar þeir bruna
yfir brúna hjá Brúarlandi. Þetta
er alllöng á frá upptökum til ósa.
Hin svokallaða Veitá á upptök í
Hraunsdal og skammt fyrir ofan
brúna hjá Brúarlandi rennur í
hana kvísl sem heitir Álftá. Segja
má að þá sé hin eiginlega Álftá
loks mætt til leiks ef svo mætti að
orði komast. Neðstu stangaveiði-
staðir í ánni eru við Álftárbakka,
þaðan eru um 5—6 km til sjávar
og rennur áin lygn og meinleysis-
leg þann spotta. Góður veiðistaður
er rétt fyrir ofan Brúarland, Pott-
urinn, sem er tilkominn af manna-
völdum. Stangaveiðisvæðið er því
ekki langt þegar að er gáð. Frá
Brúarlandi og niður að svo-
kölluðum Kerfossi sem er svona
nokkurn veginn á móts við Arn-
arstapa þykja mönnum vera veiði-
leysur og nenna ekki að ganga í
leit að laxi.
Síðustu árin hefur þessi litla en
merkilega laxveiðiá haft frá 250
löxum upp í 396 stykki. Athyglis-
vert er að síðasta sumar var metár
í Álftá. Og það á sama tíma og
aðrar ár hraka geigvænlega. Það
má auk þess bæta við, að sumrin
þrjú sem talist hafa til aflabrests-
ára hafa ekki verið lakari en svo,
að eitt þeirra var metár í Álftá,
hin voru í meðallagi góð ár. Mbl.
leit við í Álftártungu hjá Páli
Þorsteinssyni fyrir skömmu og
hitti hann að máli ásamt Sigurði
Guðmundssyni frá Arnarstapa.
Þeir voru spurðir hvernigá þessari
jöfnu og jafnvel vaxandi veiði f
Álftá stæði.
Páll: — Ja, ég veit eiginlega ekki
hvað skal segja. Sjálfsagt eru
skýringarnar fleiri en ein og það
má nefna fyrst, að þegar veiðifé-
lag var stofnað um 1972 eða svo,
voru öll net tekin upp úr ánni, en
mikið af laxi var tekinn i þau,
einkum neðarlega í ánni, fyrir
neðan stangaveiðisvæðin.
Sigurður: — Svo er annað, um
svipað Ieyti var Kerfossinn gerður
laxgengur, en það fór ekkert af
fiski upp fyrir hann áður. Síðan
slepptum við miklu magni af seið-
um fyrir ofan og möguleikar lax-
ins eru miklir fyrir ofan Kerfoss,
góðir hyljir að hvíla sig í og góð
hrygningarsvæði.
Páll: — Álftá hefur þann kost,
sérstaklega hérna upp frá, að hún
ryður sig ekki. Þarna eru víða úr-
valshrygningarsvæði sem spillast
ekki af vatnavöxtum. Áin býður
upp á góð skilyrði fyrir uppvax-
andi seiði og ég er ekki í vafa um
að þessir auknu möguleikar á
náttúrulegu klaki vegur þungt á
metunum.
En hvað með Kerfossinn?
Páll: — Hann er einn besti
veiðistaðurinn í ánni og lagfæring
fossins var talsvert mál á sínum
tíma. Við lentum í deilum við
veiðimálastjóra um hvernig þessu
skyldi hagað. Við vildum einfald-
lega sprengja rás í fossinn, en
hann vildi ekki heyra annað nefnt
en við fengjum laxastiga. Við fór-
um okkar fram og gerðum það
fyrir vikið án fjárveitinga og
styrkja. Þetta kostaði okkur á sín-
um tíma 180.000 krónur, kostnað-
ur af laxastiga var þá áætlaður
5—600.000 krónur. Þetta heppnað-
ist vel og síðan hefur mikill lax
gengið upp fyrir Kerfoss.
Laxinn í Álftá hefur löngum þótt
vænn?
Sigurður: — Já það er rétt, en
því miður hefur hann smækkað
nokkuð síðustu árin. En áður fyrr
var lítið af smálaxi í þessari á. Ég
heyrði stærst talað um 22 punda
lax í Álftá og veiddi sjálfur stærst
18 pund í Stekkjarfljóti. En það
var mikið veitt í net og með
ádrætti áður fyrr og það voru eng-
ir smálaxar sem þá komu úr ánni.
Þeir voru ekki vigtaðir úr netun-
um, en sá 22 punda var örugglega
ekki sá stærsti.
Páll: — Auk þess hafa menn tal-
ið sig þekkja úr hinn gamla Álft-
árstofn. Það eru stuttir laxar mið-
að við þvngd og mjög þykkir og
sverir. Álftá hefur alltaf verið
fyrirstöðulaus laxinum, hann
komst ekki fram fyrir Kerfoss áð-
ur og hann er honum auðveldur
uppgöngu eftir breytinguna. Þetta
vaxtarlag er víst stundum á laxi
úr ám af þessu tagi. En það er rétt
sem Sigurður sagði áðan, laxinn
hefur smækkað og þeir smáu eru
greinilega af öðrum stofni. Þeir
eru mjóslegnari. Þetta er að mínu
viti fiskur af Elliðaárstofninum,
Stangaveiðifélagið var með Álftá
á leigu fyrir nokkrum árum og
sleppti þessum stofni þá í hana.
Þetta er geysilega harðgerður og
bráðþroska stofn og fiskar úr hon-
um hafa sterka tilhneigingu til að
ganga í ána strax að loknum ein-
um vetri í sjó. En gamli stofninn
er ekki horfinn, langt frá því.
Sigurður: — Þá ber meira á því
síðustu árin að laxinn gangi fyrr á
sumrin þó það sé mismunandi frá
ári til árs. Hér áður fyrr gekk lax-
inn seint, aldrei fyrr en líða tók á
júlí og það tók því varla að hefja
veiðar fyrir alvöru fyrr en kominn
var ágúst. Þá var líka veitt af
kappi og fram á haust.
Páll: — Annars hefur einn hlut-
ur vakið spurningar hjá mér. Mér
vitanlega var lítið sem ekkert um
það áður fyrr að laxinn væri í
neinu magni i ánni yfir veturinn.
Ég man aldrei eftir slíku og tals-
vert var átt við silungsveiðar á
vorin, í apríl og mai. En við höfum
neyðst til að leggja þær veiðar
niður, því nú ber svo við að allt
morar i niðurgöngulaxi. Og þeir
eru svo gráðugir greyin, gleypa
meira að segja beran öngul.
En skaða sjávarveiðar ekki veið-
ina að ykkar mati?
Sigurður: — Það varð að hætta
vorveiðunum laxins vegna. Það er
fyrir öllu að hann komst út i sjó,
þar er hann óhultur. Ég hef ekki
trú á því að Álftárlaxinn verði
fyrir óvenjulegu fjörtjóni í sjón-
um.
Páll: — Þessu er ég sammála, ég
tel að sjávarveiðar Færeyinga hafi
engin áhrif á laxgengdina í Álftá.
Ef svo væri myndi veiðin i ánni
varla aukast á sama tíma og hún
minnkar annars staðar. Þó er ég
alls ekki að segja að sjávarveiðar
• Morgunafli úr Álftá. Stærsti laxinn er gott dæmi um Álftárstofninn, hann
virðist ekki mikið stærri en smálaxarnir sem eru 4—6 punda. Þetta er þó 9
punda fiskur.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem vottuðu mér
vináttu og tryggð á 85 ára afmœli mínu 22. maí sl.
SIGURLÍNA BJÖRNSDÓTTIR
FRÁ HOFI.
Túnþökur
Góöar vélskornar túnþökur til sölu.
Skjót afgreiösla.
Landvinnslan sf.,
sími 78155 á daginn og
45868, 17216 á kvöldin.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Ég þakka bömum mínum, tengdabömum, systkinum,
vinum og kunningjum ógleymanlegar stundir á 70 ára
afmœli mínu 20. maí si með heimsóknum, gjöfum og
tdýju handtaki. Guð blessi ykkur öll
Petrea Georgsdóttir.
SVIFFLUG
Námskeið í svifflugi verður haldiö á Sandskeiði í
sumar.
Innritun og upplýsingar í símum: 17214 og 74288.
SVIFFLUGFÉLAG ÍSLANDS.